Morgunblaðið - 10.03.1956, Side 1

Morgunblaðið - 10.03.1956, Side 1
16 síðair 41. árgangur 59. tbl. — Laugardagur 10. marz 1956 Prentsmiðja Morgunhlaðsin* Hvor eru þeirru ALLUR almenningur í landinu het'ur tekið vel tillögum þeim, sem viðskiptamálaráðherra lagði fyrir skömmu fram í rík- isstjórninni fyrir hönd Sjálf- stæöisilokksins um stöðvun dýrtíðarinnar og ráðstafanir til þess að halda kaupgjalds- vísitölunni óbreyttri til ára- móta. í greinargerð ráðherr- ans var frá því skýrt, að ef ekki yrði að gert myndi vísi- talan hækka um 8 stig fram til 1. maí n.k. Yrði hún þá orðin 181 stig. Frá 1. maí til 1. ágúst myndi hún hækka um 4 stig og komast þá upp í 185 stig. Frá 1. ágúst til 1. nóv. myndi hún síðan hækka um 5 stig og vera þá komin upp í 190 stig. Enginn heilvita maður fer í grafgötur um það, að ef þessi gífurlega hækkun vísitölunn- ar gerðist á næstu mánuðum myndi það í senn baka ríkis- sjóði stórkostleg útgjöld og valda samdrætti og jafnvel stöðvun framleiðslunnar. Þær ráðstafanir, sem þing og stjórn hafa nýlega gert til stuðn- ings útflutningsframleiðsl- unni yrðu á skömmum tíma gagnslausar. Svikamylla verð bólgunnar héldi áfram með auknum hraða. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hikaði hins vegar ekki við að bera fram tillögur um stöðv- un þessarar óheillaþróunar. í þeim felst að vísu ekki fram- búðarlausn. En með skjótri framkvæmd þeirra væri hægt að firra bæði almenning og þjóðarbúið miklum erfiðleik- um á næstu mánuðum. Blöð kommúnista og Alþýðu flokksins ráðast gegn þessum tillögum með miklu offorsi í gær. En hvaða úrræði benda þessir flokkar sjálfir á til lausn ar þeim vanda, sem ábyrgðar- laust atferli þeirra hefur leitt yfir þjóðina? Engin, alls eng- in. Kommúnistar segja að það sé árás á lífskjör almennings að hindra hækkun vísitölunn- ar. En hvaða áhrif myndi það hafa á lífskjörin ef fram- leiðslutækin stöðvuðust á miðju ári vegna stóraukins rekstrarkostnaðar? — Þeirri spurningu svarar kommún- istablaðið ekki. ANNARS mætti minna kommún- ista á það, að þegar þeir voru í nýsköpunarstjórninni á sín- um tíma, töldu þeir niður- greiðslur á verðlagi til þess að halda vísitölunni niðri ekki árás á almenning eða fölsun vísitölunnar. Þá áttu þeir þátt í stórfelldum niður- greiðslum. Á það má einnig benda, að kominúnistar töldu lausn vinnudeilunnar í desember 1952 mikinn sigur fyrir verka- lýðinn. En sú lausn fólst nær eingöngu í auknum niður- greiðslum á verðlagi og þar með hindrun á hækkun kaup- gjaldsvísitölunnar. Nú segja þessir sömu menn að tillögur Sjálfstæðismanna um stöðvun dýrtíðarinnar og óbreytta vísitölu sé „fölsun vísitölunnar“. — Hver tekur mark á þessum vindhönum? Enginn vitiborinn maður. TÍMINN viðurkennir að tillögur Sjálfstæðismanna geti verið gagnlegar. En hann sakar við- skiptamálaráðherra um að Fimm menn Hörmulegf sjóslys: drukkna er hvolfir hát þeirra brimgarði i Vélin í bátnum biiaði og hann mk upp' Allt vaskir menn frá Reykjavik ENN hefur sjóslys orðið og mannskaði. í gærdag fórst lítill vélbátur austur við Selvog, Vörður frá Reykjavík, og með honum áhöfnin öll. Voru fimm vaskir menn á bezta aldri með bátnum. Slys þetta varð með þeim hætti, að bátinn bar inn í brimgarð og þar hvolfdi honum á svip- stundu. Fjórir mannanna voru fjölskyldumenn, er láta eftir sig konur og ung börn. Þetta hörmulega slys er hið mesta, sem orðið hefur á þessum vetri. Á sínum tima gerðu menn sér vonir um, að heimsókn Lennox-Boyd, brezka nýlendumálaráðherrans, til Kýpur og viðræður hans við Makarios erkibiskup mundu leiða til aukins skilnings milli Breta og Kýpurbúa. Vonirnar brugðust. Mynd þessi var tekin, er Makarios (t. v.) og Lennox-Boyd ræddust við í Nicosíu. Mennirnir fimm, sem fórust með bátnum, voru allir að einum undanteknum fjölskyldumenn og láta eftir sig konur og ung börn. Mennirnir, sem fórust, voru þessir: Nói Jónsson, skipstjóri, 41 árs og lætur eftir sig konu og tvö ung börn. Hann átti heima í Hólmgarði 29. Hermann Sigurðsson, útgerð- armaður bátsins, Sólvallagötu 41, 34 ára. Hann lætur eftir sig konu og tvö börn, hið eldra 11 ára. Hákon J. Hákonarson, 24 ára, Rauðahvammi við Baldurshaga. MAKARIOS ERKIBISKUP FIUTTUR BROTT FRÁ KÝPUR I HAFDI | Kýpurbúar hringdu kirkjuklul kunum — en Aþeningar stotnuðu til óeirða Nícósíu, Aþenu og Lundúnum, 9. marz. IDAG var Makarios erkibiskup á Kýpur fluttur í útlegð frá eynni ásamt öðrum atkvæðamiklum kirkjuleiðtoga, biskupin- um af Kyreníu og tveim öðrum áhrifamiklum klerkum. Lýsti John Harding, landstjóri Breta á Kýpur yfir, að þeir hefðu staðið í vegi fyrir því, að hægt væri að koma á friði á eynni. Voru þessir fjórir menn fluttir brott í brezkri sprengjuflugvél, og voru þrír brezkir lögregluþjónar í fylgd með þeim. Enn er ókunnugt um, hvert þeir i hafa verið fluttir. Fréttin um brottflutning erki- biskupsins kvisaðist fljótt um eyna, og virtist svo sem henni væri tekið með stillingu. Kirkju- j klukkium var þó hringt víða um eyna. Sagt er, að hinn 43 ára gamli erkibiskup, sem frá upp- hafi hefur staðið í fylkingar- broddi þeirra Kýpurbúa, er bar- izt hafa fyrir sameiningu Kýpur við Grikkland, hafi tekið hand- tökunni með stillingu og ró. o—A—o Ætlaði erkibiskupinn í dag flugleiðis til Aþenu til viðræðna við gríska forsætisráðherrann Karamanlis. Ók hann til flug- vallarins um hádegið, en þar var liafa ekki bcnt á leiðir til þess að afla tekna til hinna auknu niðurgreiðslna. En ráðherr- ann benti einmitt á, að unnt myndi vera að draga nægi- lega mikið úr einstökum út- gjaldaliðum fjárlaga til þess að hægt væri að mæta niður- greiðslunum. Og hver trúir því, að á 660 millj. kr. fjár- lögum sé ekki hægt að spara 21 millj. kr., sem þarf að afla til hinna nauðsynlegu ráðstaf- ana. Á ÞAÐ MÁ ennfremur benda að áætlanir Eysteins Jónssonar um tekjur ríkissjóðs undan- farin ár hafa ekki ævinlega staðizt. — Mjög verulegur greiðsluafgangur hefur orðið sl. tvö ár. Er það út af fyrir sig ánægjulegt og gagnlegt. Mætti því ætla að tekjuáætlun fjárlaga sé að þessu sinni það rúm að hægt væri að greiða niður verðlagið án þess að leggja á nýjar álögur til þess að framkvæma þá stöðvun vísitölunnar og dýrtíðarinnar, sem Sjálfstæðismenn hafa gert tillögur um, til þess að tryggja rekstur framleiðslu- tækjanna á þessu ári. brezka lögreglan fyrir, og var hann fluttur brott í bíl ásamt hinum þrem kirkjuleiðtogunum. Brezku lögregluþjónarnir sáu þó um, að hann fengi að taka far- angur sinn með í útlegðina. Flugvélin til Aþenu hóf sig til flugs, án þess að Markarios væri innanborðs. Aþeningar tóku þessari fregn ekki með sömu rósemi hugans og Kýpurbúar. Þegar skömmu eftir þennan atburð kom til óeirða á götum Aþenu. Fjöldi manna safnaðist saman á göt'um úti og hrópuðu menn: „Lengi lifi Makarios“ og „Burt með Breta“. Lögreglan varð að skerast í leik- inn. Hafði þá þegar verið settur öflugur lögregluvörður um brezka sendiráðið. Karamanlis boðaði stjórnina saman til sér- i staks fundar, og er þess vænzt, : að gríska stjórnin gefi út opin- bera yfirlýsingu um atburð þenn an innan skamms. o—★—o Um sama levti og erkibiskup- , inn var handtekinn fóru brezkar liðssveitir til bustaðar hans inn- an gömlu borgarmúranna í Nícósíu og gerðu þar húsrann- sókn. Var síðar tilkynnt, að þar hefðu fundizt vopn, skotfæri og áróðursbréf. Jafnframt hefði ) verið þar fyrir prestur, er hafði á sér marghleypu innan klæða. í morgunsárið höfðu brezk yfirvöld þegar fyrirskipað um- ferðarbann í nokkrum stærstu bæjum Kýpur. Jafnframt fengu engir nema brezk yfirvöld og FrK á bls. 2 Hann lætur eftir sig konu og þrjú börn, hið elzta 4 ára. Hermann Dagbjartsson, Sel- búðum 7, rúmlega tvítugur. Hann lætur eftir sig barn. Sveinbjörn Sigvaldason, 30 ára, var nýlega fluttur suður í Garðahrepp, en átti áður heima við Ægissíðu hér í Reykjavík. Hann var maður einhleypur. MISSTI BJÖRGUNARBÁTINN Vélbáturinn Vörður hefur að undanförnu verið á loðnuveiðum. í ofveðrinu í fyrrakvöld, leitaði hann hafnar í Þorlákshöfn. Hafði báturinn þá misst út björgunar- bátinn, gúmmíbát, eins og almennt tíðkast nú orðið á fiski- bátunum. Árdegis í gær lagði báturinn úr höfn þar eystra. Var ferðinni heitið til Reykjavíkur. Úti fyrir var þungur sjór. VÉLIN BILAÐI Klukkan var um 10 þegar neyðarkall heyíðist frá Verði. — Vélin hafði þá bilað og skips- mönnum tókst ekki að koma henni í gang. Báturinn gaf upp staðarákvörðun, en vindur stóð á land og var báturinn tekinn að reka. Hann mun þá hafa verið skammt undan landi. Ekki var hægt að tala við þá Varðar-menn því móttakarinn hjá þeim var í ólagi. HJÁLPÁ VETTVANG Vélbáturinn Friðrik var þá í Þorlákshöfn og fór hann af stað skömmu síðar. Þegar hann kom á þær slóðir er Varðar-menn höfðu gefið upp, var þar engan bát að sjá, enda mun slysið þá hafa orðið um líkt leyti. Hópur manna fór frá Þorláks- höfn af stað meðfram strönd- inni, til þess að reyna að veita Varðar-mönnum hjálp ef bát þeirra ræki upp. Klukkan að ganga tólf sást til bátsins frá Selvogsvita, skammt undan landi, en þar framundan er skerjótt mjög. Um klukkan 11,30 barst báturinn fyrir vindi og sjó inn í brimgarðinn fram- undan Selvogsvita. — Þar hvolfdi honum og brotnaði þá mjög ofanþilja. — Öll- um skipverjum skolaði þá út og komst enginn þeirra lífs af úr brimgarðinum. — Flaki bátsins skolaði á land síðdegis. í gærkvöldi hafði ekki fundizt neitt lík hinna , drukknuðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.