Morgunblaðið - 01.03.1955, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLA0IB
Þriðjudagur 1. marz 1955
EFTIRLEIT
EFTIR EGON HOSTOVSKY
*Sn
Framhaldssagan 33
Irene hrópaði þetta, er hún sá
Borek fór að fitla við skúffu
1 hókaskápnum, en hún vissi, að
þúr geymdi hann skammbyssuna
aína, en í þess stað tók hann
ílösku úr hillunni, en það var
gjöfin frá Johnson frá Omaha.
i>au hlógu bæði. Borek drakk
ekki, hann gekk um gólf og hugs-
aði: Gat það verið, að Eric Brunn
er hefði kært hann? Nei, það er
óþaöguiegt. En hvers vegna hafði
hann ekki vantreyst Brunner?
Þegar allt kom til alls, var Brunn
nr kommúnisti og þjáifaður með-
at kommúnista. — Nei, Brunner
gæti ekki gert það. En samt sem
aður, enginn vissi um Kapoun
nema Kral og Brunner.“
„Oldrich, mig langar til að
hitta stúlkurnar í kvóld.“
„Ertu nú viss um, að það séu
aðeins stúlkurnar, sem þii ætlar
að hitta, og vertu ekki úti til
ihorguns."
„Heldurðu, að ég sé alveg búin
að missa vitglóruna?"
„Ekki alveg. Hvað mikið?“
„Hundrað krónur.“
„Fimmtíu verða að duga “
„Oldrich, vertu ekki svona
nískur.“
„Jæja, hérna eru sjötíu krón-
ur, en íarðu nú, svo að ég geti
liugsað. En í alvöru, vertu ekki
lengi neins staðar í kvöld. Það
gæii eittnvað komið fyrir.“
„Hvað?“
„Bylting.“
„Hvað segirðu. Á móti komm-
únistum?"
„Nei, þvert á móti — á móti
]iinuin.“
„Heldurðu, að það geti komið
til götubardaga? Ef svo skyldi
vera, ætla ég að biðja Kasper að
iyigja mér heim.“
„Hver er Kaspar?“
„Æ, þú ert alveg vonlaus, hve
oft á ég að segja þér, að hann
er unnusti Eiise Vasata."
„Af hverju fylgir hann ekki
lieldur Elise heim?“
„Vertu ekki svona heimskur.
Þú veizt það vel, að þau rifust
fyrir skömmu. En nú verð ég að
íara og klæða mig.“
Borek settist niður með flösk-
una í fanginu og lokaði augunum.
Þannig sat hann nokkra stund og
lét hugann reika. Hann velti því
íyrir sér, hvort hann hefði hita,
lionum fannst hann vera alls stað
ar veikur og það var hroliur í
honum. Hann heyrði kiukkuna
tifa, og brátt heyrði hann, að
Irene fór út.
Hvað ætti hann að gera, ef
Kapoun kæmi núna? Hann hand
lék skammbyssuna í vasanum.
Hann hafði aldrei skotið úr henni
en hann hafði oft borið hana á
tímum þýzka hernámsins og þá
liafði hann verið ákveðinn að
nota hana, ef hann þyrfti á því að
halda.
Þar sem hann sat þarna og hálf
dottaði fann hann allt í einu til
löngunar til að lesa bréfið frá
Xral, sem komið hafði í morgun
írá Zelezna Ruda, en hann vildi
ekki kveikja til þess, en hann
liafði lesið það svo oft um dag-
inn, að hann gat farið með það
í myrkrinu.
Kæri Oldrich.
Ég flýti mér að svara bréfi
þínu, sem kom mér í uppnám.
Ég er mjög undrandi á hegðun
jæssa manns, sem þú hefur gert
svo mikið fyrir.
Hvað er hægt að gera? En það
er aðeins ofbeldi, sem dugar á
siíka menn. En ég get ekki fengið
mig til að berja nokkurn og hend
ur þínar eru of stérkar og kraft-
ar þínir of miklir til þess að ég
fari að ráðleggja þér að nota það.
En vona, að þú haldir ekki, að ég
sé að skipta mér af þínum mál-
um, og ég trúi því, að þér takist
að leysa þetta einhvern veginn.
Ég var mjög undrandi að heyra
að Eric Brunner hefði komið til
þín. Ég veit ekki, hvað hann get-
ur hafa viljað þér, en mér finnst
það einkennilegt. Mér geðjast
alltaf jafnvel að honum, en hann
hatar mig án þess að ég viti
hvers vegna. Hann er ákaflega
óhaming j usamur.
Mér finnst erfitt að njóta þess
að vera í fæðingarbænum mín-
um, fréttir þær, sem ég fæ frá
Joan eru stöðugt versnandi, og
ég er nú orðinn vonminni að geta
komizt til Bandaríkjanna og þai;
að auki finnst mér eins og þetta
sé lognið á undan storminum,
sem muni kollvarpa ölium áætl-
unum. Ég veit, að þú skilur mig,
ef hvor okkar bjargaði einni Jo-
an, aðeins einu barni, þá bjargar
hann heiminum. En það eru svo
margir nú á tímum, sem vilja
bjarga öllu mannkyninu og með
því misþyrma og drepa það.
Ég vona, að við hittumst bráð-
lega.
i Þinn einlægur Paul.
Dyrabjallan hringdi. Ein löng,
ein stutt. Það var hringing Alois
Kapouns.
Borek hrökk við. Honum datt
í hug: Farðu ekki til dyjpa,
kveiktu ekki, sittu hérna og hlust
aðu. Hann stakk höndinni ósjálf-
rátt niður í vasann og þreifaði á
skammbyssunni.
Þegar dyrnar voru ekki opnað-
ar, reyndi komumaður snerilinn
og fann, að hann gat snúið hon-
um og gekk inn. Hann læddist
úr dimmu anddyrinu inn í borð-
stofuna. Hann staðnæmdist fyrir
framan barnaherbergið og fór
síðan inn í eldhúsið og þaðan
kom hann inn í vinnuherbergi
Boreks. Hann stansaði nokkrum
skerfum frá Borek. Nú hikaði
hann. Hérna var hann í ólæstri
íbúð fjandmanna sinna. Hvað gat
hann gert þeim? Hvernig átti
hann að hefna sín á þeim?
Borek hugsaði einnig. Hvað
getur maðurinn verið að skipu-
leggja núna, og hvað hafði hann
verið að skipuleggja þessar síð-
astliðnu vikur? Hvað vildi hann?
Það glampaði á eitthvað í hendi
komumanns og það var ekki fyrr
en eftir stundarkorn, sem Borek
áttaði sig á því, að það mundi
vera skammbyssa. Borek kastaði
EftirmiðcSðgs- og
kvöidkjólaefni
í miklu úrvali.
i:
tXIHirarai«Mframiranrai
Sérstakt tækifæri
Ensk stúlka, sem dvelur hér á landi, og talar íslenzku,
óskaT eftir stúlku til heimilisstarfa hjá fjölskvidu sinni í
Englandi. Verður stúlkunni samferða út.
Dvalartími eftir nánara samkomulagi.
Uplýsingar í síma 82943 eða 80724.
íbúB til leigu
Til leigu í maí n. k. kjallaraíbúð í nýju húsi á góðum
stað í bænum. — íbúðin er tvö herbergi, eldhús, bað og
geymsla. Sérkynding. Sérinngangur. — Tilboð ásamt
uppl. um fjölskyldustærð og möguleika á fyrirfram-
greiðslu, óskast sent blaðinu fyrir 5. marz n. k., merkt:
„Séríbúð — 417“.
i DODGE bifreið, árgangur 1946
■
•
j j með 6 manna húsi og vörupalli, er til sölu nú þegar. —
| Bifreiðin er á öllum nýjum dekkjum auk 2ja vara-
j dekkja á felgum. Bifreiðin er í fyrsta flokks lagi og
1 ; hefir ávallt verið ekið af eiganda. Bifreiðin er til sýnis
j í porti Ræsis h. f. — Allar nánari uppl. á bifreiðaverk-
I í stæði Ræsis h. f.
Bújörð til sölu
Laxveiðijörð í Kjósinni er til sölu og laus til ábúðar í
næstu fardögum. Áhöfn og búvélar geta fylgt með í
kaupinu, ef þess er óskað.
Allar nánari upplýsingar gefur Pétur Jakobsson, lög-
giltur fasteignasali, Kárastíg 12, sími 4492.
Regnkápur
Stuttkápur
FELDUR H.f.
Bankastræti 7.
Borðdúkar
SATSN
í gluggatjöld
og rúmábreiður
FELDUR H.f.
Bankastræti 7.
Ný sending
of
KJÓLUM
FELDUR H.f.
Laugavegi l:í 6.
Pífugíuggatíöld
kr. 29.50 m.
Pífukappar
kr.: 12.50 og 19.50 m.
Pífubönd
kr. 10.00 m.
Einnig
Rennilástöskur
ákr. 58.00
FELDUR H.f.
Austurstræti 10.
Ný sending hatta
FELDUR H.f. Laugaveg 116
Bóiffeppi
Margar tegundir nýkomnar Margir mjög
fallegir litir. — Einnig okkar þekktu og
vinsælu
Kókosgéifteppi
Verðið mjög lágt
Ceysir h.i
Veiðarfæradeildin
Verzlunarstarf
Ungur reglusamur piltur getur fengið atvinnu nú
þegar við afgreiðslustörf. — Uppl. í síma 3812 frá
kl. 2—3 e. h. í dag.
NOVO-PAN PLOTUR
16 — 19 — 22 — 25 mm.
HANNES ÞORSTEINSSON & CO.