Morgunblaðið - 26.10.1954, Blaðsíða 16
Veðurúiiif í dag:
SV-kaldi. Síðan skýjað. Gola.
245. tbl. — Þriðjudagur 26. október 1954
Frá úfvarpinu
Sjá grein á bls. 8.
Sjóma&ur drukknar
af togaranum Ge/V
Mannsins isiíað í ivo fíma en án árangurs
ÞAÐ SVIPLEGA slys vildi til síðastl. föstudagsmorgun um 10
leytið, er togarinn Geir var að karfaveiðum út af Vestfjörð-
um, að maður féll fyrir borð og druknaði.
Maður þessi var Björn Frið-
steinsson, Bergstaðastræti 10 C.
Var hann annar matsveinn á tog-
aranum og var þetta fyrsta ferð-
in, sem hann fór með því. Hann
var 24 ára gamall og ókvæntur.
LEITAÐ í TVO TÍiVIA
Enginn skipsverja var við-
staddur er Björn féll fyrir borð,
en þess varð vart að hann vant-
aði um 10 leytið. Var þá veður
hið bezta og sléttur sjór. Var
skipinu strax snúið við og leitað
í tvo tíma á því svæði, sem lík-
legt þótti að slysið hefði viljað
til á, en leitin bar ekki árangur.
Fullt samkomulag um markmið
og skipun Iðnaðarmálastofnunar
IÐNAÐARMÁLARÁÐHEPi,RA hefur lagt fyrir Alþingi frumvarp
til laga um Iðnaðarmálastofnun Islands. í frumvarpinu segir,
að tilgangurinn með Iðnaðaarmálastofnuninni sé að efla framfarir
í íslenzkum iðnaði.
VERKEFNI
STOFNUNARINNAR
Þessum tilgangi skal náð með
því m. a.:
1. Stuðla að umbótum á vinnslu
og meðferð iðnaðarframleiðsl-
unnar með því að kynna þeim,
er iðnað stunda, tæknilegar nýj-
ungar og veita þeim leiðbeining-
ar, er miði að auknum afköstum,
verknýtingu og vöruvöndun.
2. Rannsókn mikilvægi ein-
stakra þátta í framleiðni (prod-
uktivet) iðnaðarins og kynna
árangurinn, svo að notum komi
fyrir iðnfyrirtækin og tækni-
fræðsluna í landinu.
3. Efla samvinnu milli fram-
leiðenda, stofnana og félagasam-
taka innanlands um viðleitni til
framfara í íslenzkum iðnaði, og
liafa náið samstarf við þá aðila
um þessi mál.
4. Leggja grundvöll að viður-
kenndum mælikvörðum eða fyr-
irmyndum (standards) fyrir ís-
lenzka iðnaðarframleiðslu, í sam-
ræmi við það, er bezt þekkist er-
lendis, og stuðla að því að komið
verði á gæðamati iðnaðarvara.
5. Vinna að því, í samráði við
Hagstofu fslands, að ár hvert sé
gefin út heildarskýrsla um iðnað-
armálin í landinu.
6. Hafa samband og samstarf
við hliðstæðar erlendar tækni-
stofnanir.
■■ Áss SKfll
TIL RÁÐUNEYTIS
RÍKISSTJÓRNINNI
Þá er og tekið fram í frum-
varpinu, að Iðnaðarmálastofnun-
in skuli vera ríkisstjórninni til
ráðuneytis í tæknilegum vanda-
málum er iðaðinn varða, öðrum
en fiskiðnaði.
8 MANNA STJÓRN
Varðandi stjórn stofnunar-
innar er lagt til að hún sé
skipuð af iðnaðarmálaráð-
herra til 4 ára í senn. For-
mann stjórnarinnar skipar ráð
herra án tilnefningar, en 7 fuli
trúar skulu eiga sæti í stjórn-
inni að fegnum tillögum eftir-
talinna félagasamtaka: Félags
ísl. iðnrekenda, Landssam-
bands iðnaðarmanna, Samb.
ísl. samvinnufélaga, Vinnu-
veitendasambands íslands, Iðn
sveinaráðs ASÍ og Alþýðu-
sambands íslands. Það síðast-
nefnda tilnefnir 2 fulltrúa, en
hinir einn hver.
NEFND SKIPUÐ 20. FEBR.
f greinargerð er sagt frá því,
að Ingólfur Jónsson iðnaðarmála-
ráðherra, hafi 20. febr. s. 1. skip-
að sjö manna nefnd til þess að
semja lög og-reglur um Iðnaðar-
málastofnun íslands og er frum-
varpið samið af nefnd þeirri, þó
með minniháttar breytingum. —
Lagði iðnaðarmálaráðuneytið á-
herzlu á það að nefndin skilaði
sameiginlegu áliti í frumvarps-
formi fyrir næsta Alþingi.
í nefndinni áttu sæti:
Kristján Jóh. Kristjánsson,
form. Fél. ísl. iðnrekenda, Björg-
vin Frederiksen, form. Lands-
sambands iðnaðarmanna, Bene-
dikt Gröndal, í framkvæmdastj.
Vinnuveitendasamb. íslands, Ósk
ar Hallgrimsson, form. Iðnsveina-
ráðs Alþýðusambands íslands,
Kristjón Kristjónsson, framkv.-
stjóri, fulltrúi Sambands ísl.
samvinnufélaga, Þorsteinn Gísla-
son, verkfræðingur hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna, og Páll
S. Pálsson, lögfræðingur, sem
skipaður var formaður nefndar-
innar.
Við samningu frumvarps-
ins hafði nefndin til hliðsjónar
að nokkru frumvarpstillögur
frá þriggja manna nefnd, sem
séð hefur um stofnsetningu
og byrjunarrekstur Iðnaðar-
málastofnunarinnar og að
öðru leyti samþykktir og
starfsreglur frá nágrannalönd-
unum.
Var fullkomið' samkomulag
innan nefndarinnar um mark-
mið stofnunarinnar og skipu-
lag.
Hollandsfararnir ásamt forseta Skáksambands íslands, Elís Ó. Guð-
mundssyni. Á myndina vantar Guðmund Pálmason, sem er við
nám í Svíþjóð. — Aftari röð, talið frá vinstri: Ingi R. Jóhannsson,
Friðrik Ólafsson, Guðmundur Ágústsson og Guðmundur S. Guð-
mundsson. — Fremri röð: Guðmundur Arnlaugsson og Elías Ó.
Guðmundsson. — Myndina tók Ijósmyndari Mbl., Ólafur K. Magnús-
son, í Sjálfstæðishúsinu í gær.
Hollandsförtanum þökk-
uð góð frammistaða
ASUNNUDAGINN voru mættir í Sjálfstæðishúsinu skákmenn
þeir, sem tefldu á skákmóti því, sem haldið var fyrir skemmstu
í Hollandi. Voru þar fluttar ræður og skákir sýndar. Meðal þeirra,
sem töluðu, var borgarstjórinn í Reykjavík, Gunnar Thoroddsen.
Lítil síldveiði
AKRANESI í gærkvöldi.
TÓLF trillubátar reru héðan á
sunnudag og öfluðu ágætlega,
eða allt upp í 1500 kg. á bát.
I dag reru trillubátarnir tólf
og var aflinn almennt mjög góð-
ur, Aflahæsti báturinn var með
1600 kg.
Aðfaranótt sunnudags létu 7
reknetjabátar héðan, Haraldar-
bátarnir, reka á þei mslóðum, þar
sem Ægir fann síldina á laugar-
dag. Bátarnir sökktu netjunum
eins og venjulega, nema Reynir,
sem söktí helming netja sinna
hálfu skemmra en hinir og var
Reynir eini báturinn, sem aflaði
síld að ráði. Fékk hann 75 tunn-
ur. —
Hjá suiríum hinna bátanna
skemmdust netin af völdum há-
hyrninga.
I dag voru netin tekin á land
úr öllum bátunum. Eru þeir hætt-
ir síldveiðum.
Vatnajökull var hér í dag og
lestaði hraðfryst lúðuflök.
Málfundafélagið Óðinn
Trúnaðarráðsfundurinn er í
kvöld kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu.
Til umræðu: áríðandi félags-
mál----Meðlimir trúnaðarráðsins
eru beðnir að fjölmenna og mæta
stundvíslega.
Stjórn Óðins.
AKUREYRI
ABCD EFGH
ABCD EFGH
REYKJAVÍK
10. leikur Reykvíkinga:
Rb5—c3
PENINGAGJAFIR
ÞAKKAÐAR
Fyrstur tók til máls forseti
Skáksambandsins, Elís Ó. Guð-
mundsson. Færði hann Guðmundi
Arnlaugssyni þakkir fyrir frá-
bæra fararstjórn. Einnig þakkaði
hann skáksveitinni fyrir góða
frammistöðu á mótinu, — og öll-
um þeim, sem styrktu skáksveit-
ina, svo að af förinni gat orðið.
Næstur tók til máls Guðmund-
ur Arnlaugsson. Kvað hann ferð-
ina hafa orðið frekar sögulitla.
íslenzku skákmennirnir hefðu
byrjað vel, en þegar í aðalúrslitin
kom, hafi gæfan snúið við þeim
bakinu. Bezti árangur þeirra á
mótinu hefði orðið á móti Júgó-
slövum, -sem urðu þriðju í röð-
inni. Síðan Skýrði Guðmundur
frá því, að margir ísiendingar,
sem dveldust erlendis, hefðu
komið til Amsterdam til að fylgj-
ast með mótinu.
TVÆR SKÁKIR SÝNDAR
Að lokinni ræðu Guðmundar,
sýndi Friðrik Ólafsson eina skák,
sem hann hafði teflt á mótinu við
Porath frá ísrael, sem er mjög
sterkur skákmaður. Sett hafði
verið upp skákborð, svo að allir
viðstaddir gátu fylgzt með skák-
inni, sem var hin athyglisverð-
asta. Þessa skák vann Friðrik
mjög glæsilega, en hann. hafði
svart.
Næst sýndi Guðmundur S. Guð
mundsson skák, sem hann vann
á móti Lundin frá Svíþjóð.
BORGARSTJÓRI ÁVARPAÐI
SKÁKMENNINA
Eins og áður segir, heiðraði
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri skákmennina með því
að koma og ávarpa þá. Sagði
hann, að með engu skákmóti
hefði verið fylgzt eins mikið
hér á landi og móti því, sem er
nýafstaðið í Hollandi, þar sem
hinir íslenzku skákmenn hefðu
staðið sig með ágætum og orðið
landi og þjóð til hins mesta sóma.
Borgarstjóri ræddi þessu næst
nokkuð um skáklistina. Að lokum
bað hann viðstadda að rísa úr
sætum og hrópa ferfallt húrra
fyrir Hollandsförunum og afrek-
um þeirra.
Loks talaði Guðmundur Arn-
laugsson aftur og bar fram þakk-
læti til forseta Skáksambandsins,
Elísar Ó. Guðmundssonar, sem
hann kvað hafa átt hugmyndina
að peningasöfnuninni. Hefði
hann lagt á sig mikið erfiði, svo
að af þessari för mætti verða.
Starf hans í þágu skáklistarinnar
væri bæði mikið og gott, sem
hann kvaðst vilja þakka honum
fyrir við þetta tækifæri.
Sjálfstæðishúsið var fullskipað
tilheyrendum, sem áreiðanlega
nutu þess í ríkum mæli, sem fram
fór.
Sjálhfæðismanna
á Keflavíkurflupelli
SJÁLFSTÆÐISMENN á Kefla-
víkurflugvelli munu halda kvöld-
vöku í Samkomuhúsinu í Njarð-
vík annað kvöld kl. 9. Bjarni
Benediktsson, dómsmálaráðherra
heldur ræðu á kvöldvökunni,
Guðmundur Jónsson, óperusöngv
ari syngur og Brynjólfur Jó-
hannesson, gamanleikari og Har-
aldur Á. Sigurðsson skemmta. —•
Hljómsveit Aage Lorange mun
leika fyrir dansi.
Ekki er að efa að Sjálfstæðis-
menn á Keflavíkurflugvelli muni
fjölmenna á þessa kvöldvöku.
Um 100 hestar af heyi brenna
Eldur kemur upp í votheyshlöðu, sem notuð
var sem þurrheysgeymsla.
AKUREYRI, 25. okt.
ER BÓNDINN að Æsustöðum í Eyjafirði, Steingrímur Níelsson,
kom út að morgni síðastl. laugardags, um kl. 6,30, sá hann hvar
reyk lagði upp af fjóshlöðunni, eða votheyshlöðu, sem stendur
norðan við fjóshlöðuna. Er hann hugði betur að, varð hann þess
var að eldur var neðarlega í votheysgeymslunni, en í henni voru
geymdir á annað hundrað hestar af há.
SETT IHLOÐUNA
FYRIR MANUÐI
Á föstudagskvöldið hafði verið
gengið þarna um og hafði hey
þá verið tekið úr hlöðunni og
bar þá ekki á neinu og hafði ekki
orðið vart neins óeðlilegs hita í
hlöðunni. Hey það er í votheys-
geymslunni var geymt, var sett
í hana fyrir miðjan september í
haust. Fyrst á eftir var fylgzt
með því hvort hiti kæmi í hlöð-
una, en ekki var svo að sjá. Hey-
ið hafði verið vel þurrt, er það
var tekið saman, en eitthvað
rignt í það í sæti. Nú undanfarið
hafði ekki verið haft sérstakt
auga með hlöðunni með tilliti til
hita, því að engum kom til hug-
ar að kvikna mundi í svo löngu
eftir að heyið var tekið inn. —
Byggingar allar eru til þess að
gera nýlegar og góð járnþök á
hlöðum, svo að varla mun vera
um það að ræða að vatn hafi
komizt í heyiö eftir að það var
komið inn.
ERFITT AÐ GRAFA UPP i
BRENNANDI HEYIÐ
Þegar var hafizt handa að
1 ná í manríhjálp til þess að grafa
upp heyið og ráða niðurlögum
1 eldsins. Um kl. 7,30 náðist í
slökkviliðið á Akureyri og brá
, það þegar við og hélt fram að
| Æsustöðum. Nágrannar Stein-
gríms bónda og sveitungar þustu
þegar á vettvang til hjálpar og
unnu um 40 manns að slökkvi-
starfinu á laugardaginn, en þvi
var ekki lokið fyrr en um kl.
15 í gærdag. Þurfti að grafa heyið
bæði upp úr hluta af fjóshlöð-
unni og svo votheyshlöðunni, sem
, er mjög djúp. Var þetta, eins og
I gefur að skilja, bæði illt verk og
j erfitt. Svo hagar til byggingum,
að á milli hlaðanna eru göt í
• steinvegginn, þar sem votheyið
I er venjulega tekið í gegn og inn
í fjóshlöðuna. Af þessum sökum
[ gat eldurinn borizt inn í f jóshlöð-
una og kveikt í heyinu þar.
| Talið er að um 100 hestar aí
heyi hafi eyðilagzt í brunanum.
— Vignir.