Morgunblaðið - 15.01.1955, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 15.01.1955, Qupperneq 16
Veðurúfiif í dag: N-ka!di, léttskýjað. 11. tbl. — Laugardagur 15. janúar 1955 Sömuf hús Sjá grein á blaðsíðu 9. Stálsmiijdi! ætiar ai smiða 50—80 lesta stdlbáta Byggðir eftir hollenzkum teiknirsgum FORRÁÐAMENN Stálsmiðjunnar skýrðu blaðaimSninam frá því í gærdag, að nú á morgni stálskipasmíða liér á landi, hefði Stálsmiðjan ákveðið að færast í fang ný viðfangsefni, en það væri smíði 50—60 lesta fiskibáta úr stáli. Hefur Stálsmiðjan tryggt sér rétt til að byggja eftir teikningum hollenzks skipaverkfræðings, sem hefur sérstaklega staðgóða þékkingu á smíðí fiskábáta úr stáli. Eftir hans teikningum eru nú í Hollandi í smíðum tveír bátar fyrir jslenzka útgerðarmenn. Vonast Stálsmiðjan til að geta byrjað næsta sumar á fyrstu bátunum. HOLLENZK FYRIRMYND Framkvæmdastjórarnir, Bene- dikt Gröndal og Sveinn Guð- inundsson, fóru utan til Hollands til þess að eiga viðræður við hinn hollenzka skipaverkfræðing W. Zwolsman og til þess um leið að kynna sér stálskipasmíði Hol- lendinga, sem standa mjög fram- arlega á þessu sviði. Þar þekkj- ast ekki fiskiskip byggð úr tré. Þar hittu þeir að máli Þorstein .Sigurðsson útgm. í Vestmanna- eyjum, sem á 70 lesta stálskip í amíðum þar, og lét hann mjög vel yfir vinnubrögðum öllum við byggingu skipsins, sem nú er væntanlegt innan fárra vikna. — Verður það fyrsti fiski'oáturinn hér á landi, sem byggður er úr stáli. En einnig á Hermann Krist- jánsson útgm. hér í Reykjavík bát þar í smíðum, og verður hann rnilli 50—60 lestir eða af þeirri stærð, sem Stálsmiðjan ætlar að loyggja. Teikningarnar hefur gert, sem fyrr segir, W. Zwolsman. Hann kom hingað til lands í fyrrasumar, og skoðaði hann þá t. d. Stálsmiðjuná og kynnti sér kröfur íslendinga á sviði stál- .skipasmíða. Taldi hann Stálsmiðj ■una vera vel færa til þess að taka að sér byggingu stálbáta, og veitti hann þeim Benedikt Gröndal og Sveini Guðmundssyni leyfi til þess að byggja eítir teikningum hans. HAFA MIKINN ÁHUGA Á FISKISKIPUM ÚR STÁLI Það er vitað mál, sögðu fram- kvæmdastjórar Stálsmiðjunnar, að hér á landi er mikill áhugi meðal útgerðarmanna á fiskibát- um byggðuín úr stáli, og er margt sem veldur. T. d. binn gifurlegi viðhaldskostnaður tréskipanna og að enein hætta er á skemmdum í trjáviðnum, sem svo mjög hefur gert vart við sig. Og framkvæmda stjórarnir kváðust geta fullyrt, að byggingarkostnaður stálskipa væri ekki meiri en tréskipa. Einnig var það annað, sem rak á eftir aðgerðum Sfálsmiðjunnar í þessu mikla framfaramáli, en það var rannsókn og álitsgerð iðnaðarmálastofnunarinnar hér að lútandi. En hún hvatti ein- dregið til þess að hafin yrði smíði fiskibáta úr stáli hér á landi. Um skipaþörfina frá árí til árs, telur stofnunin að byggja þurfi eigi færri skip en 15 ár hvert. 50—60 LESTA BÁTAR Sem fyrr segir, mun Stálsmiðj- an Ieggja áherzlu á byggingu 50 til 60 lesta fiskibáta. Og með nauðsynlegum stuðningi hins op- inbera við þessa nýju iðngrein Isiendinga, sem því ber skylda til að veita, vonumst við tii að geta lagt kjölinn að tveim bátum næsta sumar í júlímánuði, sagði Sveinn Guðmundsson forstjóri að lokum. Landhelgis- hrjótur tek- inn í gœr í GÆRKVÖLDI kom varðskipið Ægir inn til Vestmannaeyja, með belgiskan landhelgisbrjót. Var það l’till togari, Gabrielle Rapha- ele frá Ostende. Belgiski togarir.n var um hálfa sjómílu fyrir innan fiskveiðitak- mörkin, að veiðum er varðskip- ið kom að honum. í Vestmanna- eyjum verður fjallað um mái skipstjórans hjá bæjarfógeta- embæítinu. FLOKKSRAÐ Sjálfstæðis- flokksins í Gullbringusýshi heldur fund í Sjáfstæðis- húsinu í Kefavík mánu- daginn 17 þ. m. kl. 9 síðd. Ólafur Thors forsætisráð- herra mætir á fundinum. Þess er fastlega vænzt að fulltrúar mæti vel og stundvíslega. Þetta er teikning af 50—60 lesta stálbáti. Svona bát er verið að byggja í Hollandi fyrir íslenzkan út- gerðarmann um þessar mundir. Eftir hinni sömu teikningu og með kröfur ísl. staðhátta fyrir augum, verða bátar Stálsmiðjunnar byggðir. Óánægja yfir skipun prests r a ÞAÐ, sem veldur því, að ekki er enn farið að skipa prest til starfa norður á Siglufirði, er óánægja, sem fram hefur komið í sam- bandi við prestkosningarnar. — Hefur því verið haldið fram. að einn umsækjandanna hafi haft í frammi allmikinn kosningaáróð- ur. — Prófastur Eyjafjarðarprófasts- dæmis, sem var viðstaddur kosn- ingarnar, mun hafa gert kirkju- málaráðuneytinu nokkra grein fyrir máli þessu. Telur hann umsækjandann, sem hér á hlut að máli, ekki hafa vísvitandi haft í frammi slíkan áróður. Þar eð kosningin var ólögleg, kemur til kasta kirkjumálaráð- herra. Hefur hann nú málið til meðferðar. Biskup landsins mun hafa mælt með því við ráðherr- ann, að sá umsækjendanna, sem hlaut flest atkvæðin, en það var Ragnar Fjalar, verði veitt em- bættið, þegar þar að kemur. M.S. „GOÐAFOSS", sem fór héð- an áleiðis til Ameríku í fyrra- kvöld, hefur orðið að snúa við til Reykjavíkur vegna truflunar á smurniogskerfi aðalvélarinnar, og er væntanlegur hingað kl. 2 í nótt. Ekki er álitið að hér sé um neina alvarlega bilun að ræða. en búast má við að skipið tefjist í nokkra daga á meðan rannsókn og viðgerð fer fram. I Þrótti hefst í dag Listi lýðræðissinna er A-listi ! STJÓRNARKJÖR fer fram í Vörubílstjórafélaginu Þrótti nú umi helgina. Kosið verður í húsi félagsins við Rauðarárstíg og hefst kosningin kl. 2 e. h. í dag og stendur til kl. 10 síðd. Á morg- un verður kosið frá kl. 1 e.h. til kl. 9 síðd. og er þá kosningu lokið. Bótakröfur vegna slyssins 3.2 millj. kr. ÍSAFIRÐI, 14. jan. — í dag lauk hér á Ísaíiröi sjóprófinu vegna sjóslyssins út af Súg- andafirði á dögunum. Skipstjórinn á brezka tog- aranum, sem er liðlega þrí- tugur maður og hefur oftlega verið hér á íslandsmiðum, setti tryggingu fyrir skaða- bótakröfum. Voru þær bornar fram í réttinum, vegna mann- tjóns og báts, alls að upphæð 2.3 millj. króna. — Togarinn mun Iáta úr höfn í kvöld. Við sjóprófið lýsti togara- skipstjórinn fyrir dómforseta, hryggð sinni og skipverja yfir hinu hörmulega slysi. — J. ■<*> Tveir listar eru í kjöri: A-listi, borinn fram og studdur af lýð- ræðissinnum og B-listi, sem ein- göngu er skipaður kommúnist- um. A-listinn er þannig skipaður: Friðleifur I. Friðriksson form., Þorsteinn Kristjánsson varaform., Sigurður Sigurjónsson, ritari, Pétur Guðfinnsson, féhirðir og Ólafur Þorkelsson, meðstjórn- andi. Varastjórn: Halldór Auðuns- son og Óskar Einarsson. Trúnaðarmannaráð: Stefáa Hannesson, Þorvarður Guð- brandsson, Stefán Þ. Gunnlaugs- son og Heigi Kristjánsson. Varamenn: Valdemar Stefáns- son, Helgi Eyjólfsson, Bjarni Guðmundsson og Karl Eiríksson. Þróttarfélagar. Vinnið ötullega að sigri A-listans og tryggið sig- ur hans. MOSKVA. — Nýlega var lesinn í Moskvu-útvarpinu leiðari úr blaði ungkommúnista, og var, þar mjög deilt á „götustrákahátt- erni“ ungra manna í Ráðstjórn- arríkjunum. Ólafur Þorkelsson. Friðleifur I. Friðriksson. Fiirjra efstu menn A-lisfans í Þréttarkosningunum Pétur Guðjónsson. « Sigurður Sigurjónsson. Þorsteinn Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.