Morgunblaðið - 03.01.1956, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 03.01.1956, Qupperneq 5
Þriðjudagur 3. janúar 1956 MORGVNBLAÐIÐ fe r Afclfundur GIímuféL Armann 714 MANNS æfðu iþróttir hjá félaginu á síðastliðnu starfsári. Aðalfundur Glímufélagsins Ár- manns var haldinn 30. nóv. s. 1. í veitingahúsinu Nausti. í upphafi fundarins minntist formaður tveggja félaga, sem lát- ust á árinu, þeirra Sigurjóns Péturssonar, forstjóra, Álafossi, og Guðmundar Þorbjarnarsonar, múrarameistara, er báðir voru landskunnir íþróttamenn, Stjórnin gaf ítarlega skýrslu um hið umfangsmikla og fjöl- breytta starf síðastliðins árs, en þá æfðu á vegum félagsins 714 manns, í 10 íþróttagreinum: Fimleikum, glímu, frjálsum íþróttum, handknattleik, körfu- knattleik, sundi, skíðaíþróttinni, bneíaleikum, róðri, pjóðdönsum og vikivökum. Ármenningar tóku Jþátt í flestum þeim íþróttamót- um, sem fóru fram í Reykjavík i þeim íþróttagreinum, er þeir leggja stund á. Hér verður getið nokkurra árangra í hinum ýmsu greinum: ÝMSAR GREINAR Ármenningar fengu 8 Reykja- vikurmeistaraíog 1 íslandsmeist- Sra. Á drengja- og unglinga- Sneistaramótinu hlutu þeir 7 ís- landsmeistara. Tveir Ármenning- ar fóru utan í keppnisferðir. þeir Þórir Þorsteinsson og Hallgrímur Jónsson og stóðu þeir sig með prýði. Ármenningar settu 3 fs- landsmet í frjáisum íþróttum, Mnnu fjórar greinar í landskeppn inni við Hollendinga og Hall- grímur Jónsson vann forsetabik- arinn, 17. júní 's. 1. Fimm Ár- menningar hlutu heiðursskjöld £rá Svíum vegna frammistöðu í Norrænu unglingakeppninni 1954. Þeir voru: Þórir Þorsteinsson, Hilmar Þorbjörnsson, Eiður Gunnarsson, Þorvaldur Búason Og Aöalsteinn Krisíinsson. Hilm- ar Þorbjörnsson náði í þessari keppni bezta árangri allra drengja á Norðurlöndum í 100 m íhlaupi. Ármenningar urðu bæði Beykjavíkur- og íslandsmeistar- ar í II. fl. kvenna í handknatt- leik. Ármenningar áttu Reykjavík- armeistara í 1. og 2. þyngdar- flokki í glímu. Þeir sýndu oftlega glímu á skemmtunum og fyrir arlenda ferðamenn. Stoínuð var á árinu körfuknatt leiksdeild og æfðu piltar 1 2. og S. fl. Ármenningar urðu bæði Beykj avíkur- og íslandsmeistar- ar í sundknattleik. Þeir áttu ís- landsmeistara í 100 m. skriðsundi og 100 m. flugsundi, settu þeir 1 íslandsmet á árinu. : Ármenningar áttu Reykjavík- Mrmeistara í svigi kvenna og sig- Mrvegarinn í svigi kvenna á Stefánsmótinu. Úrvalsfiokkur kvenna úr Ár- tnanni sótti Alþjóðafimleikamót i Rotterdam í júlí s. 1. sumar og Sýndi flokkurinn ennfremur í 3 borgum í Svíþjóð í sömu ferð. Fékk flokkurinn alls staðar hina lofsamlegustu dóma og í Rotter- dag var hann talinn með beztu flokkunum, sem sóttu það mót. Alls voru fimleikar æfðir í 7 fl. Flokkar félagsins höfðu sýning- ar í Reykjavíkur, Vestmanna- eyjum og víðar við mikla hrifn- ingu, enda landskunnir. Starfsemi róðrardeildar félags- ins var með miklum ágætum allt sum irið, tók hún þátt í öllum mótum, sem fram fóru á sumr- inu. Urðu Ármenningar bæði Reykjavíkur- og íslandsmeist- arar og sigruðu glæsilega í septembermótinu. Þeir unnu á starfsárinu þrjá bikara til fullr- ar eignar. ERLENDAR HEIMSÓKNIR í félagi við Í.B.R., Í.R og K.R. tók Ármann á móti fimleikaflokk um karla og kvenna frá Oslo Turnforening í tilefni af 100 ára afmæli þeirra, Ennfremur tók félagið á móti fimleikaflokkum frá Maryland háskólanum ásamt fyrrgreindum aðiljum og að síð- ustu tóku Ármenningar, ásamt Ægir-ingum, á móti þrem afburða sundmönnum Svía, er tóku þátt í sundmóti félaganna. í júní-mán- uði s. 1. hófust byggingafram- kvæmdir við íþróttasvæði félags- ins við Sigtún. Hafin er bygging búningsherbergja og fyrsta hluta félagsheimilis. Hafa framkvæmd- ir gengið vel og er nú að byrja að rætast framtíðardraumur félagsins með að eignast eigi heimili fyrir starfsemi sína. í stjóm félagsins voru kosnir: Jens Guðbjömsson, form., Sig- urður G. Norðdahl. varaform., Haukur Bjarnason, ritari, Ásgeir Guðmundsson, bréfritari, Þorkell Magnússon, gjaldkeri, Þórunn Erlendsdóttir, féhirðir og Vigfús Guðbrandsson, áhaldavörður. .— Varastjórn skipa: Jónina Tryggva dóttir, Gísli Guðmundsson og Hannes Hall. — Endurskoðend- ur: Stefán G. Björnsson og Guð- mundur Sigurjónsson. 117 sjíikliiigar f lottir lof tleiðis SJÚKRAFLUGIÐ hér innanlands hefir á undanförnum árum auk- izt jafnt og þétt. Er nú svo komið að í flestum sveitum lanasins hefur fólkið mikinn hug á því, að gera lendingarvöll fyrir sjúkra flugvélina til þess að lenda á í neyðartilfellum. Björn Pálsson flugmaður hef- ur verið helzti sjúkraflugs-flug- maðurinn. Hefur hann víða íarið til þess að sækja sjúka og slas- aða og sýnt einstakan dugnað og þrautseigju. í gærkvöldi skýrði Björn Mbl. frá því, að hann hefði flogið á s.l. ári 50.000 km í 117 fhigíerð- um með sjúkt fólk. Yfirleitt er um að ræða, að sjúklingarnir eru sóttir og fluttir hingað til Reykja víkur og lagðir hér í sjúkráhús. Síðustu daga fyrra árs og til 1. janúar, fór Björn Pálsson í sex ferðir út á land, til að sækja þangað sjúkt fólk, sem hér ligg- ur nú á sjúkrahúsi. Borgararéffindi kvenna TILLÖGUR að alþjóðasamþykkt um borgararéttindi kvenna er gift ast útlendingum hafa verið rædd ar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, sem staðið hefir yfir í New York. Samkvæmt tillögunum eiga konur að geta valið hvort þær vilja halda sínum borgararéttind- um, eða hvort þær kjósa að ger- ast borgarar í landi eiginmanns síns. A BEZT AÐ AVGLÝSA Jm V I MORGVNBLAÐINV T HÚSNÆÐI TIL LEICU Höfum til leigu tvær hæðir í nýju steinhúsi, um 440 ferm. Hvor hæð er einn salur, en gott að skifta eftir þörfum fyrir hvaða starfsemi sem er, t. d. skrifstofur, teiknistofur eða iðnað. Sérstök olíukynding er fyrir hvora hæð, einnig tvö W. C. og tvær handlaugar. Báðar hæðir eru bjartar og sólríkar. Uppl. í síma 8-24-17. Tökum myndir í heimahúsum Ljósmyndastof a Lvg. 30. Sími 7706 HERBERGI Ungur maður óskar eftir herbergi sem fyrst. Tilboð- um sé skilað fyrir laugar- dag, merkt: ,,Reglusemi — 982“. — BíKstjóri Abyggilegur og reglusamur maður, sem hefur bílpróf getur fengið atvinnu við út- kevrsiu nú þegar. Upplýsing ar í síma 6590. STIJLECA óskast Tvennt í heimili. Vinnutimi eftir samkomulagi. — Sími 2907. — STIJLKA Góð stúlka óskast til að sjá tim heimili, þar sem konan vinnur úti hálfan daginn. Uppl. á Miklubraut 90, — sími 6568. 2 Peisar sem nýir, tíl sölu. Upplýsing ar í síma 4810, í dag kl. 1— 6 e. h. Stofa til fieigu með húsgögnum, 1. hæð. — Tirboð sendist afgr. Mbl., merkt: „Hitaveita — 977“. Glæsileg íbiíðarhæð 165 ferm., 3 samliggjandi stofur, 2 góð svefnber- bergi, eldhús, bað og hali, með sér inngangi í Hlíð- arhverfi, til sölu. Bilskúr fylgir. Gæti orðið laus fljótlega. Útborgun um kr. 300.000.00. Nýja fasteignasalan Bankastræti 7, símí 1518 og kl. 7,30—8,30 e. h. 81546. Stórt iðnaðar- og innflutningsfyrirtæki vill ráða til sm skrífstofustúlku nú þegar. — Tilboð með upplýsingum um menntun og fyrri atvinnu, sendist afgr. Mbl. fyrir miðvikadagskvöld n. k., merkt: „Skrifstofustúlka“. Nr 1/1956 AtiGLÝSKMG | frá Innflutnmgsskrifstofunní Samkvæmt heimild í 22. gr. reglugerðar frá 28. des. , 1953 um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála, fjár- festingarmála o. fl. hefur verið ákveðið að úthluta skuli nýjum skömmtunarseðlum, er gildi frá 1. janúar til og með 31. marz 1956. Nefnist hann „FYRSTI SKÖMIVITUNAR- SEÐILL 1956“, prentaður á hvítan pappír með brúnum og grænum lit. Gildir hann samkvæmt því, sem hér segir: REITIRNIR: Smjörlíki 1—5 (báðir meðtaldir) gildi fyr- ir 500 grömmum af smjörlíki, hver reitur. REITIRNIR: SMJÖR gildi hver fyrir sig fyrir 250 grömmum af smjöri (einnig bögglasmjöri). Verð á bögglasmjöri er greitt niður jafnt og mjólkur- og rjómabússmjör, eins og verið hefur. „FYRSTI SKÖMMTUNARSEÐILL 1956“ afhendist aðeins gegn því, að úthlutunarstjóra sé samtimis skilað I stofni af „FJÓRÐI SKÖMMTUNARSEÐILL 1955“ með | árituðu nafni og heimilisfangi, svo og fæðingardegi og í ári, eins og form hans segir til um. Fólki skal bent á, að nauðsynlegt er að sk ifa á stofn j þessa.nýja skömmtunarseðils hver dvalarstaðurinn er 1. j; januar 1956, sé hann þá annar en lögheimilið. Reykjavík, 31. desember 1955 INNFLUTNINGSSKRIFSTOFAN ÓDÝRAR i KÁPl m Sefijtim i dag og næsfti daga fjölbreytt urval af erlendum kápii im á sériega hagstæðu verÖt FELDU R H. E. Laugavegi 116, III hæð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.