Morgunblaðið - 10.03.1956, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.03.1956, Blaðsíða 2
\ 2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 10. marz 1956 Sinfóníáljómsveitin endurreist MENNTAMÁLAP ÁÐHERRA gekk í gær endanlega írá skipun nýrrar stjómar fyrir Sinfóníuhljómsveitina. Skipaði hann í'ormann Tónlistarfélagsins, Ragnar Jónsson, formann hennar, en meðstjórnendur eru dr. Páll ísólfsson og Vilhjálmur Þ. Gíslason eftir tilnefningu Ríkisútvarpsins, Guðlaugur Rózinkranz frá Þjóðleik- húsinu, Baldui’ Andrésson frá Reykjavíkurbæ og Þorsteinn Hannes- eon söngvari eftir tilnefningu fjármálaráðherra. Hin nýja stjórn mun sam- Btptidis taka til starfa og vænt- nniega verður þess nú ekki langt tað biða að tekið verði til óspilltra rriálánna að undirbúa fyrstu tón- leíjia hennar. Sveitin hefur ekki utaíifað síðan i byrjun október á haust. BÆún hin nýja sinfóníuhljóm- sveit verða sjálfstæð stofnun með eigin stjóm. Nýtur hún all- ríflegs styrks frá ríki og bæ en aðalaðstandendur bennar munu eins og áður verða Þjóðleikhúsið og rikisútvarpið og þó sérstak- lega ríkiaútvarpið, enda á það tvo fulltrúa í stjórn hennar. S/ö málverk eftir Ásgrím seld á 94.000 krónur Það dýrasia var s/egið á 24 þús. kr. MVNUTR Ásgrims Jónssonar vorú eftirsóttastar á listmuna- uppboði Sigurðar Benediktsson- nr i gær. Dýrasta myndin, Tré og skógarsvörður, var slegin á 24 þús. krónur og sú næsta, Úr JÞingvallasveit, á 22 þús. kr. Hin- «r myndimar, en þær voru alls «jö, fóru á 7—14 þús., en heildar- upphæðin nam kr. 94.500.00. Er þetta sérstæð málverkasala. Tvö málverk eftir Kjarval, Úr Nwrðurárdal í Borgarfirði og Frá Þingvöllum, fóru á 7000 og 7500 krónur og þrjár kolteikningar oftir hann voru slegnar á 1200— 2300 krónur. Työ málverk eftir Kristínu ■íonsdóttur, Blóm í könnu og Séð Russar vii) sama heygarðshGrniö — í norskri iandhelgi ÁLASUNDI, 9. marz — Rúss- neskt veiðiskip var í morg'un tekið í norskri landhelgi. Stóð norska landhelgisgæzlan það að óíöglegum veiðura í land- helgi í grennd við Svíney, Var þegar farið iheð rússneska af Laufásvegi voru seld á 3700 og 3800 krónur. Alls voru seld þarna 34 mál- verk og teikningar, og fór það ódýrasta á 200 krónur. Akraborg heldur heimlelðis eflir viku AKRABORG, hið nýja flóaskip, sem Reykvíkingar og Akumes- ingar bíða nú með óþreyju, mun leggja af stað frá Danmörku 17. þ. m. Skipið fór í reynsluför í fyrradag. í þvi eru tvær 500 hest- afla Ruston-dieselvélar og það útbúið með tveimur gangskrúf- um. Ganghraði skipsins reyndist vera 13 sjómílur á kiukkustund. Akraborg hefur verið byggð í Marsdal í Danmörku, hjá H. C. Christiensen stálskibsværk. Um- sjónarmaður með verkinu, fyrir hönd Skipa- og vélaeftirlitsins hér, hefur verið Erlingur Þor- kelsson vélfræðingur, og var hann með í reynsluförinni. Lounodeilan í Bnnmörk óleyst BIRKEROD, 9. marz — í morgun urðu iðnaðarmenn í Danmörku við beiðni sátta- j semjara um að fresta áður ákveðnum verkföllum um eina viku. Reyndist þetla nauðsyn- legt, því að sáttasemjaranum heflar ekki unnizt tími til þess að þrautreyna sainningaleið- ina. Ekki er búizt við að lausn þessarar víðtæku launadeilu fáist fyrr en eftir páska. I ---------------- ! Stortjón nf völdnm óveðurs í Snæfellsnessýsln og Dnlnsýslu Þek fuku af penigshúsum og um 30 fjár férst udir vegg er hrundi Búðardal, 9. marz, IGÆR og nótt geisaði hér fárviðri af suðri og suðvestri. Ufðu víða nokkrar skemmdir á mannvirkjum. Þök fuku af penings- húsum og hlöðum, símalínur slitnuðu og á einum bæ hrundi fjár- húsveggur yfir um 30 fjár, og fórst það allt. Frh. af bls. 1 öryggislögreglan að nota símann, og rofið var allt síma- og skeyta- samband við Grikkland. o——o Aðalfulltrúi Grikkja hjá S. Þ. Christian I’almas, lét svo um- mælt í dag, að brottflutningiar erkibiskupsins veiti hinum frjáisa heimi i heild þyngra högg en Kýpurbúum sjálfum. Kvað hann líklegt, að Grikkir mundu enn fara fram á að Kýpurmálið yrði rætt í S. Þ. Þessar aðfarir Breta munu ekki hafa komið GryKkjum ein- um að óvörum. Bandaríska ut- anríkisráðuneytið neitaði að segja nokkuð um málið — eins og nú stæðu sakir — mun þetta hafa komið bandarískum stjórnmála- mönnum mjög á óvart. Stj órnmá lamenn í Rundúnum segja, að útlegð Makariosar boði, að brezka stjórnin hyggist taka Kýpurmálið föstum. töKum. Hugh Gaitskell, leiðtogi brezku stjórn- arandstöðunnar, kvaðst harma mjög þessar aðfarir stj órnarinn- ar á Kýpur Kvaðst hann álíta þessar aðgerðir heimskulegar. í grelnargerð, sem Harding landstjóri gaf út í dag segir, að Makarios hafi sjálfur gengið fram í því, að vopn værn keypt í Gribklandi handa skærtuliðum á Kýpur fyrir fé, er safnazt hafði meðal grísknmælandi manna i Randaríkjunum. Einnig hafi erkibiskupinn látið prenta flug- rit gegn Bretum á erkibiskups- BAGÐAD, 9. marz Brezki ut-, Setrinu í Níeósíu og þangað hafi anríkisráðherrann kom í dag til einnig verið selflutt vopn og Bagdað á leið sinni til Karachi, spreng}ur. þar sem hann hefur setið ráð-j Harding segir enmremur, að stefnu Suðaustur-Asíutoandalags- hann hafi rætt við Makarios ins. Lét hann svo ummælt á J um framtíð krúnunýiendunnar, blaðamannafundi, að viturlegt. enda þótt allar líkur bentu til skipið í höfn — og kom það hefði verið af írak að gangast, þess, að erkibiskupinn tæki þátt til Alasunds um átta leytið í fyrir stofnun Bagdaðbandalags- j { skemmdarverkastarfsemi á kvöld Þess er vænzt, að rann-1 ins og mundi það ekki aðeins | eynni. Hafi hann gert það í von sókn málsins hefjist þegar í efla öryggi íraks heldur og ann-: Um, að Makarios fengist til að kvö!d, Þetta skip var ekki arra landa. Selwyn Lloyd sat í: fordæma slíkar aðfarir. Undan- meðal sextán rússnesku skip- dag fund fastaráðs bandalagsins farna 5 mánuði ____ meðan við- anna. er tekin voru í norskri í Bagdað. Hun Lloyd einnig hitta rægur Breta og Kýpurbúa hafa landhelgi á dögunum. að máli Faisal konung og for- staðið. vfír — hefðu enn komið —Reuter-NTB. sætisráðherra íraks, Nuri es Said. fram ýmsar sannanir fyrir því, að Makarios styddi EOKA — sam- tök skemmdarverkamanna. Lýkur greinargerðinni með þeim orðum, að augljóst sé, að erkibiskupinn geti ekki eða vilji ekki hætta liðsinni sínu við skemmdarverkamenn, þar sem hann hafi ekki fengizt til að fordæma það tiltæki skemmdar- verkamanna að reyna að tortíma ! brezkrí farþegaflugvél á dögun- i um. Áttu 70 brezkir þegnar að ; fara með þessari flugvél. Álítur landstjórinn því, að erkibiskup- inn standi svo eindregið í vegi fyrir öllum tilraunum til að friða eyna, að koma verði í veg fyrir, að áhrifa hans haldi áfram að gæta á eynni. Biskupinn af Kyreníu, einn af helztu leiðtogum ENOSIS — sameiningar við GrikKland, lýsti j því yfir opinberlega, að hann j væri andvígur öllum viðræðum j við Breta. Ekki þyrfti að ræða þetta mál, Kýpur eigi óvéfengj- anlega rétt á því að sameinast Grikklandi. Segir í greinargerð- inni, að hann hafi hvatt Kýpur - þúa til víga og misnotað stöðu sína sem áhrifamaður innan kirkjunnar. Harding asakar hina klerkana tvo, er fluttir voru í útlegð, fyrir að æsa til óeirða. STORKOSTLEGUR SKADI Það var á Hörðabóli í Mið- ! dalshrenpi, er mestir skaðar áttu ! sér stað, en þar býr Guðmundur Kristjánsson myndskeri. Þar íuku þök af hlöðu og fjárhúsi, enj hvort tveggja var nýtt, byggtj 1953—1954. Einnig hrundi fjár- húsveggurinn, sem fyrr er sagt, yfir um 30 kindur og eitt folald og fórust allar skepnurnar. SÍMALÍNUR SLITNUDU Brak úr peningshúsaþökunum fauk á símalínur og slitnuðu þær. í dag er unnið að björgun skepna og verðmæta. Hefur fenu sem af komst, verið komið fyrir á næshs bæjum til bráðabirgða, en fjár- húsið er svo að segja ónýtt, a. m. k. ónothæft sem stendur. ÞÖK FUKU VÍÐA Vestur á Tjaldanesi í Saurbæ, fauk þak af nýrri hlöðu hjá Kristni Steingrímssyni bónda. Brakið íauk einnig a símalínu og sleit hana og hraut einn síma- staur og olli ýmsu meira Ijáni. Á Innra-Leiti á Skógarsfcröaá fauk þak af fjárhúsum og hlöðm að nokkru. Á nokkrum fleiri stöf um mun lítilsháttar tjón hafa hlotizt af fárviðri þessu, ■—E.G.Þ. Hvernig bregzt Hussein bonnngu við vmnrbrögðum Nnssers ? Mun hann þurfa á hjáln að halda gegn hinum nýju „bandamönnum“ AMMAN og KAIRÓ, 9. marz. — Forsætisráðherra Sýrlands, Said el Ghazzi, sneri í dag aftur flug- leiðis til Kaíró eftir að hafa dval- ið í nokkrar klukkustundir í Amman, höfuðborg Jórdaníu. — Flutti hann Hussein konungi Jórdaníu skilaboð frá þrem arabiskum þjóðhöfðingjum, Gam el Abdel Nasser, forseta Sýrlands og konungi Saudi-Arabíu, er nú sitja á rökstólum í Kaíró. Ekki er kunnugt um, hver skilaboðin voru, en almennt er litið svo- á, að Gamel Abdel Nasser hyggist nota sér ástand það, er skapazt hefur í Jórdaníu vegna brott- vikningar Glubbs „Pasha“. Sé þetta fyrsta skrefið í þá átt. — Enginn vafi þykir leika á því, að þessir þjóðhöfðingjar vilji tengja Jórdaníu fastari böndum við önnur arabísk ríki, hvernig svo sem Hussein konungur snýst við því. ★ LUNDÚNUM, 9. marz. — Á meðan sæmdi Elisabeth Breta- drottning Glubb „Pasha“, fyrr- Bindindissýningin opnuð á Akranesi íræUskvikmynd sfnd með sfningunni dag hvern Akranesi, 9. marz. BÍNDINDISSÝNING, sams konar og haldin var í Reykjavík og víðar, var opnuð í félagsheimili Templaxa á Akranesi, föstu- ■ílaglnn 9i þessa mánaðar, ki, 2 eftir hádegL Gerði það Ólafur B. Bjömsson, með stuttri ræðu. FRÆRSLUKVIKMYND Auk áfengisvarnaráðs standa að sýningunfii áfengisvamanefnd Akraness, þingstúka Borgarfjarð- nr og stúkan Akurblóm á Akra- nesi. Sýningin er bæði uppi og mðrí í félagsheimilinu og verður • >prn á hverjum degi til næsta þriðjudagskvölds frá kl. 9—12 úrdegis fyrír skólana og 2—10 (iíðdegis fyrir almenning. í sam- bandi við sýnínguna verður sýnd t'ræðslukvikmynd kl. 9 á hverju kvöldi MIKIÐ H/EGT AÐ LÆRA Sýninganefnd skipa: Ólafur B. Björnsson, Óðinn S. Geirdal og Þorleifur Bjarnason. Sýningar- stjóri er Sigurður Eyþórsson frá Reykjavík. Bindindisfélög hafa verið starf andi á Akranesi óslitið síðan um 1880 til þessa dags. Gullvægasta regla þeirra er: „Drekkið aldrei fyrsta sopann". Akurnesipgar, yngri sem eldri, geta mikið lært af sýningunni um það böl, sem áfengið leiðir yfir mennina. — Oddur. Finnskir verkfallsmenn reyna að stöðva flugsamgöngnr HELSINGFORS, 9. marz — Alit var með kyrrum kjörum í Finnlandi í dag — níunda dag allsherjarverkfalisins. —! Verkfallsmenn höfðu sig hvergi 1 framml. Benzínsölu var haldið áfram og aðhöfðust verkfallsmenn ekkert til að hindra hana. Aftur á móti hef- ur verkfallsnefndin í Helsing- fors enn hafizt handa um að reyna að stöðva flugsamgöng-| ur til Stokkhólms. Heflur til þessa tekizt að halda þeim uppi vegna ráðstafana, er samgöngumálaráðuneytið gerðl. Sáttanefnd ríkissijórnarinn- ar hefur í allan dag setið á fundum með fulltrúum vinnu- j veitenda og verklýðsfélaga, en enginn árangur náðist. Sátta-| fundum verður haldið áfram; á morgun. Enn er ógerlegt að spá, hvort verkfallið dregstj mjög á langinn. —Reuter-NTB. verandi herforingja arabísku her- deildarinnar í Jórdaníu, Bath- orðunni — einni æðstu orðu, er veitt er í Englandi fyrir hreystt og hugrekki. í dag birtist i brezka stórblaðinu Times bréf frá Glubfo ,,Pasha“. Segist hann vona, að brottvikning hans leiði ekki til óviturlegra aðgerða af hálfu Breta gegn Jórdaníu. íhuga þurfi málið vandlega og æsingalaust, Skýrir hann frá tveim ástæðum, er kunna að hafa valdið því, að Hussein konungur vék honum úr hershöfðingjaembættinu: Hefði konungurinn víljað efla herám meir en Glubb þótti ráðlegt, og einnig hefðu Sýrland og Saudi- Arabía lagt allt kapp á, að honum yrði vikið brott Forráðametm þessara landa hafa enga dul dreg ið á, að þeir vildu Glubb brptt frá Jórdaníu. Kvaðst hann vænta þess, að Sýrland og Saudi-Arabla mundu á ýmsan hátt reynast Hussein konungi þungur í skauti, og mundi hann ef til vill þurfa á hjálp að halda „gegn þessum bandamöimum" sínum. Aðalfuitdiir Skrlf- sfofu- oa Verzlun- armfél. Suðuntesfa AÐALFUNDUR Skrifstofu- og Verzlunarmannafélags Suður- nesja var haldinn fimmtudaginn 23. febrúar s. L að Tjarnarlundi 1 Keflavík. Tekin voru fyrir alinewn oðaí- fundarstörf. Er hagur félagsins 4 miklum blóma og mikill áhugs félagsmanna á máleínum sin- um og kom það glöggt í ljóe & aðalfundi, enda var hann óvenju- lega vel sóttur. Kosin var ný fclagsscjóm. Hana skipa eftirtaldir mcnn: Einar Karl Magnússon, form., Andrés Þorvarðarson, varaform., Eirík* ur Sigurbergsson, ritaii, Halldór Guðmundsson, gjaldkeri. Með stjómendur: Frosti B j arnazon, Guðm. Magnússon og Guðni Jónsson. Trúnaðarmaður félags- ins: Bent Óskarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.