Morgunblaðið - 09.03.1955, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.03.1955, Blaðsíða 6
I MORGVNBLAÐI& Miðvikudagur 9. marz 1955 360 kr. fyrir 10 rétta Á LAUGARDAG urðu úrslit: Aston Villa 3 — Chelsea 2 1 Blackpool 3 — West Bromw. 1 1 Bolton 1 — Sheff. Utd. 0 1 Charlton 1 — Arsenal 1 x Huddersfield 0 — Preston 4 2 Manch. Utd. 1 — Burnley 0 1 Portsmouth 3 — Newcastle 1 1 Sheff. ‘Wedn 2 — Everton 2 x Sunderland 1 — Cardiff 1 x Tottenham 2 — Manch. City 2 x Woives 5 — Leicester 0 1 West Ham 2 — Leeds 1 1 Bezti árangur var 10 réttir, sem 3 -seðlar reyndust með. Verður ar- skiptust annars þannig: hæsti vinningur 360 kr. Vinning- '1. vinningur: 162 kr. fyrir 10 rétta (5). KR ssgtaði í öKum flokkum í knaftspyrnu SkcmmíHegia innanhúsmófi iokið REYKJAVÍKURMÓTINU í knattspyrnu innanhúss er nú lokið. Bar KR þar glæsilegan sigur úr býtum, því liðsmenn þess sigr- 1 uðu í öllum flokkum — og í sumum með sérstökum glæsileik. Var mótið fjörugt og skemmtilegt og sýnir að þessi íþróttagrein á miklu fylgi að fagna. FLOKKAKEPPNIN | Fram AogKRC og sigraði KR- ' í flokkunum stóðu úrslitaleik- liðið með 3 mörkum gegn 2. irnir á milli eftirtalinna liða. í | í meistaraflokki mættust til úr- ' 4. flokki kepptu til úrslita Fram slita tvö af liðum KR A-lið og A og KR B. Sigraði KR-liðið B-lið og lauk leiknum með sigri með 5 mörkum gegn 1. | B-liðsins sem skoraði 9 mörk í þriðja flokki kepptu til úr- gegn 5. í B-liðinu voru Hreiðar slita KR B og KR C og lauk Ársælsson, Hörður Felixson, leiknum með sigri B-liðsins, 3 Helgi Helgason, Þorbjörn Frið- mörk gegn 2. riksson og Sverrir Kjærnested. i í 2. flokki kepptu til úrslira I Fyrsla ÞÍRgeying s sl@fp Þorsvcinn Löwa þar cð verki Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ fór fram í Sundhöllinni kveðju mót fyrir sænska sundfólkið. Var þetta fjórði keppnisdag- urinn á fimm dögum og gaetti þess nokkuð að þreyta væri farin að segja til sín. Samt náðist ágætur árangur í ýmsum greinum og tvö ísl. met voru sett. Þorsteinn Löwe KR bætti íslandsmet Sigurðar Þing- eyíngs í 100 m bringusundi úr 1:15,7 í 1:15,3 og tími Péturs Kristjánssonar sem var fyrstur íslendinga í 4x25 m fjórsundi karla er nýtt met, því það sund hefur ekki verið synt hér áður á kappmóti. * NÝ AÐFERÐ ' Svíarnir sigruðu í öllum þeim greinum er þeir tóku þátt i. Birgitta Ljunggren sigraði Helgu í þaksundi en tími þeirra var lakari en á þriðjudagskvöldið. Rolf Junefelt sigraði í bringu- sundinu og „dró“ Þorstein niður fyrir met Þingeyingsins. Þor- steinn hefur mikið lært af þeim erlendu bringusundmönnum, er hingað hafa komið á s.l. ári — einkum hina nýju aðferð að synda mikið í kafi, en með því | vinnst að sundtakið verður lengra og legan í vatninu beinni. En hins vegar þarf mikið lungnaþol til að synda lengi í kafi og mik- | ið. Þorsteinn er að ná tökum á ! þessari sundaðferð og sömuleiðis j Sigurður Sigurðsson á Akranesi | — 16 ára unglingur, sem setti þrjú drengjamet á þessu móti. * URSLITIN I í skriðsundinu — 200 m — ! var Östrand í sérflokki, en Pétur j var 2/10 úr sek. frá metinu. — Óþreyttur mundi Pétur hvenær ; sem er bæta metið á þessari vega- lengd og mætti hann gjarnan leggja meiri rækt við 200 metr- j ana, því það yrði aðeins til að styrkja hann á 100 metrunum — hans aðalgrein. Heiztu úrslit mótsins á laugar- dag urðu þessi: 200 m skriðsund Per O-Östrand 2; 14,5 Pétur Kristjánsson, Á, 2;19.6 Ari Guðmundsson, Æ, 2;22,0 100 m baksund kvenna Birgitta Ljunggren 1;20,5 Helga Haraldsdóttir, KR, 1;21,5 50 m flugsund karla Elías Guðmundsson, Æ, 35,4 Gunnar Júlíusson, Æ, 36,2 50 m baksund karla Guðjón Þórarinsson, Á, 35,5 Gyifi Guðmundsson, ÍR, 39^5 100 m bringusund karla Rolf Junefelt 1; 13,7 Þorsteinn Löwe, KR, 1; 15,3 Ólafur Guðmundsson, Á, 1 ;21,5 4x25 m fjórsund Rolf Junefelt 1;10,0 Pétur Kristjánsson, Á, 1 ;13,4 Ari Guðmundsson, Æ, 1;16,6 UNGLINGASUND 50 m bringusund drengja Ágúst Þorsteinsson, Á, Birgir Dagbjartsson, H, 50 m bringusund telpna Erna Haraldsdóttir, ÍR, Sigríður Sigurbjörnsdóttir. ★ ÞAKKIR Jens Guðbjörnsson form. Frh. á bls. 12. Frú Valgerður IDAG er hún borin til moldar konan, sem skáldið mikla kvað svo til, þá er hún var á 18. ári: Hvað veldur, að þú ert ást mín ein af öllum blómum í stjarnanna kranzi? Svo margt skín þó eplið á glit- meiðsins grein, og gott er um sólbros á hnattanna dansi. Mín jarðneska hugsun, þitt himneska bál hittust eitt kvöld eins og tinna við stál, og síðan man ég þig, svipurinn fríði, sé þig í draumi, við gleðinnar skál, finnst allt, sem er fagurt, þér einni til prýði. Frú Valgerður var fædd í Reykjavík 15. júní 1881, dóttir merkishjónanna Einars Zoega veitingamanns og Margrétar Tómasdóttur frá Ráðagerði á Seltjarnarnesi, Steingrímssonar. Eftir fermingaraldur fór hún í heimavistarskóla í Skotlandi og dvaldist þar nokkur missiri, en á 18. afmælisdegi sínum giftist hún Einari skáldi Benediktssyni, sem þá var málflutningsmaður við landsyfirréttinn og þá þegar orðinn þjóðkunnur maður sem ritstjóri Dagskrár, málflutnings- maður og einkum sem — skáld. Þau bjuggu í Reykjavík, unz Einar gerðist sýslumaður í Rang- árvallasýslu á árunum 1904—07. Bjuggu þau hjón á Stóra-Hofi á Rangárvöllum, og enn í dag minnast Rangæingar hinnar glæsilegu og gestrisnu sýslu- mannsfrúar á Hofi. Á árunum 1907—21 voru þau hjón búsett erlendis, fyrst í Edinborg, svo í Kaupmannahöfn, þá mörg ár í London og síðan aftur í Kaupmannahöfn. Eftir það voru þau búsett í Reykjavík, unz þau skildu samvistir árið 1927. Allan þennan tíma eða í nær- ! fellt 30 ár stóð Valgerður við hlið hins stórbrotna og mikilhæfa eiginmanns síns í blíðu og stríðu, tók rikan þátt í gleði hans og eigi síður ýmiss konar andstreymi og áhyggjum. Hefðu fáar konur þá stundum farið í fötin hennar, því að oft reyndi á hina sterku þætti góðra kosta, þar sem hún var. Öll þessi ár var saga hennar líka saga hans, rík af skini og skuggum, sigrum og ósigrum. Það var ekki á færi neinnar meðalkonu að skipa sæti frú Val- gerðar með þeim sóma sem hún gerði — við hlið slíks afburða- manns sem Einar Benediktsson var. Þau Valgerður og Einar eign- uðust 6 börn. Tvö eru látin á undan móður sinni: Margrét Svala, er var gift í New York, og Stefán Már kaupmaður í Reykja- vík, kvæntur Sigríði Oddsdóttur. Á lífi eru Einar Valur í Reykja- vík, Benedikt Örn lögfræðingur, búsettur í New York, Ragnheiður Erla í London og Katrín Hrefna í New York. . Eftir að leiðir þeirra frú Val- gerðar og Einars lágu sundur, dvaldist hún langdvÖlum erlend- is, meðal annars tvívegis hjá börnum sínum í Ameríku. Á stríðsárunum bjó hún hér í bæ, og á þeim árum lét hún skrásetja og gefa út endurminningar sínar um mann sinn og samveru þeirra og innti með því af hendi þakk- látt verk fyrir íslenzkar bók- menntir. Þegar að stríði loknu fluttist frú Vaígerður til Noregs og bjó í Osló, þar til hún fór til Erlu, dóttur sinnar, í London á síðastliðnu sumri. Þar var hún svo, unz hún kom heim til ís- lands í desember síðastliðnum til þess að bera hér beinin eftir margar útivistir og lángar um ævina. Hún hafði oft orð á því við frændkonu sína, sem hitti hana í London í sumar, að það i væri na orðiö sitt eina áhugamál að komast heim til íslands, því að annars staðar sagðist hún ekki geta hugsað sér að deyja. Henni varð að þessari ósk sinni: Fótsár af ævinnar eyðimörk einn unaðsblett fann ég til þess að deyja. En vinum hennar þykir þessi umskipti hafa of fljótt að borið. En þaö er ekki tii neins og deila. við þann dómara. Frú Valgerður Benediktsson var sérstæður og minnistæður persónuleiki, mjög glæsileg kona, gáfuð vel, frjálsleg í framgöngu, hispurslaus, hrein og bein. Henni fylgdi hressandi andblær, hvar sem hún fór. Hún var stór sjálf og hafði stækkað og vaxið í langri samvist við eitt mesta and- ans stórmenni, sem ísland heíir alið. Guðni Jónsson. Fæda 4. marz 1871. Dáin 28. febr. 1955. Kveðja frá dóttur og dóttur- sonum. Ó, elsxu, væna amma, sem öllum varst svo góð, við munum og hún mamma þín mildu verkin hljóð. Þú vildir hlúa og hugga og hvert eitt bæta tjón; i skini lífs og skugga var skær þín hugarsjón. Og máli hjartans mælir nú minningin um þig. Sú trú, sem engan tælir, slær tign á æfi-stig. Að birtan skín æ betur á bak við sérhvert ský og eftir sólarsetur ris sólin aftur ný. Og eilífð um þig Ijómar með æskuna um brár, og hljóðir helgidómar þér heita fyliing þrár um hvíld að horfnum degi, um hjálpfúst starf og traust; um víðáttunnar vegi skín vor á eftir haust. Jakob Jóh. Smári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.