Morgunblaðið - 17.03.1955, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.03.1955, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 17. marz 1955 Eyjólfur lllugason járnsmiður - aldarminning ÞANN 18. dag marzmánaðar 1855 fæddist að Holti í Svína- dal í Húnavatnssýslu sveinbarn, sem í skírninni hlaut nafnið Eyjólfur. Foreldrar sveins þessa voru hjónin Björg Eyjólfsdóttir óg Illugi Ásmundsson. Hjón þessi bjuggu góðu búi að Holti. Eign- Uðust þau alls 10 börn, dóu 4 þeirra í æsku, en 6 börn þeirra komust til fullorðins ára, 3 piltar og 3 stúlkur. . í>á er Illugi, faðir Eyjólfs, og föðurbróðir Eyjólfs, Jónas að nafni, voru um tvítugs aldur, ] nisstu þeir föður sinn. Ekkjan ! lélt þó áfram búskap með aðstoð : ona sinna. En jörðina erfðu þeir iræður eftir Ásmund, föður sinn. . ónas, bróðir Illuga. mun hafa ; lutzt til Ameríku. En hvað um I . bróðurinn varð eða systur >eirra, eru ekki tök á að upplýsa. Illugi var hæfileikamaður bæði i. andlegu og verklegu sviði. Var i lann smiður góður á tré og járn. I lonum var mjög sýnt um lækn- ; ngar, og bar það ósjaldan við, i ð hans var leitað til hjálpar við 1 larnsfæðingar. Við lækningar i ínar notaði hann mjög íslenzkar ; urtir, og þótti gefast vel. Vísaði ! léraðslæknirinn, Jónas Skafta- i on, sem sat að Hnausum í Húna- ingi, oft til hans, er hjálpar urfti við í minni háttar sjúk- i ómstilfellum í nágrenni Illuga. ! lann var mjög fróðleiksfús og ! ís mikið í bókum, þegar tóm ; ;afst til frá daglegum önnum. ! hnkum var honum grasafræði ! lugleikin. j. Þá er Eyjólfur var 8 ára að aldri, brá Illugi, faðir hans, búi. Lágu til þess þær orsakir, að einn Íveitungi hans, tungumjúkur og iðsjáll, eins og Eyjólfur orðaði það síðar, taldi þá bræður á að selja sér jörðina. Létu þeir að lokum leiðast til þess fyrir fortöl- ur hans. Átaldi Illugi sjálfan sig jafnan fyrir það glappaskot. Var það margra manna mál, að hann hafi aldrei orðið samur maður síðan. Seldi Illugi þá allar eigur sínar, sem hann mátti án vera sem bú- laus maður, og ráðstafaði börn- um sínum á góð heimili í ná- grenninu. Voru margir fúsir til að taka þau að sér, þar sem þau voru öll mannvænleg og foreldr- arnir vinsælir. Lét hann eigur sínar ganga þeim til uppeldis. Eyjólf, sem var yngstur barn- anna, skildu þau eigi við sig. Þau hjónin reistu aldrei bú síðan, en réðu sig í vinnumennsku. Sá, er keypti jörð þeirra, naut hennar aldrei, því að hann veiktist og andaðist, áður en hann gat sest þar að búi. En ekkja hans flutti þangað og giftist aftur nokkru siðar. Eftir skamman tíma and- aðist einnig síðari maður hennar, og tók þá elzti sonur hennar við búi. Hann bjó þar nokkur ár við erfið kjör. Seldi hann loks jörð- ina dugandi manni, sem vegnaði þar vel, enda var Holt þá talin kostajörð. Foreldrar Eyjólfs fluttust fyrst að Hjallalandi í Vatnsdal til Þor- leifs bónda Þorleifssonar, er þar bjó þá. Kona hans hét Helga og var Þórarinsdóttir, merk kona og góðum gáfum gædd. Þá var prest- ur að Undirfelli séra Þorlákur Stefánsson. Var hann tíður gest- ur að Hjallalandi Hafði hann gaman af að spjalla við Helgu húsfreyju því að bæði voru skáld- iþælt vel, og bar margt á góma ttíilli þeirra bæði um veraldleg og andleg efni. Taldi Eyjólfur jafnan, að kynning sín við Helgu og séra Þorlák hefði mjög mótað guðstrú sína og lífsskoðanir. Hafði hann mikla unun af að hlusta á samræður þeirra, því að bæði voru vel hugsandi og göfuglynd. Telur Eyjólfur í minn- isblöðum um ýmis æviatriði sín, að hann hafi búið að þeirri kynn- ingu alla ævi. — Árið áður en Eyjólfur átti að fermast andaðist Þorleifur, húsbóndi þeirra. Segir eftir Finnboga J. Arnda/ — Eyjólfur, að hann hafi saknað hans mjög. Eftir lát Þorleifs bjó ekkja hans áfram í eitt ár að Hjallalandi. Þá um veturinn skrifuðu tveir prestar föður Eyj- ólfs og föluðu hann til vistar næsta vor. Var þeim hugleikið að ráða hann til sín sökum þess, hve hann var lagvirkur og prúð- mannlegur í viðkynningu. Réðst Illugi til þess prestsins, er skrif- aði honum fyrr. Var það séra Markús Gíslason að Bergstöðum í Svartárdal. Hinn presturinn, sem missti af Illuga í þetta sinn, var séra Jón prófastur Þórðarson á Auðkúlu. Svaraði Illugi bréfi hans á þá leið, að hann skyldi ráðast til hans næsta ár þar á j eftir, ef báðir lifðu og væru þá sama sinnis um það, en nú væri hann þegar ráðinn hjá séra Markúsi Gíslasyni að Bergstöð- um. Fór svo, að þessu var full- nægt. Það var árið sem Eyjólfur átti að fermast, sem hann fluttist með foreldrum sínum að Bergstöðum. Séra Þorlákur Stefánsson að Und- irfelli skrifaði Markúsi, embætt- isbróður sínum, og tjáði honum, að óhætt væri fyrir hann að ferma Eyjólf, því að sér væri kunnugt um, að hann kynni vel það, sem honum bæri að kunna undir fermingu. Eins og ráðið var, fór Illugi, faðir Eyjólfs, til vistar að Auð- kúlu til Jóns prófasts og hafði þangað með sér son sinn, er þá var á 15. ári, því að svo hafði verið um samið. Björg, kona Illuga og móðir Eyjólfs, vistaðist þá á annan bæ í sömu sveit. Var hún þar upp frá því til dánar- dægurs. Segir Eyjólfur, að þar hafi henni liðið vel. Að Auðkúlu dvaldist Eyjólfur þar til að hann var 20 ára að aldri. Náði hann þar góðum þroska til líkama og sálar. Þótti honum þar gott að vera. Jón prófastur reyndist Eyjólfi sem góður faðir og hafði oft við orð, að senda hann suður til Reykja- víkur til þess að læra málaralist, þar sem hann þóttist verða þess var, að drengurinn myndi vera gæddur nokkurri listgáfu á því sviði. Aldrei komst þó þessi ráða- gerð prófastsins í framkvæmd. Um það leyti, sem Eyjólfur var að fylia tvítugsaldurinn, réðst hanp í að fara til Suðurlands, sem margir ungir menn þar nyrðra á þeim timum, en faðir hans var lengi eftir það á Auð- kúlu. Siðast fór hann að Guð- laugsstöðum í Blöndudal, og þar andaðist hann. Á þeim bæ bjó þá merkisbóndinn Jón Guð- mundsson. Suðurland, og þá helzt Reykja- vík, var á þeim tímum í hugum ungra manna þar nyrðra sem ævintýraland, og þráðu þeir mjög að kynnast því. Töldu þeir, að þar kynni að bíða þeirra fé og frami, ef gæfan yrði þeim hlið- holl og þeir kæmist þangað. Eyjólfur hleypti nú heimdrag- anum og réðst til ferðar suður. Fór hann í fylgd með manni þeim, er Stefán hét Sigurðsson. Hafði hann verið vinnumaður á Auð- kúlu. Voru 6 menn í förinni, 4 karlmenn og 2 konur, sumir ríð- andi, en aðrir gangandi. Var Eyjólfur einn þeirra. Þetta var í byrjun sláturtíðar haustið 1875, og rak fólk þetta með sér 100 fjár, er slátra skyldi syðra, sem þá var títt. Gekk ferð þessi að mestu slysalaust. Þó hreppti fólkið hríðarveður á Arn- arvatnsheiði og náði með naum- indum sæluhúsinu við Arnarvatn kl. 3 að nóttu. Var þá allt að þrotum komið, menn og fé. Þegar í sæluhúsið kom, voru þar fyrir 4 karlmenn og 1 kona. Voru þau komin þangað fyrir skammri stund. Voru þau einnig með fjárrekstur, 50 kindur. Var nú slegið saman rekstrunum og farið daginn eftir að Kalmanns- tungu. Mestan hluta leiðarinnar, sem eftir var, gekk ferðin sæmi- lega. Var farið fyrir Ok, sem kallað var, en ekki Kaldadal, því að þar var talið, að veðrið væri verra. Þó var við að stríða storm og slydduhret. Var það eigi ótítt, að slys og þrautir fylgdu ferðum sem þessum á þeim tímum, og eru um það margar sagnir og dapurlegar. Eyjólfur sá nú Reykjavík í fyrsta sinn. Þótti honum gaman að skoða sig þar um, þótt eigi væri hún svo tilkomumikil sem hann hafði gert sér í hugarlund. Þótti honum hún þunglamaleg yfir að líta, húsin flest dökk að lit og göturnar virtust litlu betri yfirferðar en heimreiðin að Auð- kúlu. Viðstaðan í Reykjavík var eigi löng. Þá er þeir höfðu ráðstafað sláturfénu, héldu þeir Stefán suður í Leiru, og reri Evjólfur hjá honum um haustið og vetur- inn, eins og gert hafði verið ráð fyrir. Geðjaðist Eyjólfi ekki sem bezt að þeim starfa. Verst þótti honum hve tíður var drykkju- skapur í verstöðvunum þar syðra. Var það nokkuð oft, þegar land- legur voru, að hann og annar unglingur, er var á sama skipi og hann, voru sendir með þungar bvrðar af fiski til Keflavikur. Skyidu þeir seija bar fiskinn og kaupa brennivín fvrir andvirðið. Urðu þeir að rogast með það til baka út i Leiru. Milli Keflavíkur og Leiru er um klukkustundar gangur. Virtist þessi kaupskapur vera nokkuð venjulegur þar um slóðir. Næsta vor fór Eyjólfu1* ásamt Stefáni í kaupavinnu til Norður- lands. Þá um haustið fóru þeir suður aftur í þeim tilgangi að róa saman næsta vetur. Þá er þeir komu til Reykjavíkur, var skip þeirra statt þar, þá nýkomið frá Hvalfirði, þar sem það aflaði skelfisks til beitu, og skvldi það fara með farminn suður í I.eiru. Þeir félagar, Evjólfur og Síefán, tóku sér ekki fari með skipinu, en dvöldust í Revkjavík 2—3 daga, ætluðu síðan landveg suð- ur. Fréttu þeir þá, að skioið hefði farizt með öllum mönnunum, sem á þvi voru. undir Keflavíkur- bergi. Afréð þá Evjólfur að hætta atvinnu við sjóróðra og varð kyrr í Reykjavík, en Stefán hélt suð- ur með sjó. Skildi bar með þeim, og sáust þeir eigi s;ðan. Þar sem Eyjólfur vár lagvirk- ur víð sm'ðar sem faðir hans og ekki leit út fyrir atvinnu fyrir hann, eins og komið var, fór hann að leita fyrir sér um smíðanám. Leitaði hann fyrst til trésmiða, en þeir voru ófúsir á að bæta við manni í iðngrem sinni, enda lítið um trésmiðavinnu á þeim tíma. Fór Eyjólfur þá til járnsmiða og falaðíst eftir námi hjá þeim. Að lokum tók Bjarni járnsmíður Hjaltested hann til náms. Hjá honum var hann í 6 ár og lauk Iprófi frá honum í járnsmíði með ágætum vitnisburði. Mun Eyj- ; ólíur þá hafa verið nær þrítugu. Dáðist Eyjólfur oft að því, hve i vel honum hefði liðið hjá Hjalte- ' sted-hjónunum. Dvölin þar var honum ógleymanleg. Hóf þá Eyjólfur járnsmíði í eigin smiðju í Reykjavík, en eftir eitt ár flutt- ist hann til Hafnarfjarðar og setti upp smiðju sína þar. Fluttist hann í hús, þar sem nú er Brekkugata nr. 10. Var smiðja hans í allstórum skúr við norður- enda hússins. Um þetta leyti kvæntist Eyj- ólfur Agnesi Bjarnadóttur, ætt- aðri úr Hafnarfirði. Þau eignuð- ust eina dóttur, en misstu hana á 4. ári. Agnes var jafnan mjög heilsutæp og hnignaði stórum, er hún missti dótturina. Andaðist Agnes fáum árum siðar. Rúmu ári eftir, að Eyjólfur missti konu sína, kvæntist hann í annað sinn. Sú kona hét Ólafía og var Ólafsdóttir. Var hún ætt- uð úr Reykjavík. Þeim varð tveggja bama auðið, pilts og og stúlku. Þessi börn Eyjólfs búa nú í Reykjavík, Ólína gift Tómasi Magnússyni, er vinnur við gas- stöðina, hafa þau eignast 9 börn, og Axel Kristján, kvæntur Sigríði i Jónsdóttur, ættaðri frá Dýrafirði, eiga þau eigi börn, en Axel á eina dóttur frá fyrra hjónabandi. Er hún nú 17 ára að aldri. Eftir 11 ára sambúð missti Eyjólfur síðari konu sína. Þessi reynsla hans tók mjög á krafta hans andlega og líkamlega, þó stilltur væri hann og glaðlyndur að eðlisfari. Eftir lát siðari konu sinnar tók hann sig upp og fór til Ameríku. Átti hann bróður þar, Pétur að nafni, sem bjó í Kanada. Ekki undi Eyjólfur þar nema eitt ár og sannfærðist þá um það, að þar er ekki fremur hægt að gleyma hörmum sínum en hér í faðmi fósturjarðarinnar. Gat hann þess oft, að fáar stund- ir hefði hann glaðari lifað en þá er hann sá íslenzku fjöllin rísa úr sæ við heimkomuna. Hann sagðist hafa séð margt fagurt og fullkomið vestan hafs, en ekkert af því tók þó huga hans þeim tökum, sem íslenzku fjöllin og firðirnir, sem breiddu faðminn á móti honum og buðu hann vel- kominn heim. Þá var sárustu þránni svalað — heimþránni. í Hafnarfirði tók Eyjólfur all- mikinn þátt í félagslífi bæjarbúa. Honum rann til rifja að sjá drykkjuskaparóreglu þá, er ríkti meðal húsfeðra margra heimila í bænum, og allt það böl, sem af henni leiddi. Var drykkjuskapur- inn ekki einkennandi fyrir Hafn- arfjörð. Hann var algengur víða við sjávarsíðuna hér á landi í þá daga. Árið 1885 var stofnuð Góð- templarastúka í Hafnarfirði, og var Eyjólfur einn af stofnendum hennar og mikill hvatamaður að stofnun stúkunnar. Var hann frá þeim tíma félagi hennar næstum óslitið til dánardægurs. Oft voru honum falin trúnaðarstörf í þeim félagsskap, og gegndi hann þeim af mikilli trúmennsku svo sem öðrum störfum, sem honum voru falin um ævina. Eins og kunnugt er, fylgdi Góð- templarareglunni jafnan nokkurt skemmtanalif, enda var eigi um auðugan garð að gresja í þeim efnum hér á landi í þann tíma. Hélt það félagsskapnum saman og efldi hann verulega. Skemmt- anir Reglunnar voru með öðrum og prúðari hætti en menn höfðu áður átt að venjast um samkom- ur fólks á tyllidögum. Markmið Góðtemplara með þessum skemmtunum var meðal annars það að afla fjár til samkomuhúss- byggingar fyrir félagsskapinn y Hafnarfirði. Einkum var mikið gert að því að sýna sjónleiki. Tók Évjólfur mikinn þátt í því starfi. Var hann einkum orðlagður fyrir góðan leik í hlutverki Skugga- sveins, enda mun hann hafa leik- ið það hlutverk um 80 sinnum samtals í Hafnarfirði og nágrenni hans. Eyjólfur hafði djúpa og sterka rödd, sem hæfði vel þessu hlutverki, og ennfremur var hann hár vexti og þrekinn. Mikilsverð var aðstoð Eyjólfs við sjónleikina að því, er snerti leiktjöldin. Hann málaði þau af furðulegri smekkvísi, og kom þar enginn annar að í Hafnarfirði um langt skeið. Fortjaldið fyrir leik- sviðinu málaði hann, og var það rómað fyrir fegurð. Þar gat að lita vetrarmynd af byggðjnni fyr- ir botni Hafnarfjarðar með útsýn út á fjörðinn. Var það notað í tugi ára, Má af þessu sjá, hversu mikil stoð Góðtemplarareglunni var að störfum Eyjólfs í þarfir bindind- ismálsins, meðan verið var að ryðja brautina fyrir það á síðustu árum 19. aldar. Honum veittist sú gleði að sjá ávexti þessarar bar- áttu og breytingar þær til góðs, er hún hafði á heimilislíf margra bæjarbúa og jafnframt á bæjar- lif Hafnarfjarðar. Eyjólfur var trúhneigður mað- ur og bar mikla virðingu fyrir þeim dyggðum, sem lýsa göfug- mennsku og guðstrú Hvert verk levsti hann af hendi með trú- mennsku og vandvirkni, bæði í aðalstarfi sínu, járniðnaðinum, og síðar í húsamálningu, sem hann stundaði síðustu æviár sín, þegar þrekið minnkaði til þess að stunda járnsmíðina. Listhneigð hans var mikil, og hugkvæmni hans kom mjög fram við öll þau verk, er hann fékkst við. I trúarefnum var hann heitur og hreinn, svo sem áður var að vikið, en prestar voru honum lítt kærir, þóttu honum þeir hálf- volgir. Þó voru þrír menn í presta stétt, sem hann dáði mjög eftir því, sem hann sjálfur sagði. Voru það þeir Hallgrímur sálmaskáld Pétursson, Jón biskup Vídalín og Ólafur fríkirkjuprestur Ólafsson. Þess er vert að geta í þessu sam- bandi, að Eyjólfur var einn af stofnendum Fríkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði. Var Eyjólfur hringjari við kirkjuna frá upp- hafi, eða frá því að hún var byggð 1913 þar til árið 1926, er hann varð að láta af þeim starfa vegna heilsubilunar. Allan þann tima þjónaði séra Ólafur Ólafs- son söfnuðinum, en lét af því starfi 1930. Sá, sem skráð hefir þessar minningar um ævi og störf Eyj- ólfs Ulugasonar, vill láta þess get- ið, að hann hefir stuðzt að mestu við minnisblöð, rituð af Eyjólfi sjálfum, en þar skortir mjög ýmsar tímaákvarðanir o. fl„ sem hefði getað gert frásögnina ná- kvæmari og ítarlegri að mörgu leyti. Einkum má sakna þess, að ætt Eyjólfs er ekki rakin að neinu leyti. En við svo búið varð að sitja, þar sem tíma og tækifæri skorti til þess að bæta úr því. Einnig verður eigi séð, hve lengi hann bjó með fyrri konu sinni, Agnesi. Dánardægur hennar er eigi tilgreint. Þó má ráða það af ýmsu, að hún hafi látizt 1902, en þau hafi aifzt árið 1885, er hann var þrítugur. Hefir því sambúð þeirra varað í 17 ár. Pr s’ðari kona Eyjólfs lézt, voru börn þeirra innan fermingar, dóttirin 11 ára og sonurinn 8 ára að aldri. Bjó þá Eyjólfur með börnum sínum, þar til að dóttir- in var um tvítugsaldur. Hafði hún verið aðalstoð hans við heimilis- haldið frá 11 ára aldri. Árið 1921 byggði Eyjólfur sér lítið íbúðar- hús, sem nú er nr. 27 B við Suður- götu í Hafnarfirði. Þrem árum síðar giftist dóttir hans og fluttist burtu. Þá fór til hans ráðskona, Mekkín að nafni Eiríksdóttir, frábær kona að mannkostum. Var hún hjá honum í 2Vi ár, eða þar til að hann andaðist, 20. janúar 1927. Stundaði hún heimili hans Framh. á bls. 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.