Morgunblaðið - 24.11.1954, Síða 11
Miðvikudagur 24. nóv. 1954
MORGUNBLAÐIÐ
11
— Benedikt Sveinsson
Framh. af bls. 10 |
sjálfstæðiskröfunum, en gegn
andróðri stjórnarinnar og hennar ,
fylgismanna. Mest var um það
vert, að nú hafði Landvarnar-
flokkurinn, Þjóðræðisflokkurinn
og Heimastjórnarmenn, allur sá
hluti, er „Þjóðólfi“ fylgdi að mál-
um, tekið höndum saman um
fullkomnar og fastákveðnar kröf-
ur fyrir þjóðarinnar hönd, er alls
eigi skyldi frá víkja. — Fundur-
inn var glæsilegur árangur þeirr-
ar baráttu, er háð hafði verið
síðan Alberti smeygði ríkisráðs-
fleygnum inn í stjórnarskrána,
og jafnframt undirstaða ins mikla
úrslitasigurs, er unninn var á
,,uppkastinu“ sumarið eftir og að
þeim frelsiskröfum, er jafnan
síðan hafa verið bornar fram.
Upp frá þessu voru flokkar
þeir, er tillögum fundarins
fylgdu, stundum nefndir einu
nafni Sjálfstæðismenn eða Sjálf-
stæðisflokkur, en ekki skipuðu
þeir þó samstæðan flokk fyrr en
eftir birting „uppkastsins" árið
eftir.“
Svo hafði verið umtalað milli
forustumanna Landvarnarflokks-
ins að þeir skyldu ekki hafa sig
frammi um of í ræðuhöldum á
fundinum heldur gefa öðrum
fulltrúum sem mest ráðrúm til
að láta skoðanir sínar í ljós.
Um kvöldið eftir fundinn héldu
margir fulltrúanna með sér einka
fund og voru Landvarnarmenn
kjarninn í því liði, en áheyrend-
ur margir, bæði fulltrúar og aðr-
ir. Þar tók m. a. Benedikt Sveins-
son til máls. Var honum ákaft
fagnað áður en hann hóf mál sitt.
Flutti hann hina snjöllustu ræðu.
Var sem fornhelgar vættir hefðu
gengið til liðs við hann til þess
að gera orð hans sem áhrifamest.
f ræðulok hylltu fundarmenn
ræðumanninn og hamrarnir
bergmáluðu af fagnaðarlátum,
sem seint ætlaði að linna.
Eftir Þjóðfundinn 1907 átti
stefna Landvarnarmanna nær ó-
skipt fylgi æskunnar í landinu.
Enginn Landvarnarmanna var
jafn dáður og Benedikt Sveins-
son, svo mikið var mannvit hans,
góðvild og glæsimennska. Málfar
hans var óviðjáfnanlegt. Hann
var að mínu áliti tvímælalaust
bezti ræðumaður Landvarnar-
xnanna. í ríkum mæli var harin
gæddur tveim meginkostum
ræðumennskunnar, mættinum til
þess að sannfæra áheyrendur og
viðkvæmu skapi, er hreif hugi
þeirra.
Stefna Landvarnarmanna hrós-
aði sigri með stofnun lýðveldis
á íslandi 17. júni 1944 á Þing-
völlum.
Þar talaði Benedikt Sveinsson
síðast til þjóðarinnar og eru þessi
lok ræðu hans:
„íslenzk þjóð.
Nú hefur rætzt aldanna þrá og
glæsilegustu vonir stórskálda
vorra og djörfustu leiðtoga.
„Fagur er dalur og fyllist skógi
og frjálsir menn, þegar aldir
renna.“ Látum samhug þann og
þjóðareining, sem endurheimt
hefur lýðveldi íslands, festa
sannhelgan þjóðaranda í brjósti
vorrar frjálsu þjóðar, við ein-
huga leit sannleika, drengskapar
og réttlætis. Höfnum sundrung
og hleypidómum.
Engri fyrri kynslóð í landi
voru hefur fallið slíkur arfur í
skaut. Gleymum aldrei, að allur
frami íslands að fornu og við-
reisn þess á síðustu mannsöldr-
um er af rót frelsis, framtaks og
menningar sprottið. Gætum vand
lega frelsis þjóðarinnar. Varð-
veitum tungu vora. Hún er dýr-
mætasta sverð þjóðarandans. —
Geymum fornar minningar. Vör-
umst víti forfeðra vorra, sundr-
ung og síngirni, er komu frelsi
voru á kné. Minnumst þess, að
íslendingar voru á tímum hins
fyrra lýðveldis fremstir um bók-
menntir og mesta siglingaþjóð
þeirra tíma, sem landafundir
þeirra og landnám vestan At-
lantshafs sýna og sanna.
I Þjóðarstofninn er hinn sami.
Setjum því merkið hátt. Göngum
hugrakkir fram í fylking frjálsra
þjóða.
Storma og ánauð stóðst vor andi
I stöðugur sem hamraberg.
Breytinganna straum hann standi
sterkur, nýr á gömlum merg.
Heimur skal hér líta í landi
lifna risa fyrir dverg.
j Þróist lýðveldi vort til ævar-
andi dáða í frjálsum og batnandi
heimi."
Voru þetta fögur kveðjuorð
Benedikts Sveinssonar til þjóðar
sinnar.
Ari Arnalds.
80 ára: Arni Arnason
fyrrv. dómkirkjuvörðnr
F Y R I R rúmu ári varð Árni
kirkjuvörður fyrir sjúkdóms-
áfalli, svo að hann varð að láta
af störfum. En því verður ekki
gleymt, að hann hefur starfað
með sannri trúmennsku. Á liðnu
hausti voru 40 ár frá því að Árni
tók við kirkjuvarðarstarfinu. Þar
var trúr og skyldurækinn maður
á sínum stað. Árni hefur á þess
um árum verið við allar messur
og helgiathafnir í gömlu kirkj-
unni, sem hann elskaði sem það
heimili, er ætti kröfu til allra
starfskrafta hans. Á þeim stað
hafa menn verið vottar að alúð-
arstarfi hans. Þar hafa menn
kynnzt honum á gleði og sorgar-
stundum. Oft hef ég haft tæki-
færi til þess að sjá, hvernig
starfað hefur verið, og glaðst af
að veita eftirtekt starfsþreki
Árna, rósemi hans og stillingu.
Það má með sanni segja, að
hann hefur ekki talið á sig erfið-
ið, en unnið einn það verk, sem
hæfilegt hefði verið að fela
græskulausri kímni. Enda eru
gáfur hans góðar og tilsvörin
skemmtileg.
Við, samstarfsfólkið hans við
dómkirkjuna, fögnum því að hafa
mörgum, því að svo mörgu var j fengið jafnágætan mann og son-
að sinna í kirkjunni, að oft varð ur hans er í hans stað, en samt
Árni að vinna fram á nótt og hugsum við oft með þakklæti
ganga árla dags að þeim störfum, Qg eftirsj á um gamla kirkjuvörð-
sem ekki mátti slá á frest. Menn inn> sem nú hefir ]átið af störf.
gengu að því visu, að kirkjan um. Minning hans er fyrir margra
væn opin a tilsettrx stund og að Muta sakir sérstæð gieymist
þa væn allt svo vel undirbuio,! . .
að heilög hátíð gæti hafizt. *Sem ‘
Bókhaldari
Útgerðarfyrirtæki í grennd við Reykjavik, óskar
eftir ungum og röskum bókhaldara. — Tilboð legg-
ist inn á afgr. blaðsins fyrir n. k. laugardag, merkt:
„Bókhaldari — 69“.
[ Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn í Keflavík
heldur BAZAR í Sjálfstæðishúsinu mánudaginn 29. þ. m.
klukkan 9 e. h.
Margt ágætra muna.
Komið og gerið góð kaup.
NEFNDIN
í
■
E
SKRIFSTGFUR
vorar verða lokaðar vegna jarðarfarar
frá klukkan 12 til kl. 4 í dag.
Sjóvátryggingarfélag íslands h.f.
Matsvein
vantar strax^á línubát frá Hafnarfirði.
Uppl. í síma 9165.
Hvernig tókst að gegna þess-
um skyldustöi’fum? Var nokkurn
tíma komið að lokaðri kirkju?
Hafði gleymzt að kveikja á ljós-
unum? Gátu menn ekki fundið,
að þeir voru boðnir velkomnir
á heilagan stað? Það eru margar
minningar tengdar við kirkjuna
og það eru fjöldamargir menn,
sem hugsa um kirkjuvörðinn
með hlýjum þakkarhug. Oft hef
ég undrazt og dáðst að hávaða-
lausum dugnaði Árna. Man ég
einn páskadag á hernámsárun-
um. Þá voru 6 guðsþjónustur í
kirkjunni, safnaðarmessur og
messur fyrir útlendinga. Þá stoð-
aði ekki að sofna á verðinum.
Allt náði þetta fram að ganga
árekstralaust.
Um áratugi hefur Árni starfað
með gleði og áhuga, og aldrei
hef ég heyrt æðruorð, þó að
margir kölluðu til hans og krefð-
ust skjótra aðgerða. Trúr í starfi
og ágætur í samstarfi. Þess vegna
hefur hann verið vinur starfs-
fólksins alls við kirkjuna. Ég var
starfsbróðir hans í 37 ár og met
vináttu hans mikils, og það ber
öllum saman um, sem með hon-
um hafa verið í kirkjulegu starfi,
að þar sem Árni er hafi þeir
kynnzt greindum, gáfuðum
manni og góðum dreng. Spyrj-
um prestana, organista og söng-
fólk, spyrjum alla, sem með hon-
um hafa starfað, spyrjum hina
j mörgu, sem hafa átt tal við Árna j
á þeim stundum, er þeir þörfn-
uðust góðra leiðbeininga. Svarið
verður áreiðanlega jákvætt og
því munu honum margar góðar
óskir berast á þessum afmælis-
degi.
i Fögru dagsverki er lokið, og
góðurn minningum skal svarað
með þakklæti og árnaðaróskum.
Ilefur Árni nú vanheilsu vegna
fengið lausn frá störfum, en son-
ur hans tekið við kirkjuvarðar-
starfinu. Fer vel á því, að þetta
veglega starf gangi að erfðum.
j í dag heldur Árni hátíð með
íjölskyldu sinni á Miklubraut
16.
| Árnaðaróskum mínum fylgir
sú bæn, að Guð blessi kærum
vini æfikvöldið.
Bj. J.
Á ÁTTRÆÐISAFMÆLI Árna
dómkirkjuvarðar minnast hans
margir með þakklæti, þó sáu það
engir betur en samstarfsfólk hans
við dómkirkjuna af hvílíkri prýði
hann rækti störfin, og bar margt
til þess. Hann elskaði kirkjuna
sína, orðheldni hans brást aldrei,
góðvild hans náði til allra, sem
til hans leituðu, hin fölskvalausa
góðvild, sem hann kryddaði oft
Við biðjum honum blessunar
á áttræðisafmælinu.
Jón Auðuns.
Jólaíré
LandgræðsliisjóSs
með Cullfossi
SEM kunnugt er, hefur Land-
græðslusjóður á undanförnum
árum flutt inn jólatré og grerii-
greinar og hefur Landgræðslú-
j sjóður af þessu nokkrar árlegar
tekjur. I ár mun sjóðurinn erin.
sem fyrr flytja inn allmikið magn
af jólatrjám. — Kemur fyrsta
sendingin með Gullfossi um
næstu helgi. Ekki mun þó sala
trjánna hefjast fyrr en naér
dregur jólum og er þá von á
seinni sendingunni. Úr íyrri
sendingunni verður lögð áherzla
á að afgreiða trén út á land sVo
þau nái í tæka tíð til allra, en á
því hefur orðið nokkur misbrest-
ur undanfarin ár vegna þess hvé
trén hafa komið seint.
Landgræðslusjóður mun að
sjálfsögðu kappkosta að flytja inn
úrvals jólatré og þau sem keypt
hafa verið eru ræktuð af heiða-
félaginu danska. Aðalútsala
verður sem fyrr að Laugavegi 7,
en útsölumenn verða síðar um
bæinn.
Menn ættu að vera þess minn-
ugir, að með því að kaupa tré
af Landgræðslusjóði, þá leggja
þeir veigamikinn skerf til skóg-
ræktar í landinu.
STULKA
óskast til að annast móttöku gesta.
Vinnutími kl. 12—5 e. h.
Naust
VESTURGOTU 8
Megrunarleikfimi
Kvöldtímar byrja aftur í þessari viku.
H E B A
leikfimi-, nudd- og snyrtistofan
Brautarholíi 22 — Sími 80860
U ppbob
verður haldið við Svendborg í Hafnarfirði í dag og hefst
kl. 1 e. h. Þar verða seld veiðarfæri o. fl.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði, 23. nóv. 1954.
Guðm. I. Guðmundsson.
3
/\ðstoðarráðskona
og aðstoðarstúlku vantar í Kópavogshælið nýja
1. desember. — Upplýsingar gefur ráðskonan
í síma 82785.
Gott skriistofuhúsnæði
■
■
■
• 1—2 herbergi í eða við Miðbæinn, óskast strax eða sem
■
■
• fyrst. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 28. þ. m. merkt: jj
kí
: „S. V. — 65“.
i
s