Morgunblaðið - 18.08.1955, Qupperneq 1
16 siður
Ljósm. Mbl. tók þessa mynd í gærdag af nokkrum þeirra er leika í
„pressuliðinu“. í fremri röð eru frá vinstri Gunnar Guðmannsson,
Hörður Óskarsson, Einar Helgason markvörður frá Akureyri,
Ragnar Sigtryggsson Akureyri, Ólafur Eiríksson Víking, Am-
grímur Kristjánsson frá Akureyri og Albert Guðmundsson fyrir-
liði liðsins. í aftari röð frá vinstri: Guðmundur Þórarinsson frá
Vestmannaeyjum, Haukur Jakobsson Akureyri, Sigurður Bergsson
KR, Hiimar Ólafsson Fram og Ólafur Hannesson KR. Sú breyting
verður á liðinu vegna frestunar leiksins, að Hörður Óskarsson
getur ekki leikið með vegna fjarvistar úr bænum. í stað hans
kemur Kristinn Gunnlaugsson frá Akranesi.
„Pressuleiknum" er
irestuð til morguns
PRESSULEIKNUM, sem fram átti að fara í kvöld, hefur verið
frestað. Ástæðan er sú, að samkvæmt reglum ÍBR má aldrei
halda tvö íþróttamót samtímis, en norsku fimleikamönnunum
hafði verið úthlutað fimmtudeginum, en þá sýna þeir í Tívoli. —
Virðist sem KSÍ hafi eitt sér ákveðið fimmtudaginn fyrir pressu-
leikinn, en „gleymt“ að fá leyfi ÍBR til að leikurinn mætti fara
fram. Að sögn forráðamanna KSÍ hefur fengizt trygging fyrir
föstudagskvöldinu.
Friðrik Olahsoð og
Beni Larsen jafnir
í landsiiðsflokki
ÓSLÓ, 17. ágúst — lagi íl. Jó-
hannsson vann biðskák sína við
Hildebrandt úr annarri amferð.
I þriðju umferð vann Guðjón M.
Sigurðsscn Svíann Steraer fljótt.
Friðrik Ólafsson vann Norðmann
inn Vestöl í langri og harðri
skák. Ingi R. gerði jafntefli við
Danann Nielsen í ágætri skák.
Daninn Bent Larsen gerði jafn-
tefli við Sviann Hildebrandt.
í meistaraflekki gerðu Lárus
og Arinbjörn Guðmundsson jafn-
tefli í sínum skákum, en Ingvar
Ásmundsson og Jón Pálsson töp-
uðu í sinum. — G.A.
OSLO, 17. ágúst: — í fjórðu
umférðinni tapaði Guðjón M.
fyrir Bent Larsen, Danmörku,
Friðrik Ólafsson vann Finnan
Niemela, en Ingi R. gerði jafn-
leftí við Finnann Kahre.
Friðrik og Larsen eru enn
efstir og jafnir með 3% vinn-
ing hvor.
f meistaraflokki vann Jón
Pálsson sína skák, en Arinbjörn
Guðmundsson lapaði sinni.
Annars urðu biðskákir.
Tvær umferðir verða tefldar
á morgun (fimmtudag), en frí
er á föstudag. — G.A.
Afbrýðisemi
Belgrad.
LJUBINKA Milosacljevic, 41 árs
að aldri, sem er félagi í mið-
stjórn júgóslafneska kommún-
istaflokksins, hefur verið dæmd-
ur í 12 ára þrælkunarvinnu fyrir
morð á einum af efnilegustu
yngri mönnum í utanríkisþjón-
ustu Júgóslafa, hinum 34 ára
Momcilo Cupic. Segir frá þessu í
örstuttri frétt í blaðinu Borba,
sem er blað kommúnistaflokks-
ins.
Morðið átti sér stað í apríl S.l.
Ástæðan var afbrýðisemi.
Cupic hefur verið sendiherra
Júgóslafa í Chile og Brasiiíu og
einnig hefur hann gengt embætti
ráðherra er annast mál þunga-
iðnaðarins.
Komninn fór
JAKARTA, 15. ágúst: — Hin
ný.ia stjórn Indónesíu kom saman
til fyrsta fundar síns í dag. —
Eina málið, sem hún afgreiddi var
lausnarbeiðni yfirmanns hersins,
sem er kommúnisti.
Þessa leiks er beðið með mjög
mikilli eftirvæntingu. Menn
fresta brottför úr bænum leiks-
ins vegna, og á einum vinnustað
er sagt að fólk hafi neitað að
vinna eftirvinnu daginn sem
leikurinn verði. Sumir hafa beð-
ið blaðið að skora á útvarpið að
útvarpa lýsingu leiksins og fleira
er til dæmis um eftirvæntinguna.
Slikt er og eðlilegt. Hér mæt-
ast tvö ísl. úrvalslið. Við skulum
vona 22 beztu knattspyrnumenn
landsins. Landsliðið á að leika
landsleik eftir tæpa viku og
mikils er um vert að okkar beztu
11 menn skipi það lið. Lið lands-
liðsnefndar er vel skipað lið og
í því menn sem án alls efa
standa landsliðinu næst. En liðs-
menn pressunnar, þeir sem
standa í skugga þeirra er skipa
lið landsliðsnefndar, hafa líka
að miklu að keppa. Þeir geta
tryggt sér sæti í landsliðinu. Þar
eru nýir menn og óreyndir í
stórleikjum — en sem hafa stað-
ið sig vel í minni háttar leikjum.
Meðal þeirra kunna að leynast
menn sem á okkar mælikvarða
eru „stjörnur“. Það sem mikils-
verðast er er það, að hér er farið
inn á þá braut að setja allmarga
unga og tiltölulega óreynda
menn gegn okkar reyndustu
knattspyrnumönnum, sem skipa
lið landsliðsnefndarinnar. Von-
andi fær landsliðið góða æfingu
— og hinir reynslu og faraheill
inn á braut afreksmanna á sviði
knattspyrnu.
Eisenh&wer setur hernum reglur
ES þú eri tekinn HE
Sanga aS óvinum, þá..
V/ASHINGTON, 17. apríl — frá NTB-Reuter.
EISENHOWER forseti lagði í dag fram reglur um það hvernig
bandarískur hermaður á að bregðast við, sé hann tekinn til
fanga af óvinum. Reglurnar eru byggðar á reynslu er fengizt hef-
ur í Kóreustríðinu og í þeim segir m. a. að sérhver Bandaríkja-
hermaður skuli hátíðlega lofa að gera sitt ýtrasta til að gefa engar
upplýsingar, jafnvel þó hann sé beittur líkamlegum pyntingum.
PYNTINGAR BUGA
HERMENN
Nefnd, skipuð fulltrúum allra
greina hersins, hefur samið regl-
urnar. Var nefndin skipuð til að
rannsaka hversvegna einstakir
bandarískir hermenn sem teknir
höfðu verið til fanga af Kínaher
I Kóreu, létu undan við pynting-
ar og töluðu sér þvert um geð.
I Það er andi reglanna, að
[ Bandaríkjahermaður, sem tekinn
er til fanga, má ekkert með-
ganga. Hann má ekki koma fram
í útvarpsdagskrá eða taka þátt í
öðrum áróðursaðferðum. Hann
' má ekki skora á aðra hermenn,
] ekki undirrita „friðarávörp" né
gagnrýna Bandaríkin, samherja
þeirra erlenda, né landa sína.
Verður Móðbað
öðru sinni
CALKUTTA, 17. ágúst — Langt
er frá því að allt sé íallið í ró og
spekt eftir áreksturinn, sem varð
milli indverskra og portugalskra
s.l. mánudag.
í dag var allsherjarverkfall
boðað í Calkutta til að minnast
; þeirra Indverja er létu lífið á
mánudaginn. Fóru óaldarseggir
, um göturnar með hrópum og lát-
um og gerðu aðsúg að brezku
fyrirtæki, sem ekki hlýddi verk-
fallsboðuninni.
j Óaldarmennirnir hafa boðað
að á föstudaginn muni þeir aftur
fara inn á portugalska svæðið,
því þaðan eigi Portugalar að
hypja sig á brott. Nehru hefur
beðið Indverja að sýna kurteisi
— en orð hans sefa ekki trylltan
1 lýðinn.
Helgustu leyndarmálum
atómvísindanna Ijóstrað
upp í Genf í gœrdag
Nú er rætt um ráð til að forðast
hættu af geislavirkum e/num
GENF, 17. ágúst — frá Reuter-NTB
BANDARÍKIN, Bretland og Sovétríkin lögðu í dag fram á atom-
vísindaráðstefnunni í Genf sameiginlega upplýsingar í smá-
atriðum um aðferð til mælingar á neutrónum í uraníum og plut-
oníum. Upplýsingar um þessi atriði hafa í áratug verið þau leyndar-
mál atomvísindanna, sem bezt hefur verið gætt að ekki kvisuðust út.
ÓMETTANLEGAR UPPLÝS- <
INGAR
Fyrir þau lönd, sem ekki eru
komin svo langt á rannsóknar-
sviði atómvísinda, eru uppiýs-
ingar þessar ómetanlegar. Þess-
ar mælingar eru mjög þýðingar-
miklar t. d. við byggingar atóm-
vera.
LÍKAR NIÐURSTÖÐUR
í forsæti á ráðstefnunni í dag
var Bandaríkjamaður Hann'
sagði, að það væri ánægjulegt,
að þrjú ríki, sem unnið hefðu
óháð hvort öðru að rannsóknum
á þessu sviði s.l. áratug, hefðu
komizt að samskonar eða mjög
líkur niðrustöðum.
HÆTTAN AF GEISLAVIRKUM
EFNUM
í dag hófust einnig umræður
um ráð til að draga úr hættu
þeirri er vofir yfir beim, er |
atómverum starfa ai völdum
geislavirkra efna. Umræður
um þetta atriði verða mjög
þýðingarmiklar, því einmitt
ráð til að koma í veg fyrir
hættu af þessum orsökum er
þýðingarmesta sporið í átt að,
frekari nýtingu atómorkunnar.
Vantraust
á færeysku
stjórnina fellt
Frá fréttaritara Mbl.
Þórshöfn, Færeyjum
FYRIE helgina bar Þjóð-
veldisflokkurinn fram van-
traust á landsstjórnina. Van
trauststillagan fékk aðeins 7
atkvæði, en á Lögþinginu
færeyska sitja 27 þingmenn.
Erlendur Paturson er for-
maður Þjóðveldisflokksins,
en flokkurinn hefur 6 menn
á þingi. 5 þeirra greiddu til-
lögunni atkvæði, auk
tveggja alþýðuflokksmanna,
en sá flokkur hefur 5 Lög-
þingsmenn.
Landsstjórnina studdu
Sambandsflokkur (7 menn),
Folkaflokkurinn (6 menn),
Sjálfstýrisflokkurinn (2
menn) og Framburðsflokk-
urinn (einn þingmann).
Þegar atkvæðagreiðslan
fór fram voru 4 stjórnar-
andstöðuþingmenn fjarver-
andi, en allir þingmenn er
stjórnina styðja mættu til
i fundar.
MOSKVU
SOVÉTRÍKIN munu „í náinni
framtíð" ljúka við smíði „gerfi-
tungls", sem getur svifið um-
hverfis jörðina í 800—965 km
hæð. Er það einn af fremstu
vísindamönnum Rússa á þessu
sviði, sem skrifar þetta í blaðið
Moskovskaja Pravda.
Segir greinarhöfundur að marg
ir fremstu menn Rússa á sviði
stjörnuvísinda og eðlisfræði
vinni að þessu gerfitungli.
Enn virðist smíði gerfitungls-
ins þó ekki hafin, en tilraunir eru
gerðar með ýmsar stærðir, allt
frá „hnöttum“ er vega frá 1 kg
til margra tonna.
Rússinn segir að fyrsta gerfi-
tunglið muni svífa umhverfis
jörðina í 800—965 km hæð. Síðar
muni gerfitungl komast á brautir
sem eru 1600—1900 km frá jörðu.
í 1600 km hæð mun gerfitunglið
svífa með hraða er nemur 6.4
km á sekundu, að því er Rússar
hafa reiknað út.
Nýlega tilkynnti Eisenhower
að Bandaríkin mundu árið 1957
geta skotið út í himingeiminn
gerfitungli sem væri að stærð við
fótbolta. — Rússar.
lillu fjóni
WILMINGTON, 17. ágúst: —
Fjórði hvirfilvindurinn á stuttum
tíma gekk í dag yfir Norður
Karolína. Höfðu menn óttast hann
m.iög, því úti fyrir ströndinni var
vindhraði hans 185 km á klst., en
þegar hann kom inn yfir land féll
vindhraðinn ofan í 100 km á klst.
Olli þessi hvirfilvindur því tiltölu-
lega litlu tjóni.
Kjarnorka ey vetnis-
orka — „einskonar
fjárkúgun'
BELGRAD, 16. ágúst: — Tító
marskálkur lét svo ummælt í dag,
að aðalgildi kjarnorkunnar og
vetnisorkunnar lægi — enn sem
komið væri — í því, að hægt væri
að nota þessa orku sem hótun —
„einskonar fjárkúgun" Sagði
hann, að sú staðreynd, að báðir
aðilar hefðu undir höndum kjarn-
orku- og vetnissprengjur, yrði til
þess að koma í veg fyrir ný.ja
heimsstyrjöld. Hinsvegar væri
þess ekki að vænta, að þ.ióðir heims
dmgju úr ven.julegum vopnabún-
aði að neinu ráði á næstunni.