Morgunblaðið - 30.10.1955, Side 16
Veðurúilif í dag:
Allhvass austan og suðaustan.
— Rigning öðru hvoru.
248. tbl. — Sunnudagur 30. október 1955
Reykjavíkurbréf
á bls. I,
Langt komlh stofnim fyrirtækis
er veitir öryrkjum í bænum vinnu
kíki og bær styrkja stofnun þessa
ÞAÐ ER ekki langt undan landi nú, að til starfa taki fyrirtæki
hér í Reykjavík, sem veita mun atvinnu öryrkjum og öðru
fólki með skerta vinnugetu. Hefur ríkissjóður og bæjarsjóður
veitt fyrirtækinu mikla fjárhagslega aðstoð.
HÚSNÆÐI VH) BERGÞÓRU- ^
GÖTU
Þeir, sem eru aðilar að stofnun
fyrirtækisins eru þau frú Vikt-
oria Bjarnadóttir og Geir Stef-
énsson heildsali. Hafa þau tryggt
sér húsnæði fyrir væntanlegar
vinnustofur sínar í verksmiðju-
húsnæði Sunnu h.f., Bergþóru-
götu 3.
ÞÁTTUR RÍKIS OG BÆJAR
Á fundi bæjarráð, er hald-
inn var á föstudaginn, kom
mál þetta fyrir. Félagsmála-
ráðuneytið, sem hefur stjórn
Erfðafjársjóðs með höndum,
hefur veitt þessu fyrirtæki
rúmlega 400.000 króna stofn-
lán. En af ráðuneytisins hálfu
var það skilyrði sett, að bæj-
arsjóður gengi í ábyrgð til
greiðslu á helmingi stofnláns-
ins, sem er kr. 202.000.00.
Þetta samþykkti bæjarráð, og
mun bærinn veita aðra fyrir-
greiðslu til stofnunarinnar, sem
verður því skilyrði bundin, að ör-
yrkjar í Reykjavík, gangi fyrir
um vinnu.
LÉTTUR IÐNAÐUR
Sem fyrr segir, mun þess vænt
anlega ekki langt að bíða, að
fyrirtækið, sem mun hafa með
liöndum létta iðnframleiðslu, geti
tekið til starfa.
Ðæmdur í 74 þús.
kr. sekt.
PATREKSFIRÐI, 29. okt.: —
Sýslumaðurinn hér, Jóhann
Skaftason, dæmdi í dag skipstjór
ann á brezka togaranum Pataudi
frá Grimsby, í 74,000 króna sekt.
til landhelgissjóðs, gerði afla og
veiðarfæri upptæk til sama sjóðs,
fyrir að hafa verið að veiðum
innan fiskveiðitakmarkanna.
Við réttarhöldin lögðu varð-
skipsmenn fram staðarákvarðan-
ir. Hafði togarinn verið að veið-
um 0,9 sjóm. fyrir innan takmörk-
in og stefndi hann frá landi, er
liann nam staðar. Skjóta varð að
skipinu aðvörunarskoti, lausu
skoti, áður en skipstjórinn stöðv-
aði skip sitt.
Skipstjóri áfrýjaði dómi þess-
um til Hæstaréttar. Sett var trygg
ing til greiðslu dómsektar, en síð-
an hélt togarinn út aftur á miðin.
4 — Karl.
Barnaheimili Sumar
gjafar opnuð aflur
BARNAVINAFÉLAGIÐ Sumar-
gjöf mun opna barnaheimili sín
aftur á morgun. Foreldrar, sem
ekki geta látið börn sín mæta þá,
«;ttu að hafa tal af forstöðukonu
viðkomandi barnaheimilis.
764 tunnur
AKRANESI, 29. okt. — 10 bátar
koomu í dag með 764 tunnur síld-
ar. Aflahæstir voru Böðvar með
156, Ásbjörn 141 og Sigurfari 121.
Síldin var söltuð. — Fjórar trill-
ur voru á sjó og höfðu 500—600
kg. —O
★★ í GÆRDAG kynnti hinn
norski skipaeigandi Braathen, sér
nokkuð skógræktarmálin hér á
landi. Ræddi hann um þau góða
stund við Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóra, sem bauð Braathen
að skoða hina miklu skógræktar-
stöð í Fossvogi.
★★ Áður en Braathen kvaddi
Hákon, sagðist hann mundu gefa
10,000 norskar krónur, um 22800
ísl. kr. til eflingar skógræktinni
í landinu.
Hákon Bjarnason þakkaði
Braathen þessa stórhöfðinglegu
gjöf og þann hlýhug, sem hún
sýnir í garð íslands.
★★ Þegar Braathen kemur heim
til Osló mun hann afhenda
Bjarna Ásgeirssyni ambassador
þar, þessa álitlegu fjárhæð.
iki! fiskframleiðsla
á Pafreksfirði
PATREKSFIRÐI, 29. okt.: —
Fiskframleiðslan hér hefur verið
svo gífurleg í ár, en hún er nær
einvörðungu fiskur úr togurunum
Gylfa og Ólafi Jóhannssyni, að
frystihúsið er orðið yfirfullt.
í fyrra nam ársframleiðslan
40,000 kössum af flökum, en nú
er framleiðslan orðin 70.000. Má
þakka það hinum nýju aflasælu
Dhornmiðum, þar sem togararnir
hafa stundað karfaveiðar.
f gær var lokið við að losa
rúmlega 400 tonna afla togarans
Gylfa, er var á Dhornmiðum og
fékk fullfermi eftir vikuúthald.
í dag er Reykjavíkurtogarinn
Askur hér. Landar hann 30 tonn-
um af fiski en siglir síðan til
Þýzkalands. — Þá kom Hafnar-
fjarðartogarinn Röðull hingað í
dag, með lítilsháttar af fiski.
Hann hafði áður landað á Þing-
eyri og Bíldudal. — Karl.
Mœnusóttin
er í rénun
FI M M vikur eru liðnar
frá því mænusóttar-
faraldurinn gaus upp hér í
Reykjavík. — Hefur farald-
urinn nú náð hámarki og
að því er borgarlæknir tel-
ur í rénun. í þeirri viku
sem nú var að líða veiktust
14 af veikinni og af þeim
lamaðist einn. Alls eru
sjúklingarnir í Reykjavík
120, þar af 38, sem lamazt
hafa.
Skýrsla skrifstofu borgar-
læknis er blaðinu barst í gær um
heilsufarið í bænum vikuna 16.
•22. okt. er svohljóðandi. —
Talan innan sviga er fyrri vika:
Kverkabólga .... .... 99 (119)
Kvefsótt .... 103 (116)
Iðrakvef .... 32 (38)
Hvotsótt ... . 1 (0)
Kveflungnabólga .... 8 (11)
Mænusótt . .. . 48 (39)
Skarlatssótt . . . . 1 (0)
Hlaupabóla 1 (4)
Ristill 1 (0)
Nokkrir íslendingar skoða framleiðslu í Steinman verksmiðjunni,
sem framleiðir efni í brýr og bryggjur.
! hetmboði í Bandaríkjumun.
Mb. Reynir kominn
AKRANESI, 29. okt.: — Fyrir
nokkru kom hingað vélbáturinn
Reynir, en hingað kemur hann
frá Svíþjóð, þar sem gagngerð
viðgerð fór fram á honum. Hann
er 74 lestir að stærð og er sem
nýr eftir viðgerðina. Er hann með
nýtt stefni, nýja yfirbyggingu og
nýja June-Munktel vél, 270 hest-
afla.
Helgi Ibsen sigldi bátnum heim
og verður hann skipstjóri á hon-
um í vetur. — Oddur.
9 Islendingar
verksmiðjur og verzlanir
NÝLEGA eru komnir heim úr ferð til Bandaríkjanna níu ís-
lendingar, sem voru þar í kynningarferð í boði bandarísku
stjór.narinnar. í förinni voru Ingólfur Jónsson ráðherra og ýmsir
fulltrúar iðnaðar og verzlunar hér á landi. Heimsóttu þeir mik-
inn fjölda af verksmiðjum og verzlunum, einnig vegagerðir, hafn-
argerðir og fjölda verklegra framkvæmda.
ÞATTTAKENDUR I FORINNI
Þeir sem voru í ferðinni voru:
Ingólfur Jónsson iðnaðar- og við-
skiptamálaráðherra, Björgvin
Frederiksen form. Landssam-
bands iðnaðarmanna, Eggert
Kristjánsson formaður Verzlunar
ráðs, Eniil Jónsson alþingismað-
ur, Erlendur Einarsson forstjóri
I SÍS, Halldór Ásgrímsson alþing-
1 ismaður, Kjartan Thors formað-
ur Vinnuveitendasambandsins,
Pétur Ottesen alþingismaður og
Sveinn Valfells varaformaður
Félags íslenzkra iðnrekenda
IIEIMSÓTTU ÝMSA STAÐI
Þeir dvöldust aðallega
í austurhluta landsins í New
York, Boston, Filadelfíu og höfuð
borginni Washington. Þá fóru
Verður nýtt Verzlunarskólahús
byggt á gömlu lóðinni eða
leigulóð austan Stakkahlíðar
ÞAÐ er nú orðið mjög aðkallandi fyrir Verzlunarskólann að bæta
húsakost sinn og auka. Nú eru liðin 24 ár síðan skólinn fluttist
í húsið við Grundarstíg. Þegar skólinn fluttist þangað voru nem-
endur um 120, en eru nú um 330 og verða margir nemendur auk
þess frá að hverfa. Skýrir Hjörtur Jónsson formaður skólanefndar
nokkuð frá byggingamálum skólans í Nýjum tíðindum í sambandi
við 50 ára afmæli hans.
STARF NEFNDARINNAR
Fyrir nokkrum árum var skip-
uð nefnd til þess að athuga hent-
ugan stað fyrir nýtt skólahús. Til
greina komu lóð við Melatorg,
lóð í Klambratúni og svo núver-
andi lóð skólans við Grundar-
stíg. Niðurstöður nefndarinnar
urðu þó ekki aðrar og þannig
óráðið hvar skólahúsið ætti að
rísa af grunni. Tillögu uppdrætt-
ir hafa verið gerðir að nýbygg-
ingu á lóð skólans við Grundar-
stíg, þannig að jafnframt væri
hægt að nota gamla skólahúsið
um stundarsakir.
LÓÐIN VIÐ GRUNDARSTÍG
S.l. sumar keypti skólinn lóð-
ina nr. 18 við Grundarstíg, segir
Hjörtur Jónsson. En lega þessara
j lóða er slík, að mjög orkar tví-
mælis. hvernig skipuleggja skuli
byggingu skólahúss á þeim.
Það er tvennt sem nú kemur til
greina í húsbyggingamálum skól-
ans. Að ætla skólanum stað þar
j sem hann er nú eða að fá rúm-
góða lóð fyrir hann innan Stakka
I hlíðar.
I Við Grundarstíg er skólinn í
hjarta bæjarins. En til þess að
skólinn fengi nóg athafnasvæði
þyrfti hann að eignast tvær lóðir,
sem að skólalóðinni liggja, Hellu-
sund 3 og Þingholtsstræti 35.
Skal látið ósagt hvort þær fengj-
ust keyptar, en sjálfsagt að vera
á verði um það. Auðvitað yrði
þetta allkostnaðarsamt fyrir
hann.
AUÐVELDARA AÐ BYGGJA
Á LEIGULÓÐ
Hin leiðin er að fá lóð undir
skólahús hjá Reykjavíkurbæ. —•
Fylgja ýmsir kostir því að geta
byggt skólann á lóð, sem sér-
staklega er valinn í því skyni.
Yrði það einnig fjárhagslega
miklu auðveldara að geta byggt
skólann á leigulóð, því að þá
gæti skólinn selt núverandi eign-
arlóð sína og fengið þannig upp
í byggingarkostnað.
Að lokum segir Hjörtur, að það
megi ekki draga lengur að taka
ákvörðun um þetta. Nú þegar sé
jafnvel orðin þörf að minnsta
kosti á bráðabirgðahúsnæði.
flestir þeirra til Tennessee að
skoða hinar frægu virkjanir þar.
í Washington gengu þeir á
fund viðskiptamálaráðherrans
Sinclair Weeks og ræddu við
hann. Þeir ræddu einnig við leið-
toga í viðskiptamálum og fram-
leiðslu, verkalýðsleiðtoga, verk-
fræðinga og starfsmenn ríkisins
og kynntu sér hugmyndir þeirra
um framleiðslu, framleiðni og
skipan allra slíkra mála. Virðist
áherzlan, sem lögð er á afköstin
vera ríkjandi skoðun, ekki aðeins
atvinnurekenda, heldur einnig
verkalýðsins.
Meðal heimsókna til ein-
stakra staða, sem vöktu sér-
staka athygli nefndarmanna
má nefna D. B. Steinman verk
fræðifyrirtækið, sem er heims
frægt fyrir brúar- og bryggju
smíði, Walker Gordon búgarð-
inn, þar sem eru 2500 kýr og
aðbúnaður allur mjög full-
kominn, rannsóknarstofur
RCA, Harvard-háskóli, Fair-
less stálverksmiðjan, sem reist
var 1950—53, þar sem 6000
manns vinna og framleiða 6000
tonn af stáli á ári.
ÁNÆGBIR MEÐ FÖRINA
íslendingamir, sem með í för-
inni voru láta mjög vel af mót-
tökum öllum og skipulagningu
ferðarinnar. M. a. nutu þeir gest-
risni og fyrirgreiðslu Thor Thors
ambassadörs og Hannesar Kjart-
anssonar aðalræðismanns í New
York.
Almennor fundur
Sjálhiæðisfólks 1
í HafnarfirSi
HAFNARFIRÐI: — Annað
kvöld (mánudag 31. okt.) efna
Sjálfstæðisfélögin til almenns
fundar um landsmálin og
stjórnmálaviðhorfið. Fundur-
inn verður í Sjálfstæðishúsinu
og hefst kl. 8,30.
Meðal ræðumanna verða
Bjaml Benediktsson mennta-
málaráðherra og Ingólfur
Flygenring alþingismaður.
Þetta er fyrsti almenni fund
urinn, sem Sjálfstæðisfélögin
boða ti! á þessum vetri. Er allt
Sjálfstæðisfólk velkomið á
fundinn á meðan húsrúm leyf-
ir. — G JS.