Morgunblaðið - 12.05.1955, Síða 6

Morgunblaðið - 12.05.1955, Síða 6
22 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 12. maí 1955 s------- ÚTHLUTU JIMfJ NEFND þá, sem úthlutar lista- mannalaunum, kýs sameinað Alþingi árlega. Við síðustu þrjár úthlutanir, 1953—1955, hafa þrír menn átt sæti í nefndinni, en fjórir skip- uðu hana árin 1950—1952. Öll þessi sex ár hafa þeir Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrum sýslumaður og alþingismaður, og Þorkell Jó- hannesson, dr. phil., rektor Há- skóla íslands, setið í úthlutunar- nefnd; Helgi Sæmundsson, rit- stjóri, 1952 og síðan; Sigurður Guðmundsson, ritstjóri, 1950 og 1952; Magnús Kjartansson, rit- stjóri, 1951, og Ingimar Jónsson. ikipling iniiii iistgreina óviðuitandi Alþingi jbar/ 6hjákvæmiiega co lúta úfhlufunina fil s'm taka NOKKRAR STAÐREYNDIR izt umsóknir frá 230 mönnum; Þannig hefur verið úthlutað á 113 þeirra hlutu laun, og hefur sex árum kr. 3.610.100.00 sam- því 117 verið synjað. tals, þar af til skálda og rithöf- j unda kr. 1.854.500.00, myndlistar- MEÐALMENNSKAN manna kr. 1.225.400.00, tónlistar- manna kr. 346.000.00 og leiklist- armanna kr. 184.200.00. Þessar niðurstöðutölur svara aftur á fvrrum sóknarprestur _ og síðar móti til þesS; að 51,37% fjárins skólastjóri, 1950 og 1951. Nýlega hefur nefndin lokið störfum og birt í blöðum og út- varpi úthlutunarskrána fyrir þetta ár. ÍTTHLtJTUNARFÉ í fjárlögum þessa árs er 800 þús. kr. veitt til listamannalauna. hafi runnið til bókmennta á tíma- bilinu, 33,94% til myndlistar, 9,58% til tónlistar og 5,11% til leiklistar. Árið 1950 voru launaflokkarnir sjö, næstu tvö ár sex, en fimm við síðustu þrjár úthlutanir. Ár- in 1953 og 1954 voru þessir VIRT OF IIAU VERÐI Hafa nú verið raktar helztu tölulegar staðreyndir úthlutun- arinnar. Um úthlutun til ein-j stakra manna á þessu ári verður ( fátt sagt að þessu sinni, enda mun engu verða umþokað. | Landsmenn hafa cg þegar átt þess kost að kynna sér úthlut- unarskrána, og getur því hver og einn dæmt um, hvernig til hefur tekizt. Þó skal það fúslega viður- kennt, að á úthlutunarskránni eru nöfn nokkurra snillinga, sem Af fé þessu nýtur Gunnar skáld launaflokkar: 15 þús. kr., 9 þús. rjfjegra launa og viðurkenningar I Gunnarsson kr. 27.400.00 heiðurs- kr., 5,4 þús. kr., 3,6 þús. kr. og launa samkvæmt ákvörðun Al- 3 þús. kr. Við síðustu úthlutun þingis. Fjárhæðin, sem nefndin voru flokkarnir hækkaðir og eru hafði til úthlutunar í þetta sinn, nú þannig: 1. flokkur 17,5 þús. var því kr. 772.600.00. Hins veg- kr., 2. fl. 10,5 þús. kr., 3. fl. 6,2 ar nam heildarúthlutunin kr. þús. kr., 4. fl. 4 þús. kr. og 5. fl. eru maklegir, og mættu þó sum ir þeirra, sem enn eru í lægri launaflokkunum, njóta hærri launa. Á hinn bóginn orkar ekki tvimælis, að alltof miklu fé er úthlutað eins og fyrr til manna, 776.100.00, og hefur því kr. 3,6 þús. kr. Laun í 1. flokki fengu sem vart geta talizt launaverðir, n ann --------------------------nú 8 skáld og rithöf. og 3 list- málarar, í 2. fl. 11 skáld og rit- höf., 7 listmálarar og 4 mynd- höggvarar, í 3. fl. 9 skáld og rithöf., 6 listmálarar og 6 tón- skáld, í 4. fl. 10 skáld og rithöf., 3 listmálarar, 2 myndhöggvarar, 3.500.00 verið úthlutað umfram fjárveitingu Alþingis. Á síðast- liðnu ári úthlutaði nefndin kr. 614.400.00 samtals. Á þessu ári, 1955, hafði því nefndin til út- hlutunar kr. 161.700.00 hærri fjárhæð en á árinu 1954. Fara nú hér á eftir töflur um 5 tónskáld, 3 pianóleikarar og 2 úthlutun listamannafjárins. Sýna fiðluleikarar, í 5. fl. 19 skáld og þær m. a., hvað hefur fallið í rithöf., 7 listmálarar, 2 mynd- hlut hverrar listgreinar á árun- höggvarar og 6 leikarar. um 1950—1955. I Að þessu sinni munu hafa bor- TÖFLUR UM ÚTHLUTUN LISTAMANNAFJÁRINS Tala Meðaltal lista Úthlutun á mann manna kr. % kr. 1950 Skáld og rithöfundar 43 246.000.00 49.10 5721.00 Myndlistarmenn 30 151.800.00 30.30 5060.00 Tónlistarmenn .... 11 45.600.00 9.10 4146.00 Leiklistarmenn .... 19 57.600.00 11.50 3032.00 103 501.000.00 100.00 4864.00 1951 Skáld og rithöfundar 40 260.400.00 51.98 6510.00 Myndlistarmenn 29 166.200.00 33.17 5731.00 Tónlistarmenn .... 11 45.000.00 8.98 4091.00 Leiklistarmenn .... 9 29.400.00 5.87 3267.00 89 501.000.00 100.00 5629.00 1952 Skáld og rithöfundar 49 324.200.00 53.22 6616.00 Myndlistarmenn 31 207.600.00 34.07 6697.00 Tónlistarmenn .... 12 49.200.00 8.08 4100.00 Leiklistarmenn .... 9 28.200.00 4.63 3133.00 101 609.200.00 100.00 6032.00 1953 Skáld og rithöfundar 43 289.800.00 47.63 6740.00 Myndlistarmenn 35 227.400.00 37.38 6497.00 Tónlistarmenn .... 17 66.000.00 10.85 3883.00 Leiklistarmenn .... 8 25.200.00 4.14 3150.00 103 608.400.00 100.00 5907.00 1954 Skáld og rithöfundar 47 314.400.00 51.17 6690.00 Myndlistarmpnn 32 214.800.00 34.96 6712.00 Tónlistarmenn .... 15 63.000.00 10.25 4200.00 Leiklistarmenn .... 7 22.200.00 3.62 3172.00 101 614.400.00 100.00 6083.00 1955 Skáld og rithöfundar 57 419.700.00 54.08 7363.00 Myndl istarmcnn 34 257.600.00 33.20 7577.00 Tónlistarmenn .... 16 77.200.00 9.94 4825.00 Leiklistarmenn .... 6 21.600.00 2.78 3600.00 113 776.100.00 100.00 6868.00 enda auðkenndir meðalmennsk unni og jafnvel tæplega það sumir hverjir, sem vafasama kröfu eiga til opinberrar viður- kenningar. Þetta gerir úthlutun- ina lágkúrulegri en vera þyrfti, og launin verða hvorki viður- kenning fyrir unnin afrek né uppörvun ungum hæfileika- mönnum, líklegum til dáða. Sú skoðun virðist ekki lengur ríkj-1 andi, að einungis þeir, sem náð hafa listrænum árangri, hafi unnið til launa. RANGLÁT SKIPTING FJÁRINS Á MILLI LISTGREINA I Þótt verulegs misræmis gæti gagnvart einstökum listamönn- um, sem ýmist er veittur mjög svo deildur verður eða eru al- gjörlega settir hjá, keyrir þó um þverbak með skiptingu fjárins milli listgreinanna. Það er stað- reynd, að hlutur skálda og rit- höfunda er langsamlega hæstur, rúmur helmingur alls úthlutun- ^ arfjárins. Næstir eru myndlistar- , menn með þriðjung. Síðan koma | tónlistarmenn með tæplega tí- unda hluta og að lokum leiklist- j armenn með 36. hluta. Því verður ekki neitað, að það er margt, sem til álita hlýtur að i koma við ákvörðun listamanna- launa og orsakað getur ágrein- ing, einkum ef ekki er fyrir hendi staðgóð þekking á öllum listgreinunum, svo og nægur kunnugleiki á þeim mönnum, er listirnar stunda, starfi þeirra og afrekum. En hvernig svo sem; þessu kann að hafa verið varið,. verður ekki um það deilt, að höfuðskyldá úthlutunarmanna var að sjálfsögðu sú, að leitast við að finna réttláta og skyn- samlega skiptingu milli listgrein- anna, svo að allar listir mættu, einnig sökum þessara aðgerða, vaxa og þróast í landinu, þjóð- inni allri til alhliða þroska í list- rænum efnum. Slíku sjónarmiði virðist nefnd- in hafa kastað fyrir borð, og hef- ur því ekki skotið upp á löngu tímabili, enda verður afleiðingin ærið þverbrestasöm úthlutun. Allir listunnendur, en þeir eru vissulega margir í landinu, líta því kvíðafullum augum til fram- tíðarinnar, ef þessu fer svo fram sem gert hefur, og mörgum hrýs hugur við hinum handahófs- kenndu vinnubrögðum nefndar- innar og mælikvarða þeim, sem hún leggur á einstaka menn og listirnar sjálfar. Það lýsir hvorki víðsýni í hugsun né frjálslyndi og ekki heldur sérlega þroskaðri réttlætiskennd að umbuna svo rækilega sem gert hefur verið tveim listgreinum, einkum þó bókmenntum, á kostnað hinna tveggja, enda andstætt tilgangi fjárveitingarinnar, auk þess sem slíkt er ekki þjóðarheildinni fyr- ir beztu. Því verður ekki haldið hér fram, að nefndarmenn séu að upplagi svo marglyndir eða órök- vísir, að þeir séu lítt fallnir til þess að bindast föstum megin- reglum í hugsun og breytni, þar sem þeir hafa jafnan sýnt hið gagnstæða. Föst og ófrávíkjanleg úthlutunarregla, sem enginn hef- ur getað umþokað til þessa, hefur myndazt, og ekki virðist mega vænta stefnubreytingar, meðan þeir menn, er nú skipa úthlutun- arnefnd listamannalauna, eru þar alls ráðandi. | Það hefði getað verið afsakan- | legt að umbuna svo skáldum og rithöfundum, sem gert hefur ver- ið á kostnað tón- og leiklistar- manna, ef ekki fyndust einnig á meðal þeirra margir vel fram- bærilegir listamenn. Þar sem nú slíku er ekki heldur til að dreifa, I liggur næst að ætla, að skipting- I in hafi stjórnazt af vanmati eða 1 ókunnugleika, enda framkvæmd af mikilli skammsýni. RANGLÆTIÐ MATTI LEIÐRÉTTA í ÁR Með hinni stórauknu fjárveit- ingu Alþingis á þessu ári, kr. 161.700.00, sem fyrr er getið, var hið ákjósanlegasta tækifæri lagt upp í hendur úthlutunarnefndar til þess að jafna nokkuð hið geysimikla ósamræmi, sem verið hefur nú lengi á milli listgrein- anna. Og þetta mátti fram- kvæma, ef nokkur vilji hefði ver- ið til þess, án þess að lækka nokkuð laun einstakra manna frá því, sem þau voru áður. — Þetta tækifæri til þess að koma réttlátari skipan á úthlutunina notar nefndin ekki, heldur þver- skallast enn og meira að segja lætur sér sæma að bæta gráu ofan á svart. í staðinn fyrir að leiðrétta misræmið, sem sjálf- sagt var, breikkar hún enn bilið á milli listgreinanna. Á þessu ári fá skáld og rithöfundar hærri hundraðshluta af úthlutuninni en á síðastliðnu ári og aðrar list- greinar að sama skapi minna, og vísast þessu til sönnunar til út- hlutunartaflanna hér að framan fyrir árin 1954 og 1955. Hvað liggur á bak við þennan óhugn- anlega þvergirðing? Máske þarf ekki í grafgötur að ganga eftir1 ástæðunni. Það virðist ótvírætt, að störf nefndarinnar hafa mót- azt af einhverjum öðrum sjónar- miðum en listrænu mati. TÓN- OG LEIKLIST AFSKIPTAR Seinustu þrjú árin hafa engir tónlistarmenn verið settir hærra en í þriðja úthlutunarflokk og leiklistarmenn í fjórða. Nú síðast var úthlutað til þeirra þannig: í 3. flokki eru 6 tónskáld, í 4. fl. 5 tónskáld, 3 píanóleikarar og 2 fiðluleikarar, í 5. fl. 6 leikarar. Það eru því aðeins 22 tón- og leiklistarmenn, sem launa njóta á þessu ári, á móti 91 í hinum tveim listgreinunum, 57 skáldum og rithöf. og 34 myndlistarmönn- um. Þetta orsakar misræmið á milli listgreinanna, annars vegar er fámennur hópur tón- og leik- listarmanna, hins vegar fjöl- mennur hópur skálda, rithöfunda og myndlistarmanna, auk þess sem hinir síðarnefndu eru einir um tvo hæstu launaflokkana. Að sjálfsögðu ber að gera vel við bókmenntir og myndlist, en við- urhlutamikið er að mismuna þeim svo freklega á kostnað tón- og leiklistar, að þeir listamenn, er þær greinar stunda, verði svo afskiptir sem raun ber vitni. STANDA TON- OG LEIK- LISTARMENN AÐ BAKI ÖÐRUM LISTAMÖNNUM? Eftir mati úthlutunarnefndar listamannalauna mætti ætla, að tón- og leiklistarmenn stæðu all- langt að baki skáldum og mynd- listarmönnum, að því er tekur til hæfileika, menntunar og list- þroska. Slíkan dóm væri þó vissulega eríitt og sjálfsagt óger- legt að fella, enda verður það ekki rökstutt, hvorki af úthlut- unarnefnd né öðrum, að tón- eða ieiklist standi í neinu að baki bókmenntum eða myndlist. Hitt mun mála sannast, að listirnar eiga allar jafnan rétt til vaxtar- skilyrða, enda er það efalaust hollast íslendingum sem fram- sækinni menningarþjóð að láta slíkan rétt jafnan gílda í fram- kvæmd, einnig að því er snertir úthlutun listamannalauna. Því hefur verið haldið fram, að með þjóðinni væru margir ágæt- ir eiginleikar í svo ríkum mæli, að þeir mættu verða til þess að gera hana að öndvegisþjóð, eink- um á sviði lista, ef þess væri gætt að hlúa vel að þeim. Hafa verið færð nokkur rök fyrir þessu og dæmi nefnd. Skal þetta ekki vefengt. Og ef marka má af reynslunni, er þess að vænta, að tón- og leiklistarmenn vorir verði engir eftirbátar annarra lista- manna í því að gera garðinn frægan, svo vel óg drengilega sem þeir sumir hverjir hafa þeg- ar borið vitni listmenningu þjóð- arinnar á erlendum vettvangi, og með listafrekum sínum aukið kynni á landi sínu og þjóð, sem og dáir þá og virðir. STEFNAN RÖNG Stefna úthlutunarnefndar er sízt til þess fallin að örva slíka afburða listamenn, sem þessar fögru listir stunda, til mikilla af- reka og dáða. Og harla lítil hvatning er það ungum hæfi- leikamönnum að helga sig tón- eða leiklist, er þeir sjá, hvernig úthlutunarnefnd býr nú að ágæt- ustu listamönnum þessara greina, en frumskilyrði eðlilegrar fram- þróunar er, að jafnan bætist við nýir ágætiskraítar. Það má því segja, að stefna úthlutunarnefnd- ar sé niðurrifsstefna, að því er snertir tón- og leiklist, af því að hún miðar að því að rífa niður það, sem listamennirnir sjálfir, með ærnum kostnaði, hafa verið að reyna að byggja upp. Þjóðin ann tón- og leiklist, alveg eins og máske engu síður en öðrum listum og vill vissulega gera veg allra lista sem greiðastan og bezt- an í landinu, svo erfiður og tor- farinn sem hann þó er og jafnan mun verða og engum fær, nema afburða listamönnum. Aftur á móti komast miðlungsmenn og þeir, sem lakari eru, aldrei nema skammt á veg, láta þá hugfallast, snúa við og leggja árar í bát. MIKIL GRÓSKA í TÓN- OG LEIKLIST Það leikur ekki á tveim tung- um, að mikil gróska hefur nú um nokkurt árabil verið í tón- og leiklist og listamenn þeirra greina verið í sókn. Og nú er t. d. svo komið, að óperur eru fluttar í Þjóðleikhúsinu einvörð- ungu af íslenzkum söngvurum og innlendum hljóðfæraleikurum í miklum meirihluta. Þetta mikla framtak og glæsilegi flutningur orkar þó lítið á úthlutunarnefnd- ina. Hún úthlutar enn eins og fyrr tónlistarmönnum mjög ó- verulega, svo smánarlega bæði til einstakra manna og í heild, að til óvirðingar er. ENGINN SÖNGVARI HLÝTUR LAUN Það vekur almenna undrun og réttláta gremju, að engir söngv- arar hafa hlotið laun síðastliðin tvö ár, en þrjú árin þar á undan þóknaðist nefndinni að veita Frh. á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.