Morgunblaðið - 02.09.1955, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.09.1955, Blaðsíða 1
16 síður 42. árgangur 198. tbl. — Föstudagur 2. september 1955 Prentsmiðja Morgunblaðsin* Þessi mynd var tekin af menntamálaráðherrum Norðurlanda og forsætisráðherra íslands er fundur þeirra hófst í Alþingishúsinu í gærmorgun. Á henni sjást talið frá vinstri: Birger Bergerson menntamálaráðherra Norðmanna, Terttu Saalasti menntamálaráð- herra Finna, Ólafur Thors forsætisráðherra Islands, Julius Bomholt menntamálaráðherra Dana og ívar Persson menntamálaráðherra Svía. _ (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Forsætisrábherra setti fundinn f Um 50 manns sitja 6. fund mennta málaráðherra Norðurlanda Harðnandi átök við Gaza Horfur ískyggilegar London í gærkvöldi. 1' SKYGGILEGT ástand hefur skapazt á landamærum ísra- els og Egyptalands, eftir að her- sveit frá ísrael réðist í gærkvöldi 7 km leið inn á landssvæði Egyptalands og sprengdi í loft upp egypzku lögreglustöðina í Khanyunis. Engar áreiðanlegar tölur um manntjón Egypta eru fyrir hendi. Edward Lawson sendiherra Bandaríkjanna í ísrael, gekk í dag á fund utanríkisráðherrans í ísrael, Moshe Sharett. Fundinn bar svo brátt að að jafnvel nán- ustu samstarfsmenn ráðherrans vissu ekki hvað til stóð og gátu því ekki verið viðstaddir á fund- inum. Stjórnin í ísrael lýsti yfir því í kvöld, að hún ætli að verða við tilmælum Burns ofursta, fulltrúa S.Þ. um að hætta hernaðarað- gerðum á Gazasvæðinu, ef Egypt- ar fallast einnig á tilmælin. — Burns bíður nú eftir svari Egypta. FYRIR ÖRYGGISRÁÐIÐ Meðal stjórnmálamanna í Lon- don er litið svo á að horfurnar á Gaza svæðinu séu svo ískyggi- legar, að ekki geti dregizt leng- ur að leggja máiið fyrir öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna. / gær i forföllum Bjarna Bene- diktssonar menntamálaráðherra l^EGAR 6. menntamálaráðherrafundur Norðurlanda var settur í . Alþingishúsinu í gær mátti heita, að salur Neðri deildar og í sameinaðs Alþingis væri fullsetinn fulltrúum hinna fimm norrænu þjóða, sem fundinn sækja. Þar hljómuðu tungumál allra Norður- | landaþjóðanna og fyrir utan húsið blöktu krossfánar þeirra við hún. í forföllum Bjarna Benediktssonar menntamálaráðherra, sem hefur undanfarna daga verið veikur af lungnabólgu, setti Ólafur Thors forsætisráðherra fundinn og bauð fulltrúa velkomna. Hann kvað Islendingum það hið mesta fagnaðarefni að fá heimsókn svo margra égætra fulltrúa frændþjóða sinna, sem hér væru samankomnir. Lét hann þá ósk í ljós, að árangur af fundinum mætti verða sem beztur. Fól hann síðan dr. Sigurði Nordal sendiherra íslands í Kaupmannahöfn, stjórn fundarins af íslands hálfu í forföllum menntamálaráðherra, sem nú er á batavegi. j DAGSKRÁ FUNDARINS Á dagskrá menntamálaráðherra fundarins eru 9 mál, þar á meðal Skýrslur um menningarmál frá menntamáiaráðherrum allra landanna. Er þar um að ræða yfirlit yfir þróunina á sviði skóla- mála og menningarmála í hinum einstöku löndum síðan að seinasti menntamáiaráðherrafundur var haldinn. Las dr. Sigurður Nor- dal ræðu Bjarna Benediktssonar í þessu máli. Þá hefur dr. Broddi Jóhannesson framsögu sérfræð- inganefndar menningarmála- nefndarinnar um ýmis uppeldis- og fræðslumál á Norðurlöndum. Júlíus Bomholt ráðherra hefur framsögu um skólakerfið. Vil- hjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri Og dr. Þórður Eyjólfsson hafa framsögu um lestrarefni ung- linga. Magnús Gíslason náms- Stjóri er framsögumaður fyrir norrænu upplýsingariti um menn ingarmál og rætt verður um mál frá menningarmálanefndinni. Frh. á bls. 2. Edward Lawson áður sendiherra U.S.A. á íslandi, nú í ísrael. Dr. Sigurður Nordal sendiherra íslands í Kaupmannahöfn í for- setastól á menntamálaráðherra- fundinum. . er kosninn“ JERUSALEM 1. sept.: — Frá því var skýrt í útvarp frá stöð einni i Sýrlandi að tíminn væri nú kom inn og að Arabaríkin myndu senn hefja sameiginlcgan hernað gegn Israel. „Verið er að draga saman her- lið Araha á landamærunum og brátt mun það leggja að velli ríki Zionista“ sagði útvarpið. Arabar vilja Israelsriki feigt ÁRÁSIN á Khanyunis er hin al- varlegasta sem gerð hefir verið á Gazasvæðinu frá því að vopna- hlé var samið í Palestínustríðinu árið 1949. Vandræðin á Gazasvæðinu und- anfarið stafa af því, að mörg mál voru látin standa óleyst er vopnahléið var samið 1949. Israels- menn gerðu þá kröfu til þess að fá Gazasvæðið, sem er 200 ferkíló- metrar að flatarmáli, en Egyptar fengu þetta svæði með vopna- hléssamningunum. Á svæðinu eru um 900 þús. arabiskir flóttamenn frá Palestínu. Er vopnahléssamn- ingurinn var gerður lofuðu Israels- menn að greiða þessum flótta mönnum, sem flosnað höfðu upp frá jörðum sínum í Palestínu, skaðabætur, en þetta hefir ekki verið efnt. Þriðja ágreiningsmálið er milli Jordanbúa og Israelsmanna, en Jordanbúar krefjast þess að fá hina helgu borg Jerúsalem alla í sinn hlut, en ísraelsmenn hafa hana hálfa. Vandinn á því að ná sáttum milli Israelsmanna og Araba er mikill og stafar af því, að Arabar óttast, að Israelsriki verði voldugt og geti ráðið kosti þeirra. Israels- menn teija fyrir sitt leyti að þeim sé nauðsyn á að hræða Arabarík- in svo að þau láti þá í friði, en ísraelsmenn þurfa fyrst og fremst frið til þess að geta byggt upp hið nýja ríki sitt. En í stað þess að rækta jörðina efla þeir nú her sinn. Dulles reyndi fyrir nokkrum dögum að skakka leikinn í erjum Israelsmanna og Araba með því 1) að bjóðast til að taka þátt í alþjóðaláni, sem veitt yrði Israels- mönnum, svo að þeir geti greitt flóttamönnunum skaðabætur og 2) að bjóðast til að ábyrgjast meö öðrum þjóðum landamæri Israels og nærliggjandi Arabaríkja. Bret- ar og Frakkar styðja þessa til- lögu, en bæði Egyptar og ísraels- menn hafa lýst yfir því að þeir verði að athuga málið. 31 Egypti og 30 ísraelsmenn hafa fallið í átökunum við Gaza undanfarna 9 daga. Veldi Peróns „aldrei meira" BUENOS AIRES 1. sept.: Veldi Peróns er talið vera meira nú, eftir skollaleikinn í gær, heldur en nokkru sinni áður. Kunnugir telja, að leikurinn í gær, hafi verið lengi og vandlega undir- búinn. I hinni miklu þrumuræðu, sem Perón flutti af svöium bleiku hallarinnar, er hann skýrði frá því, að hann ætlaði að vera for- seti áfram, hafði hann í hót- unum við alla, sem reyna kynnu síðar að steypa honum af stóli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.