Morgunblaðið - 09.03.1955, Page 16
56. tbl. — Miðvikudagur 9. marz 1955
OKRáRáR
Sjá þingfrétt á bls. 9.
Vesfmannaeyingar óska ein-
dregið eftir fveim prestum
Erfitt oð fá þjónustu nágrannapresfa
‘fe/J'EÖAN einn prestur er í Vestmannaeyjum er hann mjög bund-
1*1. inn þar, enda er það svo, að þótt fljótfarið sé stundum til
Eyja getur það oft komið fyrir að samgöngur séu ekki þangað
lengri tíma. Vegna þessa fer Jóhann Þ. Jósefsson þingmaður Vest-
jnannaeyinga fram á það við Alþingi að í Eyjum skuli vera tveir
þjóðkirkjuprestar. Hefur hann borið fram frumvarp í þessa átt í
Efri deild Alþingis og fylgdi því úr hlaði með ræðu í deildinni í gær.
OFT LEITAÐ TIL UPPGJAFA-^-
FRESTSINS
Hann gat þess þar að fram til
þessa hefði það ekki sakað þótt
aðeins einn prestur væri í Eyjum,
Vegna þess að svo vildi til að
sr. Jens Á. Gíslason, pastor
erneritus, sem hætti preststörf-
trm undir Eyjafjöllum fluttist til
Vestmannaeyja. Hefur oft verið
til hans leitað, þegar sóknarprest
íjt hefur verið fjarverandi eða
forfallaður. En nú er hann orð-
inn svo aldraður að hann getur
ekki lengur gengt prestverkum.
Vegna legu eyjanna er þar
örðugra að fá þjónustu nágranna-
presta í forföllum en annarsstað-
ar á landinu.
OSK SOKNAR OG PRESTS
Þessvegna er það nú ósk safn-
aðarins að tveir prestar verði í
Eyjum. Hafa 1237 manns í Eyj-
Dm undirritað ósk um það. Er
það og í samræmi við óskir sókn-
arprests og sóknamefndar og
hiskup íslands er sammála um
nauðsvn þess.
íbúatala Vestmannaeyja,
upplýsti Jóhann, er nú 4056
manns og er það nálægt því
takmarki sem krafizt er til að
skipa megi tvo presta í presta-
kali. En þar við bætist að á
vert'ð og vetrarlagi koma
þangað hundruð og þúsund
aðkomumanna á vertíð. Styrk
ir þetta enn nauðsyn þess að
hafa tvo presta starfandi í
Eyjum.
Frumvarpinu var vísað til 2.
umræðu og menntamálanefndar
með 11 atkv. gegn 1.
Hafís á !íala-
rniðurn
HAFÍS er nú á Halamiðum og
um helgina urðu togararnir að
flýja þaðan á suðlægari mið. —
En síðustu dagana, sem hægt var
að vera við veiðar þar, var góður
afli. Meðal þeirra fáu togara, sem
léngst héldust þar, var , Siglu-
íjarðartogarinn Elliði. sem kom
í gærmorgun til Siglufjarðar með
tæplega 300 tonn af fiski, mest
karfa eftir viku úthald. Einnig
var togaritin Ólafur Jóhannesson
þar og var hann kominn með
200 lestir eftir fimm daga veiðar
og Gylfi mun hafa landað á
Fatreksfirði um 260 lestum eft-
ir 9 daga veiðar.
Milli 80-100
erlendir togarar
hér við land
ÞAR eð hafís hefur lokað Hala-
miðum, en ísröndin er aðeins um
30 sjómílur út af Deild, er tog-
araflotinn dreifður mjög á öðr-
um veiðisvæðum.
Gífurlegur fjöldi erlendra tog-
ara er við landið um þessar
mundir og er gizkað á að tala
þeirra sé milli 80—100.
12 Fljólsdællngar í
skemmfiferð á
Vatnajökli
SKRIÐUKLAUSTRI, 8. marz. —-
í gær fóru 12 menn, flestir
Fljótsdælingar, á snjóbíl inn
Fljótsdalsheiði austan Snæfells
inn á Vatnajökul og svo vestur
eftir. Komu þeir við í Kringils-
rana og óku síðan út á brúnina
austan Hrafnkelsdals og loks
austur undir Fljótsdalinn.
Ferðin tók um 14 klukkustund-
ir, og var ökufæri sæmilegt. —
Veður var eins fagurt og gott og
hugsast gat.
í þessari ferð funduzt 5 úti-
gengnar kindur og voru þær
teknar með til byggða. Þrjár
kindur voru í svonefndum Töðu-
hraukum, en hinar, dilkar úr
Vopnafirði, í Kringilsrana. Hrein
dýr og rjúpur sáust einnig í Ran-
anum. — J.P.
Fljótshverfingar
í fjöruferðum
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 8.
marz. ■— í frostunum á þorranum
notuðu Fljótshverfingar tæki-
færið til að fara á fjörur sínar
og flytja rekavið heim.
Sökum þess hve tíðin hefur
verið mild undanfarna vetur,
hafa fjöruferðir næstum legið
niðri, því ekki er hægt að kom-
ast á fjörurnar nema þegar
Hverfisvötnin eru á traustum ís.
Nú orðið fara fjörueigendur á
jeppum, draga timbrið heim á
sleðum og heyvögnum. Komu
þeir með mikið magn rekaviðar
í hverri ferð. Vegalengdin fram
á fjörur frá bæjum í Fljótshverfi
mun vera 30 krn. — G.
Fnðfmnur 6u5jobs- lerblýkíelooin hafiia rannsokn
son láfinn , , , ,, .. ,
ksuDkkkunarmGooleikum
FRIÐFINNUR Guðjónsson, leik-
ari, andaðist að heimili sínu hér
í bænum í fyrrinótt 84 ára að
aldri. Hafði hann legið rúmfast-
ur rúmlega viku.
Friðfinnur var um fjölmörg ár
einn vinsæiasti leikari landsins,
en leiklist stundaði hann í full
60 ár. Hann var prentari að iðn
og m. a. einn af stofnendum Hins
íslenzka prentarafélags.
Friðfinnur var kvæntur Sigríði
Torfadóttur, og lifir hún mann
sinn.
Af íslandsmiðum
29 togarar
í SÍÐASTA blaði Fishing News,
er skýrt frá því, að í þessari viku,
muni mikill fjöldi togara koma
af veiðum frá íslandsmiðum,
Noregsströndum og öðrum fjar-
lægum miðum, til Huli og Grims-
by. — Nafngreinir blaðið alls 69
togara, sem væntanlegir eru, en
af þessum mikla flota koma 29
af íslandsmiðum._____
Ágæfur afl! Ves!-
mann.a8yjabá!ð
VESTMANNAEYJUM, 8. marz
— Vciði var yfirleitt mjög góð í
Vestmannaeyjum í dag. Flestir
bátar voru með þetta 8—12 lest-
ir, en sá hæsti var með um 16
Iestir.
Allir báíarnir, sem réru í dag,
voru með lcðnu, sem þó var
orðin helzt til gömul. — Erfið-
lega gekk að fá íoðnu í dag fyrr
en svo seint, að bátarnir fara
flestir með mestan hluta línu
sinnar beitta með síld. —B. G.
Frétt frá forsætisráðuneytinu:
FORSÆTISRÁÐUNEYTINU hafa nú borizt svör frá Vinnuveit-
endasambandi íslands og samninganefnd verkalýðsfélaganna við
bréfi ríkisstjórnarinnar, dagsettu í gær, nm skipun nefndar titt
hlutlausrar rannsóknar á þeim staðreyndum, er mestu máli skipta
í sambandi við kaupdeilu þá, sem nú síendur yfir.
Vinnuveitendasamband fslands valdi í nefndina af sinni hálfut
þá Kjartan Thors, formann Vinnuveitendasambandsins, og Björg-
vin Sigurðsson, framkvæmdarstjóra þess. Samninganefnd verka-
lýðsfélaganna neitaði hins vegar fyrir sitt leyti að tilnefna mentB
í slíka rannsóknarnefnd.
jc-raannadagslns S,2 millj.
Byggmrj Dvalarheimilisms gengur vel
fáiðum og vinningism
tappdrœttisins fjjölgað
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs Sjómannadagsins í Reykjavík og
Hafnarfirði var haldinn s.l. sunnudag. Eignir Sjómannadagsins
eru nú 5,2 millj. kr. Byggingu Dvalarheimilisins miðar vel áfram
í og hefur þegar verið unnið að byggingunni fyrir rúmar 4 millj,:
1 króna, þar af s.l. ár fyrir tæpar 2 miílj. kr.
Lokið er nú við að fullgera
bygginguna að utan og múrhúða
að innan allar hæðir nema kjall-
ara og rishæð. Standa vonir til að
verkið geti haldið áfram án telj-
andi lántöku. Sótt hefur verið um
framhaldsbyggingarleyfi fyrir
annarri vistálmu og samkomu-
jhúsi og er ætlunin, ef það leyfi
fæst að byggingin verði fullgerð
I að tveimur árum liðnum, og gcti
j þá tekið til starfa.
Alls hafa heimilinu nú verið
; gefnar 76 herbergisgjafir, en þar
1 geta orðið allt að 200 visther-
bergi.
Tekjur af sjómannadeginum
1954 og fjáröflun á hans vegum
urðu 1,5 millj. kr., þar af 550
þús. kr. styrkur frá ríki. Tekjur
af happdrættinu námu 500 þús.
kr. og gjafir 400 þús. Áætlað er
að tekjur af happdrættinu frá
byrjun og til aprílloka þetta ár
nemi um 1 millj. kr.
Happdrættið hefur gengið mjög
vel, allir 30 þús. miðarnir selzt.
1. maí n.k. hefst nýtt happdrætt-
istímabil. Miðum verður þá
fjölgað í 50 þús. og vinningum
Búnaðarþing afgreiddi 55 mál
ARDEGIS í gær lauk Búnaðar-
þingi. Fóru þingslit fram að
þingfulltrúum öllum viðstöddum,
nema Jóni alþingismanni á
Reynistað, sem er sjúkur.
STÖRF ÞINGSINS
Áður en þingslit fóru frarn,
gaf forseti þess, Þorsteinn Sig-
urðsson á Vatnsleysu, skýrslu um
störf þingsins. Hefur það staðið
yfir í 27 daga og haldið 19 fundi.
Fyrir þingið voru lögð 61 mál og
hlutu 55 afgreiðslu, þrem var vís-
að til stjórnar Búnaðarfélags ís-
lands og þrjú hlutu ekki af-
greiðslu þingsins.
STJÓRN OG
TRÚNAÐARMENN
Þessu næst fór fram kosning
stjórnar Búnaðarfélagsins og
trúnaðarmanna þess til næstu 4
ára. Kosnir voru sem aðalmenn
í stjórn: Þorsteinn Sigurðsson,
Vatnsleysu, Pétur Ottesen, alþm.,
Innra-Hólmi og Gunnar Þórðar-
son, bóndi. — Varamenn voru
kjörnir: Ásgeir Bjarnason, bóndi
I Ásgarði, Jón Guðmundsson,
bóndi að Hvítárbakka og Krist-
ján Karlsson, skólastjóri á Hól-
um. Einn endurskoðandi var kos-
inn: Guðmundur á Hvítárbakka
og varamaður hans: Gunnar Guð-
bjartsson, Hjarðarfelli. í útvarps-
fræðslunefnd voru kosnir Ey-
vindur Jónsson, ráðunautur og
Ragnar Ásgeirsson, ráðunautur.
Kosinn var einn maður í véla-
nefnd ríkisins: Björn Bjarnason,
ráðunautur.
Að þessu loknu sleit Þorsteinn
Sigurðsson þinginu og árnaði
þingfulltrúum allra heílla, og
Guðmundur Erlendsson þakkaði
forseta í nafni búnaðarþingsfull-
trúa fyrir góða fundarstjórn.
Björgimar-
aðstæður í>6ðar
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 8.
marz — Síðan togarinn King Sol
strandaði á Meðallandsfjörum 28.
febrúar, hefur verið einstök veð-
urblíða þar eystra og oftast dauð-
ur sjór. Er nú búið að festa skip-
íð þannig að vírum hefur verið
komið fyrir til hliða út af aftur-
stefni skipsins og þeim fest í tvö
tré, sem grafin eru iangt niður
í sandinn og eins örugglega um
búið og tök eru á.
í togaranum eru um 300 tonn
af kolum og ís, en enginn fisk-
ur, enda var skipið á leið til
veiða er það strandaði.
Um daginn kom maður frá
Hamri á strandstaðinn og full-
trúi frá tryggingafélaginu. Mun
ósamið um hver tekur að sér
björgun skipsins, en eystra telja
allir sjálfsagt að björgun verði
reynd þar sem aðstaða virðist
hin bezta. Þrír menn úr Meðal-
landi eru á verði um borð í skip-
inu. í gær þegar ég átti tal við
Magnús Sigurðsson, Kotey, taldi
hann að siólagið væri svo gott
við ströndina að lendandi hefði
verið við sandinn rétt austan við
skipið. —G.
einnig, þannig að verðmæti
þeirra verður um 2,2 millj. Meðai
vinninga verða 3 íbúðir, 13 bílar,
3 vélbátar og 8 mótorhjól.
Stjórn fulltrúaráðsins var öll
endurkosin, en hana skipa: Henry
Hálfdánarson formaður, Þor-<
varður Björnsson og Pétur Ósk-
arsson, en í varastjórn eru Sigur-
jón Einarsson, Theodór Gíslasoa
og Bjami Bjarnason. í byggingar-
nefnd Dvalarheimilisins vorut
kosnir: Henry Hálfdánarson,
Þorvarður Björnsson, Bjarnl
Bjarnason, Garðar Jónsson og
Hallgrímur Jónsson, en vara-
menn Tómás Sigvaldason og Karl
Karlsson.
í upphafi fundarins minntist
formaður Einars Þorsteinssonar,
fyrrv. skipstjóa, sem átti sæti |
Sjómannadagsráði frá upphafi.
Spilla rækju-
veiðar öðnmi
veiouni?
ÞÚFUM, 8. marz — Mikið ei
rætt um að hinar stöðugu rækju-
veiðar á Djúpinu muni spilh
fiskiveiðum í inndjúpinu og la>
og silungagöngum í ám og vötn-
um. í sumum ám hefur lax Of.
silungsveiðin minnkað stöðug!
síðari ár og menn setja það
samband við hinar miklu rækju-
veiðar. — Undanfarna daga hef
ur verið þíðviðri og gott veðui
við Djúp. Snjó tók mikið upp oj
hagar orðnir góðir. —P. P.
abcdefgh
AUSTUkBÆR
II
im4iimi
w/ wm
IR'é»KC
• ys*
4»A
i m ei
ABCDEFGH
VESTURBÆR
17. léikur Vesturbæjar: 1
b2—b4 j