Morgunblaðið - 23.04.1955, Síða 8

Morgunblaðið - 23.04.1955, Síða 8
MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 23. apríl 1955 orgtmlrtaMfr Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason írá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlanda. í lausasölu 1 krónu eintakið. I.M.S.I. vinnnr að aukinni framleiðni - lækkun kostnaðar - við bvggingar Framleiðnir Hefir með aðstoðáðs Evrópu skipulagt ácetlun um frœðslu í hagkvœmum byggingaraðferðum — Hyggst á nœstu tólf mánuðum fá hingað hóp erlendra sérfrœðinga — Ceorge Erickson, bandarískur byggingasérfrœðingur, hefir dvalið hér undanfarna viku á vegum I.M.S.I. Þegar ofstckið verður rökréttri hugsun yfirsterkuri ÞAÐ er ekki of djúpt tekið í árinni, þótt fullyrt sé, að fá þingmál hafa undanfarið vakið meiri athygli en frumvarp ríkis- stjórnarinnar um stuðning við íbúðarbyggingingar og titrým- ingu heiisuspillandi húsnæðis. Mikill fjöldi fólks liafði beðið þessa frumvarps með óþreyju og fagnað því mjög, þego.r það kom fram. Samkvæmt því er sett á stofn veðlánakerfi og hafizt handa um útlánastarfsemi til íbúðabygginga. Er gert ráð fyr- ir, að hver lántakandi fái allt að 100 þús. kr. lán út á íbúð sína. f þessu felst geysileg umbót frá því, sem verið hefir. Engin ián til íbúðabygginga hafa verið fáanleg1, þegar undan eru skilin smáíbúðalánin, sem þó námu aðeins 10—30 þús. krónum á íbúð. Ennfremur er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar gert ráð fyrir framlögum bæjar og ríkis vegna útrýmingar heilsu spillandi íbúða. Er þá fyrst og fremst höfð í huga útrýming braggahverfanna í Reykjavík, sem allir viðurkenna, að er mjög lélegt og í mörgum til- fellum heilsuspillandi hús- næði. Að sjálfsögðu væri æskilegt, að unnt hefði verið að hafa láns- upphæðina út á hverja íbúð hærri en 100 þús. krónur, eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi stjórn- arinnar. En þess er að gæta, að í hinu íslenzka þjóðfélagi er mikill skortur á fjármagni til margvíslegra nauðsynja fram- kvæmda. Hér er allt öðruvísi ástatt í þessum efnum en meðal nágrannabjóða okkar, þar sem gnægð fjármagns er fyrir hendi. Þar er miklu auðveldara að reka hagkvæma útlánastarfsemi í þágu íbúðabygginga en hér, þar sem ótal fiamkvæmdir og fram- faramál kalla samtímis á hvern eyri, sem þjóðin sparar. En 100 þús. króna lán út á hverja íbúð er geysileg umbót frá því, sem verið hefir. Það eru áreiðanlega allir sanngjarnir menn sammála um. j Sá atburður vakti því hina mestu furðu og hneykslan, þegar kommúnistar og kratar snérust gegn frumvarpi ríkis- stjórnarmnar s. 1. þriðjudag, eða sátu hjá við atkvæða- greiðslu um það. Þessi fram- koma bar vott um svo blint ofstæki, að almenningur átti beinlínis erfitt með að trúa því, að þetta hefði gerzt. Þrír þingmcnn kommúnista og Al- þýðuflokksins greiddu hrein- lega atkvæði gegn því, að þeir, sem byggja íbúðir á næstunni eigi kost á allt að 100 þús. kr. láni út á hverja íbúð. Þeir greiddu atkvæði gegn því, að unnið verði skipulega að út- rýmingu heilsuspillandi hús- næðis. Þeir greiddu ennfrem- ur atkvæði gegn því, að hald- ið verði uppi tæknilegri rann- sókn á því, hvernig ódýrast og bezt verði byggt yfir þjóðina. Og sex þingmenn þessara sömu flokka sátu hjá við at- kvæðagreiðsluna um frum- varp stjórnarinnar!! Enginn hefði átalið þingmenn þessara flokka fyrir það, að gagn- rýna einstök atriði stjórnarfrum- varpsins um þetta mál. Það er í senn réttur og skylda stjórnar- andstöðunnar á hverjum tíma. Hitt ber vott glóandi ofstækis og fullkomnu ábyrgðarleysi, að þessir flokkar skyldu ' ýmist greiða atkvæði gegn húsnæðis- málafrumvarpinu eða sitja hjá við atkvæðagreiðslu um það. Það er athyglisvert, að hinir tveir þingmenn Þjóðvarnarflokks ins höfðu þó manndóm til þess að elta ekki hina stjórnarand- stöðuflokkana í þessu máli. Þeir greiddu atkvæði með frumvarpi stjórnarinnar. Atkvæðagreiðslan um hús- næðismálafrumvarpið sýnir mjög greinilega, hvernig fer, þegar ofstækið verður rökréttri og heilbrigðri hugsun yfirsterkari. Kommúnistar og kratar ein- blindu á það eitt við þessa at- kvæðagreiðslu, hvernig þeir gætu sýnt frumvarpi ríkisstjórn- arinnar sem mesta andúð. Þá varðaði ekkert um það, þótt þetta frumvarp fæli í sér stórkostlega kjarabót fyrir mikinn fjölda fólks í landinu. Hitt var þeim miklu hjartfólgnara áhugamál að geta þjónað sinu eigin ofstæki, og blindingjahætti. En þessir herrar vara sig ekki á því, að með slíkri fram- komu baka þeir fyrst og fremst sjálfum sér tjón. Ríkis- stjórnina sakar ekki, þótt and- stæðingar hennar sýni þjösna- skap og þröngsýni gagnvart vinsælum og góðum málum, sem hún flytur. Það bitnar fyrst og fremst á þeim sjálf- ’ um. Fólkið, sem nú undirbýr íbúðarbvggingar og umbætur í húsnæðismálum sínum man það, h^aða menn það voru, sem börðust fyrir framgangi laganna um stóraukin íbúðar- lán og hverjir það voru, sem greiddu atkvæði gegn þeim eða sátu hjá við atkvæða- greiðslu um þau. Þetta fólk veit það, að það voru komm- únistar og kratar, sem snérust gegn málstað þess UNDANFARNA viku hefur ver- ið í heimsókn hér á landi, á vegum Iðnaðarmálartofnunar ís- lands, bandarískur byggingasér- fræðingur, George Erickson að nafni, frá Tækniaðstoð Banda- ríkjanna (FOA) í París. Erickson hefur undanfarna tólf mánuði starfað á vegum Framleiðniráðs (EPA) Efnahagssamvinnustofn- unar Evrópu (OEEC). Áður hef- ur komið hingað á vegum Tækni- aðstoðar Bandaríkjanna, George R. Lindahl, bandarískur sérfræð- ingur í dreifingu matvæla. í gær ræddu fréttamenn við Braga Ólafsson, forstjóra IMSÍ, og George Erickson, um starfsemi Framleiðniráðsins, og heimsókn Ericksons til íslands. \Je ívahandi óhripar: Á leið heim úr skólanum. FYRIR nokkrum dögum var ég á gangi austur í bæ, í grennd við Austurbæjarbarnaskólann. Komu þar í flasið á mér fjórir skóladrengir, hver með sína skólatösku, augsýnilega á leið heim úr skólanum. Þrír af þeim fjórum voru reykjandi sígarettu. og pústuðu mikinn! Mér varð satt að segja nokkuð hverft við þessa sjón og varð á að spyrja drengina, hvort þetta væri það, sem þeir lærðu í barnaskólanum. „Nei — í gagnfræðaskólanum“, svöruðu þeir horskir. — Þeir voru komnir á 13. ár! Viðræður okkar urðu ekki lengri. Satt að segja varð mér þarna hálfgert orðfall — en % zhsÍ V */ Ný nýlenduslefna Á BANDUNG-RÁÐSTEFNUNNI urðu í gær miklar umræður um nýlendukúgun. Vakti það all- mikla athygli að Nehru forsætis- ráðherra Indlands stóð þar upp og fordæmdi nýlenduyfirvöld Vestur-Evrópu-búa í Afríku og Asíu. Þetta garjst allmörgum árum eftir að sú þróun hefur orðið að land ræðiimannsins sjálfs ásamt mörgum cðrum, öðlaðist fullt sjálfstæði. Og það gerist á sama tíma og blökkuþjóðir Afríku eru óðum að stefna fram á leið til sjálfstæðis. En það gerist einnig á sama tíma og cin valdaþjóð heldur sömu kúgnnartökunum og áður á ýmsum frumstæðum þjóðum Mið-Asíu, setur upp járnvegg milli þeirra og frændþjóðanna sunnar og heldur áfram að út- breiða kommúnismann, sem þarna verkar sem dulbúin ný- lendustefna. En slíkt fordæmir hinn indverski forsætisráðherra ekki. strákarnir héldu sína leið með skólatöskuna í annarri hendinni og vindlinginn í munninum. Hvern er um að saka? EN góða stund á eftir vék þetta atvik ekki úr huga mér og mér datt líka ýmislegt annað í hug í þessu sambandi. Ég minnt- ist staðhæfinga hinna færustu lækna um, að nokkurn veginn fullvissa sé fyrir því, að lungna- krabbi orsakist af vindlinga- reykingum, og ennfremur spá- dómsins um, að innan fárra ára- tuga megi búast við stóraukningu þessa válega sjúkdóms hér á landi vegna þess, hve títt er orð- ið að unglingar, stundum barn- ungir byrja vindlingarevkingar. — Hvað á að gera til að bægja voðanum frá, áður en í óefni er komið spvrjum við — en fáum ekki að gert. Hvern er hér um að saka? — skólana, heimilin, — eða eigum við kannski að skella skuldinni á „aldarandann" svokallaða til að losa alla einstaka aðila undan ábyrgðinni? Hvcrnig skapast aldarandinn? EN bíðum hæg! Eiga ekki ein- mitt heimilin og skólarnir — upoeldis- og menntastofnanir bjóðarinnar einna drýgstan þátt- inn í að skapa aldarandann hverju sinni? — Hverjir, ef ekki þessir aðilar eru hér ábvrgir? Hafa þeir brugðizt hlutverki sínu? — Það er erfitt og hæpið að kveða upp dóm í svo miklu vandamáli, sem þessu, enda skoð- anir ærið skiptar um, hver er rétta leiðin. Margir hinir nýtízku fræðslufrömuðir vilja leggja sem mesta áherzlu á, að námið og skólinn, sé börnunum leikur, það á að vera „leikur að læra“, börn- in eiga að vera jafningjar kenn- arans, vinir og félagar. Agi. skylda og metnaður hafa orðið að víkja fyrir hinu nvtízku ..frjálsræði". st.iórnlevsi og leik- araskan. — Á heimilunum er bað t.alið ómannúðlegt og gamaldags að vanda um við börnin og að láta bau hlíta aga og stjórn. Af- leiðinein er sú, að' börnin taka stjórnina í sínar hendur. — Til eru heiðarteear undantekningar, en alltof fáar. Þörf hagnýtrar fræðslu ¥»ESSAR huesanir sóttu að mér er ég hafði mætt skóladrengj- unum bremur. sem é» minntist á. Og mér datt einnig í hug í samb. við síearetturevkinearnar. Væri ekki henDÍleat að fræða börn oe unglinga meira en eert er nú um bær afleiðingar, sem revkinear hafa í för með sér. til dæmis i heinu sambandi við heilsufræði- kennsluna eða með fvrirlestrum sórfróðra manna um bessi efni. manna, sem leiddi unglingana í skilning um, hvað hér er raun- verulega um að ræða. Slík fræðsla mvndi áreiðanlega fá eins miklu og meiru áorkað til eóðs og brennandi orðaflaumur háflevgra bindindispostula. hversu góður hugur sem að baki liggur. Sumar og vetur fraus saman. CUMAR og vetur fraus saman í ár. en svo er bað kallað. ef frvstir á aðfaranétt sumardags- ínc fvrsta. f gamalli t!ð þótti bað hoða gott. ef fraus saman vetur oa sumar. ó+t; ag verða kjarnmeira. nvt búnenings meiri og kosthetri. Svo mikið bótti fólki til sveita undir bessu komið. að sumir át.tu að hafa genaið ber- fæt.tir í kringum bæinn á aðfara- nótt hins fvrsta sumardags. ef vafi var á. hvort frvsi. til að ganea úr skugga um bað. Aðrir settu vatn eða mjólk í skel út á hlaðið í sama tilgangi. ★ AUKIN AFKOST Tilgangurinn með komu Er- icksons hingað til lands er að að- stoða Iðnaðarmálastofnunina við að skipuleggja heildaráætlun um fræðslu í byggingaraðferðum og öllu því, er verða má til þess að kleift verði að auka afköst byggingariðnaðarins hér á landi, svo að hægt verði að tryggja al- þjóð þak yfir höfuðið við sem hagstæðustu verði, en í því er einmitt framleiðni fólgin. Á næstu tólf mánuðum hyggst IMSÍ með aðstoð Fram leiðniráðs Evrópu fá hingað hóp hinna færustu sérfræð- inga frá ýmsum löndum, og hyggst IMSÍ með því verða sér úti um tæknilega aðstoð og fræðslu, er orðið getur eigi síður hagnýt en nýjustu og dýrustu framleiðslutæki. Áætlun IMSÍ beinist að því að vinna að eftirfarandi meginatrið- um: 1. Að koma því til leiðar, að hægt verði að byggja og teikna íbúðarhús við sem vægustu verði með því að skipuleggja verkið fyrir fram í einstökum atriðum. 2. Tekin verði upp fjöldafram- leiðsla á hlutum í hús, svo sem gluggum, gólfplötum og jafnvel heilum veggjum og skilrúmum til að draga sem mest úr bygg- ingarkostnaði. 3. Meira verði gert af því að reisa og skipuleggja í smáatrið- um sambyggingar í þéttbýli. 4. Hvernig bezt verði komið fyrir fjárframlögum til sam- bygginga. ★ NAUÐSYN Á SAMSTARFI MARGRA AÐILA Bragi Ólafsson, framkvæmda- stjóri IMSÍ, benti á, að slíkri áætlun yrði ekki komið í fram- kvæmd nema með samstarfi við marga aðila, ríkisvald, bæjar- yfirvöld, einkafyrirtæki og sam- vinnufyrirtæki, auk ýmissa ann- arra félaga svo sem Húsameist- arafélagsins, Verkfræðingafélags ins, Iðnfræðingafélagsins o. fl. Bragi sagði, að auk þess sem í ráði er að fá hingað til lands erlenda sérfræðinga, hefði IMSÍ í huga að senda fjóra til fimm menn til út- landa til að kynna sér, hvernig húsbyggingum væri háttað í hinum ýmsu löndum. — Öll þessi viðleitni beinist að því að auka framleiðnina, þ. e. lækka kostnað við húsbygg- ingar. Verða endanlega birtar nákvæmar skýrslur um nið- urstöður erlendra og inn- lendra sérfræðinga í þessum efnum. Benti Bragi á, að áætlun IMSÍ væri í fullu samræmi við frum- varp til laga á Alþingi um lán til íbúðahúsabygginga, en í 1. og 2. lið þessa frumvarps er einmitt lögð áherzla á aukna framleiðni. ★ GÓÐ HUS — EN OF DÝR Vafalaust er mjög mikilvægt að fá álit erlendra sérfræðinga á húsabyggingum hér á landi. Þó að fslendingar byggi góð hús, eru þau óneitanlega mjög dýr, en aðrar þjóðir eru komnar mun lengra í því að skipuleggja húsa- byggingar í smáatriðum, svo að kostnaðurinn verði mun minni. •••• Erickson hefur undanfarna 18 mánuði unnið á vegum Fram- leiðniráðsins og ferðazt um 15 Evrópuríkjanna til að kynna sér Framh. á bls. 10

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.