Morgunblaðið - 10.12.1955, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.12.1955, Blaðsíða 8
24 MORGVNBLAtílB Laugardagur 10. des. 1955 ^-J^uenbjóétn — ^JJeimiiié Reykvíska stúlkan vill heldur einn vandaðan kjól en marga lélega Þær eru yfirleilt mun befur klæddar en almenningur erlendis ISLENZKAR stúlkur eru yfirleitt mun betur og smekklegar klæddar heldur en almenningur, sem maður mætir á götum New York-borgar, sagði frú Guðrún Stefánsdóttir, sem nýlega er komin heim frá Bandarikjunum. En þangað fór hún í verzlunar- erindum fyrir hina nýju verzlun sína, sem hún opnaði hinn 3. þessa mánaðar á Skúlagötu og Rauðarárstígshominu, undir nafninu Guðrún. — Kvennasíðan heimsótti hana og spjallaði vítt og breitt um tízkuna eins og hún er vestan hafs í dag og hvað íslenzkum konum líkaði og félli bezt. LJÓSU UTIItNIR — Þeir tízkulitir, sem mest eru áberandi í dag eru ljósir pastel- litir, grænblátt, ljós brúnt (beige) og hvítt fyrir utan svarta litinn, sem er sígildur. — Þessir litir koma fram í vortízkunni, sem er farið að bera á í New York, — fyrir þá sem flýja kuld- ann og fara til Flórída. — En vitanlega eru einnig fleiri litir í tízku, og ég hef veitt því at- hygli að það er eiginlega ekki nema einn litur, sem alveg virð- ist vera heillum horfinn hjá kon- um og það er skærgrænt, sagði frú Guðrún. — Hvaða litum kjósa nú ís- lenzkar konur helzt að klæðast? — Mér virðist að þær vilji yfirieitt helzt ganga í frekar skærum litum og eru allsendis óragar við að stinga í stúf við umhverfið. Þeim finnst líklega að þessir skæru litir hressi upp é skammdegið hjá okkur. Ungu Btúlkumar virðast mér helzt Vilja þennan blágræna lit og Ijósbrúnt, eða sem daglega er nefnt beige, og þær eru einnig hrifnar Eif svörtu. — Eldri konur velja sér mest megnis grátt og Bvart „LtJ»RA“-PILS — Hverju líkist New York- tízkan í dag? — Segja má að hún líkist einna I mest hljóðfærinu trompet og eru „lúðra“-pils eða trompet-pils. mikið í tízku, en þau eru eins og þetta hljóðfæri i lögun, þröng að ofan og um mjaðmirnar en með geysi vídd fyrir neðan hné eða um það bil. — Þá er langa mittislínan með engu belti eða þá síðu, ef það er, og fyrirferðar- miklu um mjaðmirnar, áberandi í dag. — Síddin? — Hún virðist mér vera ákaf- lega hæfileg, eða svona um miðj- an kálfa. En svo sjást vitanlega konur sem ganga í kjólum sem svo að segja skrölta um hnén, — en mér finnst það óklæðilegt. — Hvernig eru tízkuefnin? — Samkvæmiskjólaefnið, sem mest er áberandi, er nýtt efni, er nefnist „Nylon-trico“. Það er áþekkt efninu sem er í nylon- blússunum, sem fengizt hafa hér undanfarin ár, nema það er ekki gagnsætt og miklu mýkra viðkomu. Þá eru ýmiss konar brokaðe-efni, blúnduefni, sem verið hafa lengi í tízku, og silki- flauel. — Efni í dagkjólum er yfirleitt einhvers konar reyon, mjúkt ullarefni, einlit og rifs. Sumarkjólamir verða allir úr annaðhvort strigaefnum eða bómull, rósóttu, einlit eða köfl- ótt. — Segja má að everglaze sjáist varla á markaðinum. ÍSLENZKIR PRJÓNAKJÖLAR? — Eru nokkrar hömlur á inn- flutningi kvenkjóla? — Ekki virðist það vera, nema einungis á kjólum sem eru úr jersey efnum og prjónaðir, en slíkir kjólar eru vitanlega hent- ugir fyrir okkar loftslag og þess vegna sætir furðu að innflutn- ingur á þeim skuli bannaður. En ég hef talað við mann hér sem rekur prjónastofu og falazt eftir því við hann að hann prjón- aði fyrir mig kjóla, ef ég léti hann fá fyrirmyndir. Væri að sjálfsögðu mjög æskilegt að geta haft á markaðinum íslenzka prjónakjóla. SMEKKUR REYKVÍSKRA KVENNA GÓÐUR — Hvernig virðist yður smekk- ur reykvískra kvenna í dag? — Mér virðist hann vera góð- ur. Reykvískar konur eru óragar að klæðast tízkunni þegar hún er ný. Þær kunna vel að meta góð föt, þær vilja heldur fá einn góðan og vandaðan kjól, sem er Formkökurnar má ekki vanta á jólaborðið AL L A R húsmæður vilja hafa sem fjölbreyttast kaffiborð á jólunum. Nú þegar hefur Kvennasíðan birt uppskriftir að smákökunum og sælgætinu og hér fara á eftir nokkrar uppskriftir að formkökum. Frú Guðrún Stefánsdóttir dýr, heldur en að fá sér marga, ómerkilega ódýra kjóla. En ég hef orðið vör við það meðal þeirra, að það er eins og þær séu of ragar við að máta föt sem þær ætla e.t.v. að kaupa. — Fötin eru orðin dýr og það nær ekki nokkurri átt að kona, sem ætlar að fá sér kjól, vilji heldur, hver nú sem ástæðan er, fara heim með kjólinn e. t. v. ómátaðan og eiga þá e. t. v. á hættu að hann passi ekki, held- ur en að máta hann í verzlun- inni. — Og þó einhver kona máti, við skulum segja 5—6 kjóla í einni verzlun, þá getur hún vel verið þekkt fyrir að fara út án þess að kaupa einn einasta, án þess að fyrirverða sig fyrir það. Þetta þekkist ekki t- d. í New York. Þar eru viðskiptavinirnir ekki ragir við að láta afgreiðslu- stúlkumar stjana við sig, en þar eru líka stúlkur, sem gera ekkert annað en að sýna viðskiptavin- unum kjóla, þ. e. a. s. þær máta þá fyrir viðskiptavinina. NÝ SENDING FYRIR JÓL — Ég hef hugsað mér að fara vestur nú alveg á næstunni, sagði frú Guðrún að lokum. — Mér finnst nauðsynlegt að velja kjól- ana fyrir verzlun mína sjálf, sem ég gerði nú áður en ég opnaði. Ég keypti einnig stærri númer heldur en verið hafa á boðstólum hér undanfarið, ég hef bæði kjóla með hálfum númerum, sem ætlaðir eru sem frúarkjólar, éins og hiná kjólana fyrir ungu, grönnu stúlkumar. En ég tók ekki með í reikninginn hve mikill skortur hefur verið á þessum stærri númerum og sé að mig kemur til með að vanta þá. Hef ég því ákveðið að halda aftur til New York og kaupa meira af þeim. — A. Bj. BANDARISK ENGLAKAKA 7 eggjahvítur 1 tesk. hjartasalt 150 gr. sykur 90 gr. hveiti vanillusykur Hvíturnar eru þeyttar mjög vel og síðan er hjartasaltinu, sykr- inum og hveitinu ásamt vanill- unni blandað saman við. Þetta er hrært vel og síðan látið í vel smurt hringform við 175 gráðu hita í 50—60 mín. Þegar hún er bökuð er forminu snúið við, en kakan ekki tekin úr þvi fyrr en hún er orðin köld. — Gott er að hafa með þessari köku annað hvort vanillu-ís eða ávexti og þeyttan rjóma. DÖÐLU- OG HNETUKAKA 360 gr. hveiti 180 gr. smjörl. 180 gr. sykur 2 tesk. kanel 200 gr. hakkaðar döðlur 100 gr. hakkaðar hnetur 3 dl. eplamauk 1 tesk. natron Vz —1 dl. rjómi eða mjólk 1 egg Skraut á kökuna: 1 matsk. hakkaðar döðlur 1 matsk. hakkaðar hnetur 1 matsk. sykur 1 tésk. kanill. Hveitið og sykurinn, kanillinn og natrónið er blandað vel sam- an og smjörl. mulið út í, döðl- urhar og rúsínurnar látnar út í. Deigið er hrært saman með epla- maukinu, egginu og mjólkinni. Það er síðan látið í aflangt form, vel smurt, og skrautinu dreift yfir kökuna. Hún er bökuð við jafnan hita (um 200 stig) í um það bil 45 mínútur. KAFFIKAKA MEÐ DÖDLUM 240 gr. hveiti 2V2 tesk. lyftiduft 2 tesk. kardemommur 2 tesk. kanill 100 gr. smjörl. 60 gr. sykur 150 gr. hakkaðar döðlur 1 þeytt egg Vz dl. sterkt kaffi 1 dl. rjómi Smjörl. er mulið út í hveitið ásamt lyftíduftinu, kryddað og látið saman við og hrærðu egg- inu hrært saman við, síðan kaff- inu og rjómanum. Deiginu er hellt í vel smurt form og bakast við 200 gráðu hita í um það bil 45 mínútur. — Ef vill má þekja kökuna með kaffiglerungi þegar hún er bokuð. Avaxtakaka 240 gr. hveiti lVz sléttf tesk. lyftiduft 150 gr. smjörl. 70 gr. sykur 120 gr. þurrkaðir ávextir rifinn börkur af einni sítrónu 2 egg dál. mjólk eða rjómi ' Smjörlíkið er mulið saman við hveitið, lyftiduftið og sítrónu- börkinn, þá er hökkuðum ávöxt- unum blandað saman við (þeir eiga að hafa legið í bleyti dál. tíma) ásamt egginu og mjólkirmi (eða rjómanum). Deigið er hrært vel og síðan látið í vel smurt form. Jólaborðið Verzlonin lætur Hér fer á eftir lýsing á einkar skemmtilegri skreytingu á jóla- borðið og hún er það sem meira er um vert, ákaflega einföld og hægur vandi að búa hana til. — Reynið að fá mosa og fyllið frek- ar grunna en víða skál með hon- um og látið grenigreinar ofan á. Fjórum löngum og mjóum er stungið ofan í mosann, bezt er að hafa glerkúlu með götum á til' þess að stinga þeim í. Nokkrir grenikönglar á víð og dreif ofanj á greninu og „gorkúlurnar eru smákökur, sém komið er fyrir á prjóni, annað hvort tannstöngli eða koktelpinna. — í þeirra stað lítið yfir sér en þar leynist margur góður kjóllinn, ’ má alveg eins láta konfektmola. I CADBÖRn COCOA 7. Ibt. koinið aftur. Ennfremur fyrirliggjand* I íá, Vz og 1 lbs. dósum. H. Benediktsson & Co. h.f. Hafnarhvoll. Sími 1228. Þetta er mynd af fallegum kjól ^ fyrir litiu heimasætuna. Hann ér einmitt ætlaður til þess að íara í á jólatrésskemmtun eða skóla ! skemmtunina. — Efnið er létt ’ organdy, kraginn er úr hvítu j pikkí og bryddaðúr örmjórri j blúndu eins og ermarnar. 1 8IEIHPÖN thClofunarhringir 14 karata og 18 karata.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.