Morgunblaðið - 28.10.1954, Page 9
FimmtudagUs.- 28. okt. 1954
MORGUNHLAtíiB
Fréttabréf af Höfðasfrönd
Úr garðinum við Helgamagra-stræti 26, „fegursta garði Akureyrar 1954“.
Fegursti garður Akureyrar í ár
er við Helga-magra-strœti 26
Akureyri, 24. okt.
FEGRUNARFÉLAG Akureyrar
hafði í dag boð inni að Hótel
K.E.A. fyrir blaðamenn og gesti
m. a. þá, er viðurkenningu höfðu
hlotið fyrir fegurstu skrúðgarða
í bænum á síðastliðnu sumri.
Sigurður L. Pálsson mennta-
skólakennari, bauð gesti vel-
komna og kvaðst mundi við þetta
tækifæri afhenda þeim verðlaun
er fegursta hefðu gert skrúðgarða
sína á síðastliðnu sumri. Hann
kvað þetta vera í fyrsta sinn sem
Fegrunarfélagið hefði haft tæki-
færi til þess að bjóða blaðamenn
velkomna. Kvaðst hann gera það
af heilum hug og þakkaði þeim
liðsinni við félagið á undanförn-
um árum. Síðan afhenti hann
verðlaunin fyrir garðana. Fyrstu
verðlaun hlaut Sigurður Guð-
mundsson klæðskeri og írú hans,
Helgamagrastræti 26, silfurbikar
með áletruninni: „Fegursti garð-
ur Akureyrar 1954.“ Fimm aðrir
garðeigendur hlutu viðurkenn-
ingu fyrir garða sína og voru
það skrautrituð skjöl. Þeir sem
þau hlutu voru: Guðmundur
Gíslason og frú, Ægisgötu 27,
Pálmi Jónsson og frú, Ægisgötu
23, Ragnar Jóhannesson og frú,
Helgamagrastræti 21, Áskell
Snorrason og frú, Rauðumýri 27
og Páll Sigurgeirsson og frú,
Eyrarlandsvegi 24.
MARGHÁTTUÐ STARFSEMI
Að þessu loknu rakti Sigurður
nokkuð starfsemi félagsins á
liðnu starfsári. Gat hann þess
að um jólin væri það fastur lið-
ur hjá félaginu að sjá um upp-
setningu og skreytingu nokkurra
jólatrjáa í bænum. Þá sagði hann
að félagið hefði farið fram á að
bærinn léti lagfæra Ráðhústorg
og hefði það verið gert, enn-
fremur að útrýmt yrði bröggum
á Eyrinni og hefði því verið lof-
að. Þá hefði félagið gengist fyrir
herferð gegn njólanum, sem hef-
ur verið mjög mikið af í bænum.
Félagið hefði látið gera bekki á
Eyðsvöllinn, en hann er nú ein-
hver fegursti blettur bæjarins.
Félagið hefði lagt fram 5000 kr.
til byggingar girðingar kringum
Listigarðinn, en það hefði riðið
baggamuninn að ráðist var í þær
framkvæmdir. Ennfremur hefði
félagið staðið að fjáröflun til
framdráttar starfsemi sinni. Að
lokum þakkaði hann dómnefnd-
inni er dæmt hefði garðana í
bænum, en tveir nefndarmanna,
þeir Árni Jónsson tilraunastjóri
og Jón Rögnvaldsson garðyrkju-
maður voru í þeirri nefnd og
voru báðir mættir þarna og tóku
til máls um fegrun bæjarins.
OF MIKIÐ AF TRJAM |
Jón kvað mikinn vanda að
dæma skrúðgarða, því að erfitt
væri oft að gera upp á milli
þeirra og oftast mætti eitthvað
að öllum finna. Hann kvað fal-
legustu garða hér í bæ í engu
standa að baki fegurstu skrúð-
görðum annars staðar á Norður-
löndum. Hann stakk upp á að
plantað yrði trjám meðfram bein
ustu og fallegustu götum bæjar-
ins, svo sem meðfram Brekku-
götunni og inn með Fjörunni.
Eitt kvað hann lýta skrúðgarða
víða hér í bæ, en það væri að of
mikið væri þar af trjám, víða
svo að grasfletir næðu ekki að
verða fallegir, vegna bess að þeir
lægju í skugga trjánna, og enn-
fremur sagði hann að of litið
væri hér af skrautrunnum.
MJOG FALLEGIR GARÐAR
Árni Jónsson tilraunastjóri
ræddi nokkuð um lyf til eyðingar
illgresi, sem hann hefir verið að
gera tilraunir með og nefndi
hann sérstaklega tvær tegundir,
sem hann kvað hafa gefið góða
raun, herbatox og agroson, og
væru bæði fáanleg hér í bæn-
um. Árni kvað þá garða, sem
verðlaun hafa hlotið vera mjög
fagra og sannkallaða bæjarprýði.
Hann sagði að úr því að nokkrir
einstaklingar væru þess megnug-
ir að koma sér upp svona fögrum
görðum ætti bæjarfélaginu að
vera vorkunnarlaust að halda við
nokkrum fallegum reitum í bæn-
um. Hann vildi líta á starfsemi
Fegrunarfélagsins sem leiðbein-
ingarstarf fyrir bæjaryfirvöldin
og kvað æskilegast að sem nán-
ast og bezt samstarf væri með
þessum tveimur aðilum.
Árni sagði að fallegustu skrúð-
garðarnir í bænum væri eitt af
því, sem hann sýndi útlendingum
er hann færi með hér um bæinn
og væru þeir hrifnir af. Sagði
hann að það ætti að verðlauna
þær götur sérstaklega er hefðu
fegursta garða, með því t. d. að
láta þær sitja fyrir við malbikun.
Var uppástungunni vel tekið.
Eftir að menn höfðu notið veit-
inga er fram voru bornar var
rabbað saman nokkra stund og
þar með lauk þessum ánægju-
lega fundi um fegrun bæjarins
okkar. —Vignir.
Bæ, Höfðaströnd, 24. okt.
TÍÐARFARIÐ allt frá göngum,
21. september, hefur verið
mjög risjótt, frost og snjór annað
slagið, en sunnan stormar og
þíður á milli. Hér er nú nokkur
snjór, en þó ekki jarðbönn, og
líkur eru til að nú sé sunnan
bloti í vændum. Töluverð fönn
er nú til fjalla og fram til dala.
Eru menn hræddir um að eitt-
hvað af fé sé í fönn, þar sem
aldrei hefur fengizt gott gangna-
veður á haustinu en eitthvað af
fé ennþá óheimt. Nokkuð eru
menn einnig hræddir við dýrbít,
því mikið hefur sézt af slóðum
eftir þann varg.
Kýr munu víðast hvar hafa
komið á gjöf um mánuði fyrr en
í fyrra. Lambfé er víðast hvar
búið að taka á gjöf. Heilsufar bú-
fjár er enn sem komið er talið
gott, þó hefur garnaveiki stungið
sér niður og þurramæðin gert
vart við sig í Hjaltadal. Þetta eru
vágestir, sem gera búendur alla
uggandi um áframhaldandi
vandræði af völdum fjárpesta.
Sökum ótíðar eiga menn nokk-
uð ógert af húsabótum, sem ljúka
átti fyrir veturinn, en víða eru
hús í byggingu, einkum eru það
útihús.
BRÚARGERÐ
Undanfarið hefur verið unnið
að brúargerð yfir Urriðalæk, sem
er á leiðinni frá Hofsós til Siglu-
fjarðár. Er hún senn búin en hef-
ur tafizt nokkuð vegna ótíðar.
Vegagerð er nú að mestu búin
frá Hofsós að Tjörnum í Sléttu-
hlíð. Fyrirhuguð er brú á Hofsá
rétt ofan við kauptúnið. Hofsós
fer þá úr aðalumferð þar sem
aðalvegur mun liggja rétt ofan
við þorpið.
RAFMAGN
Eins og undanfarið eru tölu-
verðar framkvæmdir í Hofsósi,
oddviti þeirra Hofsósinga, Krist-
ján Hallsson, kaupfélagsstjóri, er
duglegur framfaramaður, sem
ekki lætur vanta að ota þeirra
tota. Þó eru þar margir örðug-
leikar eins og víðar. Rafmagns-
mál þeirra hafa lengi verið í
vandræða ástandi, en nú er von
til að það lagist áður langt um
Bændur á Héraði birgir af heyjum
þrátt fyrir erfitt sumar
Héraði, síðasta sumardag.
NÚ er erfitt sumar að kveðja.
Einkum var september slæm-
ur, svo gamlir menn muna vart
annan verri. 16.;—18. sept. voru
þó þurrkflæsur, svo flestir gátu
drifið inn seinni sláttinn, auð-
vitað illa þurran og mjög hrak-
inn. Ýmsir áttu þó enn úti tals-
vert sem lenti undir snjó, sem
gerði 25. Snjór sá lá úpp undir
viku, og fylgdu frost mikil. Þá
kom gengur ís á Rangá, og man
það enginn í september fyrr.
Margir áttu þá nokkuð eftir
niðri í görðum af jarðeplum og
skemmdist það auðvitað mikið
af frosti, þótt upp næðist um
síðir. Að öðru leyti mun upp-
skera úr görðum hafa verið í
meðallagi.
ÖltKAR lélegir
Lán var það'að, sæmilegt veður
fékkst til aðí spiálá afréttir, og
munu heimtur.þolandi. Hinsvegar
érú dilkar mjög lélégir, svö al-
mennt munar tveimur kílóum.
Orsakir eru einkum hvað snjó-
lítið var til fjalla, og snemm-
gróið. Því fylgir svo aftur að
snemma sölnar og fellur grasið.
Kuldar og hrakviðri voru og um
rúning ánna. Má því búast við
að þær hafi geldst.
ÚM 300 HREINDÝR FELLD
Nú var leyft að drepa nokkur
hreindýr, sem hefir fjölgað mjög
undanfarið. Þykir sumum þau
fara illa með haga, sem næstir
búa afréttum og aðalstöðvum
þeirra. Upp-Héraðshreppunum
var leyft að drepa allmörg dýr.
Fljótsdælingar fengu leyfi fvrir
160, en Fellamenn 80. Hinir fyrr-
nefndu munu hafa skotið 120, N-
Fellamenn 35. Aðrir hreppar
fengu enn minna, enda verri að-
stæður fyrir þá. Alls er haldið að
hafi verið felld um 300 dýr.
Annars eru ekki enn komnar
óyggj.andi tölur um það til eftir-
litsmannsins.
BÆNDUR BIRGIR AF HEYJUM
Þrátt fyrir ótíðina í sumar er
Framh. á bls. 12
líður, þar sem nú er búið að setja
þar upp díselsamstæður, ennþá
vantar þó eitthvað af efni svo
hægt sé að Ijúka við lagnir. En
vonast er eftir að á jólum verði
rafmagnið komið í lag og nýja
stöðin tekin til starfa.
Verið er að leggja jarðsíma um
allt þorpið og setja upp skipti-
borð með 60 númerum. Einnig
er verið að fjölga símum í kaup-
túninu auk 30 notenda í sveit-
inni. Gert, er ráð fyrir að á næsta
ári komist allir 'bæir í Hofs-
hreppi í símasamband, en þeir
eru um 40 að tölu.
AÐRAR FRAMKVÆMDIR
Kaupfélagið á Hofsósi hefur nú
hafið framkvæmdir á verzlunar-
hússbyggingu, en sú framkvæmd.
stöðvaðist vegna ótíðarinnar.
Allmörg hús önnur eru í bygg-
ingu í þorpinu, enda virðist hag-
ur manna þar vera með betra
móti, eftir gott aflasumar, en.
aðal tekjustofn þorpsbúa er trillu
bátaútgerð. í haust hefur verið
mjög óstillt eins og fyrr er sagt,
og lítið gefið á sjó, enda mjög
tregt fiskirí þá sjaldan að gefið
hefur.
LÆKNISHJÓNIN KVEÐJA
Laugardaginn 23. þ. m. fluttu
frá okkur læknishjónin Guðjón.
Klemensson og Margrét Hall-
grímsdóttir. Sezt Guðjón að í
Njarðvíkum. Að þessum hjónum
er öllum mikil eftirsjá, þau eru
búin að vera hér 10 ár og hafa
aflað sér vináttu allra héraðsbúa.
Guðjóni er viðbrugðið fyrir sam-
vizkusemi og dugnað í starfi
sínu. Þar sem enginn spítali er í
aústursýslunni þurfti hann oft að
flytja sjúklinga sína til Sauðár-
króks eða Siglufjarðar, það gerði
hann oftast sjálfur, ekki ósjaldan
við mjög vond skilyrði, eins og
oft eru hér að vetri til. Jú, við höf
um misst þarna góðan lækni,
en horfum þó vongóð til hins
nýja læknis okkar, Guðniundar
Þórarinssonar, sem flutti hingað
með fjölskyldu sýna sama dag-
inn og hinn fór. Óska nú allir
héraðsbúar fráfarandi lækni sín-
um allrar blessunar og bjóða hinn
nýja hjartanlega velkominn.
— Björn í Bæ.
Firmakeppni Bridge-
sambands Islands
FIRMAKEPPNI Bridgesam-iSkallagrímsson h.f., ísl. endur-
bands íslands hélt áfram|trygging og Har. Árnason, heildv.
þriðjudaginn 26. þ. m., og var þá 94,5, Nói, Hreinn, Siríus, Smáii
spiluð önnur umferð. ' og Víkingsprent 94, Sparisj.
Eftir þá umferð eru efstir SÍF Rvíkur og nágr., Leðurverzl.
með 110 stig, Crystal með 110 Jóns Brynjólfss. og Samtr. ísl.
stig, og í þriðja sæti er dagblað- botnvörpunga 93.5, Verzl. Varmá
ið Vísir með 109.5 stig. Röðin er 93, Frón og Eggert Kristjánsson.
nú þannig: ' & Co. 92.5, Kristján Siggeirsson
SÍF og Crystal 110, Dagblaðið og Freyja 92, Hressingarskálinn,
Vísir 109.5, SÍS 107.5, Búnaðar- Nathan & Olsen og Sigf. Sig-
bankinn og Iðunnar Apótek 106,' hvatsson 91.5, Akur h.f. 91, Rúllu-
Opal 105, Timinn 104, Alm. Trygg og hleragerðin, Edv. Árnason,
ingar, Kornelínus Jónsson og II. Ólafsson & Bernhöft og Kjötb.
Völundur 103.5, Samvinnutrygg-j Borg 90.5, Feldur h.f. og Tjarnar-
ingar 103,Grænmetisverzl. ríkis-. bíó 90, Ásþjörn Ólafsson 89.5,
ins 102.5, Alþýðublaðið og Bóka-1 Lárus Arnórsson, Alliance h.f. og
útg. Guðjóns Ó. 102, Heildverzl. f Johan Rönning 89, Þóroddur
Berg og Ása-klúbburinn 101.5, * Jónsson, Kristján G. Gíslason,
Silli & Valdi og E. Baldv. & Guðl. Amundi Sigurðsson og S. Árna-
Þorl. 101, Liverpool 100.5, North- son & Co. 88.5, Fálkinn, verzlun,
ern Trading Co., Kiddabúð og Sjálfstæðishúsið, Vísir, verzlun
J. Þorláksson & Norðmann 100, og National Cash Reg. 88, Olíu-
Olíuverzl. íslands og Gotfred
Bernhöft & Co. 99, Blikksm.
Grettir og Prentsm. Edda h.f.
98.5 ísl.-erl. verzlunarfél. 98,
félagið h. f. og Landssmiðjan
87.5, Esja, kexverksm., Timburv.
Árna Jónssonar, Raagnar Þórð-
arson & Co. og Loftleiðir 87,
Morgunblaðið, Bókabúð Braga og ^ Glæsir, Jóh. Ólafsson & Co., Ham
Verzl. Egill Jacobsen 97.5, Kol ar h.f., Sanitas, Festi, verzl.fél.,
& Salt, Innkaupasamb. rafvirkja,
Ó. V. Jóhannsson & Co. og Kjart-
an Ásmundsson 97, Balticc Trad-
ing Co., Haraldarbúð og Síld og
Fiskur 96.5, Byggingarfél. Brú,
Halli Þórarins, Shell h.f. og Út-
végsbanki íslands 96, Herrabúð-
in og iVnnufatagerð íslands 95.5,
Edda h.f., umb. og heildv. og h.f., Pétur
^Ólafur Gíslason og Co. 95, Egill.
Agnar Norðfjörð & Co., Egill
Vilhjálmsson og S. Stéfánsson &
Co. 86, Álþýðubrauðgerðin 85.5,
Efnagerð Laugarness, Eimskipa-
fél. Reykjavíkur, Hótel Borg og
Kr. Þorvaldsson & Co. 85, Edin-
borg og BSR 84.5, Bernh. Peter-
sen og Miðstöðin h.f. 84, Harpa
Snæland og Helgi
Framh. á bls. 12