Morgunblaðið - 17.03.1955, Page 14
14
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. marz 1955
r
u
EFTIRLEIT
EFTIR EGON HOSTOVSKY
Framhaldssagan 47
Það var hann, sem sagði Mat-'
ejka, að ég hefði hitt ykkur leyni-
lega. Ég spurði hann, hvers vegna
hann hefði varað mig við, þar
sem hann hefði fyrst sagt til mín,
en hann gat ekki gefið neina
skýringu á því. Ég skil heldur
ekki hvers vegna, maðurinn
hafði ekki hina minnstu ástæðu
til að geðjast vel að mér, hann er
harðskeyttur, miskunnarlaus og
metorðagjarn meðlimur komm-
únistaflokksins. Ég er viss um, að
það hefur verið í hans þágu, að
hann varaði mig við, en ég veit
sannarlega ekki hvers vegna“.
„En hvert erum við að fara,
he;rra Morgan?“ |
„Það kemur ekkert málinu við
strax. Svo framarlega sem við
komumst þangað. En hafið þér
heyrt um hinn skyndilega dauða
Olav Arnesens, norska sendi-
herrans? Það var eins og hann
væri að storka mér, því að hann
dó klukkustund áður en ég komst
til hans. Og hverjum áttu að
verða reiður, þegar svona kemur
fyrir? Herra Brunner, trúið þér
á forlög? Mér er sagt, að til séu
trúaðir kommúnistar?"
Eric svaraði ekki. Hann fór að
hugsa um, er Husner hafði kom-
ið til að vara hann við, hve ótta-
sleginn hann hafði verið, er hann
tók saman pjönkur sínar og sendi
Olgu í ameríska sendiráðið og
ákvað að flýja frá hinu óþekkta
til hins óþekkta. Hann hugsaði
um þá stund, er hann sneri bak-
inu við föðurlandi sínu, fortíð
sinni, hjónabandi, fyrirætlunum
sínum og draumum. Hvað mundi
Olga gera? Mundi hún fara í
sveitina til móður sinnar? Eða
— mundi hún fyrst fara til Krals?
Og hvað um Kral sjálfan? Hon-
um mundi ekki takast að komast
löglega lengur úr Tékkósló-
vakíu. Ef til vill mundi Olga og
hann hitta hvort annað aftur. Og
hvers vegna ekki, úr því að Eric
kæmi ekki aftur? Hann hafði
grafið sig lifandi. Hver, sem
mundi eftir honum, mundi tala
um hann eins og hann heyrði
fortíðinni til, — Eric gerði þetta,
hann fór þangað og hann kom j
hingað, — rétt eins og hann væri
dáinn. Og hver mundi annars
muna eftir honum nema Olga?
Hún vildi flýja með honum, eða
vildi hún raunverulega gera það?
Ef hann gæti aðeins fengið trúna,
— trúna á hana, á mannkynið, á
hann sjálfan.
Bara að foreldrar hans væru
nú á lífi, ef gamla húsið væri
enn til, ef hann bara gæti leitað
hælis þar og iljað sínu hrjáða
hjarta. Hann sá fyrir sér gamla
barnaherbergið með opnu glugg-
unum út í garðinn, með óteljandi
felustöðum, runnum, lævirkja-
trjám, og vilftum rósum. Hann
varð drukkinn af þessari draum-
sýn sinni og faðmaði sig með sín-
um eigin handleggjum og vagg-
aði sér í takt við hreyfingar bif-
reiðarinnar. Hann sofnaði.
ið, að hann kæmist áfram með
gáfum sínum, en nú var það orðið
of seint, hann skal af ótta við
þetta hlutverk, sem hann hafði
tekið sér á hendur. Nú var ekki
undankomu auðið. Tjaldið var
dregið hægt upp. Hann gekk fram
á sviðið eins og leikbrúða og
horfði hræddur og hatursfullur á
hina miskunnarlausu áhorfend-
ur. Hann varð þurr í hálsinum,
og honum fannst allt hringsnú-
ast fyrir augunum á sér og fæt-
urnir titruðu undir honum. En
skyndilega fóru allir áhorfend-
urnir að klappa og það lýsti upp
myrkrið, sem í kringum hann
var, og þúsundir hrópuðu nafnið
hans af undrun og aðdáun!
I Hann hneigði sig ánægður og
þakklátur, hann varð sterkur og
þekking hans kom aftur til hans;
hann mundi leikinn, sem hann
átti að leika. Já, það var leikur-
inn um líf Krals og hans eigið
líf og fyrsta setningin var: „Ég
er hingað kominn frá fortíðinni“.
Já, það var það. Og eftir þessi
orð kom kona, barn og gamall
maður fram á sviðið og Eric
spurði þau: „Eigum við að leika
líf eða draum?“ Konan svaraði:
„Draumurinn er raunveruleiki".
Og gamli maðurinn bætti við:
„En það er enginn draumur nema
lífið“, og barnið, sem var að blása
sápukúlur, spurði; „Er ég líf eða
draumur?“ Á þeirri stundu hljóm
uðu orgeltónar og frá hægri
komu inn á sviðið leikarar
klæddir skikkjum lífsins —
verkamenn, þvottahússtúlkur,
hermenn, bændur, þjófar, prest-
ar, vændiskonur — en frá vinstri
komu leikarar klæddir skikkjum
draumalandsins — álfar, tröll,
vatnaskrímsli, galdranornir og
dvergar. Þessir raunverulegu og
óraunverulegu menn, slógu hring
utan um barnið og dönsuðu kring
um það, en barnið, sem hélt
áfram að blása sápukúlurnar,
hrópaði upp yfir sig: „Haldið fyr-
ir munninn, svo að þið skaðið mig
ekki. Ég er sápukúla, sem hef mig
upp og flýt yfir húsþökin.....“
Sápukúla barnsins hlýtur að
hafa sprungið og draumurinn var
búinn. Eric vaknaði.
Bíllinn var stöðvaður. Gerard
Morgan létti og var ánægður með
sjálfan sig. „Ég hef komið yður
hingað á mettíma og þér hafið
sofið, meðan á því stóð. Ég er
alveg glorhungraður, en ég er
hræddur um, að við getum ekki
farið saman á krána“.
„Hvar erum við?“
„Við fórum gegnum Zelezna
Ruda fyrir nokkru. Þér verið að
fara þangað aftur fótgangandi.
Nú ætla ég að gefa yður síðustu
ráðleggingarnar. Ég veit ekki,
hvort þér eruð í hættu eða ekki.
Mitt hlutverk er það, sem þér
hafið leikið upp á síðkastið, þeg-
ar þér vilduð tala við mig um
Kral, en neituðuð að segja nokk-
uð, sem gæti verið ótrú við stjórn
ina eða flokkinn. Ég er meðlimur
ameríska sendiráðsins, sem tékk-
neska stjórnin hefur veitt umboð
og þér vitið vel, að ég er ekki í
neinu samsæri. Við fórum hingað
upp í fjöllin til þess að athuga
skíðafæri. En það kemur yður
einum við, hvað þér gerið núna.
En sem einstaklingur skal ég gefa
yður nokkrar ráðleggingar. Þeg-
ar þér eruð kominn yfir landa-
mærin og farinn að tala við
embættismenn Bandaríkjanna,
nefnið þá alltaf mitt nafn. Ég
skal reyna að skrifa um yður
sómasamlega skýrslu, og enn eitt
I — það er dálítið einkennilegt.
' Ég get ekki komið yður yfir
landamærin, ég mundi ekki einu
sinni reyna það. En það er sótari
í þorpinu, sem heitir Ivan Paz-
derka, og hann tekur yður yfir
landamærin. Og svona til að full-
komna skrípaleikinn er þessi sót-
ari gamall kommúnisti, og strax
þegar þér hvíslið leyniorðunum,
sem eru „Börn Pauls“, mun hann
koma yður yfir landamærin.
„Og svo kemur það, sem er
einkennilegast. Það var ekki Mar
, garet, sem hjálpaði yður eða ég,
heldur er það maður, sem þér
hafið ekki sagt mér mikið um —
Paul Kral. Þegar konan yðar
kom til mín, var Kral inni hjá
mér. Honum er enn leyft að koma
í sendiráðið, og konan yðar hik-
aði ekki við að segja honum alla
söguna, og hann var strax reiðu-
búinn til að hjálpa yður. Þessi
sótari var í menntaskóla með
Hann dreymdi einkennilegan
draum. Hann stóð í hliðarher-
bergi í leikhúsinu í fæðingarbæ
sínum, hann var í einkennilegum
herklæðum með grímu fyrir and-
litinu. Hann átti að fara fram á
leiksviðið innan stundar. Hann
var að leika aðalhlutverk í leik-
sýningu leikmanna. Paul Kral
hafði skrifað gamanleik, og Eric
hafði tekið við hlutverkinu, en
hann hafði lært setningarnar af
þrjósku og afbrýðissemi og nú
varð hann að koma fram fyrir
áhorfendurna, tala og leika. Fram
á síðustu stundu hafði hann hald-
Auglýsingar
sem eiga að birtast í
SUNNUDAGSBLAÐINU
þurfa að hafa borizt
fyrir kl. 6
á föstudag í auglýsingaskrifstofuna
JffrlorsuuMafrtö
VERNDAR SOKKANAJ
verndar hörundlöj
m
~r
Ekkert þvottaefni verndar
kvensokkana jafn vel og
R E I! R E I ver þá gegn
lykkjuföllum, hindrar ló-
myndun, eykur cndingu og
blæfegurð þeirra En jafn-
fram verndar R E I-
hörundið!
Notið því heldur REI!
Allt hcimilið gljáfægt
Á N ÓÞARFA NÚNING S 1
Já, nú getið þér gljáfægt allt húsið miklu betur en áður — og þó án
nokkurs óþarfa núnings frá upphafi til enda.
Fyrir gólfin. Johnson’s Glo-Coat, hinn undra-
verði vökvagljái, sem er fyrir öll gólf. Þér dreifið
honum aðeins á gólfið, jafnið úr honum — látið
hann þorna — svo er því lokið! Og þá er gólfið
orðið skínandi fagurt, með nýjum, varanlegum
gljáa. Ferskt, skínandi, hart yfirborð, sem spor-i
ast ekki og gerir hreinsun mun auðveldari. —
Reynið þennan gljáa í dag.
Fyrir húsgögnin. Johnson’s Pride, hinn frábæri vax-
vökvi, sem gerir allan núning óþarfan við gljáfægingu
húsgagna. Þér dreifið á — látið hann þorna og þurrkið
af. Og gljáinn verður sá fegursti, sem þér hafið séð.
Það er svo einfalt, að hvert bam getur gert það, og
svo varanlegt, að það endist marga múnuði. Kaupið
Pride í dag, og þér munuð losna við allan núning hús-
gagna eftir það.
Og fyrir silfriS. Johnson’s Silver Quick, sem gljáfægir
• silfurmuni yðar á augabi'agði.
EINKAUMBOÐ
VERZLUNIN MÁLARINN H/F, Bankastræti 7, Reykjavík.
Ákveðið er að ráða
Mig vantar
í búð
(Má vera lítil) — Þrennt í heimili.
Guðmundur ísfjörð. Sími 6002.
lyfiœkni
■
2
sem yfirlækni við Hjúkrunarspítala Reykjavíkur og *
Farsóttarhúsið. — Laun samkvæmt 5. launaflokki. — j
Umsóknarfrestur til 20. apríl 1955. — Nánari upplýs- *!
ingar um ráðningarkjör gefur borgarlæknir.
Reykjavík, 15. marz 1955. 3
q
Stjórn Heilsuverndarstöðvar Reykiavíkur.
Vanan háseta
vantar á m.s. Sigurð Pétur á þorskanetjaveiðar.
Uppl. veittar til hádegis í dag um borð í bátnum, ■
sem liggur við Grandagarð.