Morgunblaðið - 02.09.1955, Síða 16
VeðurúlSif í dag:
SV kaldi. — Smáikúrir.
198. tbl. — Föstudagur 2. scptember 1955
Ræða
menntamálaráðherra. Sjá bls. 9.
Siómenn ganga af möri
um Keflavíkurbátum
Þar sem verkfallið stöðvar síldveiðar .
Iskyggiiegar horfur með beitu á verðfíðinni
Keflavík, 1. sept.
LLÖMURLEGT ernúað litast um í höfninni hér, en síld-
1 arflotinn liggur allur bundinn við bryggju vegna verkfallsins.
Ganga sjómenn um í góða veðrinu með hendur í vösum og hafa
ekkert fyrir stafni. Eiga þeir ekki heitari ósk en að komast út á
miðin, enda berast þeim miklar síldarfréttir frá Grindavíkurbátum.
SJÓMENN GANGA AF
SKIPUNUM
Er svo komið að þegar verk-
fallið leysist munu márgir bátar
ekki komast út þar eð sjómenn
hafa gengið af þeim og í land-
vinnu, sem er nóg fyrir hendi.
Af einum bátnum munu sjö menn
hafa hætt, er ekki þoldu lengur
aðgerðarleysið.
ABEINS 3000 TUNNUR
FRYSTAR
Hér er aðeins búið að frysta
rúmlega 3000 tunnur, en til ver-
tíðarinnar þarf allt að 12 þús.
tunnur. Er áætlað að beituþörf
eins báts yfir vertíðina sé um
300 tunnur. Er ástandið því orðið
allískyggilegt, þar sem vart er
hægt að stunda lengur reknetja-
veiðar en þennan mánuð. I salt
er aðeins komið um 300 tunnur.
í kvöld er fundur hjá deilu-
aðilum og eru menn að vona að
eitthvað samkomulag muni nást
á þeim fundi.
Hér landaði Geir frá Reykja-
vík 140 tunnum og var síldin,
sem var mjög falleg, öll flutt til
ReykjavíkUr. — I. G.
Hörmulegt slys
Fimm ára
telpa hiður bana
UM SEXLEYTID í gær vHði það
hörmuiega slys til, a® fímm ára
gömul telpa, Sólveig Ósk Björns-
dóttir, Laugarneskamp ÍS, varð
fyrir fcifreið og beið barra.
Slysið varð á Laagaraesvegi
á móts við húsið nr. S7 Vörukif-
reið var á leið norð-aastur göt-
una, er litla stúlkan hljóp út á
hana. Lenti hún i hlið bifreiðar-
innar og varð undir hægra aftur-
hjóii hennar. Lézt hún sam-
stundis. |
Sólveig Ósk var dóttir Björns
Jónssonar, starfsmanns í Héðni,
og konu hans, Margrétar Hall-j
grímsdóttur.
Sjónarvottar að slysi þessu, eru
vinsamlega beðnir um a.ð hafa j
samband við rannsóknarlögregl-j
Yngstu nemendursiir hefja
skólagöngu á máiiudaginn
ínnriíun veröur á fösludaginn
UM þessi mánaðamót hefja barnaskólarnir í Reykjavik starfsemi
sína. Á föstudaginn verður skrásetning, en ú mánudag hefst
kennsla í þremur yngstu bekkjardeildum, það er 7, 8 og 9 ára
bekkjum. Munu þá samtals um 3200 börn hefja skólagöngu. En
kennsla eldri bekkjardeilda, 10,. 11 og 12 ára hefst ekki fyrr en um
riæstu mánaðamót.
livasEiir ninydö
AMERÍSKI tugþrautarmeistar-
inn Robert Mathias kemur hing-
j að til lands n.k. laugardag, og
' flytur fyrirlestra um íþróttamál
og sýnir kennslu- og keppnis-
kvikmyndir.
Þegar pokinn er flotinn upp, iætur „múkkinn“ ekki á sér standa,
Frystihúsin á ísafirði
yfirfull af karfa
ísafirði, 1. september.
STÖÐUG karfavinnsla hefur verið hér hjá frystihúsunum frá
því í byrjun maí og þar til nú, að þau hafa orðið að hætta
móttöku, þar sem frystigeymslur húsanna eru orðnar fullar.
YNGSTU BÖRNIN
Engin breyting verður á skóla-
hverfum í haust. Eiga öll börn
fædd 1948, sem ekki hafa verið
innrituð, að mæta til skrásetn-
ingar á föstudaginn hvert í sín-
um skóla, og einnig þau börn
sem flytjast milli skóla, eða flutzt
hafa til Reykjavíkur.
AUSTURBÆJARSKÓLINN
STÆRSTUR
Áætlað er að 6827 nemendur
muni ganga í barnaskóla bæjar-
ins í vetur. í Miðbæjarskólanum
verða 952 börn, í Austurbæjar
skólanum 1767, en þar af munu
um 200 börn úr Hlíðunum sækja
Eskihlíðarskólann. í Laugarnes
skólanum verða 1702 nemendur,
en þar af munu væntanlega um
400 börn úr smáíbúðahverfinu
sækja Háagerðisskólann. í Mela-
skóia verða 1506 börn og í Lang-
holtsskóla 900.
Áformað er, að Eskihlíðar og
Háagerðisskólarnir verði sjálf-
stæðir skólar og hafa skólastjóra-
stöður þeirra verið auglýstar
lausar til umsóknar.
FJÖLGAÐ KENNURUM
Þar sem barnaskólanemendum
mun fjölga milli 3 og 400 er nauð-
synlegt að fjölga nokkuð kenn-
araliðinu. Munu nú verða ráðnir
rúmlega 10 nýir kennarar til
barnaskólanna í Reykjavík.
Elzti barnaskólinn í Reykjavík
hefur nú verið endurbættur
mjög. Var hann málaður að utan-
verðu í sambandi við vörusýn-
inguna og nú er verið að leggja
síðustu hönd á innanhúsmáln-
ingu hans. Eftir það verður skól-
inn vistlegri en nokkru sinni áð-
ur. Bæjarbúar eru almennt mjög
ánægðir með hinn bjarta og
skemmtilega nýja lit skólahúss-
ins.
Fyrirleslur
Sfangerups
verður í Háskélanum
í dag kl. 5.30
DR. PIIIL. HAKON Stangerup
flytur í dag fyririestur um lífs-
skoðanir og menningarhugsjónir
UNNIÐ AÐ VELAÞRIFUM
Hafa frystihúsin því hætt mót-
töku á karfa fyrst um sinn, eða
þar til afskipun hefur farið fram.
Er nú unnið að vélarþrifum og
endurbótum í öllum húsunum. í
sumar hafa frystihúsin bæði unn-
ið afla heimaskipanna og einnig
aðkomuskipa sem lagt hafa afla
sinn hér á land.
SÆMILEG REKNETAVEIÐI
Nokkur reknetaveiði hefur
verið hér í djúpinu í sumar og
þegar búið að frysta um 1200
tunnur og salta um 500 tunnur
af reknetasíld. Aflahæstur rek-
netabátanna er Ver og er hann
kominn með rúmlega 1000 tunn-
ur.
GÓÐ RÆKJUVEIÐI
Agæt rækjuveiði hefur einnig
verið í Djúpinu í sumar. Stunda
nú 4 bátar rækjuveiðar. Má hver
bátur veiða um 1200 kg. á dag.
Við rækjuvinnsiuna vinna nú um
90—100 manns og getur sá fólks-
fjöldi unnið um 5 lestir af rækju
á dag.
MYNDIRNAR
Myndirnar tvær, sem fylgja
hér með, voru teknar um borð
í togaranum ísborgu frá ísa-
firði við Grænland í sumar.
Voru þær tcknar af trollinu,
þegar veiðst hafði í það 16
pokar (40—45) lestir), en það
er með stærstu „hölum“, sena
nást. Ljósmyndirnar tók mat-
sveinninn um borð í ísborgu,
Sigurgeir Halldórsson.
— Jón Páll.
Síðasti pokinn kominn inn fyrir.
Dr. Ilakon Stangerup.
í dönskum bókmenntum á síð-
ustu hundrað árum. Fyrirlestur-
inn sem nefnist „Det moderne
menneske i dansk litteratur" er
fluttur á vegum Háskóla íslands.
Hefst hann kl. 5.30 í dag og er
öllum heimill aðgangur. — Eru
menn hvattir til að hlýða á fyrir-
lesturinn. Stangerup er prýðileg-
ur fyrirlesari og efnið er bæði
fróðlegt og skemmtilegt.
Fyrsta kvikmyndasýningin og
fyrirlesturinn verður á laugar-
dag kl. 4 e. h. í Melaskólanum.
Fyrir hádegi á sunnudag, kl. 10,30
—12,00 heldur Mathias svo sýni-
kennslu á íþróttavellinum. KI. 2
e. h. á sunnudag verður svo kvik-
myndasýning og. fyrirlestur í
Melaskólanum. Er hann sérstak-
lega fyrir unglinga. Mathias fer
héðan aftur á þriðjudag.
Ókeypis aðgangur verður að
sýningum þessum.
Marga mun fýsa að sjá og
heyra Robert Mathias, en hann
var ósigrandi í tugþraut á meðan
hann keppti í þeirri grein. Hann
varð m. a. tvívegis Ólympíumeist
ari og einnig var hann heims-
methafi. Eins og menn muna
hefur Mathias keppt hér á íþrótta
vellinum.
RANNSÓKNARLÖGR.EGLAN
hefir í plöggum sínum röndótt-
an karlmannsjakka. Að auki hef-
ir hún bláan karlmar.nsfrakka í
vörzlum sínum, en lögreglan veit
ekki hver er eigandi að fötum
þessum. — Er sá, sern við þau
kannast, vinsamlegast bcðinn að
vitja beirra til rannsóknarlög-
reglunnar. I
Bókasýningin svo stór
að erfitt er að kynnast
henni við eina heimsókn
ABÓKASÝNINGUNNI í Listamannaskálanum hefur fólk mestaa
áhuga á þessum bókaflokkum: Verk hinna beztu dönsku rit-
höfunda, sem ekki hafa fengizt hér áður, t. d. bækur Kierkegaarda
o. fl. Þá eru það húsmæðrabækur, matreiðsla og uppeldi, sem hópur
fólks er stöðugt að skoða, þá koma fagbækurnar og bækur sera
kenna fólki aðferðir við smíði, múrhúðun og aðra heimavinnu og
loks eru það listaverkabækurnar. j
MIKIL AÐSÓKN . bækur margra ungra og upprenn-
Mikil aðsókn var að bókasýn-j andi danskra skálda, sem ena
ingunni strax í gær. Munu þá eru Utt kunn hér á landi.
um 600 manns hafa séð hana svo \ Bókasýningin er opin á hverj-
að aðsóknin er komin um eða um degi frá kl. 10 árdegis til kl.
yfir þúsundið. ^ síðdegis.
FÓLK UNIR SER LENGI
VIÐ AÐ FLETTA
BÓKUNUM
Það eina, sem fólk virðist
finna að sýningunni til þessa
er, að hún er svo stór og yfir-
gripsmikil, að ómögulegt virðist
að skoða hana alla við eina heim-
sókn. Menn fletta bókunum og er
þá auðveldast að fá yfirlit yfir
efni hinna fræðandi bóka, en
skáldsögurnar er erfitt að kynna
sér á svo skömmum tíma, og ljóð-
in jafnvel líka, en þarna eru
Verkfallið óleyst ;
SAMNINGAFUNDUR í verk-
falli verkakvennanna á Suð-
urnesjum var haldinn í Alþing
ishúsinu í gærdag. Náðist eng
inn árangur á þeim fundi. Aft
ur var fundur boðaður kl. 9 I
gærkvöldi og var búizt við að
hann myndi standa í alla nótt,
Var ekkert að frétta, þegar
blaðið fór í prentun á mið-
nættL