Morgunblaðið - 15.01.1955, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.01.1955, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLAÐID Laugardagur 15. jan. 1955 j ÞRÓTTARFÉLACAR! — STANDIÐ TRÚAN VÖRÐ UM FÉLAG YKKAR KOSNING stjórnar og trúnað- armannaráðs í Vörubílstjóra- félaginu „Þrótti“, fyrir næsta starfsár, hefst í húsi félagsins við Eauðarárstíg í dag kl. 2 e. h., og stendur til kl. 10 í kvöld, og held- ur áfram á morgun (sunnudag) kl. 1 e. h. og stendur til kl. 9, en er þá lokið. Tveir listar eru í kjöri: A-listi, listi lýðræðissinna í félaginu, og (B-listi, sem er listi kommúnista og fylgifiska þeirra. A-listinn er skipaður að mestu sömu mönnum og nú eiga sæti í stjórn og trúnaðarmannaráði fé- lagsins, og er því óþarfi að kynna þá frekar fyrir Þróttarmönnum, þar sem margir þeirra hafa starf- að í stjórn félagsins nær óslitið í 10—20 ár og átt ríkan þátt í að byggja félagið upp og gera það að því baráttutæki í sókn og vörn fyrir hagsmunum Þróttar- manna, sem það nú er orðið. Eins og kunnugt er stóðu Sjálf- stæðismenn og Alþýðuflokks- menn í Þrótti sameiginlega að stjórn félagsins á árunum 1949 til 1952. En þá tókst kommún- istum að kljúfa þetta samstarf og hafa því Sjálfstæðismenn ein- ir farið með stjórn í félaginu síð- an. SAMSTARF LÝÐRÆÐISAFLANNA f Alþýðusambandskosningunum á s.l. hausti var þetta samstarf tekið upp að nýju, — og nú er því haldið áfram, með því að hafa Alþýðuflokksmann í kjöri í stjórn félagsins. Þessu ber að fagna, ekki hvað sízt vegna þess að það hefur aldrei verið neitt sérstakt keppikefli fyrir okkur Sjálfstæðismenn að fara einir með stjórn félagsins, heldur miklu fremur hitt, að sameina öll lýðræðissinnuð öfl innan fé- lagsins til samstilltra átaka um allt það, sem verða mætti hags- munamálum félagsmanna til framdráttar. Það vekur alveg sérstaka at- hygli meðal Þróttar-manna, að kommúnistar hafa nú sparkað Einari Ögmundssyni og nær öll- um fyrri frambjóðendum þeirra burt af lista sínum, — en eins og kunnugt er hefur Einar verið í framboði sem formannsefni um mörg undanfarin ár, en alltaf fallið, og hafa því kommúnistar að vonum talið þýðingarlaust að sýna hann einu sinni enn Þróttar- mönnum. FURÐULEG UPPSTILLING Þá vekur hitt lítið minni furðu, að á lista kommúnista nú eru eingöngp menn, sem aldrei hafa setið í stjórn félagsins, né sinnt ncins kbnar trúnaðarstörfum fyrir Þróttarmenn, og hafa því enga kunnáttu né reynslu í neinu því, sem-að félagsmálum lýtur. En eins og kunnugt er, er Þrótt- ur fyrir margra hluta sakir mjög erfitt stéttarfélag, og málefni þess mártþætt og vandasöm til úrlausnar, ef vel á að fara fyrir félagsmenn. Það veitir því sann- arlega ekki af, að þeir menn, sem með stjórn félagsins fara, hafi einhverja reynslu og þekkingu á þeim málum til að bera. Hið nýja formannsefni komm- únista, Bragi Kristjánsson, bóndi í Ártúnum, er að því ég bezt veit, dagfarsgóður maður og kemur vel fyrir sjónir. Hann hefur um langt skeið rekið all myndarlegt bú í Ártúnum, og er talinn af þeim, sem til þekkja, góður skepnuhirðir. Hvort kommúnist- ar telja Braga af þeim ástæðum líklegasta manninn til að halda til haga ^lgi þeirra í Þrótti, veit ég ekki. En ekki getur það verið af því aé Bragi sé svo vel heima í málefnVim Þróttar, þar sem hann hefur aldrei sinnt neinum trúnaðar^törfum fyrir félagið, og er því fálgjörlega ókunnugur öllu því, sem ;að stjórn -þess lýtur. Bragí Kristjánsson- -hefur þó Parísðr-iamninprn- ir brjóia ekkí í bég við GeniarséH- máiann MOSKVA, 14. jan. — Ráðstjórn- arríkin hafa sent orðsendingar þeim löndum, er aðild eiga að fyr irhuguðu varnarbandalagi V,- Evrópu bess efnis, að ýmsar greinir Parísar-samninganna brjóti í bág við Genfar-sáltmál- ann frá 1925, þar sem samning- arnir geri ráð fyrir framleiðslu og birgðasöfnun sýkla- og eitur- vopna. Stjórnmálafréttaritari brezka útvarpsins kveður það ekki sann- leikanum nmkvæmt, að Parísar- samningarnir brjóti í bég viS Genfar-sáttmálann. — Sáttmáli þessi lagði ekki bann við fram- leiðslu sýkla- og eiturvopna en aftur á móti við notkun þeirra í hernaði. Bæði Bretland og Ráðstjórnar- ríkin slógu þanr. varnagla í sátt- málanum, að vernd sú, er Genfar sáttmálinn veitir, næði ekki til þeirra þjóða. er gerðust brotleg- ar við greinir hans. Talsmaður brezka utanríkis- ráðuneytisins lét svo ummælt i dag, að Bretland og önnur Atlantshafsbandalagsríki áliím það nauðsynlegt að eiga birgðir eiturgass til ao koma í veg fyrir, að nokkurt annað ríki notaðl það. Benti hann á, að Ráðstjórn- arríkin helðu þegar einu sinni haft ástæðu til að vera þakkláfc fyrir, að Bretar hefðu framfylgt þessari nauðsyn. Birgðir þær, cfl Bretar áttu af eiturgasi voru að Framh. á bls. lií J- k aftan é lióslausa IGÆRMORGUN um kl. 8 varð umferðsrslys hér í bænum, er jeppabí'I ók inn undir pall- horn á stórum vörubíl, sem stóð Ijóslaus við gangstétt Hringbraut ar. Ungur piltur ók jeppanum og slasaðist hann mikið á höfði. Hann var fluttur meðvitunarlaus í Landsspítalann, en var kominn til meðvitunar á ný skömmu eft- ir hádegi. Hann heitir Þorsteinn Einarsson, Bræðraborgarstíg 33. Við áreksturinn brotnaði húsið ofan af jeppanum. Maðurinn. sem ók vórubílnum, stóð á götunni skammt frá bíln- um, er áreksturinn varð. Bíll hans hafði ekki farið í gang í kuldan- um. Var maðurinn að biða eftir öðrum stórum vórubíl til að draga bilinn í gang. Við áreksturinn rann vörubíll- inn nokkuvn spöl áfram og rakst á manninn án þess að liann hlyti meiðsl af. Rannsóknarlögreglan biður mann, sem kom í bíl að slys- Hrindið árás kommúnsta vakið á sér athygli meðal Þrótt- armanna í sambandi við eitt mál, sem lengi hefur á dagskrá verið, — hann segist nefnilega vera: einlægur skiptivinnumaður, eins og það er kallað á máli Þróttar- manna. (Einar sagðist nú vera það líka, þótt fáir tryðu því). Ekki tel ég ósennilegt, að bú- skapurinn gefi Braga það í aðra hönd, að ekki þurfi hann á stöð- ugri vinnu að halda fyrir bílinn sinn, til þess að komast sæmilega af, og því sé það útlátalaust fyrir hann, þótt tekin væri vinna af þeim, sem hafa, og fengin öðrum. STÉTTARLEG UPPBYGGING Öðru máli gegnir um Þróttar- menn almennt. Þeir hafa ekkert við að styðjast nema þá vinnu, sem þeir geta aflað sér fyrir bíl- inn sinn hverju sinni. Mjög margir þeirra hafa stundað akst- ur óslitið um og yfir 30 ár; þeir hafa byggt upp félagið til vernd- ar atvinnu sinni og hagsmunum og vinnuveitendur vilja hafa þessa menn í vinnu hjá sér, af því þeir hafa unnið þeim bæði vel og lengi. Meðan Þróttur stóð opinn fyrir þeim, sem inn vildu ganga, streymdu á stöðina miklu fleiri bílar en vinnumarkaðurinn þoldi og var því oft um mikið at- vinnuleysi að ræða. Kommúnist- ar hafa æfinlega við kosningar reynt að hagnýta sér óánægju þeirra, sem útundan verða, og lofað þeim, að tekin skyldi vinn- an af þeim, sem með áratuga starfi hafa tryggt sér eitthvað fast, og hún fengin öðrum. Tvis- var hefur þessi áróður kommún- ista svo langt gengið, að leitað var álits félagsmanna, með alls- herjaratkvæðagreiðslu, hvort þeir vildu afnema alla forgangs- vinnu, og var það í bæði skiptin fellt. Samt halda kommúnistar sleitulaust áfram sama áróðrin- um, og að því er virðist aldrei magnaðri en nú við þessar kosn- ingar, þótt atvinna hafi á s.l. ári verið meiri og almennari en oft áður, og allt bendi til, að svo verði líka í ár, ef ekkert óvænt kemur fyrir. Yfir háveturinn hefur alla tíð verið frekar lítið um vinnu fyrir vörubíla, og verður svo fram- vegis, — þar sem verulegur hluti vinnunnar er árstíðabundinn. Það er ekki á valdi neinna félags- stjórna að breyta þessu, þótt kommúnistar reyni í blekkingar- skyni að telja mönnum trú um það. RÉTTUR ÞRÓTTARFÉLAGA Þróttarmenn hafa frá því fyrsta grundvallað sinn félagsskap á rétti einstaklinganna til að afla sér vinnu og halda henni, án íhlutunar félagsins, — nema því aðeins að einstaklingurinn brjóti taxta félagsins, lög þess eða samninga, sem það hefur gert. Þróttarmenn hafa margoft sýnt og sannað, að þeir vilja ekki af- sala sér þessum rétti. Enda er það mála sannast, að félagið væri löngu búið að vera, ef þeir hefðu gert það. Þótt Þróttur vildi, hef- ur hann ekki rétt til að taka menn úr vinnu og setja aðra í þeirra stað, og þann rétt er ekki hægt að öðlast, nema með nýj- um samningum við Vinnuveit- endasamband íslands. En eru þá nokkrar líkur til, að vinnuveit- endur afsali sér nokkurn tíma þeim sjálfsagða rétti að mega sjálfir ráða hvaða meðlimi fé- lagsins þeir taka til vinnu? Ég held ekki. Það kostaði Þróttar- menn 25 daga verkfall að ná þeim samningum, sem þeir nú hafa. Hvað myndi það kosta langt verkfall að þvinga vinnuveitend- ur til að afsala sér einföldustu mannréttindum? Og hvað yrði svo mikið eftir handa Þrótti til að semja um, þegar þeim átökum lyki? Ég held að það væri hollt fyrir Þróttarmenn að íhuga þess- ar spurningar vel, áður en þeir ganga að kjörborðinu núna. FÁNÝT BLEKKING Frambjóðendur kommúnista halda því nú mjög að félags- mönnum, að ef þeir nái kosningu, muni þeir þegar í stað afnema alla forgangsvinnu. Annað hvort eru þessir menn meiri óvitar en ég held, að þeir séu, eða þeir álíta mikinn hluta félagsmanna svo einfaldan, að þeir sjái ekki í gegnum jafn augljósa blekkingu. Þróttur rekur nú all umfangs- mikil viðskipti með nauðþurftir til bifreiða félagsmanna, til þæg- inda og hagsbóta fyrir þá, og veltir í því sambandi milljónum | króna árlega. Fjárhagur félags-j ins er góður og tekist hefur að safna talsverðu fé í sjóði, auk fasteigna. Ef við tæki í félaginu stjórn, sem grundvallar starfsemi sína á hnefarétti, er nokkurn veginn víst, að allar eignir félagsins yrðu á skömmum tíma upp étnar með ■ skaðabótadómum. FJANDSKAPUR KOMMÚNISTA GEGN ÞRÓTTARFÉLÖGUM Á þeim árum, sem við Sjálf- stæðismenn höfum stjórnað fé- laginu, hefur Þróttur unnið stærri sigra í réttinda- og hags- munabaráttu félagsins, en nokkru sinni áður í sögu þess, og er það löngu viðurkennt af öllum sann- gjörnum mönnum. Á sama tíma hefur þáttur kommúnista innan félagsins og utan, verið sá, að grafa undan stjórn félagsins og setja eftir mætti fótinn fyrir öll þau mál, sem stjórnin hefur beitt sér fyrir. Og nægir í því sam- j bandi að minna á þátt kommún- ista í stærsta máli félagsins fyrr og síðar, þegar þeir greiddu at- kvæði á móti því í báðum deild- um Alþingis og síðan í bæjar- stjórn, að takmarka innstreymí nýrra félaga í Þrótt. Og til að undirstrika fyrirlitn- ingu sína á dómgreind Þróttar- manna, bjóða kommúnistar þeim nú að skipta á þeim mönnum, sem undanfarin ár hafa stjórnað félaginu, og kjósa í staðinn menn, sem aldrei hafa komið nálægt málefnum félagsins og þekkja ekkert til stjórnarstarfa, en hafa það eitt til síns ágætis að vera góðir kommúnistar. Þróttarmenn! Svarið þessari árás kommúnista á félag ykkar með því að láta lista þeirra við þessar kosningar fá háðulegri út- reið en nokkru sinni fyrr. Komið á kjörstað strax í dag og kjósið A-listann. Friðleifur I. Friðriksson. Stéiskip í smíðum fyrir Vesfmannaeyinga Ó vörubíl Þetta er 70 Iesta stál-fiskibátur, sem Þorsteinn Sigurðsson, útgm. í Vestmannaeyjum o. fl., eiga. Nú er báturinn bráðlega fullsrníðaður. ...............—............. ...... 1 - - - 09 slusaðist staðnum og flutti bílstjórann á vörubílnum niður á slökkvistöð til að sæk.a sjúkrabíl, að koma til viðtals hið bráðasta. Slys, sem orðið hafa með svip- uðum hætíi og þetta, að bílar aka inn undir pallhorn vörubíla, eru orðin iskyggilega mörg ár hvert. Hafe menn bent blaðinu á, að nauðsyn beri til að vörubílar séu með „kattaraugu' á pallhorn- um, en slíkt mun vera lögboðið erlendis og ættu að gilda um það sömu reglur hérlendis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.