Morgunblaðið - 27.10.1954, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.10.1954, Blaðsíða 8
MOKGUNBLAVlÐ Miðvikudagur 27. okt. 1954 sif t< Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason írá Vlgur. Lesbók: Árni Óla, sími 3Ó45. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlanda. í lausasölu 1 krónu eintakið. Maðurinn er beimli sinni á braut Ivðræ skemmtilegur, fiðlandi, syngjandi, sólskinsbarn. | Að muna börnin er fagurlega gert af Guðrúnu og göfugur er málstaðurinn. Styrkið og styðjið hana í starfi og þar með norsk- íslenzk menningartengsl. Skemmtið börnum og ykkur sjálfum um leið og þið styrkið göfugt málefni, með að sjá barna- sýninguna. Til Guðrúnar beztu þakkir fyr- ir góðan skilning á málum stúd- enta og ágæta skemmtun. Gunnar S. Magnússon. ÞAÐ VAR stórviðburður, er for- sætisráðherra Vestur-Þýzka- lands, dr. Konrad Adenauer, kom í gær hingað til lands í stutta heimsókn. íslendingar fögnuðu komu þessa mikilhæfa manns, ekki sízt fyrir það að hann kom hingað rakleiðis frá samnings- gerðinni í París, en þar tók Vest- ur-Þýzkaland sér stöðu við hlið vestrænna lýðræðisþjóða og gekk sem frjálst ríki í þau þýðingar- miklu samtök, sem stofnuð hafa verið til að vernda menningu vestrænna þjóða og sem íslend- ingar eru einnig aðilar að. Með samningunum í París eru orðin þáttaskil í sögu Evrópu og þar með alls heimsins. í stað hins áralanga fjandskapar milli tveggja öndvegisþjóða álfunnar, hafa þær tengt með sér fóst- bræðrabönd, sem full ástæða er til að ætla að geti með árunum þróazt til gagnkvæms trausts og raunhæfs samstarfs á sviðum menningar- og efnahagsmála. Sterk rök hníga að því að þetta samsfarf eigi eftir að leiða bless- un velmegunar yfir báðar þær andstöðuþjóðir, sem hér hafa sætzt fullum sáttum. Sérstaklega er ástæða til að fagna þeim stóra viðburði, að Þýzkaland hefur með þessu eignazt nýja framtíð. Með samningunum í París hefur Vestur-Þýzkaland hlotið fullt sjálfstæði. Þessi ákvörðun hef- ur verið tekin í fullu trausti þess að þýzka þjóðin hefur afneitað ofbeldis- og ofstækis- stefnum nazismans og annarra einræðisafla. í stað Þýzka- lands nazismans hefur nú fæðst nýtt ríki þýzku þjóðar- innar, sem er byggt á grund- vallarlögmálum lýðræðis og fullri viðurkenningu almennra mannréttinda. Er vissulega skemmtilegt að nær samtímis og við getum fagn- að þeim merkilega áfanga, getum við fagnað heimsókn þess manns hingað til lands, sem mest og bezt hefur unnið að því að leiða þýzku þjóðina inn á brautir lýð- ræðisins, Konrad Adenauers. í sambandi við komu Aden- auers hingað til lands gerðust þeir atburðir í gær, að komm- únistablaðið hér birti sem for- ustugrein ósmekklegar svívirð ingar á þennan virðulega -gest. Mun það hafa verið almælt í bænum í gær, að sjaldan hefðu kommúnistar áður lagzt svo lágt sem í þessum sorpskrifum og er þá mikið sagt. Meginefni þessarar árásargrein ar var það að Adenauer forsætis- ráðherra væri nazisti og stjórn Vestur Þýzkalands nýnazistasam- kunda. Svo furðulegar staðhæf- ingar leyfa kommúnistar sér að bera á borð fyrir íslenzka lesend- ur. Og það þótt vitað sé að hinn þýzki forsætisráðherra var ætíð svarinn andstæðingur ofbeldis Hitlers er hann reis til valda. Fyrir þá andspyrnu varð Aden- auer að missa stöðu sína og líða þjáningar í fangelsi nazistanna. Nú væri það í sjálfu sér ekki nóg, en hitt hlýtur að vekja furðu að nokkur skuli leyfa sér blákalt að koma með slíkar fullyrðingar eftir það þýðingarmikla starf sem þessi maður hefur unnið frá stríðslokum við að telja landa sína á þá skoðun áð Þýzkalandi beri að svipta af sér oki einræðis- aflanna, sem stefna að styrjöld og taka upp í staðinn ákveðna stefnu lýðræðis sem öll miðast við það að frelsi og mannréttindi fái að blómgast í friði. Þessari stefnu hefur þýzka þjóðin og sýnt óskorað fylgi í þeim mikilvægu kosningum sem fram fóru í Vestur Þýzkalandi s.l. haust. Úrslit þeirra voru örugg- asta sönnunin fyrir því hvernig þýzka þjóðin hefur fjarlægzt of- beldisstefnu einræðisaflanna. Það er og táknrænt að hinn virðulegi forsætisráðherra lýsti því, er hann var staddur á Þing- völlum í gær, að hann væri kom- inn hingað í einskonar pílagríms- för til þess staðar þar sem vagga þingræðis Vestur Evrópu stóð. Ekki er nema eðlilegt að enn svo skömmu eftir lok hinnar miklu heimsstyrjaldar, sem þýzkir nazistar komu af stað, heyrist enn raddir, sem bera nokkurn ugg í brjósti og nefna það að hætta geti verið á að þýzkur hernaðarandi rísi upp á ný. En hvílíkur sóðamál- flutningur er það að ætla að bendla Adenauer forsætisráð- herra við að hann ali slíkt. Fáein dæmi eru um það að of- stækismenn í Þýzkalandi hafa stofnað smáflokka nýnazista. En þessir flokkar hafa verið algerlega áhrifalausir. Þeir hafa átt nærri eins litlu fylgi að fagna og öfgastefna komm- únista og enga fulltrúa fengið kjörna á þing. Ekki fer á milli mála aé ósigur öfgaflokkanna í þýzkum stjórn- málum er einmitt vegna þess. að hinn virðulegi gestur okkar sýndi þjóð sinni fram á, að þýzka á í framtíðinni enga samleið með einræðisöflunum. Fyrir það, hef- ur Adenauer orðið að þola fjölda slíkra níðgreina frá hinni þröngu klíku þýzkra nýnasista á sama hátt og kommúnistar sendu hon- um niðgrein í íslenzku dagblaði. Hin sóðalega árás kommúnista- blaðsins mun að sjálfsögðu hvergi bíta. Hún hittir eingöngu þá, sem hafa orðið sjálfum sér mest til smánar með því að rita hana. En eftir stendur óhaggað það lokaverk Adenauers, sem sýn- ir bezt og sannar það mark, sem hann hefur stefnt að. Þjóð verjar munu taka þátt í varn- armálum Evrópu. En það er einmitt fyrir tilstilli Adenau- ers, sem enginn þýzkur þjóð- her verður stofnaður, heldur verður einn og óskiptur land- varnarher vestrænna lýðræðis þjóða í Evrópu stofnaður. — Þessi staðreynd er ein örugg- asta tryggingin fyrir því, að koma í veg fyrir það um alla framtíð, að þýzkur hernaðar- andi nái að rísa upp. Friðrik fiðlungur á sýningu Guðrúnar Brunborg. Eomasýning Gnðrónor Branborg FYRST er svjósvið í Oslofirði, fjarska litfögur og fræðandi stund í lífsspeki. Það var barizt og blómgast, en ei sem í „styrj- öld“, heldur skemmtilegum ball- ett. Kvikmyndavélinni er hér sem oftar listrænt stjórnað af Per Höst. Þá er Maríanna í sjúkrahúsi, spennandi og skýr en alvarleg barnamynd. I „Hlé“. Síðan hefst sýningin á Friðriki fiðlungi. Á undan var á íslenzku lesið ævintýrið, en tjaldið autt á meðan og því þreytandi. — Von- andi er hægt að bæta úr þessu. Að öðrum kosti fellt úr, einkum að skaðlausu þar er ýtarleg lýsing er á því í sýningarskrá. Hvernig væri að hafa þar á skuggamynd úr kvikmyndinni sjálfri eða sýna með ljósbreytingum hreina liti er féllu að efni ævintýrsins? Friðrik fiðlungur er norrænn „fyr“ frjálslegur, stritvinnandi, VeU andi ihrifar: K „Erfinginn“ í Iðnó. ÆRI Velvakandi! Mér þótti vel varið þeirri kvöldstund, sem ég fór til að horfa á „Erfingjann“ í Iðnó nú á dögunum. Þetta er langt frá því að vera neitt „æsileikrit" en ekki síður fyrir það fylgist áhorfand- Patric Townsend (Benedikt Arna son), Katharina Hoper (Guðbjörg Þorbjarnar). inn með gangi leiksins með vak- andi, óg oft spenntum, áhuga frá því fyrst, að tjaldið er dregið frá og þar til það fellur í hinu áhrifa- mikla og hádramatíska loka- atriði. Enginn svikinn. ÞAÐ er ekki ætlun mín að fara hér að koma fram með neina leiklistargagnrýni, í sambandi við þetta leikrit, enda hafa þegar komið fram leikdómar um það í dagblöðum bæjarins. Mig langar aðeins til, sem hver annar leik- maður, að undirstrika þá skoðun sem telur hlutverkunum yfirleitt gerð mjög góð skil, ekki sízt frá hendi aðalleikendanna. Með hin- um unga leikara Benedikt Árna- syni höfum við fengið á íslenzkt leiksvið sannkallaðan „charme- ur“, sem telja má víst, að eigi í framtíðinni eftir að láta sér vel 1 takast í hlutverki margs „hjarta- ' knúsarans“. — Já, „Erfinginn" hefur verðuglega hlotið mjög 1 góða dóma, enda er enginn svik- 1 inn af því að sjá hann. Mig lang- I ar til að þakka leikendunum öll- um fyrir ágæta frammistöðu og prýðisgóða ánægju, sem þeir veittu mér. — Ánægður áhorf- andi“. Nafn á röngum stað. FYRIR skömmu birtist hér í blaðinu stutt umsögn um nýtt smásagnasafn „Fólk á stjái“ eftir Jakob rithöfund Thorarensen. — Var farið mjög lofsamlegum orð- um um smásögur þessar. Af held- ur óheppilegum mistökum í prent smiðju var nafn rithöfundarins sett undir greinarkornið í staðinn fyrir mynd af honum, sem grein- arkorninu fylgdi. „Þetta er í sjálfu sér ekki nema til að brosa að“, sagði Jakob Thorarensen, er hann hringdi í okkur á ritstjórninni í gær eða fyrradag og vakti athygli okkar á þessum, reyndar augljósa mis- skilningi, sem hér með leiðrétt- ist, „en anzi held ég, að mörgum finnist ég hæla sjálfum mér kröft uglega!“ Um hljóðfæri og heimilisvélar. IBRÉFI frá húsmóður segir: „Ég sé í Morgunblaðinu 19. okt., að fram er borin tillaga á Alþingi af þeim Sigurði Bjarna- syni og Gunnari Thoroddsen um niðurfellingu tolla af hljóðfær- um o. f 1., er þetta í sjálfu sér ágætt. En mér datt í hug að benda á, hvort ekki væri brýnni nauðsyn á að lækka eða fella nið- ur tolla af rafknúnum heimilis- tækjum, ef á annað borð er hægt að draga úr tollum. Kemur harðast niður á þeim fátæku. Það ,er vitað mál, að sú ráðstöf- un að taka þessar vörur á báta- gjaldeyrislista mæltist afar illa fyrir, þar sem þetta hlaut að koma harðast niður á fátæku barnafólki. Á ég þar sérstaklega við þvotta- og hrærivélar, sem mega heita ómissandi heimilis- hjálp en vantar — því miður — enn mjög víða og einkum þar, sem þær þyrftu helzt að vera til. Eðlilegt hefði verið, að hið opinbera hefði auðveldað fólki á allan hátt að eignast þessi tæki í stað þess að torvelda það mjög með óhóflegum aukasköttum. Ég skora því á þingmenn að athuga rækilega, hvort ekki séu möguleikar á að fella skatta af þessum tækjum og láta það ganga fyrir hljóðfærunum, þó að gott væri að geta fengið þau við réttu verði. — Húsmóðir". —5 Enginn efi — engin þekking. Hallgrmkírkja GÓÐIR Reykvíkingar! í dag, 27. okt, er dánardagur séra Hallgríms Péturssonar og eru 279 ár síðan hið mikla trúar- skáld dó, í sárri örbyrgð, en þó svo miklu búinn að afreka, að eins og Matthías Jochumsson segir: „Niðjar íslands munu minnast þín á meðan sól á kaldan jökul skín“. Kvenfélag Hallgrímskirkju hef ur í dag hinn árlega merkjasölu- dag, sem helgaður er lífi og dauða séra Hallgríms Péturssonar. Vill félagið með því gefa fólki tæki- færi að leggja blóm í minning- arsveig á trúarhetjuna miklu, hetjuna er á erfiðum tímum nið- urlægingar og eymdar kvað kjark í einstaklinga og þjóðina í heild. Já, „Hvílík Ijóð og hvílíkt bænarmál.“ „Hér er skáld með Drottins dýrðarljóð, djúp svo djúp sem líf í heilli þjóð, . blíð svo blíð að heljar húmið I svart, , hvar sem stendur verður engil- bjart.“ Allir Islendingar munu kunna meira eða uiinna af ljóðum Hall- gríms Péturssonar, því „frá því barnið biður fyrsta sinn, blítt og rótt við sinnar móður kinn til þess gamall sofnar síðstu stund svala ljóð þau hverri hjartans und.“ Blessum því minningu Hall- gríms Péturssonar með því að þjóðin sameinist um að reisa hon- um ódauðlegt minnismerki á Skólavörðuhæð, kirkju Krists, er allur landslýður standi sameinað- ur að. Og á merkisdögum kirkj- unnar, hvort heldur það eru gleði- eða sorgardagar, þá' geti söfnuðirnir sameinast í því stóra musteri, til að lofá og vegsama einn sannan guð og þakka allar góðar gjafir, er okkur eru gefnar fyrir náð. Sameinumst um minningarnar og leggjum hlut í sjóðinn. Jónína Guðmundsdóttir. Hafnarfjarðarbáfar affa vel HAFNARFIRÐI — Nokkrir bát- ar stunda nú héðan veiðar með ýsulóð og hafa aflað ágætlega að undanförnu. Hafa þeir fengið allt upp i tvö tonn yfir nóttina, sem er ágæt aflabrögð. Einn bátur, Hafdís, er byrjaður línuveiðar og hefir farið í tvo róðra. Hann var með 28 bjóð í fyrri róðrinum og aflaði þá 12 skpd., og um 13 skpd. í gær. — Fleiri bátar munu vænt anlega hefja línuveiðar á næst- unni. Togarinn Ágúst kom af Græn- landsmiðum á mánudag með um 300 tonn af karfa eftir 12 daga útiveru. Hann fer aftur á veiðar í dag. Röðull kom frá Þýzkalandi á mánudag og fer út í kvöld. Hann veiðir fyrir Þýzkalands- markað. Surprise seldi í fyrra- dag í Þýzkalandi, 191 tonn fyrir rúml. 85 þús. mörk. Hann er væntanlegur á laugardag. — Hvassafellið var hér í gær og lestaði skreið. 16 þúsund tonna norskt olíu- skip kom hingað í fyrradag með rúmlega 7000 tonn af bensíni til Olíustöðvarinnar h.f. Það fór héð- an í gær. — G. E.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.