Morgunblaðið - 12.03.1955, Side 1
16 síður
42. árgangur
59. tbl. — Laugardagur 12. marz 1955.
PrentsmiSj* Morgunblaosins
Sýnt hvað brezkir tog iramenn ætluðu með löndunarbanninu
Mei einoknn þeirrn hefur fiskverð stórhækknð
Félas brezkra fiskiðnaðar-
manna krefst ramisóknar
FISKVEIÐIMÁLARÁEHERRA Breta, Mr. Heathcoat Amory hef-
ur ákvedið að láta fram fara sérstaka rannsókn á því hvers
vegna fiskverð hefur hækkað verulega í Bretlandi síðustu þrjú ár.
Ástæðan til þessa er sú að félag fiskiðnaðarmanna hefur kært það
fyxir ráðherranum, að samtímis því sem afli sem á land berst fer
stöðugt r-innkandi, fer verðlagið mjög hækkandi. Þykir fiskiðn-
aðarmönnum að togaraeigendur efni ekki loforð sín, er þeir gáfu
þegar bann var sett við löndun íslenzks fisks í Bretlandi. En þá
lofuðu brezkir togaramenn bæði að sjá um nægar fisklandanir og
að halda fiskverðinu niðri.
Á árunum 1951—1954 hafa landanir og meðalfiskverð í Bret-
landi verið sem hér segir:
Landanir Meðalverð
í kits á stone
1951 4.764.951 15 sh 8 d
1952 4.719.135 15 — 10 -
1953 4.535.919 15 — 11 -
1954 4.123.708 17 — 8 -
Tölur þessar sýna að landanir eru 13% minni s.l. ár en árið 1951
og meðalfiskverðið hefur hækkað um 2 shillinga eða um 11%.
AÐGERÐIR TIL AÐ HALDA ^
UPPI FISKVERÐI
í bréfi fiskiðnaðarmanna til
fiskimálaráðherra er sérstaklega
kvartað yfir því, að brezkir tog-
aramenn hafi með sérstökum
samningum sín á milli ákveðið
takmarkanir á veiði og löndun-
um og einnig gert saminga um
lágmarksverð. Á sama tíma hafa
þeir sett á bann við löndunum á
fiski úr íslenzkum togurum, sem
var góður fiskur, seldur á frjálsu
markaðsverði.
VILLANDI SKÝRSLUR
Þá kvarta fiskiðnaðarmenn yf-
ir því að gefnar hafi verið út ný-
lega skýrslur um fiskverð. Muni
þær hafa verið samdar af togara-
eigendum og séu mjög villandi.
Því að til þess að gefa þá mynd,
að fiskverðið sé lágt, er talinn
með fiskur, sem er seldur fyrir
mjög lágt verð í fiskimjölsvinnslu
og fæst meðalverðið þannig nið-
ur.
HÆRRA FISKVERÐ
EN NOKKRU SINNI
Fiskiðnaðarmennirnir kvarta
míög yfir því hve fiskverðir hef-
ur hækkað skyndilega, eftir að
brezkir togaraeigendur hafa feng
ið einokun á markaðnum. Telja
þeir það mikil ódæmi að meðal-
verðið á stone af þorski skuli
vera komið upp í 17 sh. 8 d., en
þó tók út yíir allan þjófabálk
þegar verðið var mikinn hluta
árs 1954 18 sh. 3 d.
í sambandi við þetta minna
fiskiðnaðarmenn á það, að þegar
verðlagseftirliti var létt af fiski
var því heitið að þorskverð lækk-
aði, vegna þess að með verði hans
hefði að undanförnu verið greitt
niður verð á flatfiski. Þetta hef-
ur farið þveröfugt og telja fisk-
iðnaðarmenn ástæðuna fyrir
þorskverðshækkuninni eingöngu
að togaraeigendur hafa beitt sér-
stökum brögðum til að halda
fiskverðinu uppi.
EINOKUNARSAMTÖK
TOGARAEIGENDA
Að lokum var þeim tilmælum
Framh. á bla. 2
□-
-□
Kosningar
r Breflandi
í maí?
London 11. marz.
SVIFTINGAR halda áfram í
brezka verkamannaflokknum og
fari svo að meirihluti flokks-
stjórnarinnar taki þá ákvörðun
að reka Bevan úr fiokknum í
næstu viku, er talið sennilegt að
brezka ríkisstjórnin noti tæki-
færið og Játi fara fram nýjar
kosningar í Bretlandi seint í
aprilmánuði eða í byrjun maí
næstkomandi.
Bevan gaf út tilkynningu í
gærkvöldi. þar sem hann harm-
ar það að hafa ekki sökum veik-
inda getað leiðrétt misskilning,
sem gætt hafi í umræðunum í
brezkum biöðum um samskifti
þeirra Attlees. Segir Bevan að
ádeilur hans á flokksleiðtogann
Attlee hafi eingöngu verið stjórn-
málalegs eðlis, en alls ekki
persónulegs eðlis.
Á mánudaginn hefst í neðri
málstofu brezka þingsins um-
ræða um tillögu stjórnarandstæð
inga um vantraust á stjórn
Churchills fyrir að hafa vanrækt
að efna til fundar með æðstu
mönnum Sovétrikjanna og Banda
ríkjanna til þess að afstýra
vetnissprengjustyrjöld. — Attlee
hefir framsögu fyrir stjórnar-
andstæðinga.
Churchill ætlar sjálfur að tala
fyrir breytingartill, sem gengur í
þá átt, að brezku stjórninni er
þakkað að dregið hefir úr við-
sjám í heiminum. í breytingar-
tillögunni er lagt til að þrívelda-
ráðstefna verði haldin þegar bú-
ið er að staðfesta Parísarsamn-
ingana.
□—-------------------------□
ÞAU TRÚLOFAST
TRÚLOFUN Margrétar prins-
essu og Peters Townsend
ofursta, verður sennilega kunn
gerð í lok þessa mánaðar, að
því er áreiðanlegar fregnir frá
brezku hirðinni herma (segir í
NTB-fregn frá London). Mar-
grét prinsessa er staðráðin í
því að giftast Peter Townsend.
BRÚÐKAUP þeirra getur ekki
farið frám í brezku þjóðkirkj-
unni, vegna þess að Townsend
hefur verið kvæntur áður. —
(Skilnaðurinn frá fyrri kon-
unni fór fram árið 1951 vegna
hjúskaparbrots konunnar, sem
giftist fljótlega aftur). — Hins
vegar er erkibiskupinn af
Kantaraborg sagður vera bú-
inn að sætta sig við að Mar-
grét prinsessa fái vilja sínum
framgengt.
ORSÖKIN til þess að opinberun
trúlofunarinnar hefur dregizt
á langinn er sögð sú, að brezka
konungsfjölskyldan hafi viljað
undirbúa þetta óvenjulega
hjúskaparmál heima fyrir áð-
ur en það verður kunngert um-
heiminum.
LUNDÚNABLAÐIÐ „Daily Mirr-
or“ segir að Margrét prinsessa
hafi oft talað við Peter Towns-
end í síma á þeim tveimur ár-
um, sem ofurstinn hefur verið
í útlegð í Brússel.
Selið m bústað
Townsends
BRÚSSEL. — Sá orðrómur geng-
ur hér, að þeir hafi ræðst við
fyrir nokkrum dögum, hertoginn
Margrét prinsessa.
af Edinborg, maður Bretadrottn-
ingar og Peter Townsend, flug-
málaráðunautur við brezka
sendiráðið hér og líklegt manns-
efni Margrétar Bretaprinsessu.
Blaðamenn hafa setið- um íbúð
Frh. á bls. 12.
Ferðamálaráð og ferðamálasjóður
vinni að auknum straumi ferðamanna
hingað og bættri þjónustu við |iá
Ferðskrifstofurekstur
verði gefirm frjáls
Maðurinn sem fann
penicillinið látinn
LONDON, 11. marz — Sir
Alexander Fleming varð bráð-
kvaddur í dag hér í borg, 73 ára
að aldri. Sir Alexander upp-
götyaði penicillinið árið 1929 og
skrifaði þá ritgerð um það. Tíu
( árum síðar tókst tveim vísinda-
. mönnum í Oxford að framleiða
samþjappað penicillin til lækn-
I inga. Sir Alexander var aðlaður
árið 1944 og síðar hlaut hann
Merkileg nýmœli í frumvarpi
fjögurra Sjálfstœðismann®
T NÝJU og skilmerkilegu frumvarpi, sem útbýtt var
T á Alþingi í gær er stefnt að því að koma nýju og
bættu skipulagi á landkynningu og ferðamál hér á
landi.
Meginefni frumvarpsins er:
1) Að stofna Ferðamálaráð íslands, sem hafi með
höndum stjórn landkynningar og ferðamála.
2) Að afnema þá einokun, sem Ferðaskrifstofa ríkis-
ins hefur um móttökur erlendra ferðamanna.
3) Starfsemi ferðaskrifstofa verði frjáls, en sækja
þarf um leyfi til ráðherra.
4) Stofna skal ferðamálasjóð, er veiti lán til bygg-
ingar gistihúsa og greiði kostnað af landkynningu,
5) Ríkissjóður leggi árlega hálfa milljón kr. í ferða-
málasjóð. Ennfremur skal reynt að fá aðra aðilja,
sem hagsmuni liafa af auknum ferðamannastraumi
til að greiða árleg frjáls framlög í sjóðinn.
Frumvarpið er borið'fram af fjórum þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins: Gunnari Thoroddsen, Magnúsi
Jónssyni, Sigurði Bjarnasyni og Jóhanni Hafstein.
FERÐAMALARAÐ
í frumvarpinu er fyrst ákvæði
um stofnun Ferðamálaráðs ís-
Nobelsverðlaun í læknavísind- lands. Skal það skipað 7 mönnum.
um. Sir Alexander starfaði umTveir eru kosnir af Alþingi, en
50 ára skeið til dauðadags viðfimm tilnefndir af þessum að-
St. Mary sjúkrahúsið í London.iljum: Eimskipafélagi íslands,
Félagi sérleyfishafa, Ferðafélagi
íslands, Ferðamálafélagi Reykja-
víkur, Flugfélagi íslands, Loft-
leiðum og Sambandi veitinga- og
gistihúsaeigenda.
Framh. á bls. 2