Morgunblaðið - 26.11.1955, Page 7
Laugardagur 26. nov. 1955
MORGVNBLAÐIÐ
7
íhrif látiiiii
& B B
a mtmm
IV í S I, íöstudaginn 18. nóvember og í Alþýðublaðinu, sunnu-
daginn 20. nóvember, birtust auglýsingar frá Rafveítubúðinni
5 Hafnarfirði og eru menn með auglýsingu þessari hvattir til að
kaupa rafmagnstæki hið fyrsta þar sem birgðir Rafveitubúðar-
innar séu takmarkaðar, en næsta sending muni verða um 20%
dýrari vegna hækkaðs verðs á bátagjaideyri.
í tilefni af þessari auglýsingu og vegna þess orðróms, sem gengið
hefir um áhrif hækkunarinnar, óskar Landssamband, íslenzkra
útvegsmanna að birta eftirfarandi útreikninga, er sýna áhrif báta-
gjaldeyrishækkunarinnar á vöruverð í landinu.
Útreikningur, er sýnir áhrif hækkanar báíagjaldeyrisiss á vöru-
verð í landinu:
VÖRUR, SEM FLLTTAR ERU INN FRÁ S OG £ SVÆÖSNU:
Fyrir hækkunina: Eftir hækkunina:
Verð vöru í skipi í erl. höfn Tollar og sölusk. (30%+45% og . ... 100.00 100.00
sölusk. 7.7%) ... ca 60.00 ca 60:00
Áætlað flutningsgj. og vátrygging . . . . . . 10.00 10.00
Bátagjaldeyrisálag . ... 61.00 71.00
Kr. 231.00 241.00
Verzlunarálagning 50% .... 115.50 120.50
Kr. 346.50 361.50
Samkvæmt ofanrituðu nemur því hækkunin vegna álagshækk-
unar bátagjaldeyrisins, röskum 4% (4.35%).
VÖRUR, SEM FLUTTAR ERU INN FRÁ JAFNVTR®IS -
KAUPALÖNDUNUM:
Fyrir hækkunina: Eftir hækkunina:
Verð vöru í skipi í erl. höfn Tollar og sölusk. (30%+45% og .... 100.00 100.00
sölusk. 7.7%) . . . . 60.00 60:00
Áætlað flutningsgj. og vátrygging .. 10.00 10.00
Bátagjaldeyrisálag .. . . 26.00 36.00
Kr. 196.00 206.00
Verzlunarálagning 50% . ... 98.00 103.00'
Kr. 294.00 309.00
HÆKKUN 5%
Flestallar þær vörur, sem koma undir bátagjaldeyrisfyrirkomu-
lagið, eru í tollflokkum, sem eru hátt tollaðir. Rafmagnsheimilis-
tæki hafa hinsvegar 8% grunntoll og nemur því hækkunin. á þau
röskum 5% (5.25%) ef keypt er frá $ og £ löndunum, miðað við,
að kaupmenn leggi álag sitt líka á bátagjaldeyrishækkurnna.
Það er harla einkennilegt, að verzlun skuli leyfa sér að augiýsa
slíkar rangfærslur og þar með gera tilraun til þess að skapa anoúð
á því kerfi, sem framkvæmt hefir verið á undanförnum árum,
til þess að forða stöðvun á aðalundirstöðuatvinnuvegi landsmarma.
Mörgum mun einnig finnast það harla einkennilegt, að siík aug-
lýsing skuli birtast frá fyrirtæki, sem rekið er á vegurn Hafnar-
fjarðarbæjar, því afkoma þess bæjar, fer mikið eftir afkomu
sjávarútvegsins í landinu.
L. í. Ú. hefir farið fram á það við Rafveiíubúðina í Hafnarfirði,
að hún birti leiðréttingu á auglýsingu sinni, eða að öðrum kosti
vera lögsótt fyrir rangfærslur.
Reykjavík, 25. nóvember 1955
Landssamband íslenzkra útvegsn>a»na.
Fyrsta einvícpsskák
Friðriks og Pilniks
FYRSTA einvígisskák þeirra
Pilniks og Friðriks Ólafssonar
hófst í Þórskaffi í fyrrakvöld.
Kosið var um liti og kom upp
hlutur Pilniks að hafa hvítt í
fyrstu skákinni. Pilnik lék kóngs-
peði í fyrsta leik og Friðrik svar-
aði með Sikileyjarvörn. Þegar
búnir voru 13 leikir kom Pilnik
fram í áhorféndasalinn og var
hinn vígreifasti. Sagðist vera bú-
inn að endurbæta byrjunina. í
Gautaborg hefði hann leikið peði
til c4 og tapað, en nú færi ridd-
ari þangað. Og fjórum leikjum
seinna er riddarinn kominn til
c4 og virtist eiga mikið erindi
þangað. Hann bátt óeðlilega mik-
ið lið fyrir Friðrik í vörn og
hindraði að hann færi í sókn
kóngsmegin því það hefði kostað
peðstap á drottningarvæng.
Pilnik hélt svo frumkvæði all-
an tímann, opnaði f-línuna og
tvöfaldaði hrókana á henni, Frrð-
rik hafði ekki tapað neinu liði,
en staða hans var mjög erfið.
Allir töldu stöðu hans vonlausa
og sumir áhorfenda voru farnir
heim sannfærðir um hvermg fara
mundi. Við þetta bættist svo aS
Friðrik hafði eytt miklu meira
af umhugsunartkna sínum.
Ég hummaði fram af mér að
hringja fréttina til blaSsins; var
auk þes§ ekki kominn á siðustu
mínúturnar. Vel gat svo farið að
skákinni lyki á næstu mínútum.
Kunningi minn hxingdi í mig og
spurði um hvernig stæði og ég
sagði honum sem var að ég ætti
mér enga græna vort um að
Friðrik slyppi við tap. Þegar ég
kom inn aftur var riddsrinn
lagður af stað frá c4 i sóknina
kóngsmegin, en á meðan hafði
Friðrik tekizt að ná yfirráðum á
e-línunni, Árni Snævaxr kemúr
jtil mín: „Nú getur Friðrik leikið
hrók til e4“ og í þeim töhiðu orð-
um kemur sendiboðinn með leik-
inn hrókur e4, og Pilnik neydd-
1 ist til að gera alvöru úr hót-
Frh. á bls. 12
MÝJUNG?
í DAGBLÖÐUM bæjarins hafa
undanfarið birzt greinar um svo-
kallaða nýstofnaða vinnustofu, og
er látið í það skína, að hér sé um
einhverja nýjung að ræða. Þess
vegna langar mig til þess, að taka
eftirfarandi staðreyndir fram:
Til þess, að fyrirbyggja mis-
skilning, er ekki hægt að láta hjá
líða, að leiðrétta þá fuUyrðingu,
blaðamannanna sjálfra eða við-
komandi aðila, að um einhverja
nýjung sé að ræða hér á Jandi.
Það skal tekið fram, að hér eru
til menn, sem hafa lært í skólum
erlendis, og hafa kynnt sér fram- J
leiðslu á emailleruðum munum
ýmiss konar og hafa smíðað slíka
muni undanfarin ár. j
Skal ekki fullvrt, hver ástæðan
er fyrir því, að slík smíði hefir,
ekkí verið stunduð í fjölbreytt- j
ara formi hér á landi, en þó skal
á það bent, að smíði slíkra muna '
hefir aukizt ört undangarin ár.
Kjartan Ásmundsson gullsmið-
ur hefir stundað slíka smíði um
fjolda ára, og hefir lært til þess
i skóla erlendis, og má til dæmis
um hæfni hans benda á orðusmiðr
hans fyrir íslenzka ríkið, svo og
margt annað, sem hann h<?fir
smáðað og emaillerað.
Einnig má benda á það, að Jó-
hannes Jóhannesson hefir smíðað
og emaillerað. svokallað garða
smelti, og hafa þeir munir verið
seldir hjá Jóni Sigmundssyni...
Emailleraður borðbúnaður hefir
einnig verið smíðaður hjá Guð-
laugi Magnússyni gullsmið Lauga
vegi 22, og fleirum.
Eins og af þessu sést, er amaill-
ering ekki nýtt fyrirbæri í ís-
1 íenzkri listmunagerð.
Ég undirritaður þykist-- geta
lagt hér orð i belg, þar sem ég
stundaði nám í skóla í Þýzkalandi
í sumar er leið, í þessari grein, og
taldi. ég mér málið skylt.
Skal ekki fullyrt um það, hver
ástæðan er til þess, að ekki hefir
verið lögð meiri áhprzla á slíka
smíði en raun ber vitni hér á
landi. Mætti í því sambandi
benda á það, að smíði slíkra muna
hefir aukizt mjög undanfarin ár,
og er það vel.
Sjálfsagt. er, að geta þess, er
nýir kraftar bætast í hópinn, en
óviðkunnanlegt er að gera það á
óviðeigandi hátt.
Þá mætti og benda á það, að við
horf gagnvart listum hafa breytzt
talsvert, svo sem málaralist, list-
íðnaði o. fl. og sést það bezt á
emf.aldari útfærslu á formi og
mynztxi, og þess vegna aukast
: möguleikar til meiri emaillering-
ar, hvort heldur eru listm.unir til
hibýlaprýði: skálar, veggplattar,
borðbúnaður o þ. h. eða kven-
skart.
Mig langar aðeins til bess, að
benda á þessi atriði, ekki til þess
að skyggja á þessa nýstofnuðu
vinnustofu, heidur til þess eins að
leiðrétta misskilning, er mér
fanftst á vera.
Bárður Jóhannesson.
Blómlefft starf friáls
eiittar
FRJALSIÞROTTADEILD K. R.
hélt aðalfund sinn hinn 23. þ.m.
í KR-heimilinu.
Formaður, Ásmundur Bjarna-
son, flutti skýrslu stjórnarinnar,
í hverri kom fram mjög umfangs
mikið starf stjórnarinnar á ár-
inu Aðalviðburðurinn var að.
sjálfsögðu utanförin til Noregs,.
þar sem KR-ingar kepptu á 6
stöðum og unnu 41 sigur, urðu nr.
2 í 23 skipti og nr. 3 í 18 skipti.
Keppt var á alþjóðamótuvn í
Stavanger, Oslo, Sarpsborg,
Bergen, Iíaugasundi og Stavang-
er.
Tveir KR-ingar, þeir Ásm..
Bjarnason og Guðmundur Her-
mannsson voru boðnir til keppni
til Dresden í Austur-Þýzkalandi
og Svavar Markússon og Val-
björn Þorláksson voru boðnir til
Búkarest og þar setti Svavar tvö.
ísl. met í 800 m. hl. og skildi við
það á 1.51,8 mín.
KR- hlaut 14 íslandsrneistara
í frjálsum íþróttum á meistara-
móti íslands. Svavar Markússon
sigraði í Víðavangshlaupi ÍR og
einnig í Drengjahlaupi Ármanns.
í lándskeppninni við Holland
átt.i KR 11 aðalmenn auk vara-
manna eða fleiri menn en nokk-
uð annað félag.
FIVIM ÍSLENZK MET
Sett voru 5 ísl, met á árinu og
eitt jafnað. Guðmundur Valdi-
marsson setti ísl. met í langstökki
án atrennu. 3,23 m. Þórður Sig-
urðsson setti ísl. met í sleggju-
kasti, 52,16 m. Svavar Markússon
í 800 m hlaupi, hljóp á 1.51,9 og
1.51.8 mín. Þorsteinn Löve setti
met í kringlukasti, kastaði 54,28
m. Ásm. Bjarnason jafnaði ísl.
met í 100 m hl., hljóp á 10,5 sek.
Bætt voru KR-met í mjög mörg-
um greinum.
ERFIDLEIKAR
Aðaiáhyggjuefni deildarstjórn-
arinnar eru fjármálin. Tekjur af
rnótum voru engar á árinu. Áhorf
endur létu á sér standa og kornu
ekki á völlinn, þótt keppni í sum-
ar hafi jafnvel verið skemmti-
iegi i en'nokkru sinni fyrr.
Styrkir til starfseminnar eru
svo að segja engir, en það kostar
um það bil 25 þús. krónur á ár|
að halda starfseminni gangandi.
Deildin stóð íyrir hlutaveltu
nýlega, og ágóði af henni ranu
til starfseminnar svó langt sœa
hann náði.
Þjálfari hefir verið, eins og
undanfarinn aldaríjórðung, Bene
dikt Jakobsson og mun hann
starfa hjá KR áfram.
í fundarlok var samþykkt a3
senda Erlendi Ó. Péturssyni
en hann liggur sjúkur, en er nú
á batavegi, en þetta er í fyrsta
sinn, sem hann hefir ekki geta3
setið aðalfund deildarinnar.
Stjórn deildarinnar skipa nú:
Ásm. Bjarnason, form., Þórður
Sigurðsson, varaform., Svavar
Markússon gjaldkeri, Ingi Þör-
steinsson ritari og Guðm. Her-
mannsson, meðstjórnandi.
KR-ingar harfa með björtum
augum íil framtiðarinnar.
Félagið er skipað mörgum dúg
andi íþróttamönnum og góðum
drengjum, og næg verkefni eru
fyrir höndum.
Bré/ senf MbS.:
Hugleiðingar um heims-
þekktan íþróttamann
OLD SPICE
SKiyrflvdnsr
Rákspwitus
Talkwm
Brilíantine
llsnsteinn
Rakkrem
.Rakúpt 3 geiði r
Einnig
Oíú ferSuset’t.
VBRÐAMDI h.f.
Tryggvagötu.
Öska eftir
2 heíbergjísm
ag eidhúsi
Húsh.fálp efti-r, samkomu-
lagi. Tilb. sendist afgr.
Mtol., fyrir mánaðamót, —
merkt: ,,X--2 — 680“.
Á MIÐJU sumri 1954 kynntist ég
einum víðfrægasta og vinsælasta
• íþróttamanni, er ísland hcfur al-
ið, manninum, sem seinastliðið tíu
! ára skeið heíur verið dáður og
, virtur fyrir kunnáttu sína og
I leikni á flestum þekktustu knatt-
spyrnuvöllum heims, og', eftir
, skrifum íþróttafréttaritaxa heims
blaðanna að dæma, verið álitinn
einn af tíu beztu knattspyrnu-
mönnum sinnar tíðar — Alberti
Guðmundssyni.
Fundum okkar bar fyrst saman
úti á golfvellinum í Reykjavík.
H.afði ég þá aldrei litið hann,
nema á myndum og einn leik
háfði ég séð harin spila, en all-
mikið um hann lesið, hversu góð-
ur knattspyrnumaður hann Væri,
heimsþekkt knattspy rnuf élög
sæktust eftir að hann léki í lið-
um þeirra o. s. frv. — þetta gat
bæði að líta í innlendum og er-
lendum blöðum.
Ég hef fylgzt með flestu því,
sem um hann hefur verið ritað
hér heima, og reyndar erlendis
líka, eftir að hann fluttist heim,
svo sem skrif í sambandi við
landsleikinn við Dani á umliðnu
sumri, og séð og heyrt ýmsum
óverðskulduðum skeytum að
honum beint sem knattspyrnu-
manni — jafnvel lélegum og
kunnáttulitlum.
Fyrir rúmum máriuði síðan
urðum við Albert samferða til
Bretlands í verzlunarerindum. —
Átti ég þess þá kost, að heim-
- sækja með honum tvö knatt-
' spyrnufélög, sem hann hafði áður
leikið hjá, Glasgow Rangers í
Glasgow og Arsenal í London. —
Var honum í báðum tilfellum
tekið með kostum og kynjum,
bæði af forráðamönnum þessara
félaga og leikmönnum, er margir
hverjir höfðu áður verið samherj-
ar Alberts á leikvelli.
Sem dæmi um mat þessara
manna á kunnáttu og' leikni Al-
berts í knattspyrnu, bað þjálfari
annars þessara félaga Albert um
að koma á æfingu með kappliðs-
mönnum þess félags, til að sýna
þeim ýmiss atriði úr hinni svo-
kallaðri „meginlands knatt-
spyrnu“, sem þá langaði til að
innfæra í leik sinn, en hefðu fram
til þessa ekki getað fengið til-
sögn í frá fyrstu hendi. Albert
varð að sjálfsögðu við þessari bón
og var mjög þakkaö að verðleik-
um.
í sumar og ekki sízt nú eftir
umgetna utanför, átti ég bágt
með að skilja, hvers vegna for-
ráðamenn íslenzkra knattspyrnu-
mála slógu á útrétta hjálparhönd
Alberts, er hann flytzt heim, eftir
10 ára frægðarför á erlendum
knattspyrnuvöllum. Er efazt um
kúnnáttu hans sem knattspyrnu-
manns?
Iiefur íslenzk knattspyrna ráð
á því að notfæra sér ekki reynslu
og kunnáttu Alberts á knatt-
spyrnu? Og hvernig ber að snúa
sér í því? Knattspyrnumenn, tak-
ið í framrétta hönd hans og kjós-
ið hann í virðingarstöðu meðál
ykkar, og notið þannig starfs-
krafta hans.
Þorv. Ásgeirsson.