Morgunblaðið - 07.07.1955, Blaðsíða 10
10
MQRGUNBIÆ&I0
Fimmtudagur 7. júlí 1955
í
Flugbjörgunarsveitin
Skemmtiferð farin að Surtshelli laugardaginn 9. þ. m.
kl. 2,30 frá Birgðastöðinni. — Nánari uppl. í síma 1116.
Jónas Sveinsson læknir sextugur Stér íbúð
ÞVÍ VERÐUR vitaskuld ekki 'heimilum þar sem jafnmargir
haggað, sem stendur í hinum eiga leið um traðir og hjá Ragn-
ginnhelgu bókum kirkjunnar, að heiði Hafstein og Jónasi lækni.
FERÐANEí’NDIN
Jónas læknir Sveinsson sé fædd-
ur að Ríp í Hegranesi 7. júlí
1895.
B
■Uu
Morgunblaðið með morgunkaffinu
m
Sólíd
«■
m
m ■
| sumarföt
E.
\ Fyrirliggjandi mikið urval af hinum vin-
'• -
[ sælu SÓLÍD fötum, stökum jökkum og
.■
: buxum. — SÓLÍD fötin eru hentug og
: ódýr sumarföt.
Stærðir við flestra hæfi.
■
■
| Komið og skoðið Sólíð fötin
■
I GEFJUN - IÐUNN
m
« Kirkjustræti 8 — Reykjavík.
Til sölu
Sloppastrauvél (Mathiesen') — Husquarna sauma-
vél (zig-zag) og Knoch saumavél.
Allt sem nýtt.
Efnalaugin Hjálp h.f.
Bergstaðastræti 28 A, sími 5523.
MHi/te/e/uH' ,
a/tm-kvttfofCm
Fáir, eða engir, íslenzkir lækn-
ar hafa farið eins oft utan og
Jónas, eða ferðast jafn víða. Á
seinhi tímum hefur hann áriega
lagt land irndir fót og verið lang-
dvölum ytra, gengið í sjúkrahús
og heimsótt fræga lækna í leit
að nýjungum í læknavísindunum.
Og enn er hann í slíkri för.
Víst hefðu margir óskáð að
mega sækja hann heim í dag og
óska honum heilla með næsta á-
fangann. í stað þess munu þeir
í huganum „rétta mund um haí-
ið hálft og heilsa gömlum vin.u
B. B.
Pélur Björmsou
skósmlður, álfræður
$Á'k,U V. t R K S'M‘1 Ö'JAN 3 J 0 F N, A K liRtE í
Breiðfirðingur er hann þó að
ætt og uppruna og frá Skarðs-
ættinni miklu eru honum í blóð
runnin þau einkenni, sem ríkust
eru í eðli hans og fari. Hver
sem mætir Jónasi lækni í hvít-
um slopp á göngum sjúkrahúss-
ins eða glæsilega klæddum á
götum Reykjavíkur, sér að þar
er ungur maður á ferð, hvað
sem öllum ártölum líður.
Hann er jafnan í essinu sínu
og heima hjá sér hvar sem hann
fer og ferðast; jafnt á götum
Kaupmannahafnar, Parisar og
Rómaborgar, sem á háfjöllum
Sviss eða öræfum íslands, í
hreysum öreiga, sölum frægustu
lækna, voldugustu atvinnurek-
enda og stóriðjuhölda.
Á dögum íslendingasagnanna
hefði hann verið sagður höfð-
ingjadjarfur, því honum er allra
manna léttast um að koma fram
fyrir hvern sem er og láta taka
eftir því, sem hann segír. Hon-
um fylgir jafnan hressandi blær.
Hann er léttur í lund og spori,
neistandi af áhuga og athafna-
þrá, logandi af lífsfjöri og lífs-
þrótti, hýr á svipinn og hlýr í
viðmóti, glaður og gáskafeng-
inn. Að baki gáskans bærast þó
aðrir strengir og af þeirra hljómi
gerðist hann glöggur og skygn
á mannanna mein og harma. Af
þeim lærðist honum að taka þátt
í kjörum þeirra, sem þyngst eiga
sporin og ekki er ofmælt að
fleiri eigi honum skuld að gjalda
en almenningur veit og sögur
greina.
Á glaðri stund í hópi gesta
og vina er hann hrókur alls
fagnaðar, hugmyndaríkur, hefur
frá mörgu að segja, jafnan svör
á reiðum höndum, málið létt og
mikil frásagnargleði.
Þó Jónas sé vinmargur á hann
líka sína andstæðinga og öfund-
armenn eins og allir, sem eru
athafnasamir og miklir fyrir sér.
En ekki verður honum hverft
við þó öldurnar rísi og brimið
löðri um bátinn. Þá brosir hann
í kampinn eins og breiðfirzkur
sægarpur og býður öllum ágjöf-
um byrginn.
Hvar sem Jónas hefur starfað
sem læknir, hefur hann verið
kafinn önnum og áhugamálum.
Endalaus ös af sjúklingum í
kringum hann. Svo er enn í dag
og fer síst minnkandi. En þrátt
fyrir hinar miklu læknisannir,
fær hann þó alltaf tóm til að
sinna öðrum áhugamálum sínum,
sem eru mörg og margvísleg. —
Hann er einn þeirra manna, sem
lætur sér ekkert mannlegt vera
óviðkomandi. Oft undrast ég
hvað hann kemst yfir að lesa
bæði í læknisfræði og af öðrum
bókmenntum.
Bókasafn hans er mikið og
gott og heimilið allt ber hús-
bændunum ótvirætt vitni um
frábæra smekkvísi. Þar skipar
gestrisnin forsæti og þangað er
g gott að koma, enda mun leit á
KEFLAVIK
Stúlka vön afgreiðslu ósk
ast í sérverzlun í Keflavík
nú þegar. Umsóknir ásamt
mynd og meðmælum, ef fyr-
ir hendi eru, sendist afgr.
Mhl. í Keflavík fyrir 12.
þ. m. merkt: „Sérverzlun
— 430“.
Loftskeytamaður í sigling-
um óskar eftir 4—5 her-
bergja íbúð nú þegar eða í
haust. Fátt í heimili. Fyrir-
framgreiðsla. Tilboð sendist í
afgr. Mbl. fyrir laugardag, j
merkt: Reglusemi — 918. [
I DAG, 7. júli, er Pétur Bjarna-
son, skósmíðameistari, Glerár-
götu 2, Akureyri, áttræður.
Það þarf ekki að kynna Pétur
fyrir eldri borgurum Akureyrar,
svo mikla og góða þjónustu hefir
hann innt af hendi við Akureyr-
inga um meira en hálfrar aidar
skeið. En þess ber að geta, sem
gert er. Ekki sízt, þegar fram-
úrskárandi snilld og trúmennska
fylgist að í verki, og minna verð-
ur ekki um Pétur með sanni sagt.
Pétur er fæddur að Gottorp í
Húnavatnssýslu, sonur Bjarna
Jónssonár gullsmiðs og bónda
þar, og Sigríðar Vernharðsdóttur
konu hans. Föður sinn missti
Pétur aðeins tveggja ára gamall.
Þá missti hann heymina líka upp
úr veikindum. Var hann þá tek-
inn til fósturs af frænda sínum
og nafna, Pétri Kristóferssyni
hónda á Stóru-Borg. Pétur var
snemma vel gerr, greindur og
námfús og hlaut góða fræðslu
við málleysingjaskólann að
Stóra-Hrauni. Hann nam skó-
smíðí, enda var hann bráðhagur
eins og hann átti kyn til.
Pétur fluttist til Akureyrar
1901. Réðist þá fljótlega til Guð-
mundar heit. Vigfússonar skó-
smíðameistara og vann þar í 23
ár, eða allan þann tima, sem sú
skóvinnustofa starfaði. Síðan
hefir Pétur unnið hjá Jónatan
M. Jónatanssyni skósmíðameist-
ara hér.
Pétur ber árin vel. Hann er
unglegur, hress og glaður, les
mikið og fylgist vel með öllum
fréttum daglega i borg og byggð.
Að endingu þakka ég Pétri
trygga vináttu að fornu og nýju
og óska honum allra heilla á
þessu merka afmæli hans.
B. J.
Eldri maður
eða hjón
óskast um óákveðínn tima á
lítið sveitaheimili. Góð húsa
kynni. Létt vinna. Mættu
hafa með sér bústofn. Tilb.
sendist afgr. Mbl. fyrir
sunnudagskvöld, merkt:.
49—906.
Henzín-rafsfoð
Wisconsin einn cyl. 220
volt, 1.5 kw. á hjólum til
sölu. Aukaútbúnaður fylg-
ir, rafdrifin steinbor m. fl.
Hentugur fyrir bygginga-
meistara.
BÍLA VÖRUBÚÐIIS
Hverfisgötu 108. Sími 1909.
Hef áhuga að
kynnast stúlku
Er í góðum efnum. Vil
stofna heimili í haust. Góð
framtíð. Tilboð sendist
ásamt heimilisfangi afgr.
Mbl. fyrir 18. júlí merkt:
„548 — 898“.
TBL SÖLL
verður föstud. 8. júlí á
Mánagötu 11 kl. 1—6 e.h.
•khakibuxur fyrir böm á
aldrinum 2ja—12 ára og
einnig tilheyrandi köflóttar
skyrtur, ný snið og ýmis-
legt fleira.
í
Laxveiðimenn
Nokkrir dagar verða leigð-
ir í góðri laxveiðiá í Borg-
arfirði. — Veiði hefst um
miðjan júlí. — Uppl. og
veiðileyfi afgreidd í verzl-
unmm
VeiSinuitíurinn,
Lækjartorgi.
Kristján Cuðlaugsson
hæstarcttarlugmaður.
Austurstræti 1. — Simi 3400.
Skrifstofutimi kl. 10—12 og 1—5.