Morgunblaðið - 17.03.1955, Qupperneq 11
Fimmtudagur 17. marz 1955
MORGVTSBLAÐIÐ
11 '
- Aldmminning
Framh af bls. 10
með mikilli kostgæfni, og hefir
sonur Eyjólfs, sem var með föður
sínum þar, lokið miklu lofsorði á
störf hennar hjá þeim feðgum og
hlýju hennar og alúð við hjúkrun
þá, er hún veitti föður hans í
banalegunni.
Saga Eyjólfs er í flestu lík
sögu margra annarra íslendinga
úr alþýðustétt frá samtíð hans,
sem barizt hafa áfram févana og
ungir að árum, lítt studdir af
öðru en eigin þrá og viljaþreki
íil þess að brjótast áfram yfir
torfærur atvinnuleysis og skiln-
ingsdeyfðar 19. aldarinnar. Þráin
til þess, að nema eitthvað sem
gæti orðið þeim haldgott vopn í
lífsbaráttu fullorðinsáranna, var
sterk hjá mörgum, en úrkosti til
að svala þeirri þrá áttu þeir fáa
og smáa. En trúin á það, að guð
hjálpi þeim, sem vilja hjálpa sér
sjálfir, bjargaði mörgum gegnum
rökkur og deyfð aldarfarsins. Sú
trú var jafnan leiðarsteinn Eyj-
ólfs Illugasonar, því komst hann
klakklaust yfir torfærur fátækt-
ar og harma, sem á vegi hans
urðu. Bjartsýni hans, glaðlyndi,
góðvild og fjölhæfni ávann hon-
um traust og vinsældir allra, sem
kynntust honum.
Finnb. J. Arndal.
— Poosikivi
Framh. af bls. 9
Það mætti sennilega setja sjón-
armið hans skýrast fram í eins-
konar Voltaire-stíl: Ef Svíar
væru ekki til í Finnlandi, væri
brýn nauðsyn á því að „útvega“
þá.
★ TÍMABÆR HVÍLD
Það rökkvar snemma hérna
norður frá. Bak við háar glugga- J
rúður forsetahallarinnar breytast i
litbrigði rökkursins — bláleitt
húmið verður dökkgrátt. — En í
áheyrnarsalnum ljóma ljósin
frá kristalskrónunum, bjart og
örugglega. Bjarminn frá þeim
lýsir upp vetrarríki Finnlands.
Hér er staðsett ekki aðeins form-
lega heldur raunverulega hjarta-
hólf hinnar hrjáðu finnsku þjóð-
ar, ramminn um hinn aldur-
hnigna, fjölvísa herramann. Sagt
er að í umræðunum um forseta-
kosningarnar á næsta ári, hafi
margar raddir viljað leggja það
til málanna, að Paasikivi forseti
yrði frambjóðandi í þriðja sinn.
En jafnvel þó að hann sé óvenju-
lega em, setur mannlífið sín tak-
mörk.
Joho Kusti Paasikivi verðskuld
ar fremur nokkrum öðrum þá
hvíld, sem orðin er tímabær. —
Hann hefur verið föðurlandi sínu
svo mikill og góður sonur, að
mannlegur skilningur nær tæp-
lega að skilja, hvernig slíkt gat
orðið. Helgisagnir hafa þegar tek-
ið að skapast um hann. Ég rís á
fætur með lotningu, er forseti
Finnlands gefur til kynna, að
samveru okkar sé slitið.
Hakon Stangerup.
Kvæðomonna-
félag Hafnar-
fjarðar 25 óro
í DAG er Kvæðamannafélag
i Hafnarfjarðar 25 ára og mun
' minnast afmælisins með
■ skemmtisamkomu í GT-húsinu
næsta laugardag.
Hinn 16. marz 1930 voru, fyrir
1 tilmæli Benjamíns Eggertssonar,
I 3 0 manns samankomnir á heim- ;
i ili hans, Kirkjuveg 30, Hafnar-
firði, í því skyni að ræða um
stcfnun kvæðamannafélags. Varð
| fólk þetta allt samhuga og sam-
mála þar um. Telst því félags-
j stofnunin þá framkvæmd. Þó var
i ekki fyrr en á næsta fundi viku
I s;ðar, kosin stjórn og samþykkt
lög félagsins og því gefið nafnið:
Kvæðamannafélag Hafnarfjarð-
ar. Skráðir, sem stofnendur, voru
13 manns. En nú eru félagar um
80. Fyrsti formaður félagsins var
Guðmundur Illugason. En núver- '
andi formaður er Hannes Jóns- .
son ffá Spákonufelli og hefur i
hann verið það óslitið frá því
1937 utan eitt ár.
Aðalupphafsmaður að félags-
stofnuninni var, eins og fyrr get-
ur, Benjamín Eggertsson, og var
hann sifellt með einlægan áhuga
fyrir framgangi þess. Einnig for-
maður þess um skeið, eða þar til
heilsa hans brást fám árum eftir
félagsstofnunina.
Ekki er ólíklegt að ýmsir
muni nokkuð óljóst hver sé aðal-
tilgangur slíks félags sem hér um
ræðir. En í stuttu máli má segja
hann fyrst og fremst þann, að
viðhalda, þeirri um aldaskeið
mikið viðhöfðu heimilaskemmt-
I un, að fara með rímur, einstakar
vísur eða hvers konar vísnaflokka
undir gömlum rímnalögum
(stemmum).
En þessi sérstæða eign íslend-
inga, rímurnar og rímnalögin,
sem á köldum og skuggalegum
þrengingatímum þjóðarinnar, oft
hafa orðið til að ylja og lýsa um
hrifnæma hugarheima, virðast nú
æ meir og meir verða að þoka
fyrir hinu fjölmarga, sem býðst
í skemmtanalífi nútímans. Um
það þýðir ekki að sakast. En hitt
er oltkur kvæðafélögum leyfilegt
að leitast við að viðhalda sem
lengst lífrænni þekkingu meðal,
þó ekki sé nema nokkurra kvenna
og karla, á þessum hugstæða arfi
formæðra okkar og feðra. — Og
helzt að láta hann halda lífi enn
fram til niðjanna.
Skal það því að siðustu borið
fram sem bezta afmælisósk til fé-
lagsins, að þvi mættu bætast hald
góðir kraftar, ekki hvað sízt frá
yngri kynslóðinni.
Verið velkomin að leita inn-
göngu í félagið.
J. H.
WEGOUfcl
ÞVOTTAEFIMIÐ
Vélstjóra
vantar strax á netjabát frá Hafnarfirði.
Uppl. í síma 9165.
Smáíbúðarhús
■
■
• við Heiðargerði, er til sölu. — Húsið er 5 herbergi,
■ eldhús, bað og þessh. — Uppl. gefur
Kvöld- 0£
eftirmiðdags-
iíJÓLAR
Garðastræti 2.
Sími 4578.
AÐAL-
FUIMDUR
verður haldinn í Tjarnarcafé uppi, þriðjudag 22.
marz kl. 1,30 stundvislega.
FUNDAREFNI: Aðalfundarstörf o. fl.
STJÓRNIN
S/gnð skeggbroddana!
Fáið yður fullkominn, langvarandi — auð-
veldan og þægilegan rakstur.
MENNEN-rakkrem
veitir yður þessar óskir og ánægjustundir,
auk þess endist rakblaðið yður lengur með
MENNEN-rakkremi.
MENNEN rakstur er mjúkur og
haldgóður. — Notið því ávallt
MENNEN-merkið við raksturinn.
Rinso 0 væ r áva/t -
Sá árangur, sem þér sækist eftir, verður að veru-
leika, ef þér notið Rinso — raunverulegt sápuduft.
Rinso kostar yður ekki aðeiils minna en önnur
þvottaefni og er drýgra, heldur er það óskaðlegt
þvotti og höndum. Hin þykka Rinso froða veitir
yður undursamlegan árangur og gerir allt nudd
þarflaust, sem skemmir aðeins þvott yðar.
og kostar^&ur minna
EGILL SIGURGEIRSSON, hrl.
Austurstræti 3 — Sími 5958
Óskaðlegt þvotti og höndum