Morgunblaðið - 02.12.1954, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.12.1954, Blaðsíða 10
26 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 2. des. 1954 Kfistln Eyjólfsdótlk j injftjér#itt«Éi vetna, drukknaði á þilskipi í mannskaðaveðrinu mikla 7. apríl 1906 og með honum sonur hans upp kominn, Guðmundur að nafni. Tvær hálfsystur Kristínar, Minnsiífarorð RÆKTARSEMIN er ríkur þáttur í lífi og skapgerð íslendinga. Þar eru dæmin deginum Ijósari. Gæt- ' Elinborg og Guðný, eru á lífi, ir þessa meðal annars í því, hve búsettar í Reykjavík. Aldamótaárið giftist Kristín Þorsteini Ólafssyni. Var Þor- steinn elztur hinna mörgu og mannlegu barna þeirra Ásgerðar Sigurðardóttur og Ólafs Jónsson- ar á Stóru Fellsöxl, en frá þeim er mikill ættbálkur kominn. Hin ungu hjón reistu bú á Sól- mundarhöfða í Innri Akranes- hreppi. Bjuggu þau í nokkrum stöðum í því byggðarlagi nær- felt fjóra áratugi, en síðast og lengst á Kjaransstöðum. Þau Kristín og Þorsteinn ráku búskap inn jafnan af miklum dugnaði og ráðdeild og fyrirhyggju. Gerðu þau miklar umbætur á jörðum sínum.. Var jafnan viðbrugðið þeim snyrtibrag og reglusemi, sem þar var á öllum hlutum á heimilinu. Þrátt fyrir stóran barnahóp og langvarandi van- heilsu bónda hennar hin síðari ár var fjárhagur þeirra hjóna jafnan rúmur. Naut heimilið í því efni góðs af hinum frábæra dugnaði, áhuga og stjórnsemi húsfreyj- unnar. Hið vökula auga hennar missti aldrei sjönar af því, er heimilinu gat til gagns og sóma orðið og að allt, sem gera þurfti væri fljótt og vel af hendi leyst og ekkert verk í ótíma unnið. — Kristín vandaði mjög til uppeldis barna sinna og kostaði kapps um það með dagfari sínu, að heimilið gæti verið þeim hollur og góður skóli. Kristín var hin mesta skap festu kona, vinsæl, ráðholl og trygglynd. Trúrækni var ríkur þáttur í lífi Kristínar og stafaði þaðan jafnan birta á leið hennar. Kristín missti mann sinn árið 1938. Bjó hún áfram eftir það um skeið á Kjaransstöðum með tveimur ynstu börnum sínum. Brá hún búi fyrir nokkrum árum og fluttist þá á Akranes ásamt sonum sínum. Var heilsa hennar þá og frtarfsþrek farið að láta á sjá, en heimili sona sinna þar, veitti hún forstöðu til hinztu stundar. Þeim hjónum. Kristínu og Þor- steini varð sjö barna auðið. Eina dóttur misstu þau uppkomna. Hin eru öll á lífi: Ásdís og Steinunn, giftar konur í Reykjavík, Ólafur vélstjóri, einnig búsettur þar, Kristján, kvæntur. Sigurjón og Þorsteinn, báðir ókvæntir ,allir búsettir á Akranesi. Með Kristínu Eyjólfsdóttur er að velli hnigin merk og göfug hús freyja, sem lagt hefur með lífs- ferli sínum í skaut hinnar yngri kynslóðar, gott fordæmi og lær- dómsríkt, Pétur Ottesen. — mmmng ÖLD SÚ, sem við lifum á, hefur verið mörgum öðrum ægilegri, slíkt afhroð, sem góðleikur og sannleikur hefur goldið í styrj- öldum og grimmd manndýrkunar og mannbóta. Þeim mun meira virði er það Jón Óli irnason frá Köldukinn tiltækt það er íslendingum að við urkenna opinberlega við andlát j manna, störf þeirra í almennings þágu og halda á lofti minning- ! unni um það, sem þeir hafa af mörkum lagt og áorkað til menn- ingar og framfara með þjóð vorri. Ber það vott um menningarbrag að viðurkenna og þakka það, sem vel er gert og markað hefir djúp spor á þroska og "ramfarabraut vorri. En löngum vill það við brenna, að tíðræddast verður mönnum við slík tækifæri, um líf og starf þeirra, sem mikið hafa færzt í fang opinberlega og mik- ið hefir mætt á í fararbroddi í margháttuðum umsvifum á verk- legu og andlegu sviði. En hitt vill mönnum löngum miklu fre'kar sjást yfir, að minnast á sama hátt á gildi starfa þeirra, sem innt! hafa af hendi verk sín í kyrr.þey, og enginn styrr hefir staðið um ] eða háreysti. En þannig er því, yfirleitt farið um starf húsfreyj-j unnar í landi voru. Starf hennar er tengt órofaböndum við heim- j ilið. Heimilið er hyrningarsteinn þjóðfélags vors. Þar er sáð fyrstu | frækofnunum í barnssálina. Þar j er lagður grundvöllur að lífs- starfi hvers einasta þjóðfélags-' borgara. Það getur því ekki ork--t að tvímælis, hve mikilsverðu hlut verki húsfreyjan hefir að gegna að varðveita þennan helgidóm. — Hins kyrrláta starfs hennar gætir hvarvetna í fari kynslóðanna. Húsfreyjan, sem með fordæmi sínu og áhrifum, hvetur til mann- dóms, glæðir göfugan hugsunar- hátt, fórnfýsi og kærleikslund og varðveitir þann heimilisbrag, sem mótast af því að rækja þess- ar dyggðir, er tvímælalaust stærsti sigurvegarinn með þjóð vorri. Þessa megum vér minnast og þetta ber oss að þakka og metá að verðleikum. Að sama brunni ber í hvaða stétt og stöðu slíkt lífsstarf er unnið. Árangurinn er æ hinn sami: Hamingja lýðs og' lands. Merkur fulltrúi þessa göfuga lifsstarfs, heiðurs- og sæmdar- konan Kristín Éyjólfsdóttir frá Kjaransstöðum í Innri-Akranes- hreppi lézt í öndverðum október mánuði síðasíliðnum á fimmta ári hins átturida tugar. Kristín var fædd í BrekRubæ á Akranesi 22. desember 1877. Foreldrar hennar voru Sigríður Sveinsdóttir, og maður hennar Eyjólfur Sigurðs- son formaður. Kornung missti Kristin föður sinn. Giftíst móðir hennar öðru sinni Kristján'i Guðmundssyni út- vegsbónda á Sólmundarhöfða. Ólst Kristín þar upp. Gekk stjúpi hennar henni í föðurstað og unni sem sínum eigin börnum. Krist- j ján stjúpi hennar, sem var mikill j sjósóknari og atorkumaður í hví- 1 fólk, sem stendur líkt og klettur úr hafróti hraðans, glaumsins og hatursins. Fólk, sem varðveitir guðstrú sína og hollustu við hin eilífu verðmæti tilverunnar. Fólk, semj varðveitir heilindi huga síns og virðir meira trúmennsku hjart- ans við störf og í viðskiptum en stundarhagnað augnabliksins. •— Fólk, sem slakar hvergi á kzöf- um til eigin siðgæðis í tryggð og drengskap. Það er einmitt þetta fólk, sem í hljóðlæti sínu og látleysi stend- ur vörð um æðstu hugsjónir lífs- ins og varðveitir hinn helga eld á arni heimilis síns og hjarta. Og án slíkrar varðstöðu yrði ekki unnt að kveikja aftur, þeg- ar flest verðmæti eru falin eða brunnin í ösku eftir lævi svika og grimmdar. Trúin á Guð, trúin á hið góða í sál mannsins og athöfn hefur lifað af í hjörtum þessa fólks líkt og fræið, sem geymir lífsaflsins innan síns hrjúfa hýðis í'öllum frostum skammdegis, unz það vaknar aftur við vermandi kossa vorgolu, þegar ljósið hefur tekið völd á ný. Og það líkist fræinu einnig að því leyti, hve fáir veita því at- hygli er það hylst í skuggum moldar, þar til blómkróna vagg- ast í blænum. Ingibjörg Jónsdóttir frá Suð- urlandsbraut 76 var ein af þessu trausta bergi íslenzkra erfða. Hún var fædd í Haga á Barða- strönd 26. júlí 1877. En fór þaðan ung að Siglunesi í sömu sveit og ólst þar upp eða dvaldi unz hún fluttist til ísafjarðar. Hún var af kjarnmiklu og kjarkmiklu fólki komin, mönn- um og konum, sem lífsbaráttan hörð og mild í senn hafði meitl- j að, mótað og sorfið til stáls öld-: um saman. Þar höfðu farið saman, dirfska og dugur, gáfur og bókvísi ásamt hreinskilni og hlífðarleysi, sem þó var sérstaklega beitt að eigin I dug. | Þessum erfðum var Ingibjörg trú-til hinztu stundar, bjargtraust og tröll trygg, ein þeirra kvenna, sem fyrr hefðu látið líf sitt en heiður, fyrr fórnað hverjum blóð dropa en bregðast skyldu sinni eða loforðum. Og eins var trú hennar, ekkert hismi, v sem bærðist í hverjum nýjum kenningaþyt, en heit og djörf og söm við sig, traustur demántsharður kjarni. — Ekki karmske svo fægður og glitrandi að ytra borði, en gimsteinn samt, spm staðizt gat hverja eldraun og -aðeins skyrzt við, en ekki bfúnnið. Það er sem svipmót tiginlegra hamrahlíða sé mótað í hvern áfidlitsdrátt, sem speglar sál þessa fólks og orð, athöfn hugs- Framh. á bls. 27. 1 Minningarorð ÞRIÐJUDAGINN 19. f. m. var til moldar borinn í heimagrafreit í Köldukinn í Haukadal Jón Óli Árnason. Húskveðju hélt fyrr- verandi sóknarprestur hins látna séra Jón Guðnason, en sóknar- presturinn séra Eggert Ólafsson jarðsöng. Var jarðarförin fjöl- menn. Hinn framliðni var jarð- settur við hlið konu sinnar Lilju Þorvarðardóttur. Jón heitinn var á 81 aldurs- ári er hann andaðist, fæddur 8. jan. 1874. Hann var heilsugóður alla æfi, en kenndi aðsvifs seinni hluta dags 6. okt. og var örendur að kvöldi. Hann var borinn og j barnfæddur Haukdælingur. Átti heimili í þeirri sveit alla æfi. Ólst upp með foreldrum sínum þar til hann kvæntist 1896 og hóf búskap að Giljalandi. 1908 fluttust þau hjón að Köldukinn. Konu sína missti hann árið 1944 og bjó síð- ustu árin með dætrum sínum tveimur á þriðjungi jarðarinnar móti Sigurði syni sínum. Þau hjón eignuðust 10 börn. Náðu 8 þeirra fullorðinsaldri og lifa nú sex þeirra: Ásgeir á Afl- stöðum, Sigurður í Köldukinn, Kristbjörg og Axelía voru heima hjá föður sínum, Anna og Lilja giftar í Reykjavík. Dánir eru Árni, kunnur húsgagnasmiður í Reykjavík og Ólafur einnig hús- gagnasmiður. Var Lilja sál. hin ágætasta kona. Köldukinnar- heimilið var orðlagt fyrir gest- risni og aðra greiðasemi. Þau hjón Jón Óli og Lilja voru komin af tveimur helstu ættum í Haukadal. Árni í Skógsmúla faðir Jóns Óla var kominn af Vatnshyrningum; ólst upp á Stóra-Vatnshorni. Vatnshyrning- ar voru fésælir og ýmsir þeirra Sræðimenn, þótt Jón Egilsson væri þar helstur. Heilsa góð og hár aldur fylgdi ættinni og urðu nokkrir nær tíræðir. Faðir Lilju var Þorvarður hreppstjóri Bergþórsson á Leik- skálum, en þar bj4-sá karlleggur um tveggja alda skeið og hétu á víxl Bergþór og Þorvarður. Voru það efna og nefndar bændur. Þegar Jón Óli hné til moldar hvarf síðasti fulltrúi hins eldra tíma hér í Dölum vestur. Góður og gegn fulltrúi gamla tímans. Mat mikils fornar dygðir og drýgði þær. Orðheldinn og úr- skurðagóður, hispurslaus og hrein skilinn, hjálpsamur án hiks eða eftirtölu. Hsnn var ákafamaður til allra starfa. Þrifnaður, nýtni og reglusemi var á heimilinu. Hugði jafnan á spakmælið „holt es heima hvat“ og fylgdi því öðr- um fremur. Enginn skyldi þó ætla að hann hafi verið taglhnýtingur sveit- unga sinna í framkvæmdum og híbýlasnyrtingu. Eignajörð sína Köldukinn bætti hann mjög að túnrækt og girðingum og var um skeið langfremstur Haukdælinga sem jarðabótamaður. Hann var söngmaður góður og hneigður að hljóðfæraslætti. Keypti sér snemma orgel, er hann spilaði sjálfur á og sum börn hans. Jón heitinn komst ekki hjá því j að takast á hendur ýms nefndar- störf í sveit sinni, en ekki var honum það keppikefli, því að heima var honum kærast, þó rækti hann störf þessi með alúð og samviskusemi. Allmörg ár var hann stjórnarnefndarmaður Kaupfélags Hvammsfjarðar. .— Á áttræðisafmælinu kjöru sveit- ungar hans hann heiðursborgara Haukadalshrepps og mun hann fystur Dalamanna er slíkan heið- ur hefir hlotið. Lýsir það kjör betur en orð hér á blaði, áliti sveitunga Jóns á mannkostum hans og þeirri þakkarskuld er þeir töldu þeim bæri að greiða honum. Þótti kjör þetta hváru-1 tveggjum til sóma Jóni og Hauk- dælingum. Ég kynntist Jóni heitnum nokkuð á fjórða tug ára og mat hann að meir, þess Iengur sem kynning okkar varði. Hann vann fljótt traust manna, snar í hreyf- ingum og ákveðinn, greindur vel, ekki orðmargur, en gagnorður, setningar meitlaðar og málfar ágætt. Við engan hlut tvínónaði hann. Fljótur í ferðum, ótíðgeng- ið til bæja, en heimilisrækinn. Sótti helgar tíðir og var trú- rækinn og hugleiddi, minnsta- kosti síðari árin, spurninguna um framhald lífsins, en hélt í barna- trú sína og vildi þar sem minnstu gleyma. í sumar kom ég til hans að kvöldi dags. Var hann þá til hvílu geriginn, en glaður og reif- ur. Settist ég á sængurstokkinn og ræddumst lengi við. Meðal annars gat hann bænalesturs og kvaðst lesa bænir sínar á hverju kvöldi, en ver hefði farið með morgunbænahaldið. I bernsku hefði hann eð vísu numið morg- unbænina (Hallgr. P.) en þegar hann stálpaðist ukust annir mjög á morgna, unglingar sýfjaðir og enginn tími til bænahalds. .—. Kvaðst hann þá hafa gleymt henni, en vilja nú rifja hana upp fyrir sér í ellinni. Kvaðst ég sltyldi ráða bót á því og sendi honum Hallgrímskver. Nokkrum dögum seinna kom kverið og boð með „Bænin lærð og lesin morgna. Nógur tími til þess nú“. Að lokum þetta: Vel sé þeim er kunna að meta gamla tímann, velja úr það góða og nytsama er hann geymdi í skauti sínu og halda því, en hafa jafnan opin augu fyrir boðskap nýja tímans og taka þann sið, ef betri reyn- ist, en verða ekki steinrunnið nátttröll vegna fastheldni við hið gamla. Þótt Jón Óli hefði á sér að nokkru snið fyrri tíma mahna og metti mjög hið eldra, lét hann það ekki slá sig blindu fyrir nú- tímans nytsömu tækni, hann kunni þar bæði að velja og hafna. Þjóðrækinn var hann í bezta máta og lét ekki leiða sig í þjóð- málum á neina refilstigu. Hann var iðju- og athafna- maður hérnamegin og kunni vel starfinu. Vart mun hann una þvi til lengdar að sitja áuðum hönd- um hinumegin. Óska honum góðr ar ferðar yfir í lönd lifenda til meiri þroska og starfs. Búðardal, 15. nóv. 1954. Þorst. Þorsteinsson. ittALtTUlMNGS- SKRIFSTOFA Einar B. Guðmundsson Guðlaugur Þorláksson Guðmundur Pétursson Austurstræti 7. Símar 3202, 2002. Skrif stof utími: kl. 10—12 og 1—5. * í MORGUISBLAÐIIW

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.