Morgunblaðið - 21.08.1955, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.08.1955, Blaðsíða 16
Veðurúfliff í dag: Gengur í SA-átt. 0f0tfttÞIðfrÍfr 188. tbl. — Sunnudagur 21. ágúst 1955 Reykjavíkurbréf á bls. 9. Leyfð veiði á 600 hreindýrum HEIMILD hefur verið gefin til að veiða allt að 600 hreindýr í Múlasýslum á tímabilinu 20. ágúst til septemberloka. Er þetta leyfi gefið m. a. vegna þess að hreindýrastofninn á Austurlandi •er talinn of stór, sennilega allt að því 5000 dýr. MEST í FLJÓTSDALS- HREPPI OG JÖKULDAL Veiði þessari er skipt milli hreppanna í Múlasýslum í ákveðnum hlutföllum. Er t.d. heimilað að bændur í Fljótsdals- hreppi skjóti 150 hreindýr, bænd ur á Jökuldal 130, í Fellshreppi 80, Tunguhreppi 75, Skriðdals- hreppi 43 og Hlíðarhreppi 30. ÞEIR SEM NJÓTA ARÐS Hreppsnefndirnar sjá um veiði hreindýranna. Skulu þeir bændur fyrst og fremst njóta arðs af veið- unum, sem fyrir mestum ágangi verða af hreindýrum á beitilönd- unum, en síðan skal sveitasjóður njóta arðsins. Bifmðastiildir í FYRRINÓTT var tveim bifreið- um stolið hér í Reykjavík. Fund- ust báðar bifreiðarnar aftur í gærmorgun, skemmdar eftir öku- ferð næturinnar. Voru það bif- reiðarnar R-3216, sem er vöru- bifreið og R-6176, sem er Dodge Weapon fólksbifreið. Hin seinni hafði lent í árekstri við aðra bifreið í Nóatúni og kastað henni út af götunni og skemmdist sú bifreið mikið. — Þjófarnir eru enn ófundnir. Illmögulegt oð nó nokkurri ætri heytuggu hundu búsmulunum Sum heímili hafa ekki náð þurru sfrái í hlöðu BORG, í Miklaholtshreppi, 19. ágúst: — Sumarið ætlar að verða erfitt hér á Snæfellsnesi. eins og víða á landinu, þar sem óþurrk- arnir hafa gengið. Síðan heyskap- ur byrjaði, eru fáir dagar, sem komið hafa alveg þurrir frá inorgni til kvölds — sennilega ekki fleiri en 3 til 4. Margir byrjuðu að slá um Jóns- messu, eða rétt fyrir mánaðamót- in. Til eru þau hebnili hér í jsýslu, sem ekki eru búin að ná neinu þurru strái í hlöðu ennþá. Samfara þessu slæma veðurfari hefir skapazt mjög alvarlegt ástand hjá bændum og búend- um. Margir vonuðust eftir bata um mánaðamótin júlí og ágúst, en sá bati er ekki kominn enn þá. Hér á sunnanverðu Snæfellsnesi hefir enginn dagur komið alveg þurr síðan ágústmánuðum byrj- aði. Víða er eftir töluvert óslegið af túnum, bændur hafa beðið með að siá, verið að vonast eftir þurrki. Þetta, sem ennþá er óslegið af íúnum, er orðið svo úr sér sprott- ið og ill mögulegt að slá það fyrir flækju í grasinu. Útlitið er því þannig í dag, að þótt upp birti og gjöri flæsur, að heyskapur verður í.ára lítill, hey hrakin og úr sér sprottin. — Verða því bændur áreiðanlega að stórfækka búpening' sínum vegna þessarar slæmu veðráttu. Kemur það því sér mjög illa. — Undanfarin ár hafa bændur verið að koma upp fjárstofninum eftir fjárskiptin og víða er komin sú fjártala, sem til var áður en íjár- pestir hófu innreið sína Margir bændum hafa staðið í miklum íramkvæmduin undan- farin ár, byggingum og ræktun, og hafa því treyst á rekstursaf- komu búa sinna, til þess að halda í horfinu, með áframhaidandi framkvæmdir á jörðum sínum. •— En svo kemur þetta slæma og erfiða sumar, að ill-mögulegt er að ná nokkurri ætri heytuggu handa búsmalanum — „það er mörg búmanns raunin“. Enginn man slíka sumartíð, sem verið hefur hér í sumar, bæði votviðrasama og kalda. —Páll. Óhagslæður röru- skiptajðfnuður VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN hefir orðið óhagstæður um 206,1 milljónir fyrstu sjö mánuði ársins. Flutt var inn fyrir 643,3 millj. kr., en út fyrir 437,2 millj. — Á sama tíma í fyrra var jöfn- uðurinn óhagstæður um 167,2 millj. Þá nam innflutningurinn 618,5 millj. kr., en útflutningur- inr> 451,3 millj. f júlí varð vöruskiptajöfnuð- urinn óhagstæður um 59,8 millj. kr. Inn var flutt fyrir 125 millj., en út fyrir 65,2 millj. Urðn fyrstir í fjórum greinum d Oslo-meistarumótinu ÓSLÓ, 19. ágúst — Frjáls- íþróttamenn ÍR, sem farnir eru til keppni á Norðurlönd- um, kepptu sem gestir á Ósló-meistaramótinu í kvöld. Stóðu íslendingarnir sig með prýði. Urðu þeir fyrstir í fjórum greinum. Guðmundur Vilhjálmsson varð 1. í 200 m hlaupi á 22,9 sek., Sigurður Guðnason varð 2. í 5000 m hlaupi á 15.27,2 mín., sem er bezti tími, sem hann hefir náð, Ingimar Jóns- son setti nýtt drengjamet í 400 m grindahlaupi, hljóp á 59,2 sek., Skúli Thorarensen varð 1. 1 kúluvarpi með 14,26 m, Vilhjálmur Einarsson (UÍA) varð 1. í þrístökki með 14.02 m og íslenzka sveitin varð fyrst í 1000 m boðhlaupi á 2.01,8 mín. — Brautin var þung eftir mikla rigninganótt. — Örn. Sölvi Víglundsson skipstjórl andaðist 20. þ. m. — Með honum er genginn þekktur atork umaður og mætur borgari. Blekkingar kontffi- únisla um vísiiöiuna KOMMÚNISTABLABIÐ skýr ir frá því í gær, að visitala framfærslukostnaðar sé enn óbreytt frá 1. júní s.L, 165 stig. Fer hér enn sem fyrr að kommúnista varðar ekki mik- ið um sannleikann. Vísitala framfræslukostnaðar var nefnilega 163 stig 1. júní og hefur því hækkað um 2 stig síðan. Kor.imúnistum er það bcin- línis áskapað að snúa stað- reyndum við. Það er nokkurn veginn það eina, sem hægt er að reiða sig á hjá blaði þeirra, að það scgir alltaf ósatt. Síldveiðin við Aust- firði leit Ægis að jiskka SEYÐISFIRÐI, 20. ágúst. — All- mörg íslenzk síldveiðiskip liggja nú í landvari hér vegna hvass- viðris á miðunum. í gær fóru um 20—30 skip- stjórar af þeim um borð í rann- sónarskipið Ægi, sem liggur hér, 1 boði dr. Hermanns Einarsson- ar, leiðangursstjóra og íngvars Pálmasonar, skipstjóra. Héldu þeir fund með síldarskipstjórun- um um farangur og vandamál síldarleitarinnar í sumar. Er það eindregið álit skip- stjóranna að undanfarin síld- veiði við Austfirði sé leit Æg- is að þakka. Á fundinum kom fram mjög eindreginn stuðn- ingur skipstjóranna við starf Ægis í sumar og var skifzt á skoðunum um, hvernig bæta mætti leitina í framtíðinni og fullkomna mætti samstarf leitarskipsins og síldarskip- anna. — B. Maniis leitað EINS og skýrt var frá hér í blaðinu í gær fundust skór, hatt- ur, jakki og yfirhöfn manns í fjör unni neðan við Skúlagötu í fyrra dag. Voru allar líkur taldar til þess, að maðurinn hefði, sem föt- in átti, orðið sér til skaða. Leitaði flokkur lögreglumanna og skáta í fjörunni inn eftir í gærkvöldi Sú leit bar þó engan árangur. Rannsóknarlögreglan hefir nú lýst eftir manninum. Er hann Magnús Ottósson, 45 ára að aldri og ókvæntur. Magnús er tæplega meðalmaður á hæð, rauðskol- hærður. Hann hafði kennt sér nokkurs lasleika undanfarið. — Hefir hans ekki orðið vart síðan í fyrradag. Lögreglan mun hafa leitað hans í gærdag. Allir þeir, sem gefið gætu upplýsingar um ferð- ir Magnúsar eru beðnir að gefa sig fram við rannsóknarlögregl- una. fylgir blaðinu ekki í dag vegna sumarleyfa í prentsmiðju blaðs- ins. — Mynd þessi var tekin á Reykjavíkurflugvelli við brottförina. Ungir Sjálfstœ&ismenn fóru í gœr til Þýzkalands Fyrsta utanlandsíerð samtakanna IGÆRMORGUN lagði stór hópur ungra Sjálfstæðismanna af stað í kynnis- og skemmtiför til Vestur-Þýzkalands. Mun hóp- urinn sem í er ungt fólk víða af landinu, ferðast um erlendis í þrjár vikur, skoða ýmis merkis fyrirtæki og staði, hlýða á erindi um sögu Þýzkalands, efnahag og menningu, og kynnast þannig landi og þjóð. TIL HAMBORGAR Það er samband ungra Sjálf- stæðismanna, sem fyrir þessari ferð gengst, og er það fyrr.ta ut- anlandsferðin, sem farin er á vegum samtaka Sjálfstæðis- manna. í gær flaug hópurinn til Hamborgar. Þar verður dvalizt í nokkra daga. Síðan haldið til Lubeck, Kiel og Flensborgar þar sem verður nokkur dvöl. Síðan verður ekið undir góðri leiðsögn um Suður-Þýzkaland til Dussel- dorf, Hannover, Köln, Bonn og til Koblenz, sem er í hinum fögru Rínarhéruðum Hópurinn kemur heim viku af september, einnig flugleiðis. Þátttakendur í kynnisförinni eru m. a. frá Reykjavík, Vest- mannaeyjum, Höfnum, Ólafsfirði svo nokkur dæmi séu nefnd Eru þar ungir piltar langt innan við tvítugt og menn á fertugsaldri. Væntanlega heldur Samband ungra Sjálfstæðismanna þessari nýbreytni áfram og gengst fyrir annarri kynnisför næsta sumar. Fararstjóri Þýzkalandsferðar- innar er Guðmundur H. Garðars- son, viðskiptafræðingur. FORDSMIÐJUR í Moseldalnum þar skammt frá verður dvalizt um skeið. Þátt- takendur koma og til Ruhrhér- aðsins, skoða námur og stáliðju- ver, Fólksvagnaverksmiðjurnar í Wolfsburg, Fordverksmiðjurnar og ýmis önnur merk iðnfyrir- tæki. 700 hinnur salfaðar í Stykkishélmi STYKKISHÓLMI, 20. ágúst — Ötíð hefir verið hér síðustu þrjá daga svo ekki hefir gefið á sjó. — 700 tunnur hafa verið saltaðar hér á Stykkishólmi. — Á.H. Ströng ákvæði um notkun hjálpar-reiðhjóia UT HEFUR verið gefin reglugerð þar sem kveðið er á um notk- un og skrásetningu reiðhjóla með hjálparvél. Þar er og ákvæði um að sérstakt ökuleyfi þurfi til að mega aka slíkum reiðhjólum. Reglugerðin er gefin út skv. lögum er samþykkt voru á síðasta Alþingi. Hún hefur þegar gengið í gildi. 15 ÁRA FÁ LEYFI í reglugerðinni eru m. a. á- kvæði um útgáfu ökuréttinda. Þar sem segir að til þess að stýra 1 reiðhjóli með hjálparvél þurfi ökuheimild. Má veita hana þeim sem orðnir eru 15 ára og hafa næga kunnáttu í akstri og um- ferðarreglum. KENNSLA OG AKSTURSPRÓF Aksturskennsla á reiðhjóli án hjálparvélár má fara fram án löggilts kennara. Æfingarakstur má ekki fara fram fyrr en sótt hefur verið um ökuheimild og ekki fyrr en 14 dögum áður en próf skal þreyta. Lögreglustjór- ar geta krafizt þess að umsækj- endur taki þátt í stuttu námskeiði í umferðarreglum, akstri og með- ferð reiðhjólanna. Þá skulu bif- reiðaeftirlitsmenn reyna aksturs- kunnáttu umsækjenda, þekkingu á umferðarreglum og hæfileika að öðru leyti til að aka reiðhjóli ^með hjálparvél. LJÓS OG HLJÓÐDEMPAR Þá eru í reglugerðinni ákvæði um að slík reiðhjól skuli hafa trygga hemla, á þeim skulu vera fram-ljósker og aftan á því katt- arauga. Aflvélin má eigi vera meiri en 1 hestafl. Við útblást- ursrör skal vera hljóðdeyfir, enda skal þess stranglega gætt, að af hjólinu stafi ekki meiri , hávaði en nauðsynlegt er. Reiðhjólin skulu skrásett og a • að festa skrásetningarmerki j bæði framan og aftur á hjólið. f Þau skulu vera rauð, 4 sm háir I stafir á hvítum grunni. Skoðun skal fara fram á hjólunum einu sinni á ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.