Morgunblaðið - 18.02.1956, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.02.1956, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIB Laugardagur 18. febrúar 1956 Sara Baciedikfsdéflir - iniiining FYRIR tæpum 5 árum fluttist til Stokkseyrar, frú Sara Benedikts- dóttir frá Akureyri, og tók við rekstn Hótel Stokkseyri, fyrst í annarra þjónustu, en festi brátt kaup á fyrirtækinu og rak það síðan fyrir eigin reikning til dauðadags. Frú Sara kom til Stokkseyrar •iQum ókunnug, en vann sér brátt tiltrú og virðingu þeirra fjöl- mörgu, sem umgengust hana og áttu við hana viðskipti, meiri eða minni. Frú Sara gekk að störfum ró- leg, með fumlausri einbeitni og kom ótrúlega miklu í verk. Ég kyantist frú Söru svo, að hún væri rík af góðvild og samúð með þeim, sem minna máttu, góðgerðarsöm og hjartahlý. Ég varð þeirrar ánægju að- njótsndi, að' einkabam frú Söru, Ásta litla Benedikts, dvaldist á heimi! i mínu hluta af þrem síð- ustu sumrum. Við það urðu kynni okkar nánari en ella og duldist mér ekki móðurgleðin og um- hyggjan fyrir einkabarninu. Gleðin í andlitinu, þegar ég talaði við hana síðasta sinn er hún var að segja mér fréttir frá dóttur sinni, sem nú dvelur við nám í annarri sveit. Það verður myndín, sem ég geymi í huga míwum af frú Söru Benedikts- dóttur. Frú Sara var í hærra lagi, fönguleg og fríð sínum. Ættuð var hún úr Þingeyjarsýslu, fædd 3. marz 1905, að Breiðuvik á Tjöraesi. Hún lézt af hjartaslagi hinn 12. þ. s., mitt í önn dagsins. Við þessa dánarfregn varð mér fyrst fyrir að hugsa með sökn- uði til hins auða rúm, en þegar betur er að gáð, ber að þakka fyrir að haía uin sinn átt góðan ferðafélaga, því að „vér erum á ferð yfir brúna“ þótt mislangt sé heám. Vlnkonu minni, Ástu litlu Benedikts, og öðrum aðstandend- um, votta ég mina dýpstu samúð og bið guð að blessa henni minn- inguna um mæta móður og höfð- in^konu. Sigurgrímur Jónsson. — íþróffir Framh. af bls. 11 skiljanleg og miðar frekar að því að vinna gegn .þróttinni. en að f£gjngangi hennar. sem ætti þó að 'Wera fyrsta boðorð ráðsins. Það er skoðun mín, að réttara nefði verið að halda áíram á þfcirri braut, sem mörkuð var á S4.-vet ri og reyna heldur að vinna bug é þeírn erfiðleikum, sem að steðja. heldur en að leggja árar í bát. Með þökk fyrir birtinguna. Haraldur Guðmundsson. TRCliOFJNAH URTNGA K 14 kara.;a og 18 karata - Úr daglega lífinu r raiaa. aj ois. f | vitum lítil deiii á — nema að hann átti happdrættismiða og j asna — hversu ólíkt sem það nú ; er. Eins er það í Grikklandi og : hér, að á endanum er dregið í, öllum happdrættum Já, og svo j var dregið — og Grikkinn hóf leit að miðanum með þá von í brjósti, að hann hefði unnið. Hann fann miðann, en missti hann niður — og asninn var þar nálægur — og át auðvitað miðann. Sá gríski var ekki lengi að hugsa sig um, tók byssu, og skaut asnann. Sftir krufningu fann maðurinn niið- ann — og var nú orðinn sann- færður um að hann hefði unr.ið í happdrættinu. Þið eruð þó ekki að ímynda ykkur, að hann hafi unnið? Onei, — en hann missti asnann sinn fyrir bragðið. - Heine Framh. af ble. 7 inn sverta samlanda sína í augum útlendinga, en sannleikurinn er sá, að dðfarir beggja eru skurð- aðgerðir. Þeir kjósa að skera burt meinsemdimar, hversu sárt sem það kann að reynast, og gera það á sjúklingnum vakandi. Báðir eru að lækna þjóðfélag, sem þeim er annt um. ★ Það hefur oltið á ýmsu um mat manna á verkum Heinrichs Heine. Yrði alltof langt mál að rekja þá sögu hér. Sumir meta hann meira en öll önnur skáld, aðrir telja hann „poetískan svindlara“. Þetta segir Nietzsche: Hina fullkomnustu hugmynd um það, hvað Ijóðskáld er, öðl- aðist ég í verkum H. Heines. Hvergi finn ég í ljóðum fyrri árþúsunda jafn sæta og ástríðu- fulla hljómlist. í fari nans er hin guðlega vonska. Án hennar er hið fullkomna ekki til í mínum augum. Og þetta sagði Bismarck, þegar uppi voru mólmælaraddir um, að Heine yrði reist minnis- merki: Gleyma þá herramennirn- ir þvi, að Heine er Lieder-skáld, sem Goethe einn fær jafnast á við, og að Ijóðið (Lied) er ein- mitt sérþýzkt skáldskaparform. Frá því um síðustu aldamót og allt til loka heimsstyrjaldarinn- ar síðari var skáldskapur Heines í minni metum en verið hafði á 19. öld. Nú hefur þetta breytzt aftur, þó enn sé ljóðum hans skammtað undarlega Jítið rúm í þýzkum ljóðaúrvölum miðað við suma aðra, sem ótvírætt eru minni skáld. En síðasta áratuginn hefur áhugi Þjóðverja á verkum Heines færst aftur í vöxt; er nú gefið mikið út af bókum hans. Bréf: „Reykjavíkurmeisf- ari í brfdge FIMMTUDAGINN 16. þ.m. birtir Morgunblaðið frétt þess efnis að sveit Harðar Þórðarsonar sé Reykjavíkurmeistari í bridge. Miðvikudaginn 15. þ.m. kom fréttin í Vísi. Þetta er ekki rétt. Reykjavíkurmeistari getur eng- inn orðið nema keppni fari fyrst fram á milli allra bridgefélaga á staðnum, en þau eru þrjú: Bridge félag kvenna, Bridgefélag Reykja víkur og Tafl- og bridgeklúbbur- inn. Þetta mót sem nú var háð, var aðeins innanfélagsmót Bridgefé- lags Reykjavíkur. Þrisvar áður hefur komið frétt í Morgunblað- inu þess efnis að nú væri verið að keppa um bridgemeistaratitil Reykjavíkur. Ég mótmælti þessu við formann Bridgefélagsins og sagði hann að þetta hefðu þeir ekki látið blöðunum i té heldur væri þetta blaðið sjálft sem stæði fyrír fréttinni. Ég hringdi síðan í bæði Morgunblaðið og Vísi, og bað þá að leiðrétta þetta, og lof- uðu þeir því, en háfa þvi miður ekki efnt það. Hugsið ykkur t. d. að Akureyr- ingar efndu til bridgemóts, sem væri aðeins fyrir þá, síðan mvndu þeir kalla sigurvegarana Norður- landsmeistara, hvað haldið þið að Siglfirðingar, Húsvíkingar og Dalvíkingar segðu við því. Það stendur einnig yfir meist- araflokkskeppni hjá Tafl- og bridgeklúbbnum og Bridgefélagi kvenna, núna um þessar mundir. Við gætum þá einnig verið að keppa um bridgemeistaratiltil Reykjavíkur og væri þá nokkuð langt gengið ef það væru þrjár sveitir Reykjavíkurmeistarar. Ég hélt að fullorðnir menn hefðu enga ánægju af að hlaða á sig titlum, sem þeir hafa ekki til unnið. Með þökk fyrir birtinguna. Jón Magnússon, form. Tafl- og bridgeklúbbsins. í búnaðar þingi í GÆR var á búnaðarþingi tekin til umræðu skýrsla Búnaðarfé- lagsins, sem búnaðarmálastjóri flutti í fyrradag. Urðu talsverðar umræður um skýrsluna og tóku margir fulltrúanna til máls. Páll Zóphóníasson, búnaðarmálastjóri svaraði af hálfu stjórnarinnar. Næsti fundur þmgsins hefst kL 10 f.h. í dag. Kögur á gólfteppi N ý k o m i ð Gólfteppagerðin h.f. Skúlagötu — Sími 7360 ^ Hótel Borg ALLIR SALIRNIR OPNÍR I KVÖLD OG NÆSTU KVÖLD Vefnaðarvörur: Barnanátíföt Kvenbuxur (úr baðmull) Baðmullar kvensokkar Karlmannssokkar (úr baðmull) Kven- og barna- hosur Bama sportsokkar Tau-hanzkar Karlmanna hattar Enn þá eigum við ofangreindar vörur með óbreyttu verði. Kristján G. Gíslason & Co. hi. Stúdentagarðarnir til leigu Eins og undanfarin sumur, verða stúdentagarðarnir leigðir út til gistihúsreksturs næsta sumar. — Tilboðum sé skilað, fyrir 10. marz, í skrifstofuna á Gamla Garði, en þar geta menn fengið frekan vitneskju. Garðstjórn. HIIR VELÞÍKKTU DALEX VOKVAMÆLAR fyrirliggjandi Verzlunin HAMBORG Laugaveg 44 — Sími 2527 c—M A K K tJ S Eftir Ed Dodd <5*— HE’S OUT._ % H THEN THERE'S THE I ÐGN SHERlFF'S SON-IN-LAW, ) KNOW Hl/W JOE HARDV...HE HUNTS \vvhAT SORT LlONS IN THE MOuNTAlNSSOF FELLOV\ OCCASlONALLV WITH DOSS/) IS HE? T%t OH, HE'S A Nr.E j M... ) YOUN3STEO.„-fiCI?r *■ 2RT< A SWEET vyiFJ? Ú , VND Cijn ff f ... t DO>": 1) — Ég ætla nú samt að þessu fyrir mér. í fyrsta lagi i skógínum og Franklin var ráð- halda áfram að taka mót af t veit ég að dádýrin sækja í ; inn til að vera á verði gegn veiði- sporum Anda, ef við skyldum! Þyrnirósarlundinn: ! þijófum í fjarvist minni. hafa þörf fyrir þau 2) — Ég er stöðugt að velta 3) — í öðru lagi hefur Andi j 4) — Já, þú hefur nokkuð ti1 verið æfður í að verja dýrín íiþíns máls, — Mér virðist að einhver hafl Viljað fjarlægja bæði skógar- vörðinn og Anda og þá er til- gangurinn attðsær. Það er ve:ði- þjófur á ferðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.