Morgunblaðið - 17.03.1955, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.03.1955, Blaðsíða 1
16 síður 42. árgangor 63. tbl. — Fimmtudagur 17. marz 1955 PrentsmlSj* Morgunblaðsin* Verkfallið nær ekki fil mjélkiirfluin- fnganna BLAÐINU barst í gær eftir- farandi tilkynning frá samn- inganefnd verkalýðsfélag- anna: A.S.B., félag afgreiðslustúlkna í brauða- og mjólkurbúðuin. Mjólk urfræðingafélag íslands og Verka mannafélagið Dagsbrún, sem boð að höfðu vinnustöðvun hjá Mjólk ursamsölunni frá og með 18. þ.m. hafa orðið við þeim tilmælum samninganefndar verkalýðsfélag anna að fresta um óákveðinn tíma vinnustöðvun sinni hjá Mjólkursamsölunni með því skil- yrði, að vinnustöðvunin geti hve- jnær sem er komið til fram-' kvæmda með þriggja sólarhringa fyrirvara og er um það samkomu lag við stjórn Mjólkursamsölunn- ar. Jafnframt hefir samninganefnd verkalýðsfélaganna lýst því yfir, að þau önnur verkalýðsfélög, sem samstÖðu hafa í yfirstandandi deilu, muni ekki aflýsa vinnu- stöðvunum sínum fyrr en tekist hafa samningar við þau félög, sem nú fresta vinnustöðvun sinni hjá Mjólkursamsölunni. - né lieldur til brauðsölu- búðanna FÉLAG afgreiðslustúlkna í mjólkur- og brauðasölubúðum, tilkynntu bakarameisturum í gær að frestun sú á verkfalli þeirra í mjólkurbúðum, nái einnig til brauðasölubúða bakarameistara og Alþýðubrauðgerðarinnar. orfur á víðtækum verk- föllum á miðnætti AMIÐNÆTTI í nótt mun! hef jast verkfall af hálfu! 12 verkalýðsfélaga í Reykja- vík og Hafnarfirði ef ekki hafa tekizt samningar milli þeirra og atvinnurekenda fyr- ir þann tíma. SÁTTAFUNDIR í fyrradag hafði hin stjórn- skipaða sáttanefnd vinnudeilunn- ar fundi með fulltrúum deiluað- ila frá kl. 5 síðdegis til kl. 1,30 um nóttina. f gær hófust svo fundir kl. 3 síðdegis og var gert | ráð fyrir að þeir mundu standa j langt fram á síðastliðna nótt. . Standa fundir þessir yfir á neðstu | hæð Alþingishússins eins og oft- ast áður, þegar um er að ræða | samningafundi í vinnudeilum hér í bænum. Ekkert var hægt að fullyrða um það í gærkveldi hvort líkur væru til að samkomulag næðist s.l. nótt eða í dag. Virtust jafn- vel frekar líkur vera fyrir því að til verkfalls kæmi. 12 FÉLÖG í VERKFALLI Þau 12 verkalýðsfélög, sem verkfall munu hefja um miðnætti í nótt, ef samkomulag hefur ekki náðst áður eru: Verkamannafé- lagið Dagsbrún, Iðja, félag verk- smiðjufólks í Reykjavík, Félag járniðnaðarmanna, Fél. bifvéla- virkja, Fél. blikksmiða, Sveina- félag skipasmiða, Múrarafélag Reykjavíkur, Málarafélag Reykja víkur, Trésmiðafélag Reykjavík- ur, Flugvirkjafélag íslands, Verkamannafélagið Hlíf í Hafnar firði og Iðja, félag verksmiðju- fólks í Hafnarfirði. Formaður samninganefndap verkalýðsfélaganna er Edvard Sigurðsson ritari Dagsbrúnar, en formaður samninganefndar at- vinnurekenda er Kjartan Thors, formaður Vinnuveitendasam- bands íslands. í hinni stjórnskipuðu sátta- nefnd eiga hinsvegar sæti, Torfi Hjartarson sáttasemjari ríkisins, formaður, Hjálmar Vilhjálmsson skrifstofustjóri, Emil Jónsson al- þingismaður, Jónatan Hallvarðs- son hæstaréttardómari, Gunnlaug ur E. Briem skrifstofustjóri og Brynjólfur Bjarnason alþingis- maður. VÍÐTÆK ÁHRIF Ef til verkfalls kemur mun það lama allt athafnalíf í þeim tveim ur kaupstöðum, sem það nær til, Reykjavík og Hafnarfirði. Vinna fellur niður í frystihúsum og fiskverkunarstöðvum, vélsmiðj- um, skipasmíðastöðvum og bif- reiðaverkstæðum. Bensínaf- greiðslur verða lokaðar og bygg ingarvinna mun stöðvast. í öllum verksmiðjum í bænum mun vinna ennfremur falla niður. Flugsam- göngur til og frá bænum með innlendum flugvélum munu og leggjast niður. SIGLINGAR STÖÐVAST Þar sem vinna stöðvast í hrað- frystihúsum og öðrum fiskvinnslu stöðvum mun vélbátaútgerðin í Reykjavík og Hafnarfirði stöðv- ast. Nokkrir bátar munu þó hafa búið sig undir að saltá sjálfir afla sinn. Þá mun verzlunarflotinn stöðv ast eftir því sem skipin koma í höfn. Verður Tröllafoss sennilega fyrsta kaupskipið, sem stöðvast hér í Reykjavíkurhöfn. UGGUR OG KVIÐI Mikils uggs og kvíða hefur orð- ið vart meðal almennings gagn- vart hinum boðuðu verkföllum. Mikil atvinna og margháttaðar framkvæmdir standa yfir hér um þessar mundir. Örskammt er liðið síðan þriggja vikna verkfalli matsveina á kaupskipaflotanum lauk. Olli það hafnarverkamönn- um miklu tjóni. Engu verður um það spáð, hversu langvinnt verkfall kann að verða ef það hefst. En það er áreiðanlega ósk yfirgnæfandi meirihluta almennings, að það verði sem skemmst og helzt að því verði afstýrt. BROTTVIKNING BEVANS 141:112 -<s> „Hvar er konaii?4; NEW YORK: — Dwight D. Eisen- hower, forseti Bandaríkjanna hefir verið tregur til þess að gangast inn á að vera í kjöri að nýju fyrir republikanaflokkinn við forsetakosningarnar næsta ár. „Newsweek“ segir frá því að frú Eisenhower hafi skift um skoðun, — hún hafi verið alger- lega andvíg því að bóndi hennar yrði í kjöri aftur. Svo sé raunar enn, en henni sé það þó ekki eins þvert um geð eins og fyrir ári. Itomvopn verða notuð, ef — WASHINGTON 166. mar: — Eis- enhower staðfesti þau tíðindi á blaðamannafundi í dag, að Banda ríkin myndu taka í notkun kjarn orkuvopn, sem skotið er á hern- I aðaarvirki, ef til styrjaldar dreg- j ur í Austur-Asíu. Hann kvaðst' ekki sjá reina ástæðu til þess að „taktisk" atómvopn verði ekki notuð gegn hernaðarlegum mann virkjum á sama hátt og venju- legar byssukúlur. Eisenhower færðist undan að svara spurningu um það, hvort vetnissprengjan, sem sprengd var í Kyrrahafi í marz í fyrra, hefði verið af sérstakri gerð með óhreinsuðu úraníum. Atflee bar sjálfur fram brottreksturstillöguna Finnland núfímans Greinaflokkur eftir dr. Haakon Stangerup FINNLAND, 10 árum eftir að friður var saminn. — 15 ár eru liðin síðan vetrarstyrjöldin finnska brauzt út og 10 ár síðan vopnahlé var samið milli Finna og Rússa, eftir aðra finnsk-rússnesku styrjöldina. Hvernig er afstaðan milli þessara fyrri óvina og ævarandi nágranna? Hvernig er af- staða Finna í alheimsmálunum og innanríkismálunum, í fjárhag og menningarlífi og hvernig er afstaðan á milli Finna og norrænu þjóðanna? — Fréttaritari Morgunblaðs- ins dr. phil. Hakon Stangerup byrjar í dag að birta greina- röð um Finnland nútímans, er hann segir frá ýmsum dæg- urmálum Finna í ár. Fyrsta grein Stangerups er almenn lýsing á heimsókn hans til forseta Finnlands, hins aldraða stórvirðulega manns, er alþýða manna í Finnlandi í dag- legu tali nefnir oft „Karlinn“. í&ínw Clement Attlee Aneurin Bevan LONDON, 16. marz. ME Ð 2 9 atkvæða meirihluta (141 gegn 112) var í gær samþykkt á lokuðum fundi í þingflokki brezka verka- mannaflokksins að víkja Aneurin Bevan úr þingflokknum. Clement Attlee, leiðtogi flokksins, hafði sjálfur örð fyrir, brottreksturstillögunni. Fundurinn í þingflokknum stóð í röskar tvær klukku stundir. Sjálfur tók Bevan nokkrum sinnum til máls sér til varnar á fundinum. Stuðningsmenn Bevans reyndu á síðustu stundu að forða brott- rekstrinum með því að bera fram tillögu um að við það yrði látið sitja, að Bevan yrði víttur fyrir að hafa risið upp gegn flokks-j forustunni í atkvæðagreiðslunni um landvarnamálin 2. marz s. 1. En tillaga þessi var felld með 138 atkv. gegn 124. Meirihluti þing- flokksins var þeirrar skoðunar að ekkert dygði minna en brott- rekstur Bevans úr þingflokknum. Brottreksturinn hefir í för með brottreksturinn verður að leggj- sér að Bevan fær ekki lengur j flokksins. Hann situr þó áfram að sitja fundi þingflokksins né i á þingi sem óháður þingmaður. , heldur að taka þátt í störfum [ Framh. 4 bla. 1* | Margrét prinsessa og Townsend Brezk blöð krefjast skýringar London 16. marz. Einkaskeyti frá Reuter. KRAFA almennings á Bretlands- eyjum um það, að brezka kon- ungsfjölskyldan taki opinberlega afstöðu til orðrómsins um fyrir- hugað hjónaband Margrétar prins essu og Peters Townsend, verða stöðugt háværari. Undanfarna daga hefur Daily Telegraph, eitt af helztu blöðum íhaldsmanna, birt fjölda bréfa frá lesendum sínum, þar sem farið er hörðum orðum um þau blöð, sem mikið veður höfðu gert út af giftingarorðasveimnum. En í dag sneri Daily Telegraph við blaðinu og gekk í lið með þeim blöðum öðrum, sem krefjast þess að yfirlýsirg verði birt frá Buck- inghamhöli um þetta mál. YFIRLÝSING PETERS TOWNSENDS Fæst hinna brezku blaða hafa áður minnst á orðróminn um að hin 24 ára gamla prinsessa hefði hug á að giftast ofurstanum, sem er 16 árum eldri. En á mánu- dáginn sagðí Townsend við blaða menn í Brússel, að Margrét hefði ekki látið honum i té neina vitn- eskju um að hún óskaði þess að giftast honum, og að hann hefði enga ástæðu til þess að halda, að hún hefði tekið slíka ákvörðun. Eftir þessa orðsendingu komst orðrómurinn á fremstu síðu margra brezkra blaða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.