Morgunblaðið - 23.04.1955, Page 6
MORGU N BLAÐIB
Laugardagur 23. apríl 1955
Sveinbjörn Guðmundsson
frá Skáleyjum 75 ára
ÍR sigriii i feáiirn sieitsike
unnm en KR innrnmmnði h
40. VIÐAVANGSHLAUP I.R.
fór fram á sumardaginn fyrsta
að venju. Voru keppendur í
hlaupinu nú 24 og luku þeir
allir hlaupinu. Forráðamenn
hlaupsins, íþróttafélag Reykja j
víkur, fengu þá sumargjöf á
r ' þessu afmæli hlaupsins, að
sveitir ÍR sigruðu bæði í
keppni 3ja og 5 manna sveita.
Fyrstur að marki varð hins
vegar Svavar Markússon KR,
bráðefnilegur tvítugur hlaup-
ari og síðastur Oddgeir Sveins
son. — KR innrammaði því
hlaupið.
HLAUPALEIÐIN
ÍÖlaupið hófst í Hljómskála-
garðinum og las þar hlaupastjór-
inn Jón Kaldal, sern var sigur-
vegari í hlaupinu fyrstu tvö árin
sem það fór fram, upp nöfn þátt-
takendanna, en Helgi Jónasson
frá Brennu ræsti hlauparana. —
Leiðin lá fyrst nokkuð um garð-
Mn og skiptust þeir á um forystu
Sig. Guðnason ÍR, síðan Svavar
eru Kristján Jóhannsson ÍR var í
fararbroddi er hlaupararnir
hlupu út úr garðinum. Síðan lá
leiðin suður að prófessorabústöð-
unum, yfir mýrina að Njarðar-
götu, þaðan í nokkrum krókum
inn í garðinn aftur og var þá
Svavar orðinn fyrstur um 30—40
m á undan Kristjáni. Hélzt sú
röð í mark, en þriðji kom Stefán
Árnason UMSE rétt á eftir Krist-
jáni. — Svavar sýndi þarna mik-
inn styrkleika og virtist í mikilli
Frá 40. VíöesvangshlaMpi ÍH
Sveitir ÍR sem sigruðu í Víðavangshlaupinu. Frá vinstri: Heiðar
Georgsson, Sigurður Guðnason, Kristján Jóhannsson, Sigurgeir
Bjarnason og Hilmar Guðjónsson.
16. Stefán Magnúss. UMSE 11:55,0 . KAFFISAMSÆTIÐ
17. Hilmar Guðjónsson ÍR 11:56,0 | Að hlaupinu loknu bauð stjórn
18. Guðm. Bjarnason ÍR 12:05,0 ÍR til kaffisamsætis keppendum
19. Eiríkur Steind.s. HSK 12:17,0
20. Árni Óskarsson UMSE 12:18,0
21. Óskar Sigurðsson UÍA 12:34,0
22. Sigm. Ámundas. HSK 12:42,0
23. Einar Benediktss. HSK 12:43,0
24. Oddgeir Sveinsson KR 13:38,0
Þar sem Víðavangshlaupið er
keppni milli sveita falla þeir út
úr röðinni keppendur þeirra fé-
laga, sem ekki senda íulla sveit,
og það eru þeir Svavar og Odd-
geir frá KR. Röð hinna færist
til samkv. því.
í 3 manna sveitarkeppni fær
því ÍR 14 stig (1., 6. og 7.) UMSE
hlaut 19 stig (2., 4. og 13.) —
UÍA hlaut 23 stig og Skarphéðinn
30 stig.
í 5 manna sveiíarkeppni sigr-
aði ÍR með 42 stig (1., 6., 7., 12.
og 16. UÍA hlaut 48 stig (5., 8.,
10., 11. og 14.) UMSE 53 stig og
Héraðssamb. Skarphéðinn 73
stig.
Framh. á bls. 9
Oddgeir Sveinsson KR, sem hljóp
j í gær í 25. sinn í Víðavangshlaup-
inu.
Z'ZZZ'&ll
KÆRI frændi.
Fyrir 10 árum síðan, þenna
sama mánaðardag, orti ég til þín
fáeinar stökur, sem ég pukraði í
póst. Nú langar mig hins vegar,
að hripa þér fáeinar línur og
koma þeim í dagblað.
i Ekki man ég nú lengur neina
þessa vísna, nema, þar var eitt-
hvað minnst á vor og æsku, eld
og dálítið á brennivín. Þetta, um
brennivínið bið ég þig að afsaka,
ég minnist þess nefnilega ekki,
að hafa séð þig fullan — því mið-
ur. Aftur á móti ertu mér skír
í minni sem fulltrúi þeirra sálna,
sem Matthías segir, að aldrei
eldist hversu mjög sem hárin
grána á höfði manns. Alltaf hef-
ur þú verið í fylgd með sól og
vori, ríkulega gæddur þeim
skáldlega hérvilluhætti, sem
löngunj hefur átt grátlega bágt
með að skilja hvers vegna ríki-
dæmið þarf endilega að vera
ákjósanlegra hlutskipti en fá-
tæktin svo lengi sem hún ekki
drepur mann alveg, enda yrkirðu
eins og kóngur. Ekki hverfur
mér úr minni hinn fagri vetrar-
morgunn heima í Skálum endur
fyrir löngu, þegar þú kastaðir
' fram eftirfarandi stöku meðan þú
varst að hneppa að þér að fram-
anverðu:
Dagur rennur, sæinn senn
sólin sprennir örmum,
fagur brennur eldur enn
undan hennar hvörmum.
Við háðum í þá daga einskon-
ar keppni í skáldskaparíþróttinni,
en eftir að þessi sléttubandavísa
varð til á einni örskotsstund
morgunsins, þorði ég aldrei að
skora þig á hólm í listinni.
Svo er það blysið í augum þín-
um. Hlýtt og bjart blys áhuga
og glettni undir miklum gráum
brúnum. — Og virðulegur höku-
toppurinn fékk unggæðislegra
yfirbragð en hann hafði eiginlega
leyfi fyrir, meðan mælskan foss-
aði af vörum þér í skálaræðu á
vinafundi, eða meðan þú þrum-
aðir einhverja ættfræðilegu
predikunina yfir höfðum vesa-
linga, sem vissu það lengst aftur
, í tímann, hvers dóttir hún móðir
I þeirra var, eða meðan þú sagðir
| okkur sögur af skrítnum körlum
og kerlingum að austan og vestan.
. Stundum heyrði ég pískrað um
i það, að ekki væri nú allt saitn-
Ileikur í fræðum þínum, en fyrir
sakir ýmissa spurninga, sem ég
: hef borið upp við þig, hef ég
Svavar Markússon og Jón Kaldal
— sigurvegarar í I. og 40. Víða-
vangshlaupinu.
og góðri þjálfun. Verður gaman
að sjá síðari einvígi hans og
Kristjáns í sumar. Kristján var
sterkari en flestir eða allir bjugg- j
ust við. Fyrir örfáum mánuðum 1
tö]du læknar að vafasamt væri
að hann gæti nokkru sinni hlaup-
jið framar, vegna meiðsla er hann
hlaut í bifreiðarslysi í fyrravor.
En Kristján æfði af þolgæði og
viljafestu og hefur nú sigrazt á
örðugleikunum á þann hátt sem
eftirminnilegt mun verða.
ÚRSLITIN
Röð keppendanna í mark varð
sem hér segir:
1. Svavar Markússon KR 10:12,4
2. Kristján Jóhannss. ÍR 10:25,4
3. Stefán Árnason UMSE 10:29,4
4. Hafst. Sveinsson HSK 10:51,0
5. Sveinn Jónsson UMSE 10:53,0
6. Bergur Hallgr.s. UÍA 10:54,0
7. Sigurg. Bjarnason ÍR 10:57,0
8. Sigurður Guðnason ÍR 10:59,0
9. Níels Sigurjónss. UÍA 11:00,0
10; Eiríkur Þorgeirss. HSK 11:08,0
11. Rafn Sigurðsson UÍA 11:09,0
12. Guðm. Hallgr.s. UÍA 11:18,0
13. Heiðar Georgsson ÍR 11:20,0
14. Stefán Sgafjörð UMSE 11:46,0
15. Már Hallgrímsson UÍA 11:49,0,
SUNNUDAGINN kl. 8 síðdegis fer fram að Hálogalandi nýstár-
leg handknattleikskeppni. Eru það leikir í karla og kvenna-
flokki milli úrvalsliðs er Handknattleiksráð Reykjavíkur hefur
valið og iiða sem íþróttafréttaritarar dagblaða í Reykjavík hafa
valið. Leikir þessir fara fram til ágóða fyrir hið nýstofnaða dómara-
félag í handknattleik.
JOFN LIÐ
Víst er að þessi úrvalsliða-
keppni verður tvísýn og skemmti
leg. Lið handknattleiksráðsins
eru valin fyrst og má því líta á
þau sem einskonar landslið. Full-
trúar dagblaðanna fengu síðan
að velja úr „ruslinu" — en eins
og alíir vita, er það ekkert ,,rusl“
sem eftir er, þegar valið hefur
verið í eitt lið karla og eitt lið
kvenna. Kom það skýrast í Ijós á
hinu nýafstaðna íslandsmóti, en
þar hafa keppendur aldrei verið
fleiri en nú og keppni sjaldan
eða aldrei jafn tvísýn og jafn
skemmtileg. Liðin eru því jöfn.
LIÐIN
Úrvalslið Handknattleiksráðs-
ins eru þannig skipuð. Karla-
flokkur: Sólmundur Jónsson
(Val), Hilmar Ólafsson (Fram),
Valur Benediktsson (Val), Hörð-
ur Felixson (KR), Ásgeir Magn-
ússon (Val), Sigurður Jónsson
(Vík.), Pétur Antonsson (Val),
Snorri Ólafsson (Á), Karl Jó-
hannsson (A), Sigurhans Hjart-
arson (Val). — Kvennaflokkur:
Geirlaug Karlsdóttir (KR), Sig-
ríður Lúthersd. (Á), Helga Em-
ilsd (Þrótti), Gerða Jónsdóttir
(KR), Lára Hansdóttir (Þrótti),
Sigríður Kjartansdóttir (Á), Sól-
ey Tómasdóttir (Val), Maríg Guð
mundsdóttir (KR), Sigríður Ól-
afsdóttir (Á) og Sigríður Guð-
mundsdóttir (KR).
,,Pressuliðin“ voru valin af
Hannesi Sigurðssyni, sem er
heimildarmaður Mbl. um hand-
knattleiksfréttir og Frímanni
Helgasvni, Þjóðviljanum. — Þau
eru þannig:
KarUtiokkur: Felgi Falleríms-
son (ÍR), Ólafur Thorlacius
(Fram), Karl Benediktsson
CFram), Firsrir Fjörnsson (FH),
Sigurður Sigurðsson CKR), Frí-
mann Gunnlaugsson (KR), Hans
Steinm°nn (KR). Berghór Jóns-
son (FH), Þorleifur Einarsson
(ÍR) og Þorgeir Þorgeirsson (ÍR).
Kvenflokkurinn verður til-
kynntur á sunnudaginn.
orðið þeirrar skoðunar, að þú
megir teljast grandvar maður.
Hitt er náttúrlega rétt: aldrei
varstu það grandvar, að orðin
beinlínis stæðu í þér. Ólína
frændkona þín Andrésdóttir mun
á sínum tíma ekki undantekning-
arlaust hafa þótt fullkomlega
ábyggileg í sögum sínum, og séra
Árna Þórarinsson kölluðu þeir
nú bara stórlygara, svo þú ert
minsta kosti í góðum félagsskap.
En það, sem ver nafn þitt
gleymsku er þó ekki ættfræði-
kunnátta þín ein og sér, mælska
þín né snjallar stökur, heldur þær
hinar tvær miklu bækur, sem þú
færðir Flateyjarbókasafni að
gjöf fyrir ári síðan: Persónusaga
Flateyjarhrepps í handriti og
myndum. Þetta mikla verk spegl-
ar að sjálfsögðu brot úr ættvísi
en ber þó fyrst og fremst vott um
stílleikni höfundar síns, ósér-
hlífni og þreklyndi. Efalaust á
einhver góður maður eftir að
skrifa ítarlega um söguna þína,
en þegar ég var að blaða í henni
stund úr degi síðastliðið sumar,
duldist mér ekki hve mikil ham-
ingja eyhreppskri menningu
hafði hlotnast þegar örlögin
leiddu ykkur saman, Sigurð
Haukdal og þig, klerkinn, sem
átti hugmyndina að verkinu og
þig, sem einn manna varst þess
umkominn að framkvæma það.
— Og mitt í fræðalestrinum um
þetta hversdagslega fólk í litlu
byggðarlagi hálfsokknu í
gleymsku, varð manni hugsað til
sumra æfisagnanna, sem flætt
hafa inn á bókamarkaðinn hin
seinustu ár, svo yfirtak leiðin-
legra bóka í allri sinni flatneskju-
legu mærð, og maður tók undir
með faríseanum og sagði: guði
sé lof að hann Sveinbjörn er ekki
eins og annað fólk. Hjá þér eru
persónulýsingarnar eins og þeg-
ar rissaðar eru af meistarahendi
myndir á blöð: listaverk í einfald-
leik skjótrar yfirsýnar. Hjá þér
finnur maður líka, að sá heldur
á pennanum, sem lært hefur til
hlítar það mál, sem móðirin
kenndi, og þrátt íyrir, að sér-
hver lína er skrifuð af næmum
hlýleik, er þó hvergi freistast til
að gera manninn að þegni í sam-
félagi heilagra.
Það er máski ótrúlegra en
margur hyggur í svip, að maður,
sem engan dag gekk heill heilsu
til starfs allan þann tíma, sem
sagan var á döfinni, skyldi ekki
hafa gefist upp í miðjum klíð-
um, heldur lokið henni, að sinni
hálfu á jafn prýðilegan hátt og
raun ber vitni.
Þeir borguðu Gísla Konráðs-
syni með herbergisskonsu og
trosi fvrir að skrifa nokkrar
lygisögu og fleira, en hverju
guldum við þér Sveinbjörn?
Og nú bið ég þig kæri frændi,
að afsaka þetta óhátíðlega pár.
Þú ert aðeins 75 ára. Ég er á móti
öllum hátíðlegheitum fyrr en
þann dag, sem maður er allur.
Jón Jóhannesson.
Ráð NAT0
hér við
RÁÐ Norður-Atlantshafsbanda-
lagsinS ráðgerir að fara í ferða-
lag um miðjan maí til þess að
skoða varnarstöðvar á íslandi,
aðalbækistöðvar flotaforingja N-
Atlantshafsbandalagsins í Nor-
folk, Virginia, og heimsækja full-
trúanefnd ráðherranna í Washing
ton.
f förinni verða aðalritari banda
lagsins og varaformaður ráðsins,
Ismay lávarður, og fastafulltrúar
allra félagsríkjanna, de Chassey
hershöfðinei, sambandsforingi
deilda bandalagsins og nokkrir
fastir starfsmenn bandalagsins.
Brottförin frá París verðftr að
morgni 14. maí, og verður haídið
til Keflavíkurflugvallar, þar sem
skoðarar verða varnarfram-
kvæmdir. Síðan verður setið
kvöldverðarboð íslenzku ríkis-
stiórnarinnar.
Áætlað er að koma t.il Norfolk
i Virginiu, aðalbækistöðva At-
lantshafsflótans 15. maí. en til
Washington verður. haldið 17.
maí. — Síðar verður haldið til
Montreal í Kanada og skoðaðar
varnarframkvæmdir. Til Parísar
verður aftur haldið 24. maí.
(Frá utanríkisráðuneytinu).