Morgunblaðið - 27.10.1954, Blaðsíða 16
Yeðurúflit í dag:
Allhvass austan. Dálítil rigning.
246. tbí. — Miðvikudagur 27. október 1954
Rifhöfundur segir frá
Sjá viðtal á bls. 9.
Heimsókn dr. Adenauers forsœtisráðherra:
í „PÍLAGRIMSFÖR" TIL FÆÐ-
INGARSTADAR LÝÐRÆDISINS
Færði forseta og ráðherrum gjafir
Lýsti ánægju yfir auknum sam-
skiptum íslendinga og Þjóðverja
Dk. konkad adenauer,
forsætisráðherra Vestur-
Þýzkalands, kom hingað í
ttpinbera heimsókn í gær. —
Kl. hálf tvö í gær gekk hann
inn í farþegaafgreiðslu
Flugfélags íslands á Reykja-
víkurflugvelli. — Um kl. 6,30
í gærkvöldi lauk heimsókn-
inni. Fór forsætisráðherrann
þá frá Reykjavík suður á
Keflavíkurflugvöll, en þaðan
var förinni heitið beint til
Kanada, þar sem hann átti að
gista í nótt, en síðan haldið
áfram til Washington. — Hin
stutta heimsókn dr. Adenau-
ers hingað tókst mjög vel. —
Suður á Bessastöðum færði
hann forsetanum að gjöf sjón-
auka til minningar um heim-
sóknina hingað. — í fegursta
veðri var dr. Adenauer, með
fylgdarliði sínu öllu, á Þing-
völlum, ásamt Ólafi Thors,
forsætisráðherra og dr.
Kristni Guðmundssyni, utan-
ríkisráðherra og nokkrum
embættismönnum. Færði dr.
Adenauer ráðherrunum fagr-
ar gjafir til minningar um
komu sína hingað til lands.
— í ræðu, sem hann flutti
við það tækifæri, kvaðst hann
vona að heimsókn sín yrði til
þess að binda þjóðirnar enn
traustari vináttuböndum. —
Er forsætisráðherrann kom
úr Þingvallaförinni ræddi
hann við blaðamenn.
KOMIÐ TIL REYKJAVÍKUR
Flugvélar þær, er fluttu dr.
Adenauer og fylgdarlið hans
sunnan frá Keflavíkurflugveili til
Reykjavíkur, lentu um kl. 1,30.
Var forsætisráðherrann ásamt
nánustu samstarfsmönnum sínum
í Skymasterflugvél írá varnariið-
inu. En auk þeirra voru dr. Krist-
inn Guðmundsson utanríkisráð-
herra, Magnús Vignir Magnússon
skrifstofustjóri og dr. Oppler,
sendiherra Þýzkalands hér. —
Höfðu þeir farið til móts við dr.
Adenauer á Keflavíkurflugvöll.
MIKLU YNGRI YFIRLITUM
Fólk, sem safnazt hafði saman
við flugstöðina og sá nú dr. Ad-
enauer forsætisráðh. í fyrsta sinn
í eigin persónu, mun almennt
hafa búizt við að sjá hörkulegan
gamlan mann. Svo var ekki. Öll
framkoma hans var yfirlætislaus.
Forsætisráðherrann, sem er 78
ára, ber aldurinn mjög vel. Svip-
ur hans er virðuiegur, hvergi
nærri hörkulegur, þó drættirnir
kringum munninn séu ákveðnir
og íestulegir, enda hefur ráð-
herrann margt reynt og orðið
að þola. Er hann yngri yfirlitum
en árin gefa til kynna. Hann
var ldæddur ljósgráum frakka
með svartan hatt á höfði.
VIÐ FLUGSTÓDINA
Á Reykjavíkurflugvelli tók á
móti forsætisráðh. við landgöngu
brúna, Ólafur Thors forsætisráð-
herra. Lítil telpa í íslenzkum
búningi, dóttir Árna Snæ-
varrs verkfr., færði dr. Aden-
auer blómvönd. Við flugstöðina
blöktu fánar Vestur-Þýzkalands
og íslands. Fjölmargir Þjóðverjar
búsettir hér í Reykjavík, voru
þar samankomnir. Frá flugvell- ]
inum var ekið beint suður að
forsetabústaðnum á Bessastöðum.
I PÍLAGRIMSFOR
Þar voru auk forsetahjónanna,
' ráðherrar í ríkisstjórn, dómarar
j í Hæstarétti og nokkrir embætt-
ismenn aðrir.
Hjá forseta hafði dr. Adenauer
og nokkrir nánustu samstarfs-
menn hans 45 mín. viðdvöld. Við
það tækifæri afhenti dr. Konrad
i Adenauer forsetanum að gjöf, til
| minningar um hina fyrstu opin-
j beru heimsókn sína til íslands,
mjög vandaðan sjónauka.
Á Bessastöðum komst for-
J sætisráðherra þannig að orði,
„að hann væri kominn í píla-
grímsför til fæðingastaðar lýð-
ræðisins í heiminum".
Á BARMI
ALMANNAGJAR
Frá Bessastöðum var ekið til
I Þingvalla. Var veður hið feg-
. ursta. Sólskin og bjart yfir. Á
| barmi Almannagjár var ctað-
, næmst og gengið að útsýnisskífu
Ferðafélagsins. Var fagurt að
horfa þaðan yfir Þingvelli í vetr-
arsólinni. Vatnið var spegilsiétt.
Fjöllin hvít. Snjólaust var að
mestu á láglendi. Vetrarkyrrð
hvíldi yfir öllu.
Þarna sagði Bjarni Guðmunds-
son blaðafulltrúi, hinum þýzku
gestum frá sögu Þingvalla og
sögu fslands. Var honum þakkað
með lófataki. Þaðan var ekið nið-
ur í gjána. Staldrað augnablik
við hjá Lögbergi, en síðan ekið
niður í Þingvallabæ, til séra Jó-
hanns Hannessonar þjóðgarðs-
varðar. Þar var gestunum borin
hressing.
í ÞINGVALLABÆ
Vegna þess hve tíminn var
naumur, var ekki unnt að hafa
langa viðdvöl í Þingvallabæ. Þar
ávarpaði forsætisráðherra, Ólafur
Thors, dr. Adenauer. Lýsti hann
ánægju sinni yfir komu hans hing
að til lands, Minntist þeirra
merku tímamóta, er nú hafa orð-
ið með þátttöku Vestur-Þýzka-
lands í samstarfi Vestur-Evrópu-
þjóða. Ráðherrann vék að sam-
skiptum íslands og Þýzkalands,
og bað menn iyfta glösum, fyrir
hinum erlendu gestum. Þessu
næst tók dr. Adenauer til máls.
Lýsti hann ánægju sinni yfir að
hafa átt þess kost, að koma hing-
að og þá sérstaklega á þennan
sögufræga stað (Þingvelli) og
hlýða á sögu hans. Kvaðst forsæt-
isráðherrann vilja bera fram ósk
um að heimsókn hans yrði til þess
að skaða enn sterkari tengsl
milli þjóðanna. En frá sendiherra
íslands í Vestur-Þýzkalandi,
Vilhjálmi Finsen, hefði hann
fengið að heyra um ánægjuleg
og vaxandi samskipti ungra ís-
lendinga og Þjóðverja.
KVEDJUR TIL ÍSLENZKU
ÞJÓÐARINNAR
Áður en dr. Adenauer forsæt-
isráðherra lauk máli sínu, færði
hann Ólafi Thors forsætisráð-
herra að gjöf stóra styttu af guðn-
um Vulcanus og dr. Kristni Guð-
mundssyni styttu af riddara. Báð-
ir eru gripirnir úr dýrasta þýzka
postulíni. Bað dr. Adenauer hina
íslenzku ráðherra að færa ís-
Fljúgandi diskar
-— eða hvað ?
SIGLUFIRÐI, 26. okt.
EFTIRFARANDI upplýsing-
ar fékk fréttaritari Mbl.
hjá skipstjóranum á varðskip-
inu Ægi, Þórarni BjörnSsyni:
„Hinn 25. þ. m. kl. 19,40 vor-
um við staddir í Siglufjarðar-
mynni, á móts við Stráka, á
leið til Siglufjarðar. Sást þá
kringlóttur hlutur, nokkuð
stór, koma svífandi með mikl-
um hraða inn yfir Siglunes og
stefndi inn yfir Nesnúp. Var
að sjá nokkurn spöl yfir fjall-
inu og flaug lárétt. Er hann
var kominn rétt inn fyrir Sel-
víkurnef, virtist stykki springa
úr þessu, og hvarf þá sýnin
í einu vetfangi. Mjög lýsti af
þessu. Veðrið var suðvestan
gola, skýjað. Þetta sást af
skipstjóra ásamt öðrum stýri-
manni, einum liáseta og vika-
dreng, er ailir voru á stjórn-
palli Ægis.“ — Guðjón.
lenzku þjóðinni kveðjur hinnar
þýzku þjóðar. Persónulega hefði
hann fyrir löngu veitt eftirtekt
merkilegu framlagi íslands á
sviði alþjóðasamvinnu.
* i
Ólafur Thors þakkaði gjafirnar
og kvað íslenzku ríkisstjórnina
myndi senda dr. Adenauer for-
sætisráðherra fallegt málverk af
Þingvöllum til minningar um
komuna þangað.
★
Litla stund eftir ræðurnar
röbbuðu menn saman. Eftir ósk
dr. Adenauers forsætisráðherra,
sem bað íslendingana, sem nær-
staddir voru, að syngja íslenzkt
lag. — Var því næst sungið
„Öxar við ána“. — En hér var
ekki til setunnar boðið, tíminn
leið óðfluga og klukkan var langt
gengin fimm, er haldið var frá
Þingvallabæ. Þá var nokkuð frost
komið á Þingvöllum. Birtu var þá
tekið að bregða, en fegurðin var
engu minni. Þegar kom upp á
Mosfellsheiði, var mjög fagurt
útsýni til austurs og eins vestur
yfir heiðina. Á vesturloftinu var
október sólin að setjast. Það var
ekki að undra þótt Þingvallaförin
Stjémmálaskóli Sjálhtæðisflokksins
verður á Akureyri.
SKIPULAGSNEFND Sjálfstæðis skemur en venjulega. Hun hann
flokksins hefir ákveðið að t hefjast 19. nóv. og standá í hálfa
aðra viku.
Auk kennslu og æfinga í ræðu-
mennsku munu sérfróðir menn
flytja erindi um alla helztu þætti
þjóðmálanna.
Þeir, sem áhuga hafa á að
sækja skóiann, eru beðnir að
hafa samband við skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
eða formann „Varðar“ félags
ungra Sjálfstæðismanna á Akur-
eyri.
halda stjórnmálaskóla flokksins
að þessu sinni á Akureyri. Er
þetta í fyrsta sinn, sem skólinn er
haldinn utan Reykjavíkur, og
þótti rétt að gera þessa tilraun
með að halda skólann annars
staðar. Eru þó ýmsir örðugleikar
því samfara, því að ýmsir þing-
m»nn og aðrir forustumenn
flokksins hafa jafnan flutt erindi
í skólanum og verða þeir því að
gera sér ferð nörður.
Skólinn mun verða nú nokkru
LISTI VÖSU
við stúdentaráðskosningaraar
Á
LAUGARDAGINN fara fram kosningar til Stúdentaráðs Há-
skóla íslands. — Er jafnan allmikill viðbúnaður hinna
hefði tekið lengri tíma en búizt pólitísku félaga innan Háskólans fyrir' kosningarnar, kosningablöð
hafði verið við, eins og veðrið
var þar í gær.
I *
í þýzka sendiráðinu við Suður-
götu, biðu blaðamenn eftir því,
: að ná fundi dr. Adenauers íor-
‘ sætisráðherra, áður en hann
héldi för sinni áfram vestur um
haf, en flugvél hans lagði af stað
klukkan sjö.
Frásögn af blaðamannafundin-
um er á öðrúm stað hér í blaðinu.^
gefin út og framboðsfundur haldinn.
Listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, við kosningar til
Stúdentaráðs 30. okt. n. k:
4.
1. Sverrir oecon. Hermannsson, stud.
2. Jónas med. Hallgrímsson, stud.
3. Ragnhildur Helgadóttir,
stud. jur.
Ingólfur Guðmundsson,
stud. theol.
Sigurður Líndal, stud. jur.
Daníel Gestsso'n, stud. polyt.
Þorvaldur S. Þorvaldsson,
stud. med.
Edda Thorlacius, stud. phil.
Richard Hannesson, stud.
oecon.
Þorvaldur Lúðvíksson, stud,
jur.
Jósef Ólafsson, stud. med.
Magnús R. Gíslason, stud.
odont.
Þórir Helgason, stud. med.
14. Anna Kristjánsdóttir, stud.
oecon.
15. Þröstur Laxdal, stud. med.
16. Gunnar G. Schram, stud. jur.
17. Haraldur Bessason stud. mag.
18 Eyjólfur K. Jónsson stud. jur.
Við síðustu kosningar til
Stúdentaráðs fékk Vaka 4 full-
trúa kjörna og munaði þá aðeins
2 atkvæðum að hún fengi 5 full-
trúa. Vökumenn eru mjög bjart-
sýnir á, að þeim muni takast að
fá 5 fulltrúa kjörna að þessu sinni
og þar með meirihluta í ráðinu.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
AKUREYRI
I
I :g 'M í m
i M &
mr.my\ i
Forsætisráðherrarnir, dr. Konrad Adenauer og Ólafur Thors, við
útsýnisskífuna á barmi Aimannagjár í gær.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
R
ABCD EFGH
REYKjAVlK
10. leikur Akureyringa:
d5—d4 |