Morgunblaðið - 02.12.1954, Síða 4

Morgunblaðið - 02.12.1954, Síða 4
20 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 2. des. 1954 KRISTIN HEIMSHREYFING Ráðhústorgið í Florence. Á torginu er bálköstur Savonarola (gamalt málverk). — Saga maitnsanilans Frh. aí bls. 19. kostað að öðlast það rannsóknar- frelsi í hugsun, orði og verki, sem við njótum og viljum njóta. — ★ — ÞAÐ hefur seytlað inn í æðar íslendinga með móðurmjólk- inni, að þeir væru höfðingjar. Ég held, að þeir hafi ekki efni á að týna því viðhorfi, og er skylt að minnast þess, að íslenzk höfð- ingjahugsjón rís yfir hvort tveggja völd og auð, þótt saman geti farið. Gildi alþýðlegs höfð- ingsskapar geta menn ekki skilið nema af samanburði við þær þjóðir, er brestur hann. íslenzk- ur höfðingsskapur hefur ávallt verið andlegs eðlis. Hann hefur nærzt við íslenzka skáldlist og sagnlist og íslenzkt þjóðskipulag að fornu og jafnvel nýju. Það er ekki einskis vert, hverjum menn samneyta líkamlega, en hitt er þó meira vert, hverjum menn samneyta andlega. Manndómur okkar hefur birzt í því og eflzt við það, að sérhver íslendingur hefur jafnan verið fús til sam- neytis við andiega höfðingja, og sést það m. a. af ástsæld höfuð- skáldanna, bæði fyrr og síðar. Nú má kalla, að hver maður sé í andlegri þjóðbraut. Um hana fara nú sem fyrr bæði höfðingj- ar og göngumenn. Þó er jafnan sá munur á höfðingja og göngu- manni, að höfðinginn kveður ekki annarra manna dyra erind- islaust, en göngumaðurinn gerir sér hverjar dyr heimilar. And- legur göngumaður efast aldrei um, að honum sé heimilt að ónáða aðra menn með skoðunum sínum. í Sögu mannsandans fara höfð- ingjar um þjóðbraut. Margur forvitinn íslendingur sat um gesti, spurði þá frétta og veitti þeim góðan beina. Andans mönn- um getum við veitt þann beina að kynnast sjónarmiðum þeirra, og kemur þó hagnaðurinn mestur í okkar hlut. Ég get ekki hvatt menn til að lesa þetta rit án þess að minna sérstaklega á eitt atriði, er mér virðist þörf á að brýna fyrir hverjum heilskyggnum manni. Ágúst H. Bjarnason hefur alla tíð velt „vandamálum mannlegs lífs“ mjög fyrir sér. .Honum er annt um friðinn og réttlætið. Hann trúði því ungur, er hann hugleiddi, að þjóðir tóku að leggja ágreiningsefni sín í gerð- ardóm, að meiri líkur væru þá „en nokkru sinni fyrir því, að stríð og blóðsúthellingar færu rénandi“. Það fer vart hjá því, að hann hafi sjálfur talið bjartsýni æsku sinnar hafa verið meiri en rætast mátti. Þó mun hann vera Gandhi sammála, er hann rekur orð hans: „Sagan kennir oss, að þar sem menn. hafa reynt að útrýma ofbeldi með of- beldi, þótt af beztu hvötum væri, hafa þeir tekið sömu sýkina.... Áhugi minn á frelsi og sjálfstæði .... ,mundi hjaðna, ef menn beita gjörræði. Ávöxtur þess yrði þrælkun, en ekki frelsi." i Þó að Ágúst H. Bjarnason lifði það, sem nærri lætur að kalla megi sigurför ofbeldisins meðal þeirra þjóða, er mótað höfðu merkustu mannúðarhugsjónir 19. aldar, þá er hann enn í síðustu ritum sínum karlmannlegur og bjartsýnn og trúir því, að andi guðs sé að „opinberast í heim inum, og þó jafnan í fegurri og göfugri mynd, eftir því sem mannkyninu fer fram“. Það er skylt að þakka þeim rithöfundúm og útgefendum, sem stuðla að því, að sá arfur, er við hlutum beztan, geymist og ávaxt- ist. Að því hefur Ágúst H. Bjarna- son unnið drengilega með þessu riti, og Hlaðbúð er sómi að því að hafa gefið það út. Broddi Jóhannesson. Rafha sfgraði í firmakeppni HAFNARFIRÐI — Firmakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar lauk þriðjud. 23. nóvember. 48 firmu t.óku þátt í keppninni, og bar Rafha sigur úr býtum, en Friðrik Guðmundsson tollþjónn spilaði fyrir það firma. Hlaut það 164 stig. Bátafélag Hafnarfjarðar (Sigmar Björnsson) varð annað með 162, Gunnlaugsbúð (Reynir Eyjólfsson) 153]/2> Alþýðubrauð- gerðin (Björn Sveinbjörnsson) 150, Verksmiðja Reykdals (Gunn laugur Guðmundsson) 148V2, Kaupfélag Hafnfirðinga (Hörður Guðmundsson f 145, Húsgagna- bólstrun Ragnars Björnssonar (Ólafur Ingimundarson) 143 Vi, Fisksala Jóngeirs (Vagn Jóhanns son) 143%, Frost h.f. (Bjarni Marteinsson) 143, Verzlun Jó- hannesar Gunnarssonar (Pétur Auðunsson) 142V2, Verzlun Ólafs H. Jónssonar (Jón Pálmason) 142, Prentsmiðja Hafnarfjarðar (Árni Ingimundarson) 140 V2, Netagerð Kristins Karlssonar (Kári Þórðarson) 140V2, Verzlun Þorvaldar Bjarnasonar (Kristján Andrésson) 139%, Bæjarútgerð Hafnarfjarðar (Einar Guðnason) 138, Verzlun Bergþóru Nýborg (Páll Böðvarsson) 137%. Þetta var síðasta innanfélags- keppnin fyrir áramót, en sú næsta verður sveitakeppni, og hefst hún strax eftir áramót. Eru væntanlegar sveitir beðnar að gefa sig sem fyrst fram við for- mann félagsins, Sævar Magnús- son. — Sennilega keppir félagið við Brigdefélag kvenna í Reykja vík næstkomandi föstudag. Verð- ur sú keppni þá háð í Alþýðu- húsinu og hefst kl. 8. Síðastliðinn sunnudag fóru 5 sveitir héðan upp á Akranes og spiluðu við Akurnesinga í bridge. Unnu Hafnfirðingar á tveimur borðum, gerðu jafntefli á tveim-' ur og töpuðu á einu borði. — G.E. SAMVERKAMAIÐUR minn í Kína, norskur kristniboði, var vetrarlagi. Skammt á undan hon- um gekk hópur manna, sem hann náði brátt. Nokkrir karlmenn géngu á undan, en á eftir þeim labbaði drengur á að gizka 10—12 ára gamall. Göngulag hans var svo einkennilegt, að hann virtist í hvorugan fótinn geta stigið. Þeg ar kristniboðinn nálgaðist hann, sá hann að tár streymdu niður eftir báðum kinnum. Og ekki leið á löngu fyrr en í ljós kom hvers vegna hann gekk svo skringi- lega. Tauskórnir, sem har.n var í, voru orðnir að skjóllausum slitr- um. Hann hafði kalið svo í snjó og frosti að báðir fætur voru bólgnir og helaumir. Ræningjar höfðu haft þenna dreng á brott með sér. En einn karlmannanna, sem gengu á und- an honum á veginum, hafði greitt fyrir hann lausnargjald í von um að hagnast á því, láta föður drengsins borga sér hærra lausn- argjald. Kristniboðinn, sem var ríðandi, var fljótur að fara af baki og setja asnann undir drenginn. Þeir gengu allan daginn. Dreng urinn hélt sig að hinum nýja, einkennilega vini sínum. En hug- ur kristniboðans reikaði vestur á bóginh, óravegu yfir höf og lönd, heim til Noregs. Hann hugs- aði til kristniboðsvina þar. Og þeir urðu í huga hans sem einn maður ákaflega stór, bjartur yfir. litum og vingjarnlegur á svip. Og þúsundir handa urðu í huga hans sem ein, afarstór og sterk hönd. Hún teygði sig út til þjóðanna handan við heimshöfin, til Afríku til Indlands, til Kína. Og hann sá hana lyfta körlum og konum á öllum aldri úr myrkri heiðin- dómsins upp að hjarta Guðs, hella smyrslum í sár milljóna manna, bjarga tugþúsundum barna, sem ella hefðu verið bor- in út, og tugþúsundum ekkna, sem ella hefðu verið brenndar eða ofurseldar ástríðum miskunn arlausra manna Um kristinboð má vissulega hafa orð Sálmanna, að það sé: | „Heilagur armleggur Drottins, sém hefur kunngjört hjálpræði sitt og íyrir augum heiðingjanna | opinberað réttlæti sitt“. j Kristnir menn rækja helgar , skyldur við Drottin sinn og við i tvístrað og hrjáð mannkyn, með | trúboði, vitnisburði, fræðsiu og ^ margvíslegum framkvæmdum, . bæði heima fyrir og út á við. i Unnið er að útbreiðslustarfsemi | kristins safnaðar að boði Drottins ' sjálfs: „Farið og gjörið allar þjóðir að mínum lærisvein- um“. Því er kristniboð í raun og sannleika málefni hans, málefni safnaðar hans og höfuðvelferðarmál mannkynsins. | Um það hefur íslenzkur pró- fessor réttilega sagt: „Öll von um nýja tíma, nýjan heim, er við hann bundin. Trúin á framtíð allra þjóða, dökkra og hvítra, er byggð á því, að hve miklu leyti Kristur fær að verða niátt- ugur í lífi þeirra“. j Kristur fól lærisveinum sínum raunverulega aðeins eitt verk- , efni: Gera þjóðirnar að læri- j sveinum sínum. Öll störf þeirra skyldu miða að því, allt líf þeirra helgast af því háleita takmarki. Og það var aðeins einn möguleiki til þess að svo gæti orðið, að þeir væru með sama hugarfari og hann. En hann lét allt mannlegt böl til sín taka. Hann vildi ekki láta hungrað- an mannfjölda fastandi frá sér fara. — Slíks hugarfars er vissu- lega enn þörf. Talið er að helm- ingur manna í heiminum fái ekki satt daglegt hungur sitt til fulls. „Og alla þá er sjúkir yoru lækn ! aði hann“, — „Læknið þá, sem sjúkir eru“, sagði hann við lærr- sveina sina. Þeir gerðu það og j gera svo enn. Því er síst vöntun ★ cftir Ólaf Ólafsson, krisfnshoða á sjúkrahúsum og öðrum líknar- ] stofnunum í kristnum löndum, en hins vegar afartilfinnanleg í öll- um ekki kristnum löndum und- ; antekningarlaust. — í Eþíópíu hváðu vera 150 þúsundir manna um hvern lækni í landinu. Sam- svarandi því væri að við íslend- ingar yrðum að bjargast við einn lækni. FYRRI GREIN Ennfremur bætti Kristur úr því böli, sem veldur öllu öðru böli mannanna og Biblían nefnir synd. „Vertu hughraustur, barn- ið mitt, syndir þínar eru þér fyr- irgefnar"; mælti hann við lama manninn. — Að því mikla líkn- arstarfi skildu lærisveinar hans einnig vinna, með því að boða öllum þjóðum iðrun og synda- fyrirgefningu í hans nafni. Þeir, sem að þessum málum vinna, hafa vafalaust sársauka- fulla tilfinningu af því því fer fjarri að þeir yíirleitt séu til þess hæfir, séu „með sama hugarfari sem Kristur Jesús var“, — hve mikið vantar á að þeir líkist hinni fullkomnu fyrirmynd. Því verður hinsvegar ekki hald ið fram með sanngirni, að þeir hafi alveg misst marks og litlu komið til leiðar. Síðast liðin full hundrað ár hafa ekki aðrir aðilar gengið betur fram í því að veita liðsinni þar sem hungrið svarf að, líkna sjúkum og þjáðum. Sjúkrahús og aðrar líknarstofn anir kristniboðsins eru einstætt fyrirbæri í sögu mannkynsins. Samkvæmt nokkurra ára göml- um tölum voru sjúkrahús þess 3500. Sjúklingar skiftu mörgum milljónum ár hvert. Frá því er kristniboðar stofnuðu fyrsta sjúkrahúsið í Kína 1827 og fram til ársins 1911, höfðu kristniboðs- félög stofnað og starfrækt öll sjúkrahús (að vestrænum hætti) í því stóra landi. Svipaða sögu er að segja frá mörgum öðrum löndum. í átta sjúkrahúsum kristniboðsins í Arabíu fær fleira fólk bót meina sinna en allir pílagrímar eru, sem til Mekka fara. Svipað afrek hefur kristniboð- ið unnið á sviði fræðslumála. Skólar þess eru yfir eitt hundr- að þúsund og nemendur í þeim á sjöttu milljón, herma skýrslur frá 1949. Kristniboðar hafa skap- að ritmál og gefið út fyrstu bæk- ur á tungum fjölda þjóða. Heildaryfirlit um vöxt og við- gang kristniboðs hefur verið birt við ýms tækifæri, einkum í sam- bandi við fjögur alheims kristni- boðsþing, sem haldin hafa verið. Fyrsta þingið var haldið 1910 í Edinborg, höfuðstað Skotlands, föðurlands Davíðs Livingstones og margra annarra frægra kristni boða. Mættu á því þingi tólf hundruð fulltrúar kristniboðs- félaga mótmælenda kirkna, und- ir forsæti John R. Motts. Hann varð síðar heimskunnur sem brautryðjandi KFUM og kristni- boðshreyfingarinnar, og hlaut friðarverðlaun Nóbels á sínum tíma. Eftir Edinborgarþingið gat enginn, sem eitthvað fylgdist með í því, er gerist gengið þess dul- inn, að starf að útbreiðslu kristin dóms í heiminum var þegar kom- ið á stig heimshreyfinga. Sinnu- lausir kristnir menn gátu eftir sem áður verið afskiftalausir um kristniboð, en því varð ekki leynt fremur en borg, sem stendur á fjalli. Síðan hafa þrjú samskonar þing 'verið haldin. , Alþjóðlegt kristniboðsþing var haldið að lokinni fyrri heims- styrjöld á Olíufjallinu í Jerú- salem, 1928. En allan timann milli þinga hafði starfað milliþinga- nefnd. Stofnaði hún alþjóðlegt kristniboðstímárit, sem enn kem- ur út. Fulltrúar voru nú miklu færri en á Edinborgarþinginu. Þótti hagkvæmra og vænlegra til góðs árangurs að svo væri. Það þótti einna athyglisverðast um þetta þing, að þriðjungur full- trúa voru frá hinum ungu kirkj- um kristniboðslandanna. Næsta þing var háð í Tambar- am á Indlandi, 1938. Þar voru fulltrúar kristniboðslandanna í Asíu og Afríku, í allmiklum meirihluta. Fulltrúar móður- kirkna, í hinum gömlu löndum kristninnar, sem að kristniboðinu hafa staðið, voru orðnir í mirini- hluta, og var þeim hið mesta gleðiefni. Slík þróun þótti benda ótvírætt til þess að hin .kristna útbreiðslu- starfsemi, meðal ekki kristinna þjóða, nálgaðist æ meir takmark sitt: Stofnun sjálfstæðra kirkna, er síðan haldi áfram kristniboði hver innan síns þjóðfélags. Skýrslur hins fjórða alþjóðlega kristniboðsþings, sem var haldið í Kanada 1947. þóttu einnig stað- festa þá von. — Enn er ástæða til að geta þess að á alkirkjuþinginu í Amsterdam 1948, (en þar mættu einnig fulltrúar frá íslandi), vakti þátttaka kristniboðsland- anna einna mesta eftirtekt. „Þátttaka hinna ungu kirkna í löndum Afríku og Asíu, var máttugur vitnisburður um ár- angur hins kristna trúboðs", skrifaði einn Norðurlanda full- trúanna. — „Eigi að lýsa í sem stystu máli því, sem áhrifarík- ast þótti á alkirkjuþinginu“, rit- aði annar merkur fulltrúi, „þá yrði það eitthvað á þessa leið: Vér mættum þar augliti til aug- litis kristniboðinu, bæði sem voldugu sigurtákni Guðs ríkis og sem gífurlegu verkefni kristinn- ar kirkju“. í skýrslum Tambaramþingsins segir að á árunum 1925 til 1938, hafi evangeliskum mönnum kristniboðslandanna fjölgað úr átta milljónum í tuttugu og átta milljónir. Þeim hafði á þeim þrettán árum fjölgað meira en á næsta aldarfjórðungi þar á und- an. Þessar tuttugu og átta millj. skiptust þannig- í Asíu níu millj. í Afríku ellefu millj. í suður- og Mið-Ameríku tvær milljónir. Vestur-Indíum tvær miljónir. í Indónesíu og Suðurhafseyjum um það bil tvær milljónir, og í öðr- um löndum tvær milljónir. Örust hafði fjölgun kristinna manna orðið í Afríku, eða full þrjú hundruð þúsund árlega, síð- asta áratuginn áður en skýrsla var gerð. Samkvæmt skýrslum kaþólska trúboðsins, sem er ekki síður um- fangsmikið en trúboð mótmæl- enda, voru safnaðarmeðlimir þess þá, í ekki kristnum lönd- um, um það bil þrjátíu milljónir. Þess sjást víða merki að kristni boðshreyfingin hefur þokast áfram með sívaxandi þimga. Til dæmis eru nú í Kóreu einni fleiri kristnir menn en voru í Róma- veldi í lok fyrstu aldar eftir Krist. Tökum annað dæmi frá Afríku, sem er þrefalt stærri en Evrópa. Hægt er að aka yfir þvera álfuna, vestan frá strönd- um Atlantshafs og austur að Ind- landshafi, og gista hverja nótt á kristniboðsstöð. Og svo mætti lengi telja. Ólafur Ólafsson. I Bi BEZT AÐ AVGLÝSA MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.