Morgunblaðið - 02.12.1954, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.12.1954, Blaðsíða 2
18 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 2. des. 1954 CHILL ÁTTRÆÐUR Framh. af 17. í einu orðin þjóðhetja. Er heim kom beið hans mikið starf, út- gáfa margra bóka um Nílarstríð- ið og Búastríðið, hundruð fyrir- lestra og síðan stjórnmálin. Hann var fyrst kosinn á þing fyrir í- haldsflokkinn árið 1900, 26 árá gamall. TJMSVIFALAUST 1 HEITAR MNGDEILUF. Það er oft sem ungir þing- xnenn í Bretlandi bíða lengi og skoða sig um í virðulegum þing- sölum áður en þeir halda sína jómfrúræðu. En ekki voru liðnir néma fáeinir dagar, þangað til Churchill hafði ruðst inn í hinar lieitustu rökræður. Þetta var ekki auðvelt fyrir liann. — Ég gat ekki sagt eina óbrjálaða setningu án mikils undirbúnings, hefur hann sjálfur sagt. Og hann hefur lýst þeirri tilfinningu, þegar hann stóð fyr- ir framan þingheim — þessu dökka tómi, sem er svart eins og djúp gröf frá eyra til eyra, sem skellur yfir mann, þegar for- setinn tilkynnir nafn manns. Það er staðreynd, að öll fyrstu árin skrifaði Churchill ræður sín- ar fyrirfram og lærði þær utan að Enginn verður óbarinn biskup. Ræðusnilld hans sem er viðbrugðið, var ekki meðfædd, heldur áunnin gegnum óskaplega þjálfun og þolgæði. YFIR GÓLFIÐ Fljótt kom í Ijós að Churchill sætti sig ekki við að láta flokks- forustuna hugsa fyrir sig. Þeg- ar Josef Chamberlain forsætis- xáðherra og foringi íhaldsflokks- ins, tók upp verndartollastefnu, snerist Churchill gegn honum. Það var hátíðleg stund í þing- salnum, þegar þessi ungi maður, stóð upp úr sætum íhaldsflokks- ins, gekk þvert yfir gólfið, sneri sér snöggt við og settist við hlið- ina á Lloyd George, helzta for- ustumanni stjórnarandstöðunnar. Frjálslyndi flokkurinn sigraði í næstu kosningum og Churchill var brátt skipaður ráðherra, fyrst var hann nýlendumálaráð- lierra, en sat svo í fjölda mis- munandi ráðherraembættum. — Hann hefur verið ráðherra oftar og lengur en nokkur annar stjórn málamaður Breta. DARDANELLA MISTÖKIN Hann var flotamálaráðherra frá 1911—1915 og var það talið honum að þakka hve brezki flot- inn var í góðu ásigkomulagi þeg- ar fyrri heimsstyrjöldin brauzt út., Það hefur jafnan einkennt Churchill, að hann fær stöðugt ótal hugmyhdir, sem aðrir menn | koma ekki auga á. Roosevelt for- | seti hagði um hann: — Churchill fær minnsta kosti 100 nýjar hug- myndir á hverjum degi, að minnsta kosti fjórar eru afburða snjallar, hinar góðar. Og fjórar er ekki svo lítið. í fyrri styrjöldinni átti hann liugmyndina að landgöngunni í ^ Antwerpen, sem dreifði herstyrk Þjóðverja og tafði fyrir þeim. Það er hugsanlegt, að sigur Frakka við Marne hefði ekki ver- ið nema vegna þess að kraftar Þjóðverja dreifðust. Og síðan átti hann upptökin að Gállipoli-herferðinni. Síðari tím- ar viðurkenna, að hugmyndin um að láta brezka flotann ryðjast gegnum Dardanella var snjöll. Uppgjöf Tyrkja svo snemma hefði veikt Þjóðverja og Austur- xíkismenn og þeir misst Balkan- skaga. En framkvæmd herferðarinn- ar var í óskaplegum ólestri. Mis- tök í herstjórninni voru svo mik- il að það kunni ekki vel að fara. í landgönguskipunum voru her- gögnin neðst í lestunum, matvæli og aðrar birgðir efst, líkt og fyrst ætti að skipa vistum á land í Tyrklandi og síðan að hertaka landið með vopnum!! Þannig mistókst Dardanella-herferðin,1 Hretar biðu mikið afhroð og höfðu hneisu af. Og Churchill varð að fara frá, þótt sjálfur ætti hann ekki sök á þessum mis- tökum. Þegar nefnd rannsakaði þetta mál, hlaut Churchilt fulla upp- reisn. Það var þörf fyrir hann enn, l'fsf'ör h?.ns og starfsbrek í stríðsstjórninni. Þevar T loT-d George, góðvinur hnns, hafði tek- MUNCIIEN- SAMNINGARNL". Frá Múunchen fundinum kom I'eviiie Chamberlain heim og til- 1 ynnti þjóð sinni að hann hciði 1 m'pt he \r i fri3 um alla tikíð. Honum var fagnað geysilcga, fríð- ariiofðingjar.um rnikla. Svo l ’iiduð var hin brerka þjóð, svo r lgerlega dáleidd af heiniikulegu Árin fyrir síðustu heimsstyrjöld voru tímar undansláttar fyrir ofbeidisstefnunni, þegar íriðardúfuhjal sturlaði menn svo þeir sáu ekki haettuna. Hér sést Neville Chamberlain semja við Hitler um „eilífan frið“. Churciiill fordæmdi andvaraleysi i þessum málum og var ómyrkurí máli. og algerlega óraunhæfu friðar- dMuhjali. Þá var elni maðurinn sem stóð upp og mótmælti, það var Winston Churchill. Ræða sú, er hann hélt í neðri máistofunni 5. október 1938 eftir Múunchen- samrúngana verður lengi i minn- um höfð: — Þið seglð að þetta sé í fyrsta skipá sem ílitler hefur lá.ið undan og íkegið úr kröf- u.ii sk.um. \i« sí ulum athuga það « siuttrl dæmisögu Ræninginn krafðist cins sterl- ingspimds með sk.ammbyssu- hótun í aerchtesgadcn, s:ðan krafðist hann tveggja sterlings punda með skammbyssuhótun i Godesberg. Loks féllst han.n á að taka eiit sterlingspund cg 17 shillinga í Múnchen. Fyrir þrjá skildingana sem hann ekki tók þykisi hann svo eiga rétt á góðvild okkar og vin- áttu. Við höfum orðið að þola a!- geran og óblandaðan ósigur. Þýzki einræðisherrann, hef- ur í stað þess að hremma áyexí ina með oíbeldi, sætt sig við að íáta veita sér þá með stimamýkt. Þögul, sorgbiiin, yfirgeíin, broíin, liverfur Tékkóslóvakía í myrkiið. Ég hugsa að eftir noiíKurt tímabil, mælt i fáein- um mánuðum, verði hún gleypt rncð húð og hári af of- beiái nasista. ★ Það getur aldrei orðið vin- áita milli brezks lýðræðis og þýzks oíbeluij, — ofbeldisins s.m afneitar kristilegri sið- fræði, sem æsir lcppa sína fram í villimannlegri skurð- giðaáýrkun, stærir sig af árásaranda og hernaðarsigr- um, seíir nemur kraft og ó- hugnanlega ánægju úr ofsókn- uíii og r.otar morðhólanir, eins og við hiifum séð með vægðar- iausri grimmd Erezka þjóðin skal fá að vita u;n stórkostlcga van- ræasiu*og vanbúnað i land- vörnum. Hún skal fá að vita, að við höfum beðið stórkost- Iegan ósigur án styrjaldar og aö áhrifa hans mun gæta langt fram eftir veg. Hún skal fá að vita að við höfum gengið írasn hjá hræðilegu vegmerki, þar sem á stendur: „Þú ert vegin og léttvæg fundin.“ En ímyndið yður eigi að þar með haii sagan verið skráð til enda. Hér hefst byrjun hins beizka skilnings. En Churchill talaði fyrir dauf- um eyrum. Einn gat hann engu um þokað. Þjóðin var í fagnaðar- vímu yfir friðnum, sem húrt hélt að maðurinn með regnhlífina, NeviIIe Chamberlain, hefði fært henni frá Múnchen. En í allri vimuhni, þá virðist þó sem hin þungu alvöruorð Churchills á þessari stundu hafi fengið marga til að hyggja örlítið nánar að. Hvað bar þá framtíðin í skauti sér annað en ógn og ótta. Þó aðhafðist ríkisstjórnin enn sáralítið, en Beaverbrook lávarð- ur, kunningi Churchills, lét smíða á eigin kostnað nokkra tugi eða hundruð af Hurricane-orustuflug vélum. STYRJÖLD BRÝZT ÚT — CHURCHILL TEKUR VIÐ STJÓRNAUTAUMUNUM Þegar styrjöldin brauzt út 3. september 1939 kallaði Chamber- iain þegar á hann og skipaði hann flotamálaráðherra. Hver ósigur- inn rak annan, herafli Breta og barvdamanna þeirra var í molum, hann stóð vopnlaus frammi fvrir stálgráum liðssveitum Húnanna, sem brunuðu viðstöðulaust fram. 10. maí 1940 þegar Þjóðverjar hófu leiftursóknina vestur á bóg- inn sagði Chamberlain af sér, en Churchill þá 66 ára var kvadd ið við stjórnarforustu, var hann skipaður hergagnamálaráðherra. Þar nutu hugmyndir hans sín og þegar tillögur um smíði skrið- dreka komu fram, var hann sá eini, sem skyldi þýðingu þeírra. Churchill skyldi einnig öðrum hetur þýðingu flugvélanna. Átti hann uppástungu um að stofna sérstakt flugmálaráðuneyti. i FÉLL FYRIR FRAMBJÓÐANDA GÓÐTEMPLARA , Árið 1922 féll hann við þing- kosningar í Dundee, fyrir and- stæðingi sínum, sem var fram- bjóðandi góðtemplara og bann- manna. 1 í tvö ár sat hann ekki á þingi og gaf það honum gott næði til að skrifa endurminningar sínar frá fyrri heimsstyrjöldinni. Kos- inn aftur á þing 1924, var um tíma fjárfnálaráðherra, en í það skipti fataðist honum illa, heims- kreppan kom yfir, svo illt var við að ráða. i Síðan var hann utan flokka um skeið. Aðhylltist aftur íhalds- flokkinn, þegar Staniey Baldwin , tók upp frjálslyndari stefnu, en var þó utanveltu. A þessum ár- um ritaði hann mikið, þar á með- al hið stóra verk ura Marl- borough. HRÓPANDiNN í EYIMÖRKINNX Og á þessum árpim hófst hin mikla eyðimerkurganga hans Sú saga er átakanleg, þegar hann hrópandinn bentí þjóð sínni stcð- ugt á hætturnar sS eíheídisstefnu Þjóðverja. Hann beKfiöiIum rök- um, hann grátbændi bjóð s'na um að skilja hættursaog vígbúaat til varnar. Hann íór til Stanley Baídwins forsætisráðherra og ki'afðist þess að hervæðing væri haíín. Svar Baldwins var: — Það er útílokað — ef við minnumsí einu orðí á hervæðingu, þá munum viS ger- samlega tapa kosníngunum. Kef- A styrja dararttnum bundust lrjoðarle.atogarn.r austan og vestan ur nokkur þjcð verið svo bnnduð, h:lfs oi*ÍafancIi vináituböndum. Hcr sjást þeir Roosevelt og Chur- gegnum Abyssiníu-stríðið, Spán- a Atlantsháfsfundiimm. Vinátta og samstarf engilsaxnesku arstríðið, hernám Austurríkis og þjóðanna sitt hvoru megin Atlantshafsins er sterkasta aflið í Súdetahéraðanna. . heimsstjórnmálunuin. ur til konungs, sem bað hann að taka stjórnarforustuna. — Sé það ósk yðar, herra, svar- aði Churchill á látlausan hátt. Þetta var þung byrði. Það hefði margur látið bugast Ekkert virt- ist blasa við annað en skelfilegur ósigur. Brezki herinn komst þó undan frá Dunkerque, en í sárum og vopnlaus. Á öllum Bretlands- eyjum voru til 10 skriðdrekar, 50 fallbyssur. Handan sundsins fylktu Þjóðvei’jar hundruðum og þúsundum vélknúinna farar- tækja og hergagna, fallhlífarlið þeirra var öflugt og áræðið árás- arlið. En rödd Churchills þrumaði gegnum vopnagný til allra frjálsra þjóða heims: Ég hef ekkert að bjóða nema blóð og erfiði, tár og svita. Þér spyrjið, hver sé stefna mín? Ég svara: Hún er a'S heyja styrjöld á sjó, ljndi og lofti með öllu því afli sem Guð’ getur gefið okkur, — að heyja stríð gegn ógeðslegu ofbeldi, sem yfirgnæfir allt annað í hinni dimmu, hörmulegu skrá mannlegra glæpa. Þér spyrjið hvert sé mark- mið mitt? Ég get svarað með einu orðið, það er sigur, mark- miðið er sigur hvað sem það kostar, sigur þrátt fyrir allar ógnirnar. Og enn sagði hann: Við skulum hvergi hvika. Við skulum berjast þar til yf- ir lýkur. Við skulum berjast í Frakklandi. Við skulum verja eyjuna okkar, hvað sem þaff kostar. Við skulum berjast á sjónum og úthafinu, við skul- um berjast á ströndunum. Við skulum berjast á ökrum og strætum. Við skulum berjast í fjöllunum. Og jafnvel þó svo færi, sem ég trúi ekki eitt and- artak að verði, að þessi eyja okkar félli í hendur óvinunum, þá skulum við berjast áfram frá bækistöðvum okkar í öll- um hinum víðlendu samveld- islöndum. Við skulum aldrei gefast upp. Síðan komu hin frægu hvatn- ingarorð hans: — Við skulum manna okkur upp og gegna skyldum okkar. Og ef brezka heimsveldiS stendur í þúsund ár mun enn verða sagt um okkur þá: — Þetta var þeirra stærsta stund. 7. september 1940 hófust hinar ægilegu loftárásir Þjóðverja á London og aðrar borgir Englands Nótt eftir nótt rigndi þúsundum smálesta af sprengjum og íkveikjuhylkjum yfir horgina. BYRJUM AFTUR Á MORGUN Nú barf eigi að rekja þessx sögu Chui’chills lengra. Barát'a hans og starf allt hin síðustu ár stendur enn skýrt í minningunni. En við skulum skilia við hann, þegar musteri þingræðisins, neðri málstofan í Westminster-höllinni gereyðilagðist í loftárás. Hann gekk högull inn um rústirnar, starði hugsandi á hina hræðilegu eyðilggingu. Svo tók hann upp lítið steinbrot og mæjfi með rödd sem titraði af innbyrgðum til- finningum: — Þetta er í dag. — Við byrj- um aftur á morgun. Þ. Th. Churchill kominn af Karli mikla LONDON — Sir Winston Churc- hill hefír nú verið tekinn upn í aðalsmannatalið brezka, „Deb- rett’s Peerage“. Sir Winslon kvað vera kominn af Karli mikla í kvenlegg. Af öðrum forfeðrum hans má nefna Alfreð mikla Englandskonung, Vilhjálm bast- arð og Hinrik sjöunda. * IíEZT AÐ AVGLÝSA í MORGUNBL4ÐIMJ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.