Morgunblaðið - 27.10.1954, Blaðsíða 1
16 síðiir
41. árgangur.
246. tbl. -— Miðvikudagur 27. október 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Adenener segir á fundi með ísSenzkum fréttamönnum
Einiif Vestrænno þjóðn tryggð á Parísar-ráðstefnunni
SeisnsSsiSes þeirra eisaa leiSin
€íÆ iú Mússa tii að semja
Mynd þessa tók ljósm. Mbl., Ól. K. M., við komu Adenauers til
Reykjavíkur í gær.
Fyrírhygeður viðskiptasamningur
V.-I>ýzkaiasids og Bandaríkjanna
Viðskipta- og menningarsáttmáli Frakka og
V.-Þjóðverja birtur í París og Bonn.
WASHINGTON, 26. okt. — Reuter-NTB
BtJIZT er við, að Adenauer, ríkiskanslari Þýzkalands, muni í
næstu viku undirrita vináttu- og viðskiptasamning við Banda-
ríkin. En eins og kunnugt er, hélt Adenauer áleiðis til Bandaríkj-
anna með viðkomu á íslandi í gær. Ekki hefir enn verið gengið
frá samningi þessum í smáatriðum, en ætla má, að Dulles, utan-
ríkisráðherra Banuaríkjanna, og Adenauer, gangi endanlega frá
samningsatriðum n. k. föstudag. Adenauer mun dveljast fjóra daga
í Washington.
BIRTUR VIÐSKIPTA- OG
MENNINGARMÁLA-
SÁMNINGIJR FRAKKA OG
V. ÞJÓÐVERJA
í dag voru birt í París og
Bonn einstök atriði viðskipta- og
menningarmálasamnings þess, er
Véstur-Þjóðverjar og Frakkar
hyggjast gera með sér og gengið
var frá endanlega í París í s.l.
viku af Mendes-France og Dr.
Adenauer. Samningur þessi er
ekki beinlínis í sambandi við
lausn þá, er náðist á Saar-deil-
unni. Frekari umræður um verzl-
unarviðskipti hefjast í næsta
mánuði.
FRÖNSK-ÞÝZK
VIÐSKIPTANEFND
Markmið samnings þessa er að
efla verzlunarviðskipti milli
^Frakka og Þjóðverja, einkum á
korntegundum og sykri, einnig
hafa verið ræddar áætlanir um
frekari viðskiptasamvinnu hinna
tveggja þjóða bæði í Evrópu og
annarsstaðar í heiminum. Lögð
hafa verið drög að stofnsetningu
1 fransk-þýzkrar viðskiptanefndar.
| MENNINGARÞING
Einnig hefur orðið samkomu-
lag um að halda menningarþing,
er muni verða upphafið að gagn-
kvæmum skiptum milli þjóðanna
á kennurum, vísindamönnum,
| námsmönnum og tæknilega fróð-
um mönnum. Aukin verður
kennsla tungumála þessara þjóða
í skólum beggja landanna og
reynt að auka önnur menningar-
ieg skipti þeirra sem mest með
aðstoð bóka og kvikmynda.
„Fljúgandi diskar“
RITHÖFUNDURINN John Stein-
beck, sem nú er búsettur á Ítalíu,
er að skrifa leikrit, sem kallast
„Fljúgandi diskar". Höfundurinn
lítur á þessi leyndardómsfullu
fyrirbæri himinhvolfsins sem
tákn þeirrar ókyrrðar, er nú rik-
ir í heiminum.
unni orðið að hraða för þangað
með aðeins skammri viðkomu í
Bonn.
j En á leiðinni vestur vildi hann
nota tækifærið til að heimsækja
ísland og sérstaklega Þingvelli,
þar sem fyrsta þjóðþing Vestur-
Evrópu var grundvallað.
HREIFST AF FEGURÐ
ÍSLANDS
Nú þegar skammt er til brott-
farar get ég ekki annað en látið
í ljósi hve sérstaklega ánægður
ég er með heimsókn mína hing-
að. Þar er fyrst að nefna náttúru-
fegurð lands ykkar. Ég hafði
heyrt af henni látið, en ég hafði
ekki ímyndað mér hana slíka,
en dagurinn var líka óvenjulega
fagur.
Einnig þakkaði hann fyrir góð-
ar móttökur forseta, forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra og ann-
arra ráðherra.
SAGA ÍSLANDS SÖGÐ
Á ÞINGVÖLLUM
Dr. Adenauer minntist sérstak-
lega hinnar áhrifaríku dvalar
sinnar að Þingvöllum, þar sem
Alþingi var stofnað. Þar var
skýrð fyrir honum saga íslenzku
þjóðarinnar. Sú saga var, sagði
hann, sem betur fer ekki saga
styrjalda heldur frásögn af menn
ingu þjóðarinnar, lífsanda henn-
ar og bókmenntum. Hann kvaðst
hafa heyrt ýmislegt áður um sögu
íslands, en það hefði verið sér-
staklega áhrifamikið að hlýða á
I það á þessum stað.
ÁRANGURSRÍK RÁÐSTEFNA
Eins og mönnum er kunnugt er
ísland fyrsta landið, sem dr.
Adenauer heimsækir eftir París-
ar-ráðstefnuna. Hér hélt hann
því fyrsta fund með fréttamönn-
um eftir hina sögufrægu samn-
ingsundirritun og var því eðli-
legt að fulltrúar hinna íslenzku
blaða beindu til hans spurning-
um varðandi Parísar-ráðstefnuna.
Adenauer kvað Parísarráð-
stefnuna hafa verið mjög árang-
ursrfka. Að sjálfsögðu var ekki
hægt að uppfylla óskir allra þátt-
tökuríkjanna. En aðalatriðið væri
hvort þýðingarmiklu markmiði
hefði verið náð.
Framh. á bls. 9
Napoli, 26. okt.
Frá Reuter-NTB
•k AÐ minnsta kosti 272 menn
liafa farizt í geysimiklu ofviðri,
sem gekk yfir Salerno héraðið á
Suður Ítalíu í dag. Var þetta til-
kynnt í Napoli seint í kvöld, er
rannsókn hafði farið fram á því
hve margir höfðu látizt í ham-
förunum.
Þar að auki er 170 manna sakn-
að. Tala særðra er um 100 manns,
en ekki er enn vitað um alla þá,
sem meiðsl hafa hlotið, að því að
talið er.
Fleiri þúsund manns misstu
heimili sín í veðrinu, en því
fylgdu mikil rigningaflóð og
vatnsflaumur.
Innanríkisráðuneytið hefir stað
fest þessar fréttir.
Björgunarstarf fór fram í all-
an dag.
Misheppnuð morðárás
á Nasser á torgfundi
Alexandria, 26. október.
Frá Reuter-NTB
ýt MORÐÁRÁS var gerð í dag á
forsætisráðherra Egyptalands,
Gamel Ábdel Nasser, er hann var
að flytja ræðu á fjöldafundi á
stærsta torgi Alexandriuborgar.
Var skotið á hann nokkrum skot-
um, en hann slapp ómeiddur.
Áheyrendur gripu tilræðismann-
stjórnaði fundinum. Var fundur-
inn haldinn til að fagna samn-
ingnum milli Breta og Egypta
um brottflutning brezks herliðs
af Súezsvæðinu.
-Ar Eftir að morðtilraunin hafði
verið gerð tók Nasser skjótlega
aftur til máls og var hinn reyf-
asti. Sagði hann, að þótt hann
létist myndi Egyptaland lifa. Það
myndi halda áfram á framfara-
braut.
Ef ég dey, þá dey ég fyrir
yður, sagði Nasser við áheyrenda-
skarann. Nýr Gamel Nasser mun
koma að mér gengnum.
★ Æpti þá lýðurinn og fagnaði.
Gamel Abdel Nasser
inn og fengu hann lögreglunni í
hendur, sem varpaði honum hið
snarasta í dyflissu.
★ Fréttir frá Alexandriu herma,
að nokkrir menn aðrir hafi verið
handteknir og einnig hafi all-
margir í mannþrönginni særzt af
skothríðinni. Eru það m. a.
menntamálaráðherra Súdan og
egypzkur lögfræðingur, sem
Narrimaii
hættislega sjúk
LAUSANNE, 26. október: — Vin-
ir og nágrannar Narriman, fyrr-
verandi drottningar Farúks,
skýra svo frá, að líf hennar sé í
alvarlegri hættu. Fyrir nokkru
var hún lögð inn á sjúkrahús í
Lausanne, en hún þjáist af kirtla-
veiki, og þarf að skera hana upp
hið bráðasta. Er það hættulegur
uppskurður.
Móðir Narriman hefir setið við
sjúkrabeð hennar, en í gær fékk
hún hjartaslag af sorg og var
lögð á sama sjúkrahús og dóttir-
Narriman er nú gift dr. Adham
el Nakib. — Reuter.
— ÚG ER ekki í neinum vafa um það að ríki þau, sem aðild áttu að Parísar-ráð-
" stefnunni, munu öll samþykkja endanlega samninga þá, sem þar voru gerðir
um sjálfstæði Þýzkalands og þátttöku þess í varnarbandalagi Vestur-Evrópu.
Og því næst munu Evrópuþjóðirnar halda áfram á braut þess árangursríka allsherjar-
samstarfs, sem nú er hafið á f jölmörgum sviðum.
Þannig fórust dr. Konrad Adenauer, forsætisráðherra Vestur-Þýzkalands, orð á
fundi, sem hann átti með fréttamönnum íslenzkra blaða, í þýzka sendiráðinu, Valhöll
við Suðurgötu. Viðstaddir fundinn voru dr. Walther Hallstein, aðstoðar-utanríkisráð-
herra, Hans Heinrich von Herwarth, skrifstofustjóri þýzka utanríkisráðuneytisins, Felix
von Eckhardt, blaðafulltrúi þýzku stjórr.arinnar, dr. Kurt Oppler, sendiherra Þjóð-
verja hér á landi og fleiri.
KEMUR RAKLEITT FRÁ PARÍS^
í upphafi ræddi dr. Adenauer
nokkuð um komu sína hingað til
lands. Hann sagði að fyrir nokkru
hefði honum verið boðið að sitja
200 ára afmælishátíð hinnar
merku mnntastofnunar Columbía
háskólans í New York. Hefði
hann að lokinni Parísar-ráðstefn
272 létusf
ofviðri á Italíu