Morgunblaðið - 09.03.1955, Side 9
Miðvikudagur 9. marz 1955
MORGVNBLAÐIÐ
9
Ef hafa á hendur í hári
okrara verður að nefna
ákveðin tiifeiii okurs
r
Hversvegna tala kommúnistar á lému
résamáli í stað þess að hjálpa til við
að grípa aibrotamennl
I»AÐ væri æskilegt að þeir þingmenn, sem hæst
! hafa talað og haldið langar ræður um starfsemi okr-
ara hér í bæ, leggi öll gögn á borðið til þess að rétt-
vísinni gefist færi á að rannsaka ef lögbrot hafa farið
fram og þá hafa liendur í hári okraranna.
'k Þannig mælti Bjarni Benediktsson dómsmála-
j ráðherra við umræður á Alþingi í gær um það hvort
I opinber rannsókn skuli fara fram á starfsemi okrar-
! anna. m
Dómsmálaráðherra kvað ekki myndi standa á
[ sér að láta rannsaka lögbrot og stöðva okurstarísemi.
Hitt væri ekki hægt, að eltast við alls konar orðróm.
i Ef slíkt ætti að gera væri þar með verið að stofna til
rannsóknardóms (inquisitio) eins og á tímum galdra-
! j ofsókna. Og það væri auðveldara að koma slíkum
rannsóknum af stað, heldur en að stöðva þær, því að
margar rangar sögusagnir koma upn og rannsókn á
þeim öllum gæti valdið mörgum saklausum meini.
Það er kastnaðar-
hliðin við björg-
unina, sem máli
skiptir
BLAÐINU hefur verið á það
bent, í sambandi við björgun tog-
arans King Sol, að björgunin sjálf
sé tiltölulega auðvelt mál, með
þeim tækjum, sem hægt er að
beita við björgunaraðstæður. —
Það sem skiptir máii, er kostnað-
arhliðin. Ekki er talið að óttast
þurfi að togarinn skemmist næstu
árin. þar sem hann stendur nú.
Við björgunina verður sennilega
skurður ruddur með stórvirkum
vélum frá togaranum og í sjó
fram. — En þetta verk getur orð-
ið mjög tafsamt, því í minnsta
brimi er hinn síkviki sandur fljót
ur að fvlla slíkan „skipáskurð“.
En mikið er í húfi þar eð King
Sol er nviega kominn úr gagn-
gerðri klössun.
Dr. Benjamm Einksson:
Þjódarfekjurnar
Sköpun og skipting
SUMIR GERA VIÐ SUMA
Það var Einar Olgeirsson, sem
hélt langa ræðu um okurstarf-
semi í Reykjavík. Var ræðan öll
um almenn málefni og fjallaði
um sögusagnir, svo sem það oð
menn segðu hitt eða þetta, eitt
eða annað væri á vitorði manna,
sumir vissu að sumir gerðu sumt
við suma o. s. frv.
ÁSKORUN EKKI TEKIÐ
Þannig talaði Einar Olgeirsson
og það þrátt fyrir það að dóms-
málaráðherra skoraði á hann að
leggja öll gögn á borðið, þá skyldi
ekki standa á dómsmálaráðuneyt-
inu að láta réttarrannsókn fara
fram.
ERFITT AÐ HINDRA
OKUR OG SKATTSVIK
Sagði dómsmálaráðherra að
hann efaðist ekki um að okur
hefði tíðkazt á öllum tímum.
1 En það hafa alltaf verið og eru
alltaf mestir erfiðleikarnir að
hafa hendur í hári okraranna.
Það er einnig almannarómur
að skattsvik tíðkist almennt.
En þrátt fyrir það að mikið
bákn skattanefnda sé starf-
andi, þá tekst ekki að klófesta
alla skattsvikara.
Þess vegna skoraði Bjarni Bene
diktsson á Einar Olgeirsson að
nefna ákveðin tilfelli til þess að
hægt væri að láta rannsókn fara
fram.
HORFAÐ I HINZTU
VARNARLÍNU
Það er eitt af einkennum ræðu-
mannsins Einars Olgeirssonar, að
hann tekur oft í fyrstu ræðu of
stórt upp í sig í hitanum og
bægslaganginum. En síðan neyð-
ist hann til í seinni ræðum að
hörfa undan, þar til hann á ekk-
ert landsvæði eftir í málflutn-
ingi sínum.
Þannig farnaðist þessum komm
únistaþingmanni í gær, er hann
talaði um „ákveðið verzlunai-
fyrirtæki" í Miðbænum, sem far-
ið hefði á hausinn vegna okr-
aranna. Fyrst sagði hann að rík-
isstjórnin hefði með ráðnum hug
komið í veg fyrir að þetta væri
rannsakað. Eftir nokkrar umræð-
ur breytti hann þessu í það að
ríkisstjórnin hefði fengið vit-
neskju sem hefði gefið henni til-
efni til að láta rannsaka þetta.
Og að lokum hörfaði hann í sið-
ustu varnarlínu, að einhverjir
einstakir ráðherrar hefðu fengið
einhverja vitneskju (sögusagn-
ir?) um að eitthvað hefði komið
fyrir.
Þannig svaraði kommúnista-
þingmaðurinn beiðni dómsmála-
ráðherra um að leggja upplýsing-
arnar á borðið.
EKKERT HF.FUR GEFID
TILEFNI TIL RANNSÓKNAR
En Bjarni Benediktsson ráð-
herra lýsti því yfir, að ekkert
það hefði komið fyrir ríkis-
stjórnina né dómsmálaráðu-
neytið, sem hefði gefið tilefni
til rannsókna. Og að lokum
taldi hann það mjög ólíklegt
að kaupsýslumaðurinn, sem
hér átti hlut að máli eða lán-
ardrottnar hans sem m. a. eiga
að hafa verið opinberar pen-
ingastofnanir, hefðu ekki kært
það til dómgæzlunnar, ef gíf-
urleg okurstarfsemi sumra
lánardrottna hefði komið fyr-
irtækinu á kné.
Malsnkov þar
MOSKVA 8. marz. — ..Vér vit-
um að land okkar verður beim
mun öflugra, þeim mun fólks-
fieiri, sem vér erum. Vér erum
andvíg viilimannakenningunum
um takmörkun barneigna," sagði
kvenfulltrúinn Balasjova í ræðu
á hátíðarsamkomu í Moskvu í
dag,* í tilefni af alþjóðadegi
kvenna. Balasiova sagði að hún
væri sjálf móðir tíu barna.
Viðstaddir á hátíðarsamkom-
unoi, sem haldin var í háskóla-
leikhúsinu í Moskva, voru Mai-
enkov, fyrrum forsætisráðherra,
Bulganin núv. forsætisráðherra,
Krustjov, formaður kommúnista-
flokksins, Molotov, utanríkisráð-
herra og annað stórmenni sovét-
ríkjanna. Fundinum var útvarp-
að.
Nánar kveðib á um
ýmsa heilsugæslu
Frumvarpið um heiisuvernd gerir ekki
ráð iyrir auknum kostnaði
INGÓLFUR JÓNSSON heilbrigðismálaráðherra fylgdi hinu nýja
frumvarpi til heilsuverndarlaga úr hlaði í Efri deild í gær.
F.n í frumvarpi þessu er kveðið nánar á um ýmis atriði varðandi
heilsugæzlu án þess þó að því fylgi aukinn kostnaður.
Skýrði ráðherra frá því að
frumvarpið væri flutt í samráði
við landlækni og Sigurð Sigurðs-
son berklayfirlækni. Gerði hann
síðan grein fyrir helztu atriðum
frumvarpsins:
6 KAUPSTAÐIR HAFA
FRAMFYLGT ÁKVÆÐI
Helzta breytingin er sú, að skv.
frumvarpinu er ekki lengur lögð
sú skylda á kaupstaðina að reka
heilsuverndarstöðvar. En skv.
núgildandi lögum um heilsu-
verndarstöðvar er kveðið á um
slíka skyldu kaupstaðanna, þótt
aðeins sex af 13 kaupstöðunum
hafi fylgt ákvæðinu. En ráðherra
getur eins og nú er, veitt undan-
þágur frá skyldunni.
12 GREINAR
HEILSUVERNDAR
í núgildandi lögum er megin-
áherzlan lögð á berklavarnir, en
um aðra heilsuverndarstarfsemi
sagt að hana skuli ákveða í
reglugerð. I frumvarpinu er upp-
talning á 12 greinum heilsu-
verndar, en sú upptalning er
ábending um það, sem til greina
komi að ákveða í reglugerðun-
um.
Gert er ráð fyrir sömu skipt-
ingu og verið hefur á kostnaði
við starfsemi heilsuverndarstöðv-
anna. Hann skiptist í þrjá jafna
hluti milli ríkis, sveitarfélags og
sjúkrasamlags, en þó látið að því
Hggja, að sjúkrasamlögum verði
sleppt við þátttöku. Hins vegar
getur ráðherra úrskurðað um
þátttöku sjúkrasamlags, ef sveit-
arfélag gerir kröfu til þess. Er
þessi fyrirvari vegna fyrirhug-
aðra möguleika á mjög útvíkk-
aðri starfsemi heilsuverndar-
stöðvanna, sem gætu orðið
sjúkrasamlögunum ofviða.
KOSTNAÐUR EYKST EKKI
Þá eru óbreytt eldri ákvæði
um þátttöku ríkissjóðs í bygging-
arkostnaði heilsuverndarstöðv-
anna, sem er sama og um sjúkra-
hús, % hluta í kaupstöðum og %
hluta utan þeirra.
Kvaðst Ingólfur Jónsson ráð-
herra vona að frumvarpið fengi
góðar undirtektir. Það væri til
samræmingar gert en hefði ekki
í för með sér aukinn kostnað.
afla vel
AKRANESI. 8. apríl — Bátar hér
veiddu mjög vel í dag, 11—18
lestir. — Tveir bátar veiða nú
loðnu fyrir Akranesbátana. —
Komu þeir að í dag með 70 tunn-
ur hvor. —O.
UNDANFARIÐ hafa orðið tals-
verðar opinberar umræður
um þjóðartekjurnar og skiptingu
þeirra. Því er mjög haldið fram
af talsmönnum launþegasamtak-
anna að launþegarnir beri skarð-
an hlut frá borði við skiptingu
þjóðarteknanna. Sköpun og skipt-
ing þjóðarteknanna er stórt og
mikið mál og því erfitt að vekja
máls á því í blaðagrein, nema þá
til að minnast á örfá atriði aðeins.
í fljótu bragði virðist sem eðli-
legast væri að ræða þjóðaUekj-
urnar frá tveimur hliðum: annars
vegar sköpun þeirra, hins vegar
skiptingu. En þegar að er gætt
sést að í höfuðatriðum er þetta
eitt og sama málið.
Enginn ágreiningur ríkir um
það, að þjóðartekjurnar jukust
á s.l. ári Tölulegar upplýsingar
sem fyrir hendi eru sýna ljóslega
aukningu. En hvernig hefir þessi
aukning gerzt? Engar stórvægi-
legar breytingar hafa orðið á
framleiðslutækni þjóðarinnar.
Atvinnugreinar þær, sem störf-
uðu 1953, störfuðu með svo til
sömu tækjum og framleiðsluað-
ferðum á árinu 1954. Skipin eru
yfirleitt þau sömu, sömuleiðis
vélar og hús. Einhverjar breyt-
| ingar hafa samt orðið á skipu-
lagi og tækjum hinna starfandi
fyrirtækja, en þær eru hægfara
I frá ári til árs. En þótt þær séu
t hægfara, þá eru það samt þessar
framfarir, framfarir í skipulagn-
ingu og tækni, sem eru eini
, grundvöllurinn fyrir varanlega
bættum Hfskjörum, því að bær
þýða aukin afköst (framleiðni,
eins og farið er að kalla það).
Það annað, er kemur til greina,
sem eykur þjóðartekjurnar. eru
bætt verzlunarkjör, að meira fá-
ist hlutfallslega fyrir útflutning-
inn, minna þurfti að greiða hlút-
falislega fyrir innflutninginn. Við
vitum að engin almenn hækkun
á verðlagi útflutningsins átti sér
stað á árinu, né meiri háttar
verðbreytingar á innflutningnum.
Hinar auknu þjóðartekur eru því
ekki úr þeirri átt.
Allt frá 1952 hefir verið full
atvinna, ef undan er skilið árs-
tíðabundið atvinnuleysi úti á
, landi. Það er því að sjá að auknar
þjóðartekjur stafi fyrst og fremst
■ af lengri vinnutíma þeirra, sem
áður voru í atvinnu, nokkru
minna atvinnuleysi þeirra, sem
áður voru atvinnulausir hluta úr
ári, tilflutningi verkafólks úr af-
kastarýrri atvinnu í afkastameiri,
og svo því að vinnufæru fólki
fjölgar árlega um 1000—1200
manns.
1 Það er þvi augljóst hvert aukn-
ing þjóðarteknanna rennur. Þeir
sem vinna lengri tima fá greitt
í hlutfalli við lengingu vinnu-
tímans, og meira en það, fólk sem
bætist í tölu hinna vinnandi fær
nú tekjur, sem það ekki hafði
áður. Það helzt því hér í hendur,
að þeir sem skapa aukningu þjóð-
arteknanna, fá hana í sinn hlut.
Enda er þetta í fyllsta samræmi
i við lögmálin um sköpun og skipt-
ingu þjóðarteknanna. Þær renna
til þeirra sem skapa þær. í þeim
þjóðfélögum, sem skipulogð eru
á svipaðan hátt og hið íslenzka
þjóðfélag, renna kringum tveir
þriðju þjóðarteknanna til laun-
þeganna. Afgangurinn er þá
greiðsla fyrir þjónustu af eign-
um, svo sem vélum, skipum, út-
gerðartækjum, húsnæði o. s. frv.
Sköpun þjóðarteknanna og
skipting þeirra er í rauninni eitt
og sama mál. Sjómaður sem
veiðir fisk fyrir 100 þús. kr. fær
í sinn hlut það aflaverðmæti,
sem hans vinna skapar. Frá þess-
um 100 þús. kr. dregst kostnaður
við eldsneyti, veiðarfæri, notkun
skips o. s. frv. sem eru verðmæti,
sköpuð af öðrum. Skipasmiðun-
um var greitt þegar þeir bygg&u
skipið, o. s. frv. Afgangurinn af
verðmæti aflans er það verðmæti
sem vinna sjómannsins hefir
skapað. Þegar útgerðin er rekin.
með tapi fær sjómaðurinn meira
en það verðmæti sem hann skap-
ar.
Að skapa þjóðartekjur er að
skipta þeim. Sá sem skapar þær
eða tekur þátt í að skapa þæx,
tekur hiut sinn þar sem harui
tekur laun sín. Það er síður ep.
svo að þjóðartekjurnar séu eins
og kaka sem einhverjir skrif-
stofumenn geti skipt milli ein-
staklinganna. Með lögum og
samningum má hafa nokkur áhrif
á skiptingu þjóðarteknanna, en
ekki mikil. Flestar ráðstafanir af
því tagi valda því að þjóðartekj-
urnar minnka.
Lítilsháttar hluta af þjóðartekj-
unum er skipt upp að nýju af
ríkisvaldinu og sveitarfélögum.
Ríkið tekur til sin rúmlega 500
m. kr. Meginhluti þessarar upp-
hæðar er greiðsla vegna félags-
legra þarfa, þ. e. hún fer til kaupa
á þjónustu starfsmanna hins op-
inbera. Þykir í alla staði hentugra
að þjóðin’ greiði hana sameigin-
lega heldur en að starfsmennirn-
ir innheimti hjá hinum einstöku
borgurum fyrir þjónustu sína,
meðfram sökum þess að þjón-
usta þeirra er oftlega ekki beint
við almenning, t. d. utanríkis-
þjónustan. Þar sem greiðslur til
opinberra þarfa fara að mestu
eftir tekjum og efnahag, cn
menn þurfa opinberrar þjónustu
misjafnlega mikið með, verður
hér nokkur tilfærsla á tekjum
milli manna, nýskipting.
Sú nýskipting, sem á sér stað
fyrir tilhlutan almannavaldsins,
er samt aðallega í sambandi við
hinar svokölluðu milligreiðsiur:
ellistyrki, fjölskyldubætur og
framleiðslustyrki. En vandkvæði
eru á því að gera mikið að slíkri
nýskiptingu án þess að áhrifin
verði þau að minnka þjóðartekj-
urnar. Þegar skattur af tekju-
aukningu hjá einstaklingunum
verður mjög hár, hætta þeir að
vilja leggja að sér til frekari öfl-
unar. „Það fer allt í skatta“.
Fullunnar vörur
vinni erL markaði
U M útflutning ísl. iðnaðarvara
var gerð ályktun á ársþingi iðn-
rekenda, sem taldi að stefna
bæri að því, að útflutningur þjóð
arinnar verði sem mest fullunn-
ar vörur, sem vinni sér markaði
erlendis undir íslenzkum vöru-
merkjum. Jafnframt telur þingið
það höfuðnauðsyn að auka fjöl-
breyttni útflutningsvaranna til
þess að tryggja sem bezt efna-
hagslegt öryggi þjóðarinnar.
Því er nauðsyn að koma hér
á fót stóriðnaði með útflutning
að markmiði, byggðum á hagnýt-
ingu hinna miklu orkulinda, sem.
landið býr yfir.
<iels Bohr form.
ifomnefndar
KAUPMANNAHÖFN 8. marz —
Niels Bohr hefir tekið að sér að
vera formaður í 15 manna kjarn-
orkunefnd, sem danska stjórnin
skipaði í dag, til þess að undir-
búa hlutdeild Dana í friðsamlegri
notkun kjarnorkunnar.
Aðrir nefndarmenn eru full-
trúar sveitastjórna, skipasmíða-
iðnaðarins, háskólanna og land-
búnaðarins. —Reuter.