Morgunblaðið - 26.08.1955, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 26. ágúst 1955
Læknirinn og ástin hans
EFTIR JAMES HILTON
Uaanaua
Framhaldssagan 11
Fljótt á litið virtist þetta fy-
irmyndar hjónaband Jessica
hafði endurskipulagt allt það í lífi
Davíðs, sem hægt var að endur-
skipuleggja og"húsið við hornið
á Shawgate var keypt fyrir pen-
inga hennar. Og þó að Davíð
þættist hafa alla stjórn og yfir-
umsjón með því, sem eitthvað
snerti starf hans og stöðu, þá
voru þó leynileg afskipti hennar
tíðari og meiri, en hann gat látið
sér detta í hug. i
Hún sneri tapi í gróða og Davíð
hældi henni fyrir, án þess þó
að vera sannfærður um, að það
borgaði sig.
Föstudagsmorguninn rann upp,
aðeins nokkrum stunduin eftir að
Davíð hafði lokið við þýzku
kennslubókina, í rúmi sínu.
Dagurinn virtist ætla að verða
bjartur og fagur og þegar lestin
lagði af stað frá Calderbury,
íeygðu dómkirkjuturnarnir tveir
sig upp úr þokubeltinu, sem lá
yfir bænum.
Davíð fletti í sundur dagblað-
inu sínu og byrjaði að lesa, en
fljótlega hvörfluðu augu hans frá
því að hann rendi þeim yfir engin
þar sem kvikfénaðurinn stóð á
beit, en leit undrandi öðru hvoru
á gufumökkinn, sem hnyklaðist
snjóhvítur frá eimlestinni, upp
í lognvært loftið. |
Hið taktfasta hljóðfall vagn-
hjólanna virtist einhvern veginn
breytast og verða að þýzkum
orðum í eyrum hans, orðum sem
hann hlaut að hafa lesið í þýzku
kennslubókinni, nóttina áður: j
Noch erkannt und sehr gering .
Unser Herr auf der Erde ging. t
Lissington . . . Stamford Magna,
. . . Pumhrey . . . Marsland Junc- '
tion. |
Þar skipti Davíð um lest og
varð nú að bíða í tíu mínútur, I
en loks kom síðari lestin, sem
átti aðeins að fara til Creston
og Sandmouth.
Litli læknirinn fann sér klefa,
kom auga á einhvern, sem hann
kannaðist lítillega við, kinkaði
til hans kolli í kveðjuskyni og
settist aftur niður með dagblaðið
sitt fyrir framan sig.
Hraðlestin fór nú um hálfa
mílu til baka, sömu leið og hún'
hafði komið, en sveigði svo til
hliðar á næstu brautarmótum.
Þegar til Sandmouth kom, hélt
Davíð tafarlaust til Promenade
og beygði inn í hliðargötuna, þar
sem hið klunnalega matsöluhús
stóð.
Hann hafði verið hálf kvíða-
fullur út af þessari heimsókn og'
lét hana sitja fyrir öllu öðru, til
þess að Ijúka henni sem fyrst.
Veitingakonan vísaði honum
inn í stofu á fyrstu hæð, með
gluggum, sem sneru út að göt-
unni.
Hann hafði ekki nefnt stöðu
sina neitt á nafn, þegar hann
kom með stúlkuna hingað, í fyrri 1
vikunni og nú áleit hann það lang
einfaldast, að láta líta út sem eitt
hvert leynilegt samband væri
milli sín og stúlkunnar.
Hann varð dálítið vandræða-
legur, en gerði þó ekki neina at-
hugasemd við það, þegar veitinga
konan sagði:
„Ég held að unga frúin yðar sé
ekki alveg heilbrigð. Kannske
er það bara handleggurinn. Ég
myndi fara með hana til læknis,
ef ég væri í yðar sporum“.
Andartaki síðar fór hann inn
til hennar, til þess að vita, hvort
orð konunnar hefðu við nokkuð
að styðjast.
Stúlkan virtist mikið rórri og
andlega heiUi og hún heilsaði m....
honum glaðlega, en úlnliðurinn
var enn þá mikið bólginn og
sýnilega mjög sár, sem ekki var
heldur neitt undarlegt eftir alla
þá vanrækslu, er hún hafði sýnt
honum undanfarið.
Hún sagði hreinskilnislega og
hiklaust, að þetta væri henni
sjálfri að kenna, þar sem hún
hefði ekki hlýtt þeim fyrirmæl-
um, sem hann gaf henni í Calder-
bury. Og nú yrðu afleiðingarnar
þær, að beinbrotið gréri mjög
seint og illa.
Nú yrði hún að gera svo vel
og ganga með hendina í fatli,
vikum og jafnvel mánuðum sam-
an.
Hún kinkaði kolli, þegar hún
hafði talað út og samþykkti bæði
aðstöðu sína og aðfinnslur hans.
Davíð gat ekki varist brosi og
spurði alúðlega: „Kunnið þér vel
við yður hérna?“
Hún kinkaði kolli og brosti til
hans á móti.
Já, hún var áreiðanlega glað-
ari og léttlyndari en áður og það
var mjög mikilvægt, mikilvægara
en úlnliðurinn og önnur líkam-
leg meiðsli.
„Ég held að þér hefðuð mjög
gott af því, að dvelja hérna í eina
viku enn. Leiðist yður nokkuð
hérna?“
„Nei“.
„Hafið þér ekki eignast neinn
kunnigja hér?“
j,Jú, litli drengurinn, sem
veitingakonan á, er orðinn mik-
ill kunningi minn. Við förum
stundmu saman á skemmtigöng-
ur“.
„Ágætt. Gengur yður vel að
skilja hann?“
„Hann talar ekki mikið. Og ég j
er að læra ensku á bók. Ég hafði I
aldrei tíma til þess áður“. |
Fram að þessu hafði hann talað
við hana á þýzku, en nú sagði
hann á ensku: „Mér veitir víst
heldur ekki af því, að rifja ofur
lítið upp kunnáttu mína í þýzku.
En segið mér eitt. Hafið þér gam-
an að börnum?“ |
„Já, mjög gaman“. '
„Ég á lítinn dreng, hann er níu
ára gamall. Hann myndi hafði
mjög gaman af því, að koma með
mér til Sandmouth, en ég hef
bara aldrei vitað, hvar ég gæti
haft hann á meðan ég fer í sjúkra
vitjanirnar. Ef ég kæmi nú með
hann í næstu viku, mynduð þér
þá ekki vilja gæta hans fyrir
mig í nokkrar klukkustundir?“
„Jú, með mestu ánægju“. j
„En ég er bara hræddur um,
að hann sé ekki alveg venjulegur
lítill drengur". j
„Nú, hvernig þá?“ I
„Hann er íremur taugaveikl-
aður og viðkvæmur — og stund-
um talsvert erfiður viðureignar.
— Haldið þér, að þér skiljið hvað
ég á við’“
„Mér stendur alveg á sama um
það. Mig langar bara til þess að
þér komið með hann. Viljið þér
ekki gera það "yrir raig?“
Þetta var bara skyndileg hug-
mynd og ef hann hefði hugsað
sig tvisvar um, þá er ckki víst,
að hann hefði nokkurn +íma látið
hana uppi. því það var alltaf
möguleiki á því, að Jessica myndi
mótmæla og hann sneiddi alít af
hjá öllum deilum við hana.
J
Húsbyggjendur
Iðnaðarmenn
AGO-límið
rtrn
■'
komið aftur
Takmarkaðar birgðir.
Leðurverzlun Magniisar Víglundssonar h.í.
Garðastræti 37 — sími 5668.
Uppboð
á bifreiðinni G 1004, sem er 4 manna fólksbifreið
af Armstrong gerð, árgangur 1946, fer fram við lög-
reglustöðina í Hafnarfirði priðjudag 30. ágúst n. k.
kl. 1 e. h.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Austurbæjarútibii
bankans verður lokað laugardaginn
27. ágúst.
oCandó lanhi Íandí
COREX
Einangrunarkorkur
nýkominn.
ÓLAFUR GÍSLASON & Co. h.t.
Hafnarstræti 10—12 — Sími 81370
Þér eigið
að fríkka við þvottinn
í húð heilbrigðs æskfólks er efni, sem
nefnt er Lecithin. Færir það hörundinu feg
urð og mýkt. Þetta efni er líka í Leciton-
sápunni. Hún freyðir vel, og er froðan létt
og geðfeld og ilmur hennar þægilegur. —
Leciton-sápcn er hvort tveggja í senn sápa
og smyrsl, sem hjálpar hörundinu til að
halda svip æsku og íegurðar.
Byggingaverkfræðingur
eða iðnfræðingur, óskast til starfa hjá traustu fyrir-
tæki. — Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins
merkt: „Verkfræði —624“.
HEILDSÖLUBIRGÐIR
I. Brynjólfsson & Kvaran