Morgunblaðið - 09.03.1956, Síða 1

Morgunblaðið - 09.03.1956, Síða 1
16 síður 4$. árgangiu 58. tbl. — Föstudagur 9. marz 1956 Prentsmiðja Morgunhlaðsin* Engin fyria þóff hann sé svarfsýnn BLAÐ pínulitla flokksins kemst fyrir skömmu þaimig að orði, að svartsýni og vonleysi móti nú íslenzkt þjóðlíf. Mörgum mun finnast það eðlilegt, að Alþýðuflokkurinn og málgagn hans sé um þessar mundir svartsýnt. Flokkurinn hangir á horriminni. Hann hefur gpfið unp alía von um sjálfstæða tilveru og setur allt sitt traust á pilsíaida Fram- sóknar. íslenzka þ.ióðin veit hins vegar að hún býr nú við almennari velmenm en nokkru sinni fyrr í sögu sinni. Nokkrum hluta hennar hefur hins vegar orðið það á, að láta kommúnista hafa sig til ógæfu verka gagnvart bjargræðis- vegum hennar. Þess vegna hefur orðið að gera ráðstafan- ir til þess að hindra stöðvun bátaflota og togara. Þess vegna hefur orðið að ieggja á nýja skatta til þess að rétta hlut framleiðslunnar, sem er mæniásinn í öUu þjóðfélags- starfinu. Kommiinistar og fylgilið þeirra í Alþýðuflokkn um ber ábyrgð á þessum nýju . sköttum. ENGIR þeirra erfiðleika, sem hið lánlausa atferli hinna sósíal- isku flokka hefur leitt yfir þjóðina þurfa þó að hindra framfarasókn hennar til fram- búðar, ef hún aðeins snýst gegn þeim af manndómi og festu, íslenzka þjóðin getur því horft vonglöð móti fram- tíðinni, ef hún aðeins er sjálfri sér trú og eyðir áhrifum þeirra upplausnarafla, sem hrundu dýrt'öarskriðunni á stað með verkföllunum á s.l. ári. Aldrei hefur meira verið gert til þess en siðan Sjálf- stæðisflokkurinn komst til valda og áhrifa í stjóm lands- ins að bæta aðst.öðu fólksins í lífsbaráttunni. Þess vegna líð- ur íslendingum í dag betur en nokkru sinni fyrr. Saga sið- ustu 17 ára sannar, að undir forystu Sjálfstæðismanna hef- ur meira verið gert til þess að bæta úr húsnæðisskortin- um, virkja ár og fossa, bæta samgöngur, efla atvinnuveg- ina, bæta menntunar- og heil- brigðisskilyrði og hagnýta auðlindir landsins, en nokkru sinni fyrr. ÞETTA eru spor hinnar víðsýnu framkvæmdastefnu Siálfstæð- isflokksins. Ef áhrifa sjálf- stæðisstefnunnar heldur áfram að gæta í stjórn Iandsins get- ur þjóðin horft hjartsýn fram á veginn. Ef hin sósíaliska niðurrifsstefna, sem kommún- istar og fylgilið þeirra berst fyrir nær hins vegar auknum áhrifum er ástæða til svart- sýni. En íslendingar munu velja hina raunsæju fram- kvæmdastefnu. Dýrt:ðar- og verðbólgustefna kommúnista og Alþýðuflokksins verður vegin og léttvæg fundin. T\ ær flugvélar Vlollet fer fram á aukin völd París 8. marz. ÖRLÖG Frakklands eru háð Al- sír — og brýn nauðsyn ber til þess, að Mollet fái völd, sem gera honum kleift að koma á friði og ró í Alsír — sagði hinn nýskip- aði Alsírmálaráðherra, Lacosta, í franska þinginu í dag. Þingið hóf í dag umræður um frumvarp stjórnarinnar um Alsírmál, og fer hún þar fram á aukin völd til þess að koma á nauðsynlegum umbótum í landinu, sem gætu í framtíðinni grundvallað frið. Mollet mun gera það að frá- fararatriði, ef frumvarpið verður fellt, en ekki er búizt við að þingið felli það, þar eð bráða nauðsyn ber til þess að koma á ró og friði í Alsír — og öll töf gæti orðið dýrkeypt Frökkum. Búast má við að atkvæðagreiðsla um frumvarpið fari fram á þriðju daginn. NORÐMENN gæta RÚSSANNA KRISTJÁNSSUND, 8. marz — í dag var slæmt veður á síldar- miðunum fyrir utan Kristjáns- sand. Var þungt í sjóinn og skyggni lítið. Flugvél frá sjó- hernum flaug yfir veiðisvæðið, og sögðu flugmennirnir, að skyggni væri sums staðar ekki nema 120—150 metrar. Voru þeir að gæta rússnesku síldveiðiskip anna, og reyndist mjög erfitt að finna þau. Þegar þeir að lokum komu auga á flotann var hann á leið til hafs. Vilja halda LONDON, 8. marz — í dag bárust brezku stjórninni tilmæli frá stjórn Jórdaníu — þess efnis, að hún endurskoðaði ákvörðun sína þess efnis, að kveðja heim 15 brezka liðsforingja í Arabaher-; deildinni í Jórdaníu. Fréttarit-1 arar í lórdaníu segja, að álitið sé, að nokkrir háttsettir menn í Arabaherdeildinni hali haft í hótunum við Hussein Pasha. Er sagt að þeir hafi hótað Hussein j að steypa honum af stóli ef hann [ viki Glubb ekki úr embætti. Svo; mikið er víst að konungurinn tók ákvörðun þessa án þess að ráðfæra sig við stjórnina, og mun brottvikning Glubbs nafa komið mjög flatt upp á hana. Umfangsmikið njósnamál fyrir rétti ■ París Þekktir stjórnmálamfciin koma fram sem vitni í málinu París. SIÐASTL. miðvikudag kom njósnamál fyrir rétt í Rétt- arhöllinni í París. Er njósnamál þetta mjög umfangsmikið og hef- ur því verið jafnað við Mata Hari-málið, er franskir dómstól- ar fjölluðu um fyrir 39 árum síðan. Mál það, sem nú er á döfinni, vakti gíi'urlega athygli um gjör- vallt Frakkland á sinum tíma — í september 1954 — og varð tiÞ þess að veikja mjög trú manna á stjórnmálamönnum. Fjöldi þektra stjórnmálamanna — þ. á. m. Pierre Mendes-France, Geor- ges Bidault, René Pleven og KAIRO, 8. marz — Hussein Jórdaníukonungi hefur borizt persónulegt bréf frá Nasser for- sætisráðherra Egyptalands. Full- trúar Egypta, Sýrlands og Saudi- Arabíu sitja nú fund í Kairó, og ætlað er að Nasser hafi boðið Jórdaníu í bréfinu til Husseins, að senda fulltrúa til þessarar ráðstefnu. Arabaríkin eru þess mjög hvetjandi að Jórdanía slíti vináttu sinni við Bretland, og sameinist samtökum Arabaríkj- anna. Arabaríkin hafa m. a. boð- ið Jórdönum fjárhagslegan stuðn ing, ef Bretar svipta þá fjárhags- aðstoð. farast SARDINA, 8. marz ■— Síðdegis í dag hófst víðtæk skipulögð leit flugvéla og skipa að tveim brezk- um flugvélum úr sjóhemum, sem fórust : dag skammt suð-vestur af strönd Sardina. Ekki er búizt við að áhafnirnar hafi komizí lífs af. Gangskör þarf að gera að innheimtu ríkisins Umræður á Alþingi um ríkisreikninga RÍKISREIKNINGARNIR fyr- ir árið 1953 eru nú til um- ræðu og samþykktar á Al- þingi. Hafa endurskoðunar- menn gert athugasemdir við ýmsar greinar reikningsins. M.a. hafa þeir gagnrýnt að óinnheimtar skuldir voru all- miklar við árslok hjá ýmsum sýslumönnum. En á þessum stöðum voru hæstar upphæðir óinnlieimtar: Á Akranesi 1,1 millj. kr., í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu 298 þús. kr., í ísafjarðarsýslu og ísafjarðarkaupstað 450 þús. kr., í Eyjafjarðarsýslu og Ak- ureyri 1,4 millj. kr., í Nes- kaupstað 727 þús. kr., í Vest- mannaeyjum 306 þús. kr., í Keflavík 1,3 millj. kr. og í Gullbringu- og Kjósarsýslu og Hafnarfirði 3,3 millj. kr. í sambandi við þessa gagn- rýni sá þingmaður Vestur- j Húnvetninga, Skúli Guð-: mundsson, ástæðu til að rísa úr sæti sínu og lýsa því yfir,, að sýslumenn og bæjarfóget- j ar i Mýra- og Borgarfjarðar-1 sýslu, ísafirði, Eyjafirði og Vestmannaeyjum væru rang- lega gagnrýndir, því að pró- sentvís væri meira innheimt hjá þeim en sumum öðrum stéttarbræðrum þeirra. Enda var ekkert um það talað í athugasemd endurskoðenda, að hér væri rætt um prósent- ( vís upphæðir, heldur einfald-1 lega taldir upp þeir, sem stærstar upphæðir áttu óinn- heimtar. Fundum Asíu- bandalagsBiis lokið KARACHI 8. marz — í dag lauk fundum Suður-Asíubandalagsins, sem . utanríkisráðlierrar átta bandalagsríkja hafa setið. Að fundinum loknum var gefin út sameiginleg yfirlýsing allra full- ’trúanna þar sein þeir ásökiaðu Sovétríkin fyrir að ala á úlfúð milli Asíuríkjanna og hinna frjálsu þjóða á Vesturlöndum. Einnig hvetja utanríkisráðherr- arnir til þess að reynt verði að finna viðunandi lausn Kasmír- vandamálsins, annað hvort á vettvangi S. Þ eða með beinum viðræðunt milli Pakistan og Indlands. André Baranes, blaftamatiur — einn a/ sakborningunum. Francois Mitterand — verða kall- aðir í vitnastúkuna við réttar- höldin. □— --------------------□ PARÍS, 8. marz. — Franska stjórnin hefur ákveðið, að Pierre Mendes-France skuli ekki bera vitni í njósnamál- inu. Samkvæmt frönskum lög- um ákveður stjórnin, hvort ráðherra fær að stíga í vitna- stúkuna. Mendes-France er ráðherra án stjónardeildar í stjórn Mollets. □----------------------□ Fjórir menn eru ákærðir fyrir að hafa látið leynileg skjöl varð- andi varnir landsins af hendi við „óviðkomandi persónur“. í ákæru skjalinu segir, að þesBStr „óvið- komandi persónur" hafi verið flugumenn franska kommúnista- flokksins. Hinir fjórir ákærðu eru: Jean Francis Mons, sem var aðalrit- ari leynilega franska varnarráðs- ins, er hann var handtekinn fyrir einu og hálfu ári, og var hann einn af þrem mönnum, sem hafði heimild til að skrifa niður at- hugasemdir, meðan á fundum ráðsins stóð. Er hann fimmtugur að aldri. Rene Turpin, 44 ára gamall, og Roger Labrusse, 42 ára gamall, voru aðstoðarmenn Mons aðalritara. Og fjórði mað- urinn er Andre Baranes, fyrr- verandi blaðamaður við „Libera- tion“, fertugur að aldri. ★ ★ ★ Mál þetta var dregið fram í dagsins ljós 20. september 1954, og hófst með því, að þáverandi lögreglustjóri í París, Jean Dies, var handtekinn. Löngu áður var þó orðið ljóst, að einhvers staðar „lak“ — ráðagerðir, er halda átti stranglega leyndum, komust í hendur njósnara. Varð þetta einkum áberandi, er Frakkar voru að missa öll ítök í Indó- Kína, er herir Vietminh um- kringdu Frakka við virkið Dien Bien Phu. Dides lögreglustjóra var falið að rannsaka þetta mál, og í lok júní 1954 hafði hann haft sam- band við kommúnistann og blaða manninn Andre Baranes um fyrsta fund ráðsins, er haldinn var eftir að Mendes-France varð forsætisráðherra. En nokkum vikum síðar var Dides sagt að fjalla ekki lengur um málið og honum fengin önnur verkefni. Rannsókninni var engu að síður haldið áfram. ★ ★ ★ En Dides vildi ekki láta málið ganga úr greipum sér. Hann hafði áframhaldandi samband við Baranes, og 14. september hitti hann Baranes, sem lét hon- um í té skjöl, er skýrðu greini- lega frá fundi varnarráðsins, er hafði verið haldinn fjórum dög- um áður. Dides fór 18. sept. á fund síns gamla vinar Christian Fouchet og vakti athygli hans á „lekanum" meðal starfsmanna varnarráðsins, og ætlaðist hann til að Fouchet fengi Mendes- France þessar upplýsingar í hend ur. En er hann yfirgaf skrifstofu Fouchets var hann handtekinn. Horiur ó luusn verkiullsins í Finnlundi HELSINGFORS, 8. marz — I fyrsta sinn síðan allsherjar- verkfallið í Finnlandi brauzt út fyrir um það bil viku, sátu fulltrúar atvinnurekenda og verkamanna sameiginlegan fund í dag. Deiliuaðilar voru kvaddir saman til fundar af sáttanefnd, sem ríkisstjórnin hafði skipað, til þess að reyna að miðla málum í deilunnL Ekki er enn kunnugt um hver málamiðlunartillaga sátta- nefndar er, en ætlað er að verkamönnum hafi verið boð- in kauphækkun, sem svarar kr. 2 72 ísl. á klukkustund, vegna hækkaðs verðs á land- búnaðarafurðum. Pundurinn í dag stóð yfir i þrjá tíma, og munu samninga- viðræður verða teknar upp aftur fyrir hádegi á morgun. í dag voru allar benzínstöðvar opnaðar aftur, og má heita að allt hafi farið friðsamlega fram. Á nokkrum stöðum reyndu verkfallsverðir þó að hindra benzínsölu, og kröfðu viðskiptavinina um kaup- heimild útgefna af verkfalls- stjóminni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.