Morgunblaðið - 26.08.1955, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.08.1955, Qupperneq 1
16 síður 42. árgangur 192. tbl. — Föstudagur 26. ágúst 1955. Prentsmiðja Morgunblaðsins Eftirstöðvar ga- tilraunarinnar í júní Utanríkisráðherra Argsntíms szttur af Buenos Aires, 25. ágúst. — Reuter — NTB. JERONIMO REMARINO, utanríkisráðherra Argentinu, hefur verið vísað úr embætti. Argentínska stjórnin tilkynnti, að við embættinu tæki Cavagna Martinez. Síðan misheppnuð tilraun var gerð til að steypa Perón og fylgismönnum hans af stóli í júní s.l., hefur stöðugur orðrómur gengið um það í Buenos Aires, að Remar- ino yrði látinn fara frá. Óstaðfestar fregnir herma, að tveim öðrum ráðherrum verði vikið úr stjórninni. Umsóknmirestiir um lún til ibiiðu- byggingu til 1. október Remarino var einn af þeim stjórnarmeðlimum, er páfinn bannlýsti, eftir að Perón forseti hóf aðgerðir sínar til að skilja að ríki og kirkju í Argentínu. Bemarino gegndi einnig störfum kirkjumálaráðherra. Nýi utan- ríkisráðherrann er fimmtugur að aldri og mun vinna embættiseið sinn á morgun. ♦—0-4 Stjórnin tilkynnti einnig í dag, að hershöfðinginn Felix Maria Robles hefði verið skipaður yfir- maður öryggismálaráðuneytis rík isins, Hinn nýskipaði yfirmaður : á að hafa nána samvinnu við innanríkisráðuneytið, og er það, talið benda til þess, að herinn muni fá algjör yfirráð yfir lög- reglunni. i Ráðstefna |)in«- mamia f rá 42 löndnm Helsingfors, 25 ágúst. RÁÐSTEFNA alþjóða þing- mannasambandsins hófst í Hels- ingfors í dag. Forseti Finnlands Paasikivi setti ráðstefnuna. —• Fjögur hundruð þingmenn frá 42 löndum munu sitja ráðstefnuna. Þingmennirnir muní m. a. ræða friðsamlega sambúð þjóða í milli. Forseti þingsins var kiör- inn finnski þingmaðurinn Heljas. Róístjórnin vill rjúfn júrntjuldið BREZKUM blöðum hefir undan- farið orðið tíðrætt um fyrirhug- aða för norska forsætisráðherr- ans til Moskvu. Augljóst er nú, að markmið Ráðstjórnarinnar er að reyna að komast í nánara sam- band við umheiminn og rjúfa að nokkru járntjaldið. Gerhardsen segir í svari sínu, að Ráðstjórnin og Noregur þurfi ekki að útkljá nein misklíðar- efni, en tekur það sérstaklega fram, að tilgangur heimsóknar- innar sé að efla vinsamleg sam- skipti þessara tveggja þjóða. Tilgangur Ráðstjórnarinnar verðru enn ljósari, ef litið er yfir þann lang* lista stjórnmála- manna, er á næstunni fara í heim sókn til Moskvu. Nehru hefir ný- lega verið þar, Tító hefir þegið heimboð til Kremlar, Adenauer fer til Moskvu í byrjun septem- ber. Aðrir, sem boðið hefir verið eru Faure, U Nu, forsætisráð- herra Burma, Nasser, forsætis- ráðherra Egyptalands og þjóð- höfðingi Persíu. Undanfarnar vikur hefur landstjóri Frakka í Marokkó verið á stöðugu ferðalagi milli Frakklands og Marokkó til að geta gert tvennt í senn: Fylgzt með rás viðburðanna í Marokkó og rætt við stjórn- arleiðtoga Frakka heima fyrir. Á myndinni sésthann sitja fund í París ásamt með Pierre July (t.v.) og Edgar Faure (í miðju). FuMSrúar Frakka off IstíqSal ræSast við í lyrsta sinn Lœknar í verkfalli Verður Gilbert Grandval að láta af embæiti? Vínarborg, 25. ágúst. Reuter—NTB. LÆKNAR og tannlæknar um gervallt Austurríki hófu í dag tveggja daga vterkfall í mót- mælaskyni við tryggingalöggjöf- ina er nýlega gekk í gildi. Læknis hjálp er samt veitt, ef um líf og dauða er að tefla. Læknarnir eru einkum andvígir sérstökum heilbrigðisstöðvum, er einstök tryggingafélög hafa komið á laggirnar og njóta þær sérrétt-{ inda í tryggingaiöggjöf ríkisins. Segja læknarnir, að hér sé um einokun að ræða. Fara læknarnir i í kröfugöngu um götur Vínar- borgar og hafa sums staðar farið í hópum inn í heilbrigðisstöðv-! ai'nar og hindrað að fólk fengi' þar læknishjálp. * Rabat og Aix-Les-Bains, 25. ágúst. — Reuter-NTB. FIMM manna stjórnskipuð nefnd undir forsæti franska forsætisráðherrans Faure, áttu i dag fyrsta fund sinn með fuil- truum istiqlal-flokksins í Aix- Les-Bains. Er þetta í fyrsta skipti, sem franska stjórnin og Istiqlal- flokkurinn, sem stendur í fylking arbrjósti í sjálfstæðisbaráttu Marokkó, ræðast formlega við. Telja menn, að þessi fundur kunni að skapa þáttaskil í öllum samskiptum Frakka og Marokkó- búa. Fyrir nokkrum mánuðum leit franska stjórnin svo á, að Istiq- lal-flokkurinn yrði aldrei fáan- legur til viðræðna, en þessar fyrstu viðræður fulltrúanna voru hinar vinsamlegustu, svo að viðhorf beggja virðist hafa tekið talsverðum stakkaskiptum — a. m. k. á yfirborðinu. Við- ræðufundurinn stóð í tæpa þrjá tíma. ★ ★ ★ Aðalritari Istiqlal-flokksins tjáði blaðamönnum, að þeir væru vongóðir um góðan árangur af Frh. a bls. 2. □- -□ Síðustu frétiir Tve/r menn annast úthlutun lánanna HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN gaf í gær út tilkynningu um umsókn- arfrest til þess að sækja um lán til íbúðabygginga samkvæmt hinum nýju lögum frá síðasta Alþingi. Skulu allar umsóknir hafa borizt fyrir 1. október næstkomandi. Settar hafa verið tvær reglu- gerðir um framkvæmd laganna. Ákveðið hefur verið að úthlutun lána af hálfu húsnæðismála- stjórnar verði algjörlega í höndum tveggja manna, þeirra Ragnars Lárussonar og Hannesar Pálssonar. TILKYNNING HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRNAR Hér fer á eftir tilkynning sú sem húsnæðismálastjórn gaf út í gær um þetta efni: „Húsnæðismálastjórn hefur í dag gefið út tilkynningu um, að tekið verði á móti umsóknum um lán til íbúðabygginga úr veðdeild Landsbanka íslands, samkvæmt lögum nr. 55, 20. maí 1955. Stað- festar hafa verið tvær reglugerð- ir samkvæmt lögúnum, og fjallar önnur um íbúðalán veðdeildar Landsbanka íslands og hin um Skýrslur um nýjungar alnmaldarinnar til sölu WASHINGTON — Bandariski viðskiptamálaráðherrann, Sin- clair Weeks, tilkynnti nýlega, að gefnir yrðu út á næstunni rúm- lega 960 bæklingar á vegum bandarísku kjarnorkunefndar- innar. Hingað til hefir aðeins þröng- ur hópur manna haft aðgang að litlum hluta þeirra upplýsinga, er kjarnorkunefndin hefir til umráða. Nú er hægt að kaupa þessa bæklinga í viðskiptamála- ráðuneytinu, og er aðaltilgangur- inn sá, að iðnaðarfrömuðir geti kynnt sér nýjungar atómaldar- innar. Sinclair Weeks skýrði svo frá, að kjarnorkunefndin hefði lofað, að á hverju misseri skyldu gefn- ir út bæklingar um allar þær nýjungar, er bættust við í kj arnorkumálunum. KAUPMANNAHÖFN, 25. ágúst. — Landbúnaðarráðherra Dana hefur verið boðið að koma í heimsókn til Ráðstjórnarríkjanna á þessu ári. umsóknir og úthlutun lána Hús- næðismálastjórnar. Lánbeiðnir verða því aðeins teknar til greina, að þær séu á sérstökum eyðublöðum, sem út hafa verið gefin. Mikil áherzla er á það lögð, að eyðublöðin séu vel útfyllt og lánbeiðnum fylgi öll tilskilin gögn. Þó skal bent á, að þeir, sem sótt hafa um lán frá Lánadeild smáíbúða, geta í um- sókn sinni vísað til fylgiskjala, sem þeir hafa þegar sent, ef þau eru hin sömu og nú er krafizt. Eyðublöðunum fylgja leiðbein- ingar Húsnæðismálastjórnar og útdráttur úr reglugerð um íbúða- lán veðdeildar Landsbankans. ^ UMSÓKNARFRESTUR I OG EYÐUBLÖÐ I Eyðublöð fyrir lánbeiðnir liggja í Reykjavílc frammi hjá veðdeild Landsbankans og á skrif stofu þeirri, sem Húsnæðismála- stjórn hefur opnað á Laugavegi 24 í Reykjavík. Enn fremur hafa eyðublöð verið póstlögð til allra bæjarstjóra og oddvita útan Reykjavíkur, og eru menn beðnir að vitja þeirra hjá þessum aðil- um. | Umsækjendur eru beðnir að senda umsóknir sínar sem allra fyrst, en það skal tekið fram, að umsóknir, sem berast eftir 1. október, koma ekki til greina um lánveitingar á þessu ári. | Ákveðið er, að úthlutun lána af hálfu Húsnæðismálastjórnar sé algerlega í höndum tveggja manna, þeirra Ragnars Lárusson- ar, forstjóra, og Har.ncsar Páls- sonar, fulltrúa. Verða þeir til við- tals á skrifstofu Húsnæðismála- i stjórnar, Laugavegi 24, á mánu- dögum og þriðjudögum kl. 5.30 , til 6.30 e. h. og á miðvikudögum ' og fimmtudögum kl. 9—10 e. h. Er þess vænzt, að þetta reynist hentugur viðtalstími fyrir allan, þorra manna.“ S'ðustu frognir t'rá Aix-Les- Bains herma, að samkomulag hafi Svo að segja náðst með full- trúum frönsku stjórnarinnar og leiðtoga Istiqlalflokksins um íramtðar stjórnskipulag franska Marokkó. Edgar Faure tjáði fréttamönnum í kvöld, að enn hefði ekki verið gengið frá öH.um smáatriðum, en viðræðurnar hefðu borið mjög góðan árangur. Fulltrúafimdur Norræna félagsins hefst hér i das; Séífjr af fiiHfrúum frá öSlum Norðurlsndum FULLTRÚAFUNDUR allra Norrænu félaganna á Norðurlöndum verður að þessu sinni haldinn hér í Reykjavík. Hefst hann í Alþingishúsinu í dag kl. 9.30 f. h. Sækja hann fulltrúar frá Norrænu félögunum í öllum löndunum. Munu sitja hann milli 20—30 manns. □- -□ FORMENN NORRÆNU FÉLAGANNA Meðal fulltrúa á fundinum verða formenn félaganna, þeir C. V. Bramsnæs, fyrrv. þjóð- bankastjóri frá Danmörku, Henn- ing Bödtker, stjórnarráðunautur frá Noregi, Reino Oittinen, for- stjóri frá Finnlandi, Nils Goude, forstjóri frá Svíþjóð og Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, form. Norræna félagsins, frá íslandi. Fundurinn mun standa í tvo daga, föstudag og laugardag. —• Verða þar rædd mörg mál er varða samskipti Norðurlanda og starfsemi Norrænu félaganna. 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.