Morgunblaðið - 20.12.1955, Síða 8
8
MORGVNBLÆÐIÐ
Þriðjudagur 20. des. 1955
0»*.: H.f. Arvakur, ReykjavlJt
í>amlcv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjórí: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
ötjómmálarltstjóri: Sigurður Bjarnason frá VlfHflU
Lesbók: Árni Öla, sími 3045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson,
Ritstjórn, auglýsingar og aígreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriítargjald kr. 20.00 á mánuði Innanlaada.
í lausasölu 1 króna eintakið.
Hið nýja tilræði við Reykjavík
NÚ ER LOKIÐ að ganga frá
fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæj-
ar. Fyrst var hún undirbúin af
nokkrum æðstu embættismönn-
um bæjarfélagsins, síðan gekk
hún gegnum hreinsunareld bæj-
arráðs og loks voru haldnir um
hana tveir bæjarstjórnarfundir
og stóð annar þeirra í um 15 klst.
samfleytt. Það, sem mest hefur
þó munað um í þessu efni er und-
irbúningur sérfræðinga bæjarins,
sem höfðu samráð við þá, sem
ráða hinum einstöku greinum
bæjarstarfseminnar. Eftir ná-
kvæma athugun allra upplýsinga
kom fjárhagsáætlunin fyrst til
kasta bæjarráðs og bæjarstjórn-
ar. —
Af hverju stafa
hækkanirnar
Eins og vænta mátti varð mjög
veruleg hækkun á fjárhagsáætl-
wninni miðað við það, sem var í
fyrra. Þó varð þessi hækkun hlut-
fallslega minni en hjá ríkinu á
sama tíma. Það er margt, sem
veldur þessari hækkun en þó
munar þar mest um tvo liði, sem
báðir stafa frá verkfallinu ör-
lagaríka í fyrra vor,
Sú hækkun verkamanna, sem
gera verður ráð fyrir í fjárhags-
áætluninni er 25 V2 % og svo eru
einnig óhjákvæmilegar hækkan-
ir á öðrum launaflokkum bæjar-
starfsmanna. Auk þessa þarf
bærinn svo að borga 100 þús. kr.
á viku hverri í atvinnuleysis-
tryggingasjóð þann, sem stofnað-
ur var upp úr verkfallinu. Launa-
hækkanirnar verka svo að sjálf-
sögðu til hækkunar á þeim kostn-
aði, sem bærinn hefur, nauðsyn-
legum, verklegum framkvæmd-
um. Þannig leiðir hvað af öðru
og þýðir ekki annað en horfast
í augu við þær staðreyndir, þótt
þær séu á annan veg en óskir
flestra manna standa tiL
Útsvarsupphæð og
útsvarsstigi
Útsvörin eru svo að segja ein-
asti tekjustofn bæjarfélagsins. —
Það er fyrir löngu orðið úrelt að
svo sé, en Alþingi, sem því máli
ræður til úrslita, hefur ekki sýnt
neinn skilning á tekjumálum
bæja- og sveitarfélaga. Þar situr
við hið sama og gamla.
En þess þurfa allir að vera
minnugir, að þótt heildarupphæð
útsvaranna hækki að mun, þýðir
það ekki samsvarandi hækkun
útsvarsstigans. Hve mikið hann
þarf að hækka sést ekki ljóslega
fyrr en framtöl manna taka að
berast niðurjöfnunarnefnd, eftir
áramótin. Reynt hefir verið að
blekkja fólk með því að blanda
saman útsvarsupphæð og út-
svarsstiga, en reynslan hefur
alltaf sýnt, að þótt heildar-
upphæð útsvaranna hafi hækkað,
hefur sjálfur útsvarsstiginn stund
um alls ekki hækkað eða þá ekki
neitt í námunda við hlutfallsiega
hækkun sjálfrar útsvarsupphæð-
arinnar.
Þeir skildu afleiðing
arnar manna bezt
Framkoma minnihlutaflokk-
anna í sambandi við hina nýju
fjárhagsáætlun var með þeim ein j
dæmum að slíkt hefur naurtu 1
þekkzt fyrr. Þessir fulltrúar þótt-
ust ekki skilja það, að kostnaður
Reykjavíkurbæjar þyrfti að
hækka svo nokkru næmi. — Þó
hefði engum átt að vera kunnugra
en einmitt þeim, af hverju þessi
kostnaðarhækkun stafaði. Þetta
voru sömu flokkarnir, jafnvel
sömu mennirnir, sem stóðu að
verkföilunum, sem hleyptu hinu
nýja hækkanaflóði af stað. Jafn-
vel þó Framsókn og Þjóðvörn
ættu ekki sama hluta að verk-
föllunum og kommúnistar og
hinn ráðlausi Alþýðuflokkur, þá
var þessum fulltrúum auðvitað
ákaflega vel ljóst af hverju hinar
hækkuðu tölur fjárhagsáætlunar-
innar stöfuðu.
Aldrei leikvöllur slíkra!
Minnihlutaflokkarnir, undir for
ystu kommúnista, hlupu nú í
fyrsta skipti, óskiptir að kalla
undir sameiginlegar tillögur til
breytinga á f járhagsáætluninni.
Þessar tillögnr voru þess
eðlis, að hefðu þær verið sam-
þykktar, hefðu verklegar fram
kvæmdir bæjarins, flestar eða
allar, hlotið að tefjast eða
stöðvast, eftir því, sem eðli
þeirra er. Eitt meginatriði til-
laganna var að skera niður
fjárveitingar tii þeirra deilda
bæjarins, sem starfa að bygg-
ingum bæjarins, gatnagerð
hans, vatnsveitu eða bolræsa-
gerð, svo að nefnd séu dænú-
Það má nærri geta hvaða af-
lciðingar það hefði haft fyrir
þróun hins vaxandi bæjar ef
svo hefði tiltekizt. En tilgang-
ur minnihlutaflokkanna var
augljós. Það átti að láta af-
leiðingar verkfallaverðbólg-
unnar kalla stöðvnn og kyrr-
stöðu yfir Reykjavík. Verk-
föllunum var hrundið af stað
af þessum sömu mönnum í
þeim tilgangi að auka erfið-
leikana en ekki til neins ann-
ars. Þessi kaldi tilgangur átti
fyrst að koma niður á Reykja-
vík. Fulltrúum þessara sömu
flokka hefur ekki dottið í hug
að koma fram með samsvar-
andi tillögur á Alþingi. Nei
— á Reykjavík skyldi bylgjan
brotna fyrst!
Þar skyldi stöðvunin koma
fyrst fram. Þessum flokkum er
ósárt um Reykjavík. Þeir.stjóma
ekki þeim bæ og er óskandi að
þeir geri’það aldrei. En þeim var
vel vært, þó að það yrði Reykja-
víkurbær, undir stjóm Sjálfstæð-
ismanna, sem yrði fyrstur til að
færast í kaf undir öldu þeirra
verðhækkana, sem stofnað var til
með verkföllunum.
Því hefur verið forðað að sinni,
að stöðnun yrði leidd yfir atvinnu
líf Reykjavíkurbæjar og margvís
legar, bráðnauðsynlegar fram-
kvæmdir í þágu bæjarbúa. En
sannarlega á Reykjavík í vök að
verjast, eins og allur annar bú-
skapur landsmanna nú. — Hinar
þungu afleiðingar öfugsnúins
efnahagslífs hljóta auðvitað að
koma hart niður á höfuðstaðnum.
En meðan Sjálfstæðismanna nýt-
ur við í stjórn bæjarins er þó
aldrei þörf á að örvænta. En til-
ræði minnihlutaflohkanna undir
forystu kommúnista, við Reykja-
víkurbæ nú, sýnir hvílík vá væri
fyrir dyrum ef bærinn yrði gerð-
ur að pólitískum Ieikvelli þess-
ara kaldrifjuðu tilræðismanna.
Páll ísólfsson:
„I gróandanum
44
EINS og tíðkast fyrir jólin flæða
nýju bækurnar yfir borg og
byggð, margar góðar, nokkrar
ágætar. fleiri þó líklega að vanda
heldur ómerkilegar. Allt líf hef-
ur vissan stíganda og hníganda.
Það er svo bágt að standa í stað,
eins og skáldið hefur sagt, en við
höfum ekki afl til þess að halda
okkur að staðaldri á suðumarki.
Þessa dagana berumst við óð-
fluga upp að toppi þeirrar bylgju,
sem seiðir manneskjurnar að
frelsara heimsins, tákni friðar,
fórnarlundar og bjartsýni. mitt
í allsleysi veraldlegra gæða, þar
sem allir eru gefendur og allir
þiggjendur, allit þiggja gjafir og
gefa. Við erum nýstigin upp úr
öldudal hryllilegrar farsóttar og
fyrir það eitt væri ástæða til að
halda hátíð. Svona gengur mann-
lífið, upp og niður, einn tíma
betur, annan tíma ver. Þetta er
lífsins gangur, því þar er engin
kyrrstaða til, ekkert endanlegt
takmark Hver heilbrigð mann-
eskja er eygir nýtt mark áður en
hinu fyrra er náð eða jafnskjótt
og því er náð. Það þýðir ekki
framar að segja við okkur að
þarna sé tindurinn, sem okkur er
búinn staður, þarna sé Gullna
hliðið, lokatakmark mannlegs
fullkomleika. Við erum öll á
ferð, sem aldrei tekur enda, ýmist
með sól fyrir augum eða á leið
inn í dimma nótt. Sjálfsagt er
framför okkar fremur hægfara,
þó við megum aldrei missa trúna
á æðra mark, enda er aldrei um
endurtekningu að ræða, hver
dagur er að einhverju leyti nýr.
Gömlu göturnar gróa upp og við
' ryðjum nýjar, aðeins i hörðum
klöppunum má sjá þúsund ára
gömul spor forfeðranna, en
einnig þau munu smám saman
| veðrast eða verða hmum misk-
| unnarlausu vélum að bráð. Það
sem mest fer í taugamar á mér
af þeim bókum, sem mér
eru stundum að berast eru sí-
endurteknar uppprentanir á til-
tölulega ómerkilegu efni, unnið
af litlum hagleik hvað þá lista-
m annshöndum.
Stundum berast manni bækur,
sem maður rétt lítur í, les eina
i blaðsíðu og leggur hana síðan frá
j sér. Það er eitthvert óbragð af
þeim, eins og illa tilbúnum mat.
, Aðrar hafa ekkert bragð. En
alltaf kemur ein og ein, sem fær
mann til að halda áfram að lesa,
neyðir mann til að stytta matar-
tímann sinn ofan í 5—10 mínút-
ur og loks bækur sem ræna mann
svefnfriði og hvíldar.
Tvær bækur hafa orðið mínum
stutta frítíma örlagaríkar. Heims
ljós Laxness, eitt mesta skáld-
verk er ég hefi lesið og bók
Kristjáns Albertssonar, í gróand
anum, sem ég vil með þessum
línum alveg sérstaklega þakka
fyrir.
„í gróandanum" er bók um allt
milli himins og jarðar, enda vissi
ég að Kristjáni var ekkert mann-
legt óviðkomandi. Hann er fædd-
ur húmanisti, skáld og drengur
j af þeirri gerð, sem við þekkjum
: bezta, fágaður stílisti og heims-
borgari. Hér er hver ritgerðin
annarri betri, allt sjálfstæð sköp-
un og að einhverju leyti ný hugs-
un. Þessi bók er ekki klippt út
Kristján Albertsson
úr verkum annarra, eins og nú
tíðkast svo mjög, hjá beztu
mönnum. Allt sem höfundurinn
segir við okkur er í vissum skiln-
ingi nýtt, að svo miklu leyti sem
hægt er að segja að nokkuð sé
nýtt undir sólinni Ef til vi!I tek-
ur greinin um Jónas Hallgríms-
son þó öllu fram, og mundu marg
ir áreiðanlega gjarna viljað hafa
skrifað hana. Gaman er að lesa
eftirmálann um Halidór Kiljan,
einkabréf er farið hafa á rnilli
þessara tveggja fágætu heims-
borgara, þar sem þeir skilmast
af miklum móði, drenglyndi og
fimi.
Allt ungt fólk ætti að lesa
þessa bók, þó ekki væri nema
til þess að nema þá list að skrifa
íallega.
Páll ísólfsson.
í Faxaflóa
XJelvaLanili ihrifar:
„Miklir menn erum við,
Hrólfur minn“
FYRIR nokkrum dögum kom ég
inn á rakarastofu til að láta
klippa mig jólaklippinguna. Þar
biðu m. a. fjórir drengir. Tveir
virtust vera um fermingaraldur,
en hinir all miklu yngri. Allir
voru drengirnir stilltir og práðir,
svo að ég fór að hugsa um öll
fyrri orð mín og annarra um
spillta og óstýrláta æsku og versn
andi heim, þau væru — sem betur
færi — tóm vitleysa eða heiðar-
legar undantekningar væru a. m.
k. til.
*) / \ JJ’iWb)
1 •-W '
Tveir eldri drengjanna voru
saman og hafði annar verið klippt
ur, en hinn var kallaður i stól-
inn. Sá síðarnefndi var gríðarlega
kotroskinn. Eftir stutta stund gaf
hann félaga sínum merki um að
rétta sér eitthvað, sem ég heyrði
ekki, hvað var. Drengur fer í
yfirhafnarvasa sinn, dregur upp
vindling og stingur upp í félaga
sinn, sótti síðan eld og kveikti í
fyrir hann; settist hann svo sjálf-
ur á auðan stól við hliðina á fé-
laga sínum og kveikti sér í líka.
Þeir „áttu alveg“ rakarastofuna,
virtu sjálfa sig fyrir sér í speg!*-
unum og púuðu virðulega.
Er rakarameistarinn sá þetta,
sneri hann sér oð þeim, sem hann
hafði þegar klippt og spurði:
„Hvað ertu gamalí?“
„Fjórtán", sagði .trákur og
dinglaði fótunum.
I „Þá áttu að borga tuttugu krón-
ur“ sagði rakarameistarinn. „Mér
datt ekki í hug, að þú værir nema
10—12 ára. En þegar þú fórst að
reykja, sá ég, að svo ungur gazt
þú ekki verið!"
Drengsa brá ekki hið minnsta
tók upp pyngju sína og bætti við
greiðsluna. Þegar búið var að
klippa félaga hans, stóð sá upp,
speglaði sig vandlega og greiddi
sér lengi.
Nú voru drengirnir tilbúnir,
þökkuðu fyrir sig og kvöddu um
leið og þeir gengu út. Virðingu
sinni héldu þeir allt til enda.
„Næsti“, kallaði rakarinn. Há-
vaxinn maður settist í stólinn og
varð honum um leið að orði: „Þeir
byrja snemma að reykja þessir“.
„Kokkurinn segir, að
það sé bara della.“
UNG kona, sem sagði mér eftir-
farandi sögu, var eitt sinn
stödd á matsölustað í Reykjavík
ásamt manni sínum.
Þeim var borin súpa, sem var
svo brimsölt, að ekki var viðlít að
borða hana. Ekki gat leikið á
tveim tungum, að hún hafði að
minnsta kosti verið tvísöltuð. Þau
kalla því í afgreiðslustúlkuna og
tjá henni, hvernig ástatt er og
biðja um leiðréttingu.
„Ég skal athuga það,“ sagði
stúlkan og fór.
Liðu svo tuttugu mínútur og
ekkert gerðist. Stúlkan gekk um
beina í óðaönn og sinnti hjónun-
um ekki meir, svo að þeim fór að
leiðast biðin og kölluðu aftur í
stúlkuna.
Viðhafði hún þá sömu orðin og
áður og skundaði síðan fram í eld
húsið. Að vörmu spori kom hún
aftur og tók svo til orða:
„Kokkurinn segir, að það sé
bara della.“
5Í>'«> »
Htrkn,
AKRANESI, 19. des. — Síðan
1947 að síldin gekk í H.valfjörð
hefir Faxaflói aldrei verið eins
gjöfull á síldina og þetta ár. A
tveim dögum hefir aflazt á sex
reknetjabáta hér samtals 2160»
tunnur sildar. Hingað komu þeir
á sunnudag með 1155 tunnur. —
Mestan afla hafði Sigurfari, 202
tunnrn*.
í dag fengu sömu bátar 1004.
tunnur. Aflahæstir í dag vora
Sigurfari með 204 tunnur og Ver
með 186 tunnur. Síldin fer öll
í frystingu
í dag voru seldar héðan og
sendar á fjórum bílum vestur til
Ólafsvíkur, 160 tunnur síldar,
sem Ólafsvíkingar ætla að frysta
til beitu. — O.
Óspektir í
klæfiSt
JERÚSALEM, 19. des.: — Til tals-
verðra óeirða kom í dag i
jórdanska hverfinu í Jerúsalem,
og fór fjöldi manns kröfugöngu
í mótmælaskyni við tillögu Breta
um, að Jórdania gerist aðili að
Bagdadsáttmálanum. Hópur
manna reyndi að ráðast inn i
Shehk Jarah-hverfið þar, sem
tyrkneska sendiráðið og sendiráð
annarra landa eru staðsett. Her-
menn héldu vörð um hverfið og
skutu úr vélbyssum yfir höfuð
mannfjöldans. í tvær klukku-
stundir heyrðust samfelldir skot-
hvellir í hverfinu. Brunaliðið var
kallað á vettvang, þar sem nokkr-
ir óeirðaseggjanna reyndu að
kveikja í húsi tyrkneska sendi-
ráðsins.
Óstaðfestar fregnir herma, að
franski ræðismaðurinn hafi
meiðzt talsvert, er bíll hans
var grýttur. Eftir tvær
klukkustundir var allt aftur með
ró og spekt, en hermenn stóðu
eftir sem áður á verði. Samkvæmt
skeytum1 frá AFP-fréttastofunni
var hindrunum komið fyrir á
veginum milli Ammán og Jerú-
salem. Undgnfarna þrjá daga bef-
ir komið til óeirða í Jerúsáleroi
vegna Bagdadsáttmálans.
— Reuter-NTB