Morgunblaðið - 18.08.1955, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.08.1955, Blaðsíða 16
Veðurúfiil í dag: NV eða N gola. Sumsstaðar létt- skýjað. — 185. tbl. — Fimmtudagur 18. ágúst 1955. Naufgriparækf Sjá blaðsíðu 9. Háskólinn byggir nýtt kvikmyndahús í Vesturbœnum Rúmar 1200 manns í sæti EINS og nýlega var frá skýrt hér í blaðinu sótti Háskólinn um leyfi til þess að byggja kvikmyndahús og tónleikahöll á svæð- inu sunnan við íþróttavöllinn, þar sem nú eru tennisvellir. Einnig var sótt um leyfi til byggingarinnar nokkru vestar. Nú hefir bæjarráð ákveðið að leyfa bygginguna á lóð við Hagatorg og Dunhaga. Er það rétt við Neskirkjuna nýju. STÆRSXI SALURINN Háskólinn hefir í bígerð að byggja stærri samkomusal en nú ev til á landinu í hinu nýja húsi sínu. Mun hann rúma 1200 manns í sæti. Verður hin nýja bygging bæði notuð sem kvikmyndahús «g tónleikasalur, auk ýmiskonar annars samkomuhalds. Má segja, að vel fari á að slíkt hús rísi í Vesturbænum, þar sem ekki er |?ar neitt kvikmyndahús fyrir. Sátfafundur í verka- kvenna-deilunni VALDIMAR Stefánsson, varasátta- •emjari ríkisins, hefir nú fengið latip- og kjaradeilu verkakvenna- tfélagann í Keflavík og á Akra- •tesi við atvinnurekendur til með- tferðar. Boðaði hann til fundar með deiluaðilum kl. 4 í gær í Alþingis- tiúsinu og var þeim fundi ekki lokið, er blaðið fór í prentun. A fiáttafundinum mættu fulltrúar atvinnurekenda og verkakvenna, er í deilunni eiga, svo og fulltrúar tfrá Vinnuveitendasambandi Islands cg Alþýðusambandinu. Verkakonurnar bafa boðað til verkfalls náist samningar ekki. Tveir stúdenfar á mót TVEIR ungir stúdentar héldu liéðan í gær flugleiðis á stúd- entamót í Sofíu, höfuðborg Búlg- aríu. Eru það þeir Þórir Einars- son stúd. ökon. og Ingvar Gísla- son stud. jur. Munu þeir félagar verða um þrjár vikur í förinni. I>að er ráðsfundur stúdentasam- bandsins I.U.S., sem þeir sitja austur þar. Kemur þá Háskólinn til með að eiga tvö kvikmyndahús, Tjarnar- bíó og hið nýja. Væntanlega hefjast fram- kvæmdir við hið nýja hú& innan skamms og mun þess ekki langt að bíða að það rísi af grunni. Afhjúpaður minnis- varði Toría í Óiafsdal og konu hans 27. ÞESSA MÁNAÐAR efn- ir Breiðfirðingafélagið í Reykja- vík til ferðar vestur í Ólafsdal í Saurbæjarhreppi í Dalasýslu. Þar fer fram afhjúpun minnis- varða hjónanna Torfa Óíafsson- ar bónda og skólastjóra Bænda- skólans í Ólafsdal og konu hans Guðlaugar Zakaríasardóttur. Er minnisvarðinn gerður af Ríkharði Jónssyni. Þeir, sem taka vilja þátt í ferð- inni, geta leitað sér upplýsinga í síma 2534. Skemmtisigling Lúðrasveitar- innar Á SUNNUDAGINN efnir Lúðra- sveit Reykjavíkur til skemmti- siglingar fyrir almenning með Esju til Akraness. Verður farið héðan úr bænum kl. 10 f. h. og haldið upp á Skaga. Á skipinu verða ýmis skemmti- atriði og leikur m.a. Lúðrasveit- in. Uppi á Akranesi verður dans- að og eins á skipinu á heimleið- inni. Komið verður aftur til Reykjavíkur kl. 1 um nóttina. Ný skreiðorpressa sem Jens Árnason heiur iundið upp JENS ÁRNASON jámsmiður hef ur nýlega fundið upp nýja gerð skreiðarpressu, sem er allfrábrugð in og fullkomnari heldur en aðrar pressur sem hér eru notaðar til að pressa skreiðina i pakka til út- flutnings. Pressa þessi er mjög vönduð að smíði og frágangi enda Jens lengi unnið að henni. Aðalkostur þessar- ar pressu fram yfir aðrar er, að hún mótar skreiðarpakkann sjálf í móti, sem er lyft upp með vökva- lyftu áður en pakkinn er bundinn. Verða þannig allir pakkamir jafn stórir og réttir eins og þeir eiga að vera og engin horn standa út úr þeim. Pressan er stillanleg, þannig að hægt er að pressa laust eða fast eftir vilja, er það gert xneð smáum stilliskrúfum. 10 ha. Tafmótor knýr pressuna. Vél þessi er sú fyrsta af þessari gerð, sem Jens héfur smíðað, en áður gerði hann aðra pressu, sem þó var ekki jafn fullkomin og þessi. Hefur hann nú endurbætt þá gerð mjög. Kaupfélag Patreksfjarðar hef- ur fest kaup á hinni nýsmíðuðu Skreiðarprcssan nýja, sern Jcns befur fundið upp. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) pressu og mun hún verða send til Patreksfjarðar nú alveg á næst- unni. Þurrkur ? ÞURRKUR var víðasl hvar hér sunnan og suðvestan lands í gær, þólt ekki væri um góðan þurrkdag að ræða. Veðurstofan reiknaði í gær- kveldi með norðan átt og þurru veðri hér í dag, en kvað ekki gott að segja um hvernig áframhaldið yrði. Vilja senda hslikopf- erffugvél með sprengjukasti gegn háhyrningunum SANDGERÐI, 17. ágúst — í dag komu 9 bátar hingað með síld, samtals 712 tunnur. Veiðarfæra- tjón var með minnsta móti, að- eins einn bátur varð fyrir ásókn háhyrninganna og missti 10 net. Hafa háhyrningarnir lítið haft sig í frammi þennan sólarhring. Mikill áhugi er hér almennt meðal sjómanna, fyrir því, að gerð sé gangskör að því að heli- kopterflugvél ráðist á móti há- hyrningunum með sprengjukasti, eins og komið hefur til orða. — Telja formenn það beztu lausn- ina á þessu vandamáli. — Axel. Ágæl reknetjaveiðl KEFLAVÍK, 18. ágúst — Af þeim bátum, sem komnir eru að norðan, fékk Hilmir mestan afla eða 2750 uppmældar tunnur. — Var hásetahlutur rúmar 11 þús- und krónur. Nokkrir bátar héð- an eru enn fyrir norðan. f dag var afli reknetjabátanna allgóður eða alls um 840 tunnur af 16 bátum. Dux hafði mestan afla, 142 tunnur. — Söltun er ekki enn hafin hér. — Ingvar. Faxaflóasíldin fer dagbafnandi AKRANESI, 17. ágúst. — Síðastl. mánudag komu reknetjabátarnir inn með samtals 600 tunnur. í gær komu 11 bátar með samtals 650 tunnur. Af þeirri síld voru saltaðar 400 tunnur. Eina fyrir- tækið hér sem hafið hefur síld- arsöltun er Heimaskagi h.f. og er þegar búið að salta á 7. hundr- að tunnur, og fer síldin dagbatn- andi. í dag hefja þrír bátar til við- bótar reknetjaveiðarnar, og mun þeim halda áfram að fjölga, eft- ir því sem þeir koma norðan að. Allir Akranesbátarnir munu fara á reknetjaveiðar. — Oddur. Delfifoss og Brúar- foss á Akranesi AKRANES, 17. ágúst — í dag komu hingað tvö skip Eimskipa- félagsins. Brúarfoss, sem hleður 700 lestir af hvalkjöti, og Detti- foss, sem lestar frosinn fisk. — Oddur. Fór í fæfara og missfi framan af fjórum fingrnm í FYRRADAG varð það slys í trésmíðaverkstæðinu Víði við Laugaveg, að maður nokkur, Franz Lindnes að nafni, missti framan af fjórum fingum er hann fór með höndina í tætara. Var Franz fluttur á Landsspítalann, þar sem gert var að sárum hans. Síldveiði enn vs§ Ausfurland Saltað á cliiiffl söltunarsföðvum í gær Á ALLMÖRG skip fengu veiði út af Austfjörðum í gær, en þoka var þar á miðunum og gerði síldveiðiflotanum erfiðara fyrir. Saltað var á öllum sölt- unarstöðvum þar eystra í gær og allmikið var tekið til frysingar. Nokkur skip voru með 400—500 tunnur cg í gærkveldi bárust fregnir nm að Vörður frá Grenivík hefði fengið 600—700 tunnur í einu kasti. Var hann á leið til Seyðisfjarðar. Þar sem söltúnarstöðvarnar eystra hafa ekki haft undan, hafa nokkur skip lagt upp á Raufar- höfn. Þar var saltað hjá öllum söltunarstöðvunum í fyrradag og 5—6 stöðum í gær. Annars sagSI fréttaritari blaðsins á Raufar* höfn að um helmingur aðkomu* fólksins væri nú farinn þaðan og því ekki hægt að afkasta eina miklu og áður. 1 RE KNETJAVEIÐAR Fréttaritari blaðsins á Siglu- firði símaði í gær, að þeir bátar, sem láta reka núna í Húnaflóa hafi fengið eina til tvær tunnur í nótt í reknet. Vélbáturinn Þor- steinn frá Siglufirði fékk 40 tunn ur í nótt í reknet. Fleiri Siglufj.- bátar hafa hug á að halda á reknetjaveiðar, en ekki fengiS nógan mannskap enn. Leiðangur til Galapagos-eyja Stórmerk kvikmynd Per Höst og Thor Heyerdahl frumsýnd hér á laugardag Á LAUGARDAGINN verður frumsýnd í Stjörnubíói kvikmynd A Norðmannanna tveggja, Per Höst og Thor Heyerdahl frá leið- angri þeirra til Galapagoseyjanna. Það er frú Guðrún Brunborg, sem sýnir myndina, og renn- ur ágóðinn óskiptur til kaupa á herbergjum handa íslenzk- um stúdentum í stúdentagarðinum í Sogni. VÍSINDALEIÐANGUR Þeir félagar, Per Höst og Thor Heyerdahl, halda því fram, að þeir hafi með leiðangri þessum sannað svo ekki verði um viUzt, að Indíánar frá vesturströnd Suð- ur-Ameríku hafi fyrr á öldum siglt á balsa-flekum til Galapagos eyja og þaðan aftur til strandar. Ráða þeir það af þeim fornleif- um, er þeir fundu, og því að þeir komust að, hvernig hægt er að sigla balsaflekunum gegn vincli og straumi. Sigling fram og til baka var því möguleg. NÁTTÚRUFEGURÐ OG SÉRSTÆTT DÝRALÍF En myndin sýnir fyrst og fremst sérkennilega náttúru- fegurð eyjanna, geysifjöl- breytt dýralíf þeirra, en þarna eru heimkynni fjölda dýra og fugla, sem hvergi eru til ann- arsstaðar, og lifnaðarhætti í- búanna. Þarna hefur á síðustu áratugum myndast alþjóð- leg nýlenda. Margir Norð- menn eru meðal innflytjend- anna, og börnin tala þrjú, f jögur tungumál eins og hvert þeirra um sig væri þeirra móð urmál. Þau verða að gera það, ef þau eiga að geta leikið sér saman og skilið hvert annað. Það sér enginn eftir þeirri kvöldstund, er hann fer að sjá þessa mynd. t sumarfríi DENVER — Eisenhower Banda- ríkjaforseti er nú kominn í sumar frí og verður frá störfum um nokk urt skeið. Bréfaflóðinu frá esisku penna- vinunum ætlar aldrei að linna Pósfurinn meira að segja orðinn sárergilegur FYRIR nokkru var sagt frá því hér í blaðinu, að ung stúlka, sem auglýsti eftir pennavinum í ensku blaði hefði fengið hátt á annað hundrað bréf, nokkru síðar. Ennþá eru stúlkunni að berast bréf, og hefur Morgunblaðið tekið að sér að koma þessum bréfum til þeirra, sem vildu eignast enska pennavini. SEND VÍÐA UM LAND Margir hafa notað þetta tæki- færi, og hafa óskir eftir bréfum borizt víða frá. Til dæmis hafa um 30 bréf verið send austur í Rangárvallasýslu og álíka mörg vestur í Dalasýslu. Á rit- stjórnarskrifstofu blaðsins hefur fólk komið í stórum hópum til þess að fá sér pennavin, og einn- ig hafa allmargir haft beint sam- band við Ingu Hermannsdóttur, stúlkuna sem bréfin eru til. PÓSTURINN VAR ORÐINN ERGILEGUR Þegar bréfaflóðið var sem mest til Ingu, bárust henni um 50 bréf á dag. Fjölskyldu henn- ar var farið að finnast nóg um, og sjálf var hún í stökustu vand ræðum. En verst af öllu var þö, að pósturinn, sem aldrei hafði sýnt annað en geðprýði, var orð- inn sárergilegur, og sagðist ekki gera annað en bera troðna tösku af þessum ólukkubréfum oft á dag heim til stúlkunnar. Lítill annar póstur var í götúna. 1 EKKI ALLT BÚIÐ ENN Um tíma virtist ætla að taka fyrir bréfaflóðið, en nú síðustu dagana hefur það aukizt aftur. Nú er Morgunblaðið búið að taka málið í sinar hendur, og afhendir bréfin á ritstjórnarskrifstofunni, þeim sem vilja. Það vill beina því til fólks úti á landi, að þetta er sérstakt tækifæri til þess að eignast pennavini, og mun fús- lega senda bréf út á land, ef ■þess er óskað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.