Morgunblaðið - 25.11.1954, Qupperneq 10
26
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 25. nóv. 1954
Skólabækur glæpamennskunnar
Colgate Chlorophyll tannkrem
ÞAÐ var í desember 1953 að eitt
af börnum nágrannanna skyldi
eftir í húsi mínu tvö af þessum
„Comic“ ritum. Ég greip ritin og
tók að flettta þeim, og mér hefði
ekki orðið meira bylt við, þótt
ég hefði stigið ofan á eiturslöngu.
Rit þessi voru full af hinum
ógeðslegustu og mest siðspill-
andi myndum, sem ég nokkru
sinni hef séð. Það getur ekki
verið að þetta sé selt börnum
okkar hér í borginni?
Jú, vissulega. í lyfjabúðinni á
götuhorninu var nóg af þessum
siðspillandi glæparitum. Ég
spurði lyfsalann, hvort hann vissi
hvílíkan óþverra hann seldi
börnunum. Hann svaraði vand-
ræðalega: „Ekki má ég vera að
því að lesa þau“.
Þannig hefst síðari greinin í
Reader’s Digest um glæparitin.
Höfundur hennar er T. E Murphy
einn af ritstjórum Hartford út-
gáfunnar. í blaði sínu hefur hann
ráðist harkalega á útgáfu glæpa-
ritanna og hefur það orðið til
þess að hreinsa marga bóksölu-
hillu og blaðsöluturna af þess-
um óþverra. Slík hreinsun þarf
vissulega að fara fram á íslandi.
Ef útgefendur glæparitanna hér
á landi geta stælt þá þakkaiðju
hugspilltra manna í Ameríku,
ættu einhverjir áhrifamenn okk-
ar einnig að geta tekið að sér
hlutverk hr. Murphys.
Hann getur þess, að foreldrar
hafi ekki hrokkið við, þótt þeim
hafi verið bent á ofbeldisþátt
ritanna. Þau hafi aðeins svarað,
að unglingum sé eðlilegt að nýs-
ast í slíkt. En annað hljóð kom
í strokkinn, er þeim var sýnt,
hversu ritin ala á ógeðslegu ó-
eðli. Hann segist hafa kynnt sér
hundruð þessara rita til þess að
geta hafið baráttuna gegn þeim,
og „mér fannst sem ég hefði
sullast áfram eftir skólp-holræsi.
Hér er ægilegt skuggabelti mílli
vits og brjálæðis. Þar hafast við
ófreskjur, grimmir ræningjar og
líkætur. Hér er traðkað og hrækt
á allt, sem í siðmenningu er virt
og tignað. Hér er venjulegur
morðingi aðeins meinleysislegur
innan um kynferðisafglapa, hór-
mangara, föðurmorðingja og
móðurmorðingja, líkát og lim-
lestingar. Aðeins í skárstu rit-
unum er látið nægja að morðin
séu framin með hnífum eða skot-
vopnum. Þessu höfum við leyft
samvizkulausum útgefendum að
hella í sálir barna okkar, aðeins
fyrir ávinningssakir.
Hér eru svo nokkur sýnishorn
af sögum ritanna:
Lucy er tíu ára, í fjórða bekk
skólans, Foreldrarnir eru henni
ekki góðir og hana langar til
að eiga heima hjá frænku sinni
í fallegu húsi. Tækifæri hennar
kemur, er móðir hennar, frú
Johnson tekur að dingla við
friðil. Þau eru eitt sinn að fara
út úr húsinu, es maður konunn-
ar er að koma heim og mætir
þeim úti fyrir dyrum. Lucy er í
glugga á efri hæð hússins og
sendir föður sínum skot. Hann
hnígur dauður, það líður yfir
konuna, friðillinn hleypur á
brott, en Lucy lætur byssuna í
hönd móður sinnar þar sem hún
er í yfirliði. Svo eru þau, frú
Johnson og friðill hennar sýnd
í rafmagnsstólnum, en seinast í
þessari sögu, er heitir „Föður-
morð borgar sig“, sést Lucy bros-
andi og ánægð, því að nú er hún
hjá frænku sinni í fallegu húsi.
Þetta var kynnt í blaðasölu-
turninum sem lesmál byrjend-
anna. f sama ritinu eru svo þess-
ar frásagnir:
1. Faðir ber dóttur sína til
dauða, hélt að það væri kærast-
inn hénnar.
2> Maður einn er dáleiddur og
iátijin berja mann til dauða með
bílkeðjum. Kona dávaldsins hef-
ur ýerið honum ótrú.
3. Maður einn kaupir atvinnu-
morðingja til þess að drepa friðil
eftir Pétur Sigurðsson
konu sinnar. Þetta leiðir svo
dauða yfir mann konunnar.
Unglingar geta þannig fengið
tilsögn í margvíslegum fjölskyldu
manndrápum, og fræðsluritið
kostar aðeins 10 cent.
Þá er það María blóðuga. Það
rit hefur verið til sölu í blaðsölu-
turnunum. María hengir fóstru
sína í kaðli. Kemur svo grun á
fósturföður sinn, og hann er sak-
laus hengdur fyrir morð. Svo
drepur hún læknir — sálfræðing,
fremur morðið með hnífstungu
og brennir svo skýrslum hans,
til þess að þær vitni ekki um
ástand hennar.
Önnur saga heitir: „Ég drap
Maríu (Maríunafnið er mikið
notað í þessum óþverra ritum.)
C__■''SOG'n—?
Síðari grein
Vangefinn strákur, nefndur
Bobby, hittir á förnum vegi telpu,
sem heitir María og þau verða
samferða. Það rignir og þau fara
inn í hlöðu. Þar sýnir mynd hana
hallast upp að heyinu. Hann nálg-
ast hana, en hún hlær að ,,sissy“.
Hann nær í exi, og nú er sýnd
mynd af honum þar sem hann
er að höggva hana til dauða. Hún
er svo sýnd myrt og illa leikin.
Þar næst sézt strákurinn dingla
niður úr ræfri hlöðunnar. Hann
hefur hengt sig.
Ritið sem lýsir þessu var keypt
aðeins nokkra faðma frá blettun-
um þar sem kynferðislega sjúkur
náungi hafði fyrir fáum dögum
kyrkt 10 ára stúlku“.
Þannig lýsir ritstjórinn inni-
haldi þessara svívirðilegu glæpa-
rita, og margt fleira telur hann
upp. Ein myndin sýnir, hvernig
festa má byssu á hurð, þannig,
að skotið hlaupi í þann, sem
ætíar að opna hurðina. Þá er
lýsing á því, hvernig eiginmað-
ur getur fylgt konu sinni á gang-
stétt i neðanjarðar járnbrautar-
stöð, séð svo um að hún gangi
utarlega á stéttarbrúninni, og
látið hana svo detta út af með
því að ýta öðrum á hana, og
verður hún þá undir eimreið-
inni.
í riti, sem ætlað er smákrökk-
um, er því lýst, hvernig maður
nokkur lætur konu sína og friðil
hennar grafa þeirra eigin gröf,
og drepur þau svo. Eftir tíu daga
rísa hálfrotnuð og samföst líkin
upp og ásækja morðingjann.
Hann skýtur á þessa rotnandi
kássu, en það dugar ekki, óskapn-
aðurinn færist nær honum og
frásögnin endar á þessum setn-
ingum: „Ég vildi, að ég gæti sagt
þér hvað Sharon (konan) og
friðill hennar gerðu við Larry“,
það er, manninn.
í þessum barnabókum er
mannáti lýst af mestu nákvæmni.
Á einum stað sést borðstofuborð
og á þvi liggur hálfétið lík. Á
öðrum stað liggur hálfnakin
kona, brjóst og kálfar, eins og
venjulega, mjög áberandi. Kerl-
ingarnorn beygir sig ofan að
henni, er með sveðju og segist
varla geta beðið eftir því að fá
að eta þetta góða, meira og hvíta
hold. Forsíðumynd sýnir mann-
varg hringja til hótelþjónanna
cg biðja þá að senda sér upp í
herbergið feitan strák, ekki mat
heldur strák, því að hann sé mjög
hungraður. Maður einn verður
feitari með hverjum deginum,
þótt enginn viti til þess að hann
eti neitt, en svo finnur lögregl-
an stöku sinnum hálfétna mann-
skrokka, og erú myndir af þeim,
körlum og konum og aldur þeirra
tilgreindur. Þessi maður býður
svo frænku sinni og skrifstofu-
stúlkunni til alþjóðaátveizlu í
Ítalíu. Þegar þangað er komið,
er þar umkringt borð af hungr-
uðu fólki, en engin matur. Spurt
er um matinn og segir maðurinn
þá, að það eigi að eta frænku
sína og skrifstofustúlkuna.
Ritstjórinn snýr sér svo að
fólkinu og spyr, hvernig því litist
á þetta lesmál barna þess. Hann
bendir svo á, hvað gera þurfi:
skora á blöðin, þingmenn, presta
og aðra ábyrga menn, að hefjast
handa gegn þessum ófögnuði.
Hann segir, að blað sitt, þótt
íhaldssamt sé, hafi ráðist í að
varpa Ijósi á ósómann, og ljósið
sé alltaf óvinur óþverrans. Blað
hans hafi birt stórar fyrirsagnir
á fyrstu blaðsíðu, einnig mynd-
ir af forsíðum sumra verstu
glæparitanna, og með þessu harð-
ar ádeilugreinar.
„Árangurinn kom skyndilega
og varð stórfelldur", segir rit-
stjórinn. „Heildsalar blaða og
tímarita lögðu fyrir smásölurnar
að endursenda öll rit, er þeir
teldu siðspillandi. Við héldum
sókninni áfram í ritstjórnar-
greinum og fréttapistlum. Þar á
eftir gátum við birt góðar frétt-
ir með stórum fyrirsögnum á
þessa leið:
Fræðslumálastjórnin og fleirí
taka þátt í herferðinni gegn
glæparitunum.
Haddam bókaverzianir hætta
sölu á glæparitunum.
VFW styðja baráttuna gegn
glæparitunum í 30 borgum.
Simsbury KC hreinsa burt
glæparitin í sjö borgum.
Margir menn og hópar manna
höfðu beðið eftir forustu, og í
raun og veru fögnuðu þessari
hreinsun engir fremur en bók-
salarnir. „Þetta er ágætt“, sögðu
þeir, „við erum flæktir í sölu-
kerfið. Við viljum ógjarnan selja
óþverrarit, en hvernig getum við
aðgreint það allt“.
• Hér lýkur þá að segja frá aðal-
innihaldi greinanna tveggja í
Reader’s Digest, sem lýsa hinu
viðbjóðslegasta eyðileggingar-
verki, sem unnið er með útgáfu
glæparitanna, en þar er einnig
sagt frá djarfmannlegri og vel
heppnaðri sókn gegn þessu vonda
verki. Hér á landi fjölgar glæpa-
ritunum og þau eru auglýst ó-
spart. Á einum stað var mér
sagt, að sú umboðssala seldi fyr-
ir þúsund krónur mánaðarlega af
einu mest umtalaða ritinu. Það
er létt verk að selja glæparit,
æsandi kvikmyndir, áfengi,
tóbak og siðspillandi skemmtan-
ir, en það þarf manndóm til að
segja slíku stríð á hendur.
Foreldrar og kennarar á ís-
landi! Sofið ekki gagnvart þess-
ari hættu, sem leiðir af glæpa-
ritunum. Verið er að sá eitri í
sálir barna ykkar. Látið ekki
sannast á ykkur, að þið séuð
hirðulaus um velferð þeirra.
Hefjist handa og látið sjá, að
einnig þið getið hreinsað hús
ykkar. Öll óþrif greiða allri sýk-
ingarhættu veg, og þessi er sýk-
ingarhættan verst, sem hér hefur
verið rædd. Henni má ekkert
umburðarlyndi sýna.
Pétur Sigurðsson.
Föpr ejöf ti!
SSylíkishólínskjrklu
STYKKISHÓLMI, 22. nóv.: —
Síðastliðinn sunnudag færði frú
Valgerour Kristjánsdóttir á Bergi
í Stykkishólmi, Stykkishólms-
kirkju forkunnarfagra silfur-
könnu, til minningar um mann
sinn, Magnús Jónsson frá Ási,
sem um langt skeið var meðhjálp
ari kirkjunnar. Var gjöf þessari
veitt móttaka við guðsþjónustu í
kirkjunni sama dag, af séra Sig-
urði Lárussyni prófasti. — Árni.
gefur ferskt bragð í munninn
Chlorophyll gefur ferskt bragS,
er fljótvirkt og áhrifa/ríkt. Fleiri
og fleiri nota nú hið nýja Colgate
Chlorophyll tannkrem.
Heildsölubirgðir: H. Ólafsson & Bernhöft.
Tilraunir sanna að gómkvillar lagast helminci fyr!
Athuganir á 589 börnum hafa
leitt í ljós að tannholdið styrkist
helmingi fyrr með Chlorophyll
tannkremi en hvítu. Jafnvel al-
varlegar gómskemmdir hafa lag-
færzt á skömmum tíma. Vísinda-
legar athuganir hafa leitt í ljós
að séu tennurnar burstaðar að
staðaldri með Colgate Chlorop-
hyll tannkremi, þá verndi það
góm og tannhold barna yðar.
Fullvissið yður um fullkom-
inn árangur með Chlorop-
hyll* tannkremi . . . með
nýrri fullkominni Colgate
forskrift!
Sjálf náttúran framleiðir Chlor-
ophyll og skapar vöxt og gró-
anda allra plantna: Það er þess
vegna að reynsla og kunnátta
Colgate er mikilvæg fyrir yður
því að þessi nýja fullkomna for-
skrift veitir yður hagnýti Chlor-
ophyll í öruggu formi. Til hjálp-
ar gegn óþægilégu munnbragði
. . . algengum gómkvillum . . .
tannskemmdum . . . notið Col-
gate Chlorophyll tannkrem eftir
máltíðir.
Það er bezta Chlorophyll tann-
krem, sem stærstu framleiðendur
heims geta framleitt.
Hreinsar munninn fullkomlega.
Aðeins einn bursti með Colgate
Chlorophyll tannkremi hreinsar
munninn fullkomlega.
REYNT OG ABYRGST AF
*Inni-
heldur
Chlorophyllin
öfg
s|S M íðí
,.A
NÚ OG ÆTÍÐ .... YFIRBURÐIR f LOFTI!
Tvisvar sinnum fleiri fljúga með Douglas en öllum
öðrum flugvélum til samans. Þér getið flogið með
hinum risastóru nýtízku DC—6 eða DC-6B, sem
notaðar eru á öllum helztu flugleiðum, hvar
sem er
■J.U«AU
Litli- og stóri MASTER
Bezta jólagjöf húsmóðuriimar
1 árs ábyrgð.
Ný sending komin.
LUDVIG STORR & CO.
MASTER
MIXER