Morgunblaðið - 24.12.1955, Síða 4

Morgunblaðið - 24.12.1955, Síða 4
20 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 24. des. 1953 ] SEXTÁN ÁRA VAR HANN EKKI LIÐTÆK- UR I SKÓLAKÓRINN, EN ÞRÍTUGUR HLAUT HANN BOÐ FRÁ TVEIM ÓPERUM. í BRODDI FTLKINGAR | — Þú hefur samt átt aftur- ÞAÐ var í þá gömlu og góðu daga, þegar Vestui’ og Aust- urbæingar „bárust á banasppjót- um“ og KH laðaði unga Vestur- bæinga eins og flugvélamar draga að sér hugi litlu strákanna í dag. Oft sló í bardaga milli fstráka ur Vestur- og Austurbæn- um, og var jafnan barizt í návígi. Slíkar herferðír voru sjaldan skipulagðar fyrirframT en þegar í bardaga sló, áttu piltarnir jafn- an foringja í sínum hóppi, sem •óöu öskrandi i broddi fylkingar fram á orustuvöllinn. Litlu strák- arnir, sem fylgdust af miklum áhuga með slíkum átökum, skjálf andi af hræðslu, tignuðu þessa herskáu foringja og sögðu með mikilli aðdáun hver við annan: „Svakalega er hann kaldur“. JEINN ÚR HÓPNUM Nú eru þessir „köldu karlar“ orðnir „hraustir menn“ — og láta ekki eins mikið til sín heyra og í gamla daga — nema að þeir séu staddir á Íþróttavellín- um og KR eigi í vök að verjast. Einn af þessum gömlu köpp- um hefur þó haldið raddböndun- um í þjálíun — og það svo, að láti hann til sín heyra, er sagt, að áheyrendur klappi svo mikið, að þá svíði í lófana. Þetta er enginn annar en einn ágætasti listamaður okkar, Guðmundur Jónsson óperusöngvari. FÆDDUR I SKUGGAHVERFINU Fyrir nokkru hitti fréttamaður blaðsins Guðmund að máli, og var hann hressilegur og reifur að vanda, þrátt fyrír það, að hann var þá nýkominn úr erfiðu ferða- lagi og átti í miklum jólaönnum. Við sátum yfir kaffibolla og röbbuðum um daginn og veginn. Hann hafði frá mörgu skemmti- legu að segja, því að bæði er hann víðförull — og hefur kynnzt sínu af hverju. En ætlunin var eiginlega að fá viðtal bæði við manninn og listamanninn Guðmund Jónsson, Við því svaraði Guðmundur, að bezt væri að maðurinn hefði orð fyrir báðum, því að svo slæmt orð fáeri af söngvurum, að vart væri hægt að búast víð neinu skynsamlegu úr þeirri átt. — Þú ert Reykvíkingur — er ekki svo — Guðmundur? — Jú, Reykvíkingur er ég í húð og hár, segir hann. Ég er fæddur í Skuggahverfinu, en fluttist í Vesturbæinn strax og ég vitkaðist og hef búið þar lengst af síðan. Sem stendur á ég þó heima í Austurbænum — en það stendur allt til bóta. ÆTLAÐI AÐ VERDA VERZL UNARMAÐ UR — Og þú ert sjálfsagt alinn upp við sverðaglamur og fótbolta- spörk, eins og aðrir Vesturbæ- ingar? — Já, það má kannske segja þ j.ð, en annars var ég alltaf stillt- Ux’ fram úr hófi — skammarlega .stilltur. Ég er nefnilega KR-ing- u; — segir Guðmundur og kímir. — Þú hefur sjálfsagt átt mörg og stór áhugamál, eins og aliir st rákar, — en hver voru fram- tíðaráform þín í þá daga? — Ég hafði ekki míklar áhyggjur af framtíðinni. Ég var KR-ingur, það var mér nóg — og ég ætlaði að verða það áfram. Á fermingaraldri varð ég sendill | í verzluninni Verðandí, og upp i jfrá því held ég að hugurinn hafi' hneigzt til verzlunarstarfa. Svo! ir.ikið er víst, að í Verzlunar- ákólanum lenti ég á endanum. AjFBROT í FYKRA LÍFI — jþú átt sennilega margar kvæmt til Bandaríkjanna - ef ég man rétt — þá varst þú með Karlakóri Reykjavíkur i Bandaríkj aförinni? — Já, það er rétt. Þegar heim kom gifti ég mig — og hafði auk þess ýmsum hnöppum að hneppa, svo að ég fór ekki aftur vestur fyiT en eftir eitt ár. ! Þessi mynd er tekin fyrir skömmu af þeim hjónum, Guðmunði Jónssyni og Þóru Haraldsdóttur ásamt börnum þeirra — Þorvarði Jóni og Ástríði, sem virðist þegar vera komin í jólaskap. (Ljósm. Mbl. Ól, K, M.) Ijúfar minningar frá þeim árum? — Já, ekki get ég neitað þvi. Eitt það skemmtilegasta, sem ég minnist þaðan er það, þegar ég ætlaði að ganga í karlakór skól- ans, en var rekinn frá, þar eð i ég þótti ekkí hæfur. — Þig hefur sennilega ekki I órað fyrir því þá, að þú ættir ! eftir að ganga sönglistinni á j hönd? -— Nei, það er vist satt. Mér og öðrum er þetta alveg óskiljanlegt. Stundum er ég að láta mér rietta í hug, að ég hafi brotið eitthvað hræðilegt af mér í fyrra lífi — og sé að bæta fyrir það nú, Að öðrum kosti hefði ég áreiðanlega ekki verið dæmdur í þetta. OG HANN BYRJAÐI AÐ SYNGJA —En hvað var það þá eigin- Iega ,sem olli því, að þú hófst söngnám? — Eintóm mistök — og ekkert annað. Það var skömmu eftir að ég útskrifaðist úr Verzlunarskól- anum, að ég fór með vini mínum og fyrrverandi skólabróður, Eyj- ólfi Jónssyni, til Péturs Á. Jóns- sonar óperusöngvara. Okkur langaði báða til þess að læra að syngja — en eiginlega fórum við samt af hálfgerðu fikti. Þc höfðum við hug á að koma hvor- um öðrum á framfæri, til þess að eitthvað gæti orðið úr þessu, ef hæfileikar væru fyrir hendi. Eyjóifur hætti samt eftir skamma stund, en ég þraukaði áfram og var tvo vetur hjá Pétri. Líkaði mér mjög vel við hann, því að hann var prýðis kennari — og á ég honum ekkert nema gott eitt upp að unna, H\J " R TTL 35A?RJ FBÍKJ ANNA — Áhuginn á söngnum hefur þá aukizt mikið eftir árin hjá Pétri? — Já, ég var orðinn staðráðinn í því að halda náminu áfram, og fór ég til Bandaríkjanna árið 1943 til frekara náms. í Los Angeles settLst ég að og hóf nám hjá rússneskum 3Öngkennara, Samoiloff að nafni. — Hvernig kunnurðu við þig í Bandaríkjunum — og hvemig var kennarinn? — Það var gott að búa í Banda- ríkjunum og sömuleiðis var kennarinn ágætur. Hann hafði líka verið góður söngvari áður og fyrr, en einn galla hafði karl- inn þó haft. Hann var nefnilega svo fjári kvensamur. Það var einmitt kvensemin, sem bundið hafði enda á söngferil hans, því að frúin var svo afbrýðisöm, að hún hafði krafizt þes3, að hann hætti að syngja — og „vesinast“ út um hvippinn og hvappinn. Varð hann því að setjast í helgan stein og taka upp kennslu. HEYRDI SJÁLFAN SIG — OG VILDI FARA HEIM — Þú hefur sjálfsagt haldið söngskemmtanir þar úti? —• Nei, það gerði ég reyndar ekki. En þar söng ég í fyrsta skipti inn á hljómplötur. Þegar ég heyrði svo í sjáltum mér varð ég bæði svekktur og hissa í senn yiir því — hvernig í ósköpun- um á því stæði, að ég var kom- inn alla leið vestur á Kyrrahafs- strönd — með slíkum árangri. Ég óskaði mér heim hið skjótasta, og svo fór raunar, að ég héljt heimleiðis eftir eins árs dvöl þar vestra. 96 ÞÚS ÁHEYRENDUR OG — — Ég vildi ekki hætta námi úr því að svo langt var komið. Við hjónin héldum vestur árið ’45 og ætlaði ég að fara aftur til Samoíloffs. Þegar út kom var hann ný-látinn, og hafði dóttir hans tekið við skólanum. Allt fór samt í hund og kött hjá henni, og ekki get ég annað sagt, en lítið hafi orðið úr námi þann vetui’inn. Haustið 1946 hélt ég svo til móts við Karlakórinn — og sÖng með honum í förinni. — Það hefur verið erfitt ferða- lag, því að þið munuð hafa farið mjög víða. — Ferðalagið var erfitt — enda héldura við 56 söngskemmt- anir á 63 dögum. Það kom samt ekki svo mjög illa niður á mér, þar eð Stefán íslandi var þá að- aleinsöngvari kórsins. Ég minnist þess, að við strákarnir töldum saman áheyrendafjöldann í allri ferðinni. Hann var hvorki meira né minna en 96.500, og það er alls ekki svo lítið. — SAKLAUST SFRELL — Það er líklega margs að minnast úr svo langri dvöl er- lendis? — Já, auðvitað. En eins og ég sagði þér áðan — þá hef ég alltaf verið skammarlega stilltur, og aldrei verið neinn æv- intýraprins. — Á hinn bóginn held ég að ekkert af því sé frá- sagnarhæft —• enda ekki nema saklaust sprell. —• Hélztu áfram námi eftir að þú komst að vestan? — Ég var tvö ár við óperudeild Konunglega Tónlistarháskólans í Stokkhólmi, en síðan hætti ég öilu slíku. BOÐH9 Al) SYNGJA VIÐ TVÖ ÓPERUHÚS — Utanfarir þínar eru víst ekki allar taldar með þessu. Þú söngst eitt sinn fyrir páfann — og ef ég man rétt, söngst þú líka í Kaupmannahöfn fyrir skemmstu. - Ég var í Miðjarðarhafsför Karlakórsim — það er rétt. Hvað viðvíkur Kaupmannahöfn Myndin er tckin á jólunum 1945 á heimili þeirrá Guðmundar og Þóru í Los Angeles. Höfðu þau boð fyrir íslendinga, sem staddir voru þar í borg — og eru þeir taldir frá vinstri: Gunnar Rúnar og frú, Halldór Þorsteinsson og Sverri Runólfsson. Lengst til hægri eru Guðmundur og fni. Myndina tók Ijósmyndari Mbl., Ólafnr K. Magnússon, ea hann var þá við nám í Hollywood. — þá buðu danskir blaðamenra mér árið 1953 að syngja á al- þjóða tónlistarhátíð, sem haldint var í Tivoli í Kaupmannahöfru — Hvernig voru viðtökuraar í Danmörku? — Ég verð að segja, að ég varð einstaklega feginn því hve Danir voru meinlausir við mig, en þeir eru almennt taldir mjög „kri- tiskir". —• Var þér ekki boðið að syngja við Konunglegu óperuna í Höfn? — Jú, mér var boðið að syngja þar — og einnig barst mér boð frá óperunni í Helsingfors. En það er samt einhvern veginn þannig, að ég kann alltaf bezt við mig heima — og vil hvergí annars staðar vera. VILL STARFA HEIMA — Það er líka annað, sem ef til vill hefur skipt mestu máli í þessu sambandi. Hér er svo margt ógert í tónlistarmálunum — og mig langar til þess að leggja þar hönd á plóginn eftir því sem hæfni og kraftar leyfa. —• Hvað er það, sem helzt vakir fyrir þér í þessum efn- um? — Það er að kynna öllum Guðmundur í hlutverki Tonio í óperunni „I Pagliacci". landsbúum og gefa þeim kost á að njóta þess, sem við erum færir um að gera í þessum efn- um. Samgöngur eru orðnar það góðar, að fólkið úti á landsbyggð- inn á heimtingu á, að tónlistar- lífið sé nú ekki lengur aðeins bundið við Reykjavík. Þjóðleik- húsið hefur að undanförnu farið með nokkur leikrita sinna út á land — og gefið með því gott fordæmi. Ríkisútvarpið hóf fyrir skemmstu tilraunir með tónlist- arstarfsemi með svipuðu sniði. Sb'ka viðleitni ber að virða, og er hún vissulega spor í rétta átt. Engum vafa er lengur bundið, að áhugi landsmanna er fyrir hendi. Þess hef ég margsinnis orðið var — og gæti nefnt mörg dæmi. FLUTTU PÍANÓ UM 30 KM. VEG — Þegar við vorum fyrir skemmstu á óperuferðinni um Norðurland, vorum við beðnir að koma fram í nýju félagsheimili að Skjólbrekku í Mývatnssveit. Komumst við að því í tíma, að engin leiktjöld voru til í sam- komuhúsinu — og sömuleiðis var þar ekkert píanó. Afboð var þess vegna sent í skyndi. En Norð- lendingar þessir voru alls ekki á því að sleppa okkur við svo búið. Þeir skruppu út á Húsavík, keyptu efnivið í leiktjöld — og eftir nokkra daga voru þau kom- in upp. Píanóið urðu þeir að flytja 30 km. vegarlengd. Þegar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.