Morgunblaðið - 21.08.1955, Page 14
14
MORGUNBLADIB
Sunnudagur 21. ágúst 1955 j
Læknirinn og ástin hans
EFTIR JAMES HILTON
FramKaldssagan 7
Einu sinni í viku fór hann
venjulega til Sandmouth og
dvaldi þar heilan dag. Hann átti
nokkra sjúklinga á þeim bað-
stað, auðugt fólk og iðjulaust,
sem lengdi líf sitt rneð hinu hei1-
næma sjávarlofti og öllum þeim
vonum, sem það batt við þessar
vikulegu heimsóknir hans og
vitjanir.
Hann tók sér sjaldan algert frí
frá störfum, en þegar það kom
fyrir, þá fór hann venjulega í
eitthvert smáferðalag með Jess-
icu og Gerald, svona í hálfsmán-
aðartíma og var það mikið lengri
tími, en hann kærði sig um að
vera iðjulaus.
En ferðirnar til Sandmouth
voru skemmtileg tilbreyting í
hinu daglega starfi hans.
Þetta vikulega ferðalag hófst
^afnan með því, að hann fékk sér
bolla af tei, snemma um morg-
unmn, löngu .áður en nokkur
annar á heimilinu, kom á fætur,
því næst lagði hann af stað til
brautarstöðvarinnar, upp hæð-
ina, framhjá dómkirkjunni og
niður hæðina hinum megin.
Hann hafði alltaf gaman af
þessum gönguferðum til stöðvar ■
innar. Það var allt annar svipur,
sem umhverfið og náttúran öll
hafði kl. sjö á morgnana, þegar
allir góðir yfirprestar og erki-
djáknar voru enn í fasta svefni,
en ljós loguðu í mörgum litlu
húsunum, þar sem verkamenn-
irnir biðu eftir morgunkaifinu,
en konur þeirra sköruðu í eldin-
um, sem falinn hafði verið
kvöldið áður.
Einn sumarmorgun, fór hann
eins og venjulega með lestinni
kl. hálf átta, sem var raunar ó-
þarflega snemma dags, en svo
fór heldur engin lest þessa sömu
leið, fyrr en um kvöldið og í þá
daga voru ferðamenn algerlega
háðir áætlunum járnbrautarlest-
anna (Nú ganga strætisvagnar
frá Calderbury Market-Square
til Sandmouth, alltaf á sjötíu mín
útna fresti).
En læknirinn skeytti ekkert
um þessar tvær og hálfa klukku-
stund, sem fóru í brottförina og
viðkomur á leiðinni, hossanda og
hristing á ferðinni, eftir hinni
margbreytilegu landsbyggð, þar
sem loftið var mettað þanglvkt
og sjávarseltu, síðustu tuttugu
mílurnar af leiðinni, eða önnur
slík smávægileg óþægindi.
Þennan tíma notaði hann tiJ að
lesa dagblað eða einhverja leyni-
lögreglusögu, tala við eir.n eða
annan samferðamann sinn,
reykja pípu sína, eða sitja að-
gerðalaus í sæti sínu og hugsa.
Þennan umrædda föstudags ■
morgun, skein júní-sólin loga-
skært af heiðbláum himninum,
svo að stafaði á Station Avenue,
sem lá niður að Pierhead, með
öllum sínum kaffihúsaauglýsing-
um og sölupöllum, sem svignuðu
undan marglitum fötum og leir-
kerum.
Davíð gekk hægt eftir gang-
stéttinni, sem iðaði öil af börn-
um, japlandi eitthvert góðgætið
úr búðunum og fullorðnu fólki,
sem reikaði iðjulaust fram og
aftur, í algerðu tilgangsleysi og
nutu góða veðursins.
Því næst beygði hann fvrir
hornið hjá Pierhead og lagði leið
sína um Promemade.
, Hingað leituðu flestir-þeir, sem
| áttu frí frá önnumi8gf^gff'i.,;Hjj;r
j leituðu götuljósmyndarar ,að við-
jskiptavinum og hérna fylltust
j ruslakörfurnar, -sdiYí *fégtar vorú
1 við ljósagtaurana, af bananahýði
* óg súkkulaðisumbúðum-, jafnóð-
um og götusópararnir tæmdu
þær.
Á björtum sumardegi var ekki
beinlínis fagurt í Sandmouth, en
þar var ávallt einhver viðfeldinn
svipur, sem öllum aðkomumönn-
um féll einkar vel í geð og þegar
gott veður var, hafði Davíð alltaf
mikla ánægju af því að ganga um
ströndina, horfa á slæpingjana og
hnjóta yfir holurnar í sandinum,
sem börnin höfðu grafið.
Sjórinn var hlýr og hægur
þennan morgun, en himininn var
mistraður og fullur af bjartri
hitamóðu, sem boðaði regn og
fyrstu droparnir féllu líka til
jarðar, laust eftir miðjan dag.
Það var síðari hluta dagsins,
sem Davíð fór í sjúkravitjanir
sínar og var þeim jafnan lokið
um kl. 5, svo hann gat hæglega
snúið heim á leið aftur, með lest-
inni klukkan hálf sex.
En viðkoman hjá frú Draw-
bell varð lengri en búist var við,
vegna þess, að frænka hennar,
sem komið hafði í heimsókn,
hafði ofkælzt og sömuleiðis tafð-
ist hann lengur en venjulega hjá
Sanderson major, sem vildi endi-
lega lýsa fyrir honum, mjög ná-
kvæmlega, meltingarleysi, sem
hann þjáðist af, sem Davíð hlust-
aði á, með mikilli samúð, en ein-
mitt með vaxandi kvíða út af
tímanum, sem óðum leið.
Að lokum sætti hann sig við
það, að missa af lestinni, enda
þótt honum hefði kannske tek.ist
að ná henni, með því að flýta sér
mjög mikið.
Davíð var nefnilega einn þeirra
manna, sem vildi heldur missa
af einhverju, en elta það í al-
gerðri óvissu.
Næsta lest átti ekki að koma
fyrr en klukkan átta, svo nú
varð hann að slæpast og láta sér
leiðast í rúmlega þrjár klukku-
stundir.
Hann gekk niður Station
Avenue og aftur um Promenade.
þar sem nú blasti við augum
hans eitt af hinum dásamiegu
sólarlögum við ströndina, sem
svo oft hefur verið reynt að eftir-
líkja á litskrúðugum myndakort-
um, en aldrei orðið annað en
svipur hjá sjón.
Þegar Davíð kom niður á
bryggjusporðinn fékk hann
skyndilega löngun til að ganga
eftir viðarplankanum og greiddi
hin tilskildu, tvö pence.
Það var eitthvað í hljóðinú,
sem myndaðist, er gengið var
eftir plankanum, og gjálfri bylgj-
anna undir fótum hans, sem
vakti hjá honum endurminning-
ar, of gamlar og annarlegar, til
þess að verða skilgreindar. j
Það voru mörg ár, síðan hann
hafði komið niður á Sandmouth-
bryggjuna.
Hún var því sem næst heill
mílufjórðungur á lengd og á
enda hennar stóð lítið lystihús,
þar sem flokkar hJjóðfæraleik-
ara héldu stundum eftirmiðdags-
tónleika á sumrin.
í þetta skipti var einn slíkur
skemmtileikur að hefjast, þegar
hann bar þar að garði.
Hann veitti því athygli, að
hljómleikaflokkurinn kalaði sig
„The Cheerybles“ og þegar hann
kom nær, sá hann auglýsingu
með öllum skemmtiatriðunum.
Eitt af hinum auglýstu atrioum
vakti einhverjar endurminningar
í huga hans og hann las, með
eftirvæntingu: „Leni Arkadrefna,
dansmær frá St. Petersblurg".
Þá mundi hann allt, og í annað
skipti á þessum degi, lét hann
undan skyndilegri löngun sinni,
gekk að aðgöngumiðasöJunni og
keypti miða að pallsæti, gegnt
leiksviðinu. i
Leikurinn var þegar byrjaður,
þegar hann komst loks í sæti sitt.
Hann hafði lítið gaman að því,
sem fram fór á sviðinu, en ein-
hver saklaus forvitni hélt þó eft-
irvæntingu hans vakandi og er
hann horfði og hlustaði á hinn
veigalitla leik og veika söng,
fylltist hann einhverri óljósri
vellíðan og eftirvæntingu eftir
Fíllínn
Hann hefði auðveldlega getað strokið og ekki komið aftur
til þorpsins, en honum líkaði svo vel þar, að hann var kyrr.
Það var bundin bjalla um háls hans til þess að svertingjarnir
gætu heyrt, ef hann fór út á ekrur þeirra. En á mánudags-
^ morgnana kom hann alltaf aftur í tæka tíð til þess að svara,
i þegar nafn hans var lesið upp.
j Arin liðu og Fritz var orðinn stór og fullvaxinn. Á þurrka-
i tímum þornaði vatnið svo mikið upp, að mikill sandur kom
Jí ljós í fljótinu við þorpið. Fyrst sást sandurinn gegnum vatn-
ið, sem var að grynnka. Þegar vatnið var metersdjúpt, gerð-
ist það sunnudagsmorgun einn, að bátur sá, sem gekk þar
um, pípti. Allir, sem gátu gengið, fóru niður til strandar
til að taka á móti bátnum, sem kom nær og nær. Á strönd-
inni voru menn tilbúnir til að taka á móti línum, sem há-
seti einn kastaði í land. En allt í einu nemur báturinn stað-
ar það fljótt, að mennirnir duttu um koll. Það var sand-
rifið. Enginn hafði athugað það. Báturinn festist meira og
meira í sandinum.
Skipstjórinn lét vélina aka aftur á bak fyrir fullum krafti.
Skrúfan þeytti vatninu langar leiðir og hrærði upp sand-
inn, en það hafði enga þýðingu.
Báturinn stóð fastur. Skipstjórinn skipaði nú hásetum og
farþegum að fara úr bátnum út í vatnið, sem náði þeim
upp í mitti. Þeir reyndu að hjálpa gufuvélinni að losa bát-
inn, en það dugði ekki heldur.
Bezt ai auglfsa í Morgunblaiinu
K.R.R.
K.S. I.
I kvöld kl. 7,30 keppa: ;
Víkingur — Þróttur :
Mótanefndin.
■tal
IBUÐIR - HITAVEITA
Eigum eftir óráðstafað 3ja og 4ra herbergja íbúð á
bezta stað í Vesturbænum. Sérhitaveitukerfi fyrir hvora
íbúð, eignarlóð. — Ibúðirnar eru til afhendingar nú þegar.
Uppl. á skrifstofunni (ekki í síma).
BYGGINGAR H.F.
Ingólfsstræti 4.
B.S.S.R.
B.S.S.R.
2.
3.
Hús til sölu
Einbýlishús í Kópavogskaupstað, ásamt stó'TÍ rækt-
aðri erfðafestulóð. Skipti á því og þriggja herbergja
íbúð í Reykjavík, æskileg.
Stórt einbýlishús við Silfurtún í Garðahreppi.
Tveggja íbúða hús í smíðum, selst fokhelt, með
hitatækjum.
Upplýsingar í skrifstofu félagsins, Lindargötu 9 A
kl. 16—18 virka daga.
„llmurinn er indœll
og bragðið eftir því
44
O.M nóon ^JJaaler L.f.
Iþróttakeppni
Ungmennasambands Kjalarnessþings,
Keflvíkinga og Akureyringa,
verður í dag að Leirvogstungubökkum og hefst kl. 2.
Spennandi keppni í frjálsum íþróttum og hsndknatt-
leik kvenna.
Dansleikur að Hlégarði á eftir.
Ferð frá Bifreiðastöð íslands kl. 9.
U. M. S. K.
— Morgunblaðið með morgunkafíinu —
>■■■■■■■■■............... mHnmi(iniiici«iiiiiimi»aMm«MiMniwiiMi»¥Brm»n»iiniinmnamuiiiuiiiiiiiniaiiiiiminl £.