Morgunblaðið - 28.10.1954, Síða 12
28
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 28. okt. 1954
Akveðið ú bygyja nýtt póst-
og símstöðvarhús á Akranesi
Akranesi, 25. okt.
■RjTÝTT póst- og símahús á að
reisa á Akranesi og á að
koma fyrir í því, sjálfvirkri sím-
stöð svo fljótt sem auðið verður.
STENDIIR Á LÓÐ
Stendur nú á þvi að Akranes-
bær fái lóð á hentugum stað und-
ir húsið og festi kaup á henni.
Þegar því hefur verið komið í
kring verður hafizt handa um
bygginguna.
P.YGGINGIN ÁKVEÐIN
FYRIR NOKKRU
Ég átti tal við Karl Helgason
símstöðvarstjóra hér í gær. Sagði
hann að fyrir nokkru hafi lands-
símastjóri ákveðið að láta reisa
nýtt póst- og símahús á Akranesi
og í það hús ætti að koma sjálf-
virk símstöð. Hann sagði einnig
að hagkvæmast væri fyrir lands-
símann að reisa húsið sem allra
næst þeim stað, sem núverandi
símstöðvarhús Akraness er, þar
sem þangað er jarðsímakerfi bæj
arins og aðrar símalínur lagðar.
GAMLA SÍMSTÖÐIN
OF LÍTIL
Rétt hjá núverandi símstöð á
Akranesi er lóð sem leitazt hefur
verið eftir, en ekki fengizt. —
Símstöðvarhúsið er nú þegar
orðið alltof lítið fyrir síma og
póst. Er afgreiðsla þar orðin erfið
vegna þrengsla.
IIEIL HVERFI SÍMALAUS
i Svo ör hefur þróunin verið
; þessi síðustu ár að nú eru heil
hverfi án síma. Símstöðin hefur
nú 400 innanbæjarnúmer og 80
sveitanúmer. í>ar að auki liggja
fyrir 50 símapantanir óafgreidd-
ar.
BEDIÐ MEÐ ÓÞREYJU
EFTIR FRAMKVÆMDUM
Allir Akurnesíngar fagna þeirri
ákvörðun póst- og símamálastjóra
að láta reisa nýtt póst- og síma-
hús hér, og hinní sjálfvirku síma-
stöð, sem í það á að koma. Eins
og nú standa sakir, má segja, að
Akranes sé vaxið yfír litla sím-
stöðvarhúsið sem nú er hér.
— Oddur.
Ljósmyndari Mbl., Ólafur K. Magnússon, tók þessa mynd niður við Tjörn fyrsía dag vetrar. Veður
var gott þennan dag, stillilogn og bjartviðri. — Tjörnin var ísi lögð, en í krikanum, þar sem börn-
in standa, var vök, þar sem endurnar syntu og tíndu upp brauð, sem kastað var til þeirra.
Raímapslína lögð fró Sonða-
nesi í Höfðahaapstað
SKAGASTRÖND, 26. október.
I> YRJAÐ var í sumar á því verki að leggja rafmagnslínu milli
9 Höfðakaupstaðar og Blönduóss. Voru þá settir niður staurar
á þessari leið. Nú er vinna að hefjast við að strengja línuna og er
væntanlegur vinnuflokkur hingað á morgun í því skyni.
RAFMAGN FRÁ
SAUÐANESI
Rafmagnslínan er lögð frá
vatnsvirkjuninni á Sauðanesi,
framan við Blönduós. Er álitið að
taka muni þrjár vikur að strengja
línuna til Höfðakaupstaðar, en
vegalengdin er um 20 km.
HAFA ÁÐUR HAFT
DIESELRAFSTÖÐ
í Höfðakaupstað hefur verið
Dieselrafstöð 150 kw, sem upp á
síðkastið hefur verið heldur lítil
fyri'r þorpið. í vor festi Raf-
mágnsveita ríkisins kaup á þess-
ari rafstöð og er ætlunin að hafa
hana fyrir vararafstöð fyrir
Blönduós og Höfðakaupstað, eftir
að hinu nýja rafmagni hefur ver-
ið hleypt á. — Jón.
OSLÓ — Ritstjóri aðalmálgagns
norska kommúnistaflokksins
„Frelsið“, Jörgen Vogt, var síð-
astliðinn föstudag dæmdur í 30
daga fangelsi fyrir að hvetja til
ólöglegs verkfalls.
Prinssssurnar þrjár
Danir eru stoltir af prinsessunum sínum, og eru þær hvers manns
bugljúfi. íslenzk börn hafa áreiðanlega gaman af að sjá myndir
áf þessum fallegu stúlkum. Lengst til vinstri er Margrét, sem verður
drottning Danmerkur, þá Anna-María og Benedikta. Myndin hér
að ofan er á kápu lítillar bókar, sem nefnist „Með prinsessunum
allt árið“ — í myndum, mætti bæta við því að þar eru það mynd-
írnar, sem látnar eru tala.
I
HVATNINGARORÖ
TIL NEMENDA
Flutti hann síðan hvatningar-
orð til nemendanna og lagði
áherzlu á að þeir stunduðu námið J
fyrst og fremst sjálfum sér til
heilla, en hvorki kennurum eða j
foreldrum, það yrðu þeir ætíð að
muna. Var síðan sungínn sálmur.
SKÓLAST.TÓRAH.IÓNIN
BOÐIN VELKOMIN
Þá tók til máls formaður skóla-
nefndar, Björn Björnsson sýslu-
maður á Hvolsvellí. Flutti hann
ávarp og bauð hin nýju skóla-
stjórahjón velkomín tíl starfa. Að
lokum var skólasöngurinn sung-
inn á ný.
KENNARALIÐ
Skógarskóli er nú fullskipaður
nemendum. Eru þeírum 100 tals-
ins, allstaðar að af landinu. —
Kennaralið skólans er að rnestu
óbreytt. Júlíus Daníelsson lét af
störfum síðastliðið vor og var
ungfrú Þórey Kolbeins kand.
mag. ráðin í hans stað. Mun hún
kenna ensku, landafræðí og nátt-
úrufræði. Alls eru kennarar nú
við skólann 5 auk skólastjóra. —
Ráðskona er Guðrún Sigurðar-
dóttir frá Sólheimakoti í Mýrdal.
Stjörnubíó sýnir um þessar mundir ágæta ameríska gamanmynd
er nefnist „Fædd í gær“. Aðalhlutverkin leika Judy Holliday,
William Holden og Broderick Grawford. Judy Holliday fékk
Oscarverðlaun fyrir leik sin í þessari mynd, enda er hann af-
bragðs góður.
Héraðsskólinn að Skógum
Iðkinn fil sfarfa i 6. sinn
Skóiinn fyiSskipaður nemendum a!!s± af á landinu
•j
fyrir áramói
Vík, 25. okt.
HÉRAÐSSKÓLINN að Skógum
undir Eyjafjöllum, var settur
í 6. sinn, sunnudaginn 17. októ-
ber, síðastliðinn. Hófst setningar-
athöfnin með því að sunginn var
skólasöngurinn, sem séra Sigurð-
ur Einarsson í Holti hefur orkt.
NAUÐSYNLEGT AÐ HALDA
í HORFINU
Hinn nýi skólastjóri, Jón R.
Hjálmarsson, flutti síðan setning-
arræðuna. Bauð hann nemendur
og kennara velkomin til starfa.
Minntist hann sérstaklega fyrr-
verandi skólastjóra, Magnúsar
Gíslasonar, sem starfað hafði við
skólann frá upphafi. Þakkaði
hann honum velunnin störf við
mótun og uppbygging skólans.
Kvað hann að nú væri nauðsyn-
legt að halda vel í horfinu.
Sunnudaginn 24. okt. var guðs-
þjónusta í skólanum, sem séra
Jónas Gíslason í Vík annaðist.
— Fréttaritari.
Kafbátar
í LONDON var það staðfest ný-
lega, að 22 af nýjustu og full-
komnustu kafbátum Ráðstjórnar-
ríkjanna hafa farið með strönd-
Afn Danmerkur á leið sinni til
kmverskra og rússneskra hafna
við Kyrrahaf.
OSLÓ, 19. okt.: — Fundur nor-
rænna samgöngumálaráðherra, er
nýlega var haldinn í Osló, sam-
þykkti að fara þess á leit við SAS
flugfélagið, að félagið leggði fram
heiidaráætiun um innanlandsflug
á Norðurlöndum. SAS hefir skýrt
svo frá, að áætlun þessi verði að
öllum líkindum tilbúin um ára-
mót.
Einnig ræddu ráðherrarnir
mögulega endurnýjun þeirrar
fjárhagslegu tryggingar, er Norð-
urlöndin veita SAS. Ekkert hefir
gengið á trygginguna, þau þrjú
ár, sem hún hefir verið í gildi.
— Reuter-NTB