Morgunblaðið - 28.10.1954, Page 14

Morgunblaðið - 28.10.1954, Page 14
14 MORGWSBLABIB Fimmtudagur 28. okt. 1954 'ým % M •V N I C O L E Skaldsaga eflir Katlieriiio Gasrn Framhaldssagan 78 lega. Hún leit við til hans. Hann var eirðarlaus í svefni. Á morgn- ana var rúmið hans eins og ekki hefði um það verið búið í heilan mánuð. Hann lá á grúfu, annar handleggurinn undir koddanum Og hinn hékk máttlaus út fyrir xúmstokkinn. Teppið lá fram á gólfið og lakið undir því í einum hnoðra tíl fóta. Hún leit á sitt eigið rúm. Að undanteknu því, að koddinn var bældur, en rúmið út eins og þar hefði engin sofið. Lloyd bylti sér enn og opnaði augun hægt. „Hvers vegna þarftu að velja laugardag til þess að fara snemma á fætur — af öllum dögum vikunnar?“ spurði hann. Nicole hallaði sér aftur út yfir gluggakistuna. „Þetta er yndis- legur morgun“, sagði hún glað- lega. „Allt of fagur til þess að sofa hann af sér“. „Hvað er klukkan?" „Næstum hálf sjö“. „Nú það er mið nótt ennþá“, muldraði hann. Hún sneri sér aftur út í gluggann. „Eg finn ilminn af rós- unum alveg hingað upp. Við skul- um hafa meira af rósum í garð- inum næsta sumar, Lloyd. Todd sagði mér, að meðfram svölunum væri ágætur staður fyrir rósir. Heldurðu að það sé rétt hjá hon- um?“ „Já, ætli það ekki. Hann veit miklu meira um rósir en ég“. „Judith sleit upp í gær milli tíu og tuttugu rósir. Þá stakk hún sig' á þyrna. Sagði hún þér frá þessu. „Nei“. „Ég ávítaði hana og Todd gerði það líka, en Fionie gerði vel við hana. Hún þvoði fingur hennar og gaf henni disk af ís. Fionie eyðileggur hana, Lloyd“. „Já“. „Við ættum að gera eitthvað til þess að koma í veg fyrir það“. „Já, en hvað?“ „Ég veit það ekki. Amerísk börn eru öll spillt, að því er ég bezt fæ séð. Ekki eyðilögð, held- ur spillt. Þau eru alin upp á allt annan hátt en ensk börn. Manstu eftir Ross, þegar við síðast sáum hann? Hann var barnalegur og óskemmdur — og þó var hann orðinn þrettán ára gamall. Það var vegna strangs aga. Ég mundi vilja að Judith kæmist undir slíkt um svona eins árs skeið; þá myndi hún gerbreytast“. Lloyd vatt sér fram úr rúminu gekk til hennar og stóð við hlið hennar. „Nick — við erum und- arleg, þú og ég. Við erum bæði Arneríkanar, og erum hamingju- söm í okkar landi — en samt sem áður leitum við alls þess bezta til Englands. Við leitum þess bezta — og England verður alltaf eins og það er“. „Vel upp alin börn, er það allt?“ „Börnin í dag koma til með að ráða ferðinni á morgun — þannig heldur lífið áfram“. Hún sneri sér að honum og liorfði á hann rannsakandi aug- um. „Hvað er að þér á þessum herrans morgni? Svafetu ekki vel? Lástu andvaka í nótt og hugsaðir?“ „Ég hef að undanförnu hugsað mikið. Vissirðu það, að ég fékk bréf frá Richard í gær?“ Nicole kinkaði kolli. Hann gekk fram að glugganum og leit niður í garðinn. Sargið í klippum Todds var það eina er rauf morgunkyrrðina. ‘„Richard hefur skipt um starf. Hann er kominn í flugherinn“. Nicole fann hvernig hálsvöðvar hennar stífnuðu. „í flugherinn!" endurtók hún. ,,Já“, svaraði hann lágum rómi. í Hún hló ósjálfrátt. „Jæja, ég hef alltaf vitað að Richard fengi skrítnar hugmyndir, erí ég hef aldrei vitað til þess að hugur hans hneigðist að flugmanns- starfi“. I Án þess að snúa sér við sagði hann jafnlágum rómi og áður. „Þú ert að reyna að dylja fyrir þér staðreyndirnar, Nicky. Það, sem framundan er, verður enginn leikur — það veiztu mætavel. Það hefur þú lengi vitað“. Hún greip um handlegg hans. „Nei, ég vissi það ekki. Þú ert að telja mér trú um eitthvað sem aldrei verður. Tom sagði að heimskulegt væri af mér svo mikið sem að hugsa um það. Og Charles frændi segir að það verði ekki af neinni styrjöld". „Þeir segja það, vegna þess að þannig vilja þeir helzt að það verði. Ef þeir vildu opna augun og horfast í augu við staðreynd- irnar, myndu þeir fljótt komast að raun um, að þeir hafa á röngu að standa“. „Charles segir að Chamber- lain.... “ Lloyd sneri sér hvatlega við. „Já, ég veit það. Chamberlain hefur reynt að gera vel, og lagt mikið á sig til þess. Hann hefur haldið aftur af þeim, en hve lengi getum við vonazt til, að það verði svo? Það skellur á styrjöld, og hún verður skollin á eftir nokkra mánuði"'. „En það verður England, sem á í þeirri styrjöld, ekki við....“ „Hvers vegna ekki við?“ spurði hann. „Við erum í Ameríku....“ „Já, við búum í Bandaríkjun- um. Þú gerir þér grein fyrir, hvað það þýðir, er það ekki? Við teljumst til þjóðar, sem ann freísi og leggur allt í sölurnar fyrir það. Við hlutum frelsið í vöggugjöf — án þess getum við aldrei talizt þjóð. Hvernig getum við talizt frjáls ef England er í hlekkjum? Og hve lengi getur England haldið út, ef okkar þjóð kemur ekki til hjálpar?“ „En hvað getum við gert, þú og ég? Við getum aðeins beðið og séð til hvort Bandaríkin sker- ast í leikinn. Ég geri ráð fyrir að svo kunni að fara“. „Að svo kunni að fara! Það tók þrjú löng ár — og auk þess að bíða þar til skipi varsökkt, til þess að Bandaríkin gripu inn í leikinn síðast. En nú mun ekki svo langt að bíða þess. Og styrj- öldin nú verður mjög frábrugðin hinni síðustu. Dagar Zeppelins eru löngu liðnir; það verður heldur ekki svo ykja mikið bar- izt á vígvöllunum. Að þessu sinni verður orustan í loftinu, sprengju flugvélar og orustuflugvélar". ! Nicole var mikið niðri fyrir. „Hvað er það sem þú ert að reyna að segja mér?“ spurði hún. „Hvað hyggst þú gera?“ i „Ég vil fara aftur til Englands", sagði hann ákveðið. Vantrúin og efinn hurfu úr augnaráði hennar; hann horfði í augu hennar og sá þar ótta — meiri ótta en hann hafði nokkru sinni séð þar fyrr, „Það stendur ekki lengi yfir, Nick. Þegar Bandaríkin hafa skorizt í leik- inn, þá getur það ekki staðið lengi yfir“. Hann talaði lágt og blíðu og huggunar kenndi í rödd hans. „Þegar ég heyrði að Risk væri búinn að láta skrá sig í flugherinn, þá fannst mér að ég gæti með engu móti setið hér og beðið þess að eitthvað skeði. Ég vil leggja mitt fram þeim til j hjálpar. Þú skilur það, Nicky,, er það ekki? Við erum Bandaríkja- menn, við bæði — en samt erum við að hálfu leyti ensk. Það sem kemur fyrir Englendinga, kemur einnig fyrir okkur — það hlýtur að verða svo“. •mi .'líV.Á 'í’4'^ ! Kristján C. Gíslason & Co. h.f. CENTROTEX BEZTA HÚSHJÁLPtN I Nicole sneri frá honum og gekk | hægt út að glugganum og starði út. Todd var nú kominn fyrir húshornið, og hún horfði á hann. Hann var liðlegur verkmaður og Æ Jóhann handfasti ENSK SAGA 43 Hér var komið að hættulegasta þættinum í áformi mínu. Ég reyndi að gera litlu stúlkunni það skiljanlegt að nú mætti ; hún til með að þegja og vera alveg kyr, ef hún gerði það, : skyldi ég gefa henni fulla húfuna mína af sælgæti. Síðan; : vafði ég utatn. um hana rauða damaskdúknum og hann huldi ■ hana alveg. Svo tók ég hana og hélt á henni í fanginu eins 1 : og hún væri böggull með einhverju herfangi í, og hljóp út : á götuna. Þar brauzt ég áfram með hnúum og hnefum í gegn um trylltan múginn og hrynti frá mér til hægri og vinstri. Stundum flýði ég inn í húsdyr til þess að lenda ekki í kasti við hina og þessa dólga, sem óðu um göturnar. Svo margir af mönnum okkar voru á hlaupum, hingað og þangað með herfang að för mín vakti enga athygli fyr en ég kom að borgarhliðinu. Þá var telpan orðin hrædd við ólætin, ! sem aldrei ætluðu að hætta, og fór að brjótast um til að I losa sig úr umbúðunum og gat smeygt annarri hendinni út. Hún var með armband úr gulli og kóröllum á litla úlnliðn- um. Fullur franskur bogmaður sá glampa á gullið um leið og hann kom skjögrandi að og nam staðar. „Hæ, ungi maður! Hvað ertu þarna með?“ öskraði hann og greip ruddalega um hendina á henni. Ég rétti honum kjaftshögg svo að hann datt engilangur á jörðina og hljóp svo út um borgarhliðið áður e nhann komst á fætur aftur. Svo flýtti ég mér allt hvað af tók til herbúðanna og fór með litlu stúlkuna inn í | tjald mitt. Par bað ég þjón minn fyrir hana og fól honum að gæta hennar vel, hlynna vel að henni, gefa henni að borða og láta hana svo fara að sofa. HREINSAR OG FAGAR AUT •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■ SNITTVÉLAR : RIDGID MODEL 400 A 6.ÞQR8IEINSB0N S JOHNBON Grjótagötu 7 — Símar 3573, 5296 Stúlku vantar að skólanum á Jaðri. Upplýsingar í síma Jaðars.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.