Morgunblaðið - 18.02.1956, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 18. febrúar 1956
A Ifedley Quality Product
‘-'O
Þvcer
hreinna
Já! TIDE hið nýja undra
þvottaefni, þvæj- hreinna en
nokkurt hinna! Hreinna en
nokkur sápa eða þvottaefni!
Sjáið hve auðveldlega og
fljátt TIDE eyðir öllurn
óhreindinum. Þér munuð
brátt sannfærast um að
TIDE gerir hvítan þvott
hví|.ari og skýrir litina betur
önnur þvottaefni. Ekkert
nudd er þér notið TIDE og
TIÍ>E er drjúgt. Notið alltaf
TIDE, það þvær hreinna en
nokkurt hinna.
ö 09
°q“
\<*
0o°'
Oo f
>°o7 en nokkurt
L%°
o°°
“ / hinna !
> 0»
LÉTTID ÞVuTTADAGINN MEÐ ÞVÍ AÐ NOTA TIDE!
Unglinga
vantar til að bera blaðið til kaupenda f
Seltjarnarnes (vestri híuti)
Kringlumýri
Sogamýri
JEúiStœblaíið
Háskólasafnið fær
fullkomið safn rifia
nm kjarnorkuvísindi
HÁSKÓLA ÍSLANDS mun innan skamms berast mikið safn af
tæknilegum skýrslum og bókum um rannsóknir á sviði
kjamorkuvísinda, og er það kjarnorkunefnd Bandaríkjanna, sem
sendir háskólanum þetta safn að gjöf.
Sendiráð Bandaríkjanna hér sendi utamíkisráðuneytinu ís-
lenzka í dag tilkynningu þess efnis, að kjamorkunefndin banda-
ríska hefði nýlega samþykkt þetta.
KEMUR í APRÍL N.K.
Þar eð bækur þær, skýrslur og
ritgerðir, sem eru í þessu safni,
vega meir en heilt tonn, verður
að senda það hingað til lands með
skipi. Ekki er enn vitað með vissu
hvenær safnið kemur til íslands,
en líklegast mun það verða
snemma í aprílmánuði n.k.
ÁÆTLUN EISENHOWERS
Söfn svipuð þessu hafa þegar
verið send til Noregs og Svíþjóð-
ar og margra annarra landa víðs-
vegar um heim. Kjarnorkunefnd
Bandaríkjanna hefur veitt öllum
þeim löndum, sem hafa óskað
þess og nefndin telur hafa að-
stöðu til þess að færa sér í nyt
fróðleik þann, sem slík söfn hafa
að geyma, tækifæri til þess að
eignast þau.
Þetta er einn þátturinn i áætl-
un Eisenhowers forseta um að
veita öðrum þjóðum tækifæri til
þess að notfæra sér niðurstöður
rannsókna, sem farið hafa fram
í Bandaríkjunum á sviði kjarn-
orkuvísinda. Sýning sú um hag-
nýtingu kjarnorkunna í þjónustu
mannkynsins, sem hér hefur stað
ið yfir að undanförnu og Upplýs-
ingaþjónusta Bandaríkjanna
ásamt Rannsóknaráði ríkisins
hafa séð um, er annar þáttur í
þessu starfi. Nú þegar hafa um
13.000 manns séð þessa sýningu,
en henni mun ljúka í kvöld og
verður bráðlega send héðan til
Bergen.
ÞRJÁR DEILDIR
Tæknibókasafni því, sem nú er
von á hingað til lands, má skipta
í þrjá hluta, eins og hér segir;
í fyrsta lagi eru í safninu meir
en 6.500 einstakar tæknilegar
skýrslur og ritgerðir, en af þeim
eru 1.625 eintök í fullri og venju-
legri stærð, en 4.900 þeirra á
míkrófilmuspjöldum.
í öðru lagi eru í safni þessu 28
bindi bóka úr flokki rita um rann
sóknir á sviði kjarnorkuvísinda,
sem kjarnorkunefnd Bandaríkj-
anna hefur gefið út undanfarin
ár; 9 bindi, er geyma ágrip af
hér um bil 50,000 skýrslum og
ritgerðum um svipað efni, sem
birzt hafa í vísindaritum og öðr-
um útgáfum bæði í Bandaríkj-
unum og öðrum löndum, svo og
ýmis önnur rit, þar á meðal allar
misserisskýrslur kjarnorkunefnd
ar Bandarikjanna, mikið rit um
grundvallarkenninguna um starf
semi kjarnorkuofna, heimildar-
rit um kjarnorkuvísindi og loks
rit, er nefnist Orka framtíðarinn-
ai’.
í þriðja lagi eru í safninu
45.000 spjöld, þar sem skráðar
eru allar skýrslur og heimildarit
bandarísku kjarnorkunefndar-
innar, sem ekki teljast leyndar-
mál og gefin stutt lýsing á hverri
fyrir sig.
VERÐUR ENDURNÝJAÐ
Safn það, sem hingað kemur,
er það sama og nú þegar hefur
verið komið fyrir í 42 bókasöfn-
um víðs vegar um Bandaríkin, og
mun bætt við það öðru hverju,
eftir því sem nýtt efni berst að.
Kjarnorkunefnd Bandaríkjanna
hefur farið þess á leit við ríkis-
stjórnir þeirra landa, sem slík
tæknibókasöfn hafa fengið, að
þau láti nefndinni í té sams konar
efni og upplýsingar, sem vísinda-
menn þeirra kunna að hafa sam-
ið.
íslenzka ríkisstjórnin beiddist
þess nýlega, að þetta safn yrði
látið okkur í té, eftir að Háskóli
íslands og Rannsóknaráð ríkisins
höfðu látið í ljós ósk um að hafa
aðgang að þeim tæknilegu upp-
lýsingum, sem það hefur að
geyma.
VEL ÚTBÚINN
Báturinn er búinn öllum ný-
tízku tækjum, svo sem dýptar-
mæli með actik—úífærslu og
ljósavél, tveim vökvaknúðum
spilum frá vélsmiðju Sigurðar
Sveinbjörnssonar. Ganghraði
bátsins er röskar 10 mílur á
klukkustund.
SVFÍ eipisf bús |
í ReyfcJaWk
EFTIRFARANDI tillaga féll nið-
ur, er skýrt var frá aðalfundi
Slysavarnadeildarinnar Ingólfs:
Framhaldsaðalfundur slysa-
varnadeildarinnar Ingólfs í Rvík,
haldinn sunnudaginn 29. jar.úar
1956, beinir þeim tilmælum til
8. landsþings Slysavarnafélags ís-
lands, að það hlutist til um að
stjóm Slysavarnafélagsins athugi
möguleika á því að ávaxta sjóði
þess í húseign í Reykjavík, þar
sem Slysavarnafélagið gæti m. a.
haft starfsemi sína.
í þessu sambandi vill fundur-
inn benda á það, að verðgildi
krónunnar fer rýrnandi árlega.
BÚINN AÐ FARA 3 RÓÐRA
Skipstjóri á Sigurði Péturssyni
er Gunnlaugur Egilsson. Er önn-
um áhöfn skipsins 7 menn, allir
úr Strandasýslu. Er báturinn þeg
ar búinn að fara þrjá róðra og
hefur aflað 33 lestir. Reyndist bát
urinn ágætlega í þessum fyrstu
róðrum. — Regína.
Loftleiðir flytja skrifstofur
sínar í nýtt húsnæði
Áfgreiðslan verður áfram í Lækjargofunni
FYRIR nokkrum dögum fluttu Loftleiðir skrifstofur sínar í nýtt
húsnæði í húsi því, er Sölufélagið er nú að reisa við Reykja-
nesbraut 6. Stendur hús þetta rétt sunnan við gatnamót gamla
Laufásvegs og Reykjanesbrautar. — Eru húsakynni þessi rúmgóð
og hin vistlegustu.
AFGREIDSLAN VERÐUR
ÁFRAM í LÆKJARGÖTU
Afgreiðsla Loftleiða verður
áfram í húsi því er Nýja Bíó er
í, Lækjargötu 2. Sú breyting
verður þó á, að hún hefur verið
flutt úr afgreiðslusal þeim, sem
Iðnaðarbankinn hafði einnig
bækistöð í, í húsnæði það sem á
sínum tíma var kennt við Bíóbúð,
en þar hefir á undanfömum ár-
um verið skrifstofa Loftleiða. í
afgreiðslusal þessum munu verða
veittar allar upplýsingar um
ferðir félagsins og farmiðar seld-
ir, svo sem fyrr hefur verið.
FERÐUM FJÖLGAÐ
Loftleiðir halda nú uppi sex
ferðum hingað og héðan í hverri
viku. í aprílbyrjun er gert ráð
fyrir að fjölga ferðunum upp í 8
og eftir miðjan maí er búizt við
að flugvélarnar verði 12 sinnum
í viku hér á leið vestur um haf,
eða austur yfir Atlantshafið.
Hálka á Hval-
fjarðarvegmum
AKRANESI, 16. febrúar. —
Ég frétti það hjá einum bílstjór-
anum, sem ekur Akranes—Rvík,
að Hvalfjarðarvegurinn hefði
víða verið viðsjáll í gær vegna
hálku, Sá bílstjórinn merki þess,
að á nokkrum stöðum héfðu bíl-
ar farlð út af veginum. — Tveir
bílar, sem fóru héðan, komust
t. d. ekki lengra en að Staupa-
steini vegna hálku. —O
Loftieiðir hjéSa
Svíum iil fslands-
ferðar
FYRIR nokkru ákváðu Loftleiðir
að bjóða 12 afgreiðslumönnum í
sænskum ferðaskrifstofum til ís-
landsferðar í febrúarmánuði. Var
þetta bæði gert til þess að kvnna
þeim ísland og þá þjónustu, er
félagið veitir á flugleiðum sín-
um. —
Fyrsti hópurinn, fjórir af-
greiðslumenn, tveir frá Gauta-
borg, einn frá Falun og einn frá
Stokkhólmi, komu til Reykjavík-
ur í vikunni sem leið og fóru héð-
an á laugardag. Hér í Reykjavík
var skoðað það, sem markverð-
ast þótti og setið kvöldverðarboð
ferðaskrifstofunnar Orlof. — Far
ið var austur yfir fjall 1 boði
Ferðaskrifstofu ríkisins og ís-
lenzk kvikmynd skoðuð eftir að
aftur var komið til bæjarins.
Voru hinir sænsku gestir
ánægðir mjög yfir viðtökunum,
er þeir héldu heim.
Næsti hópur Svía er væntan-
legur hingað á miðvikudaginn
kemur, 15. þ. m., og verður hann
hér í nokkra daga. Síðasti hópúr-
inn, sem kemur að þessu sinni í
boði Loftleiða er væntanlegur
25. þ. m. frá Kaupmannahöfn, en
í honum eru starfsmenn ferða-
skrifstofa í Helsingjaborg óg
Málmey.
Landssmiðjan afhendir
vandaðan 40 lesta bát
Verlur gerður ú! frá Sandgerði í vefur
GJÖGRI, Strandasýslu, 7. febr.
HINN 7. þ. mán. afhenti Landssmiðjan í Reykjavík 40 lesta
fiskibát, er hún hefur látið smiða. Eigandi er Sigurður Ket-
ilsson á Djúpavík. Báturinn hefur hlotið nafnið Sigurður Péturs-
son RE 331, og verður hann gerður út frá Sandgerði í vetur.