Morgunblaðið - 01.03.1955, Side 6
6
MOKGVtSBLAÐli*
Þriðjudagur 1. marz 1955
jraBBBB«4aaa
► «
M
■
Vélsagar-
Hjólsagar-
Járnsagar-
Bandsagar-
Kjötsagar-
Blöð
6.Þ0R81[in$B0N S JOHNSON
Grjótagötu 7 -- símar 3573 og 5296
Burroughs
Höfum fengið nýja sendingu af hinum viðurkenndu
Bvirroughs Búðarkössum
H. BENEDIKTSSON & Co. h.f.
Hafnarhvoll — Reykjavík — Sími 1228.
! Vandvírkor stúlkur
■
■
■ geta fengið atvinnu í verksmiðjunni nú þegar. —
■
; Uppl. í verksmiðjunni. — Ekki í síma, frá kl. 5—6
: í dag.
■
m
■
! Nærfataefna- og prjónlesverksmiðjan h.f.
- Bræðraborgarstíg 7
imm
Wmi
I Verzlunaratvinna
m
m
:
■
Ungur maður, helzt vanur afgreiðslu, óskast í kjöt-
■ verzlun, sém allra fyrst. — Umsóknir leggist inn á afgr.
■ Mbl., merkt: „212 — 422“.
RAFVIRKJAR
óskast nú þegar. — Yfirvinna.
VOLTI Simi 6458
e '
1 «
| -j
E
| r
1;
■
Æ £
'm
« '
FORD PREFECT
Nýstandsettur, til sölu. — Uppl. í búðinni.
KR. KRISTJÁNSSON H. F.
Laugavegi 168—170
Þetta eru scngvararnir, sem hylltu Pétur Jónsson óperusöngvara með hljómleikum í síðustu viku,
en sú söngskemmtun verður endurtekin í kvöld. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Magnús Jóns-
son, Þuríður Pálsdóttir, Guðrún Á. Símonar, Guðmundur Jónsson, Kristinn Hallsson, Þorsteinn
Hannesson, Guðrún Þorsteinsdóttir og Einar Sturluson. Við hljóðfærið siíur undirleikarinn Fritz
Weisshappel. — Ljósm. Mbl.: C
Hliómleikar
3
íil heiðurs P<
HIN einstæða söngskemmtun,
sem „Félag islenzkra einsöngv-
ara“ efndi til s. 1. föstudagskvöld,
til heiðurs Pétri Jónssyni óperu-
söngvara, þótti takast með af-
brigðum vel. Þegar heiðursgest-
urinn var genginn til sætis i
Gamla Bíói, ásamt konu sinni,
dóttur og dótturdóttur kom
Gunnar Thoroddsen borgarstjóri
fram á söngpallinn og ávarpaði
Pétur með stuttri ræðu og mælti
á þessa leið:
„Herra Pétur Jónsson,
Háttvirta samkoma.
Fyrir 70 árum var reistur í
Reykjavík minnisvarði við Dóm-
kirkjuna. Þessi minnisvarði er úr
íslenzkum steini og stendur á
honum fögur harpa. Þessi varði
var reistur til heiðurs trúar-
skáldinu Hallgrími Péturssyni,
sem „svo vel söng, að sólin skein
í gegn um dauðans göng“, hon-
um, sem sló hörpu sína af því-
líkri andagift og snilli, að allur
landsins lýður hefur hlustað
hljóður og> hugfanginn um nær
þriggja alda skeið.
Og einnig fyrir réttum 70 ár-
um fæddist í Reykjavík annar
söngvari, sem átti eftir að verða
snjallastur hörpuleikari á þá
guðlegu hörpu, sem rödd manns-
ins er. Hann hefur sungið af því-
líkum þrótti, slegið sönghörpu
sína með þeim glæsibrag, að
munað verður eg til jafnað um
langa framt'.ð.
í kvöld hyllum við söngvar-
ann og vininn Pétur Jónsson og
óskum honum heiðríkju á ævi-
kvöldi.
Ég bið yður öll að r;sa úr’ sæt,-
um og hrópa ferfalt húrra fyrir
honum.
Pétur Jónsson lengi lifi“.
Að því loknu komu söngvar-
arnir fram hver af öðrum og
fluttu eingöngu efni ú.r heims-
frægum óperum; ar'ur. tvísöngva
og að lokum kvartettinn úr
Rigoletto.
Áhevrendur fylgdust með
söngvu,-unum af l'fi og sál og
var hverju atriði tekið með mikl-
um fögnuði. Flutnineur söngvar-
anna var undantekningarlaust
með óvenjulegum glæsibrag og
sýndu þeir ótv'rætt með þessum
hljómleikum, að hér eftir er m»ð
öllu ástæðulaust að sækja hingað
erlenda söngvara til óperuflutn-
ings. Því að auk hins glæsilega
hóps, sem kom fram á þessum
hljómleikum eigum við ýmsa
1. K. M.
einsöngvara
3tri Jónssyni
efnilega og liðtæka söngvara,
sem mikils má vænta af í fram-
t'ðinni gefist þeim tækifæri til
frekara söngnáms og þjálfunar í
óperuflutningi.
Fjöldi fólks, sem ætlaði sér á
hljómleikana varð frá að hverfa
og þegar bárust miklar fyrir-
spurnir um, hvort þeir yrðu end-
urteknir. Fritz Weisshappel lék
undir hjá öllum söngvurunum og
þótt hann hefði þar erfiðu h)ut-
verki að gegna leysti hann það
afbragðsvel af hendi.
Að hljómleikunum loknum
beið mannfjöldi fyrir utan
Gamla bió til þess að sjá mesta
og vinsælasta söngvara, sem ís-
land hefur átt, ganga út úr hús-
inu.
Að lokum hylltu áheyrondur
hinn vinsæla og alkunna söngv-
ara, Pétur Jónsson, með kröft-
ugu ferföldu húrra svo undir
tók í bíósalnum.
Ibúft úsbast
4ra til 5 herbergja íbúð ósk-
ast nú þegar til kaups milli-
liðalaust. Útborgun eftir
samkomulagi. Tilboð sendist
afgr. Mbl. fyrir laugardags-
kvöld merkt „Góð íbúð - 415“
Jörð óskast
t:l leigu í nágrenni Reykja-
víkur eða nærsveitum. Æski-
legt væri, að jörðin lægi að
sjó og að bústofn gæti fylgt
að einhverju leyti. - Tilboð,
merkt: „Sjávarjörð — 412“,
sendist afgr. Mbl. fyrir 10.
marz 1955.
Sísfén Sigurðor
Guðjónison - kveðja
F. 2/2 1952.
D. 22/2 1955.
IDAG er til moldar borinn ung-
ur drengur, Stefán Sigurður
Guðjónsson. Það var mikil harma
fregn er okkur barst það þann
22. þ. m„ að ungi vinurinn og
frændi okkar hefði látizt af slys-
förum. Hvernig gat þetta verið?
En það kom engin skýring. —
Hann var dáinn.
Það voru ekki liðnir nema
tveir dagar síðan við sáum hann
síðast, fullán af barnslegu glað-
lyndi og rólyndi sem einkenndi
hann svo mjög. Þá minnti hann
okkur á svo margar gleðistundir,
sem við höfðum átt með honum,
er hann dvaldist á heimili okkar
um nokkurra vikna skeið. Sú
gleði, sem hann fann til, er hann
fyrst fór að geta staðið einn og
óstuddur og gengið, hún var mik-
il og snerti okkur djúpt.
Þessar fátæklegu línur eiga að
færa þér hjartanlegt þakklæti
fyrir allar þessar minningar og
þá sólargeisla, sem þú komst
með á heimili okkar og seint
gleymist. Megi heimkoma þin
verða sem björtust eins og allt
var í fari þínu. Guð blessi minn-
ingu þína.
Það er þungur harmur kveð-
inn foreldrum, bræðrum, ömm-
um og afa þessa unga barns og
viljum við biðja algóðan Guð að
styrkja þau í raunum þeirra.
Hvil þú í friði, litli vinur og
frændi.
Ingimar Þorkelsson
og' fjölskylda.
X BEZT AÐ AVGLÝSA L
T l MORGUNBLAÐllW T