Morgunblaðið - 02.12.1954, Side 1
EFimmiudagur 2. desember 1954
O-
STÓRBROTNASTI FULLTRÚI ÞINGRÆÐISINS
WINSTON CHURCHILL for-
sætisráðherra lifir í minn-
ingu samtíðarmanna sinna, fyrst
og fremst sem táknrænn og vold-
ugur fulltrúi þingræðisins.
Víst hefur hann verið frá-
bær hermaður, blaðamaður, sagn-
fræðingur og sæmilegur málari.
En það er í hinni öldnu neðri
málstofu brezka þingsins, sem
mynd hans stendur ljóslifandi.
Þar á sama gólfinu og Pitt, Glad-
stone og Disraeli höfðu staðið og
við hliðina á Lloyd. George, þar
naut hann sín bezt. Þar er að
finna tinda tignar hans.
Churchill var þannig einn
hlekkurínn í keðju mikilhæfra
stjórnmálamanna, sem hafa mót-
að hið merkilega brezka þing-
raeði. Hann sjálfur sótti margt
til hinna liðnu stórmenna þings-
ins, átti þeim mikið að þakka,
þar blandaðist sagnfræðiþekking
hans saman við stjórnvizku, en
þó hefur hann e. t. v. gefið enn
meira. Það er líklega ekki of
sagt að enginn einn maður hafi
gefið þingræðis-hugtakinu fyllri
og dýpri meiningu en hann. Þetta
gildir um hið brezka þingræði og
um leið þingræði allra annarra
þjóða, sem hafa sótt anda stjórn-
skipunar sinnar til Breta.
MÆLSKUSNILLD OG
LEIKHÆFILEIKAR
En hvað felur það í sér, þegar
ég segi, að Churchill hafi verið
táknrænn fulltrúi þingræðisins?
Jú, það er mælskusnilld hans,
súningslipurð í heitum umræðu-
bardögum. Þegar hann tvíhendir
vopn orðanna, er eins og mörg
sverð séu á lofti samtímis.
Það hefir verið sagt, að góðir
stjórnmálamenn þurfi að vera
góðir leikarar og þann hæfileika
átti Churchill í ríkum mæli. All-
ir þekktu það hvernig 'hann beit
á jaxlinn og líktist hinum brezka
bolabít, vindillinn hans, ein-
kennilegu hattarnir hans, V-
merkið, sem hann gaf með tveim-
ur uppréttum fingrum. Allt var
þetta mjög sérkennilegt en við-
kunnanlegt leikaragerfi, sem
hann áskapaði sér.
Hann kunni þá list að setja
upp ótal svipbrigði og tókst með
því að segja áheyrendum sínum
miklu meira eri orðin ein
hermdu. Hann þekkti það mikla
gildi, sem sjálf þögnin bjó yfir,
ef hún kom á réttum stað. Oft
gaf hann orðum sínum sérstakt
inntak með því að stama eða
láta sér fipast.
Eins og hin fræga saga, er
hann stóð upp til að gefa stutta
yfirlýsingu, þegar öll brezka
þjóðin stóð á öndinni af æsingi,
Winston Churchill var stærstur og ósveigjan-
legastur i ósigra og niðurlægingu
Þetta er í dag. — Við byrjum aftur á morgun. Winston Chur-
chill í rústum Neðri málstofu brezka þingsins eftir loftárásina
10. maí 1941.
eftir að orustuskipið Bismarck
hafði sökkt Hood, stærsta her-
skipi Breta og Bismarck var elt
suður Atlantshaf.
Þá stóð Churchill upp, rýndi
ofan í pappírssnepil og sagði:
— Ég var að fá fréttir af því,
að hérna .... hu, hum, að Bis-
marck hefur verið sökkt.
Þannig má að nokkru lýsa því
hvemig Churchill hefur verið
sannur fulltrúi þingræðisins. En
þetta er ekki nóg, mælskusnilld
og leikarahæfileikar eru skurn,
búi ekki annað og meira undir,
eru þau skarn.
STÆRSTUR í OSIGRI OG
NIÐURLÆGINGU
Risinn í Churchill birtist okk-
ur, þegar við veitum því athygli,
að hann var ætíð mestur í ósigr-
inum. Og er þetta ekki einmitt
hið risavaxna við þingræðið?
Einræðisherra, sem bíður ó-
sigur, skýtur sig. Svo er búið
með það. í andarslitrunum sakar
hann alla nema sjálfan sig um
hvernig fór og bölvar þjóð sinni
fyrir að hún hætti að trúa á for-
ingjann.
Þegar Churchill beið ósigur,
sakaði hann engan nema sjálfan
sig. Þessvegna þurfti hann ekki
að gefast upp. Það var aðeins að
standa sig betur næst. í sölum
þingsins gat jafnvel ósigurinn
falið í sér fulla uppreisn.
Og hann varð oft að þola ósig-
ur. Útlegðarárin, þegar hann
stóð einn og fyrirlitinn, uppnefnd
ur stríðsæsingamaður er hann
varaði við hættunum og bað þjóð
sína að hervæðast, fólu í sér sáð-
korn einnar stórkostlegustu upp-
reisnar og viðurkenningar, sem
um getur í mannkynssögunni.
Jafnvel á þeirri sömu stundu
og hann tók völdin fékk hann
Á Teheran-ráðstefnunni komu hinir þrír stóru, Stalin, Roosevelt og Churchill, saman í
skipti og sameinuðu átak þjóða sinna í hinum miklu átökum.
í hendur ósigur. í raun og veru
var styrjöldin töpuð. En það
hefur aðeins gert Churchill stærri
í okkar augum. Þungbærasti ósig- :
urinn í lífi hans var þó senni-,
lega ,er hann hafði leitt þjóð sína j
Iieila á húfi gegnum þrengingarn- ,
ar,þá hrakti hún hann á niður-
lægjandi hátt frá völdum. Fyrir
það vanþakklæti mun skömm
brezku þjóðarinnar lengi vera
uppi, en þeim mun stærri verð-
ur Churchill að frá honum heyrð-
ust ekki æðruorð, aldrei heyrðist
hann ásaka þjóð sína fyrir þetta.
Hans var aðeins að hlíta dómi
þjóðarinnar eftir reglum þing-
ræðis.
Enn óx hann við hverja þraut
og það leið ekki á löngu þar til
þjóðin kvaddi hann að nýju til
að skakka leikinn eftir hrun-
stefnu sósíalista, þjóðnýtingar-
brölt, haftafargan og gjaldþrot.
Aftur tók hann við ósigri þjóðar
sinnar og hefur nú snúið honum
upp í efnahagslegan velfarnað á
íriðartímum.
Churchill hefur sjálfur lýst
kjarna siðalögmála sinna í fáum
orðum: í styrjöld — einbeitni, í
ósigri — þrjózka, í sigri — göfug-
lyndi, í friði — góðvilji. Þessi
fáu orð innihalda mikinn siða-
lærdóm og það er hollt fyrir
menn að læra þau utanbókar. —
Grenjaðu aldrei í ósigrinum,
hreyktu þér aldrei í sigrinum,
hefur hann sagt annarsstaðar.
'k 'k
Winston Churchill fæddist í j
Blenheimhöll 30. nóvember 1874.
Hann var af frægum aðalsættum,!
forfeður hans höfðu verið her-1
menn. Höllin sem hann fæddist.
i í var gjöf þjóðarinnar til John!
Churchills, hertoga af Marlbor- j
ough, í þakklæti fyrir sigurinn
yfir Frökkum og Bæjurum við.
Blenheim 1704.
i Faðir hans var Randolph Chur-!
chill, glæsilegur stjórnmálamað-1
ur og um tíma forsætisráðherra
j Breta, voldugur maður um tíma,'
en beið mikinn og niðrandi ósig- ;
ur á þingi, sem hann náði sér
aldrei eftir. Móðir hans var
bandarísk, fluggáfuð kona og
skáld. — Ég á rætur í báðum
hinum Engilsaxnesku þjóðum,
heíur Churchill sagt.
i Winston var vandræðabarn.
Mikið lífsfjör brauzt út í kenjum
og hrekkjum. Þegar hann átti að
ganga menntaveginn, hafði hann
engan áhuga fyrir því, sjaldan
leit hann í bók og skilaði auðu
á prófum. í hinum fræga Harrow
j skóla var hann jafnan fúxinn í
sínum bekk. Tvisvar féll hann
við inntökupróf i Sandhurst, en
skreið í þriðja skipti inn.
STEFNUBREYTING I
Það var á síðustu árum hans
i herskólanum, þegar hann stóð
á tvítugu, að alger stefnubreyt-
ing varð í lífi hans. Hinn ungi
maður leit yfir farinn veg, fullur
sjálfsálösunar. E. t. v. hefur hið
niðrandi fall föður hans og dauði
1895 átt sinn þátt í þessu. Svo
mikið er víst, að jafnan eftir
þetta birtist hann sem algerlega
nýr maður, viljaþrekinu beinir
hann á þarflegar brautir ástund-
unar og þjálfunar.
Hann þjónaði í brezka hernum
í Indlandi, en ein’mitt um þessar
mundir hefst blaðamennskustarf
hans sem hann gat sér mikla
frægð fyrir. Hann fór fyrir blað-
,, ið Daily Graphic til að fylgjast
með stríðinu á Kúba 1895. Vet-
urinn 1897 var hann austur á
Indlandi og tók þátt í bardög-
um við uppreisnarmenn í norð-
fyrsta . urhéruðum ^Jandsins. Hann er
] meðal fyrstu raunyerulegra
stríðsfréttaritara, sem bæði tók
sjálfur þátt í bardögum og ritaði
um þá. Áður höfðu fréttaritar-
arnir allt sitt vit úr öðrum.
Það er skemmst af að segja að
fréttir Churchills frá Indlandi
vöktu stórkostlega at’nygli og
þóttu frábærlega ritaðar. —■
Skömmu síðar gaf hann út sér-
staka bók um þessa atburði „The
Malakand Field Force“, sem varð
metsölubók. Prinsinn af Wales
sendi honum sérstakar þakkir
fyrir bókina og þegar Churchill
kom til Lundúna skömmu síðar,
var hann kallaður á fund Salis-
bury lávarðar, sem tilkynnti
honum, að hann hefði lært meira
á bók hans um stríðið í Indlandi,
en á því að plægja sig í gegnum
mannhæðarháa hlaða af her-
st j órnarskýrslum.
MIKILL STÍLSNILLINGUR
Þetta var fyrsta bók Churchills.
Síðan hefur hann skrifað mik-
inn fjölda bóka, sumt þeirra
voldug verk. Frægustu bækur
hans eru frásagnir hans af báð-
um heimsstyrjöldunum, sérstak-
lega er saga seinni heimsstyrj-
aldarinnar stórbrotið verk, snilld
arlega skrifuð. Og ekki má
gleyma hinu volduga verki hans
um hertogann af Marlborough,
forföður hans, sem jafnan verð-
ur getið sem eins merkasta sagn-
fræðirits Breta. Eina skáldsögu
hefur hann samið, það var önn-
ur bók hans. Nefndi hann hana
„Savrola". Ræður hann öllum
vinum sinum frá að lesa hana,
en er það þó skemmtileg bók.
Þannig hefur Churchill verið
mikill rithöfundur, en hann hef-
ur aldrei orkt ljóð. Er það í
rauninni undarlegt, því að hann
kann urmul af ljóðum og hefur
oft sýnt það í ræðum og riti, að
hann hefur næma tilfinningu fyr-
ir hljóðfalli og rími.
Fyrir ritstörf sín og ræður var
hann sæmdur Nóbelsverðlaunum
s. 1. ár. Ég hef stundum heyrt
fólk hafa það í flimtingum, telja
að hann hafi ekki verið þess
verður að hljóta bókmenntaverð-
laun. Slíkt er af mikilli vanþekk-
ingu mælt, því að ef menn lesa
bækur hans, verður eitt af því
fyrsta, sem rennur upp fyrir les-
andanum, að Churchill sé einhver
mesti stílisti, sem uppi hefur ver-
ið. Og einstakar ræður hans eru
klassisk verk, meðal þess feg-
ursta og áhriíaríkasta, sem sam-
ið hefur verið.
FRÆGUR STROKUFANGI
Hann tók þátt í Nílarherferð
Breta 1898 og hinum fræga og
ægilega bardaga við Omdurman
og síðan starfaði hann sem
fréttaritari í Búastríðinu í Suð-
ur Afríku. Hann var tekinn til
fanga af Búum, en ekki hafði
hann setið lengi í fangelsi, þegar
honum tókst að strjúka og flýja
óraleið með járnbrautum.
Hann klifraði yfir háan hvít-
an vegg á einu augnabliki með-
an vörður sneri að honum baki,
gekk gegnum skóglendi, stökk
upp í járnbrautarlest á ferð. Fór
aftur af henni hungraður og
þreyttur, sá ljós frá litlum bónda-
bæ fyrir sér í þessu óvinalandi.
Gaf sig þar fram, en bóndinn
reyndist Bretavinur, faidi hann
og kom honutn í flutningavagni
til portugölsku nýlendunnar
Mozambique.
Fræg er auglýsi-ngin, sem Bú-
ar gáfu út um hvarf hans og
buðu 25 pund hverjum, sem á
hann benti: — Englendingur, 25
ára, 5 feta 8 tommur á hæð,
venjulegur að vaxtarlagi, gengur
álútur, fölur yfirlitum, rauð-
brúnt hár, lítið yfirvaraskegg,
talar gegnum nefið og getur ekki
borið rétt fram „S“.
| Flótti þessi varð frægur mjög
um Bretaveldi. Churchill var allt
Frh. á bls. 18.