Morgunblaðið - 10.03.1956, Síða 7

Morgunblaðið - 10.03.1956, Síða 7
Laugardagur 10. marz 1956 MORGUNBLAÐID 7ö) Hóf útgerÖ 16 ára með því að kaupa 775 kr. hlut i áttœring ÞAÐ var með nokkrum ugg, að ég gekk á fund Gísla J. John- sens, síórkaupmanns, í Túngötu 7. Það er aldrei að vita, hvernig þessir fullorðnu menn, sem um áratugi hafa verið brautryðjend- Hr á sviði framíara og nýunga nr á eviði framfara og nýjunga — og átt sinn stóra þátt í að leysa þjóðina úr fiötrum eymdar og athafnaleysis og vekja með henni stórhug og framfaravilja, tækju ungum mönnum sem enga mis- jafna tíma þekkja. f hópi þessara manna er Gísli J. Johnsen, sem fi dag er .75 ára. Uggur minn var ástæðuiaus. Það var þægi- legt og skemmtilegt að heyra þennan athafnamann segja frá athafnaárum sínum. Sú saga öll er ævintýri lík. ★ UPPVAXTARÁR Hann ólst upp í Vestmanna- eyjum hjá foreldrum sínum, Jó- hanni Jörgen Johnsen, veitinga- og útgerðarmanni, og Sigríði Árnadóttur. Bjuggu þau í stóru og glæsilegu húsi er Frydendal var kallað og stendur það enn. Gísli var elztur 5 bræðra, en 2 þeirra eru nú látnir. Hinir tveir er lifa, eru Sigfús, fyrrv. bæjar- fulltrúi í Vestmannaeyjum, og Árni, kaupmaður þar. Þegar Gísli var 12 ára gamall, lézt faðir hans. Móðir hans stóð þá ein uppi með drengina fimm, þann elzta 12 ára og þann næsta 7 ára, hina enn yngri. — Það var þá strax, sem ég varð staðráðinn í að verða að einhverju liði — komast áfram, sagði Gísli. Og þegar ég var 16 ára eignaðist ég hlut í vertíðar- skipi. Þar með hófst atvinnu- rekstur minn. Skipið hét Björg og var áttæringur. — Hvemig atvikaðist það, að þér svo ungur gerðust útgerðar- maður? i ★ 16 ÁRA ÚTGERÐARMAÐUR — Það var aðallega vegna þess, að ég þótti duglegur að út- vega beitu. Formaður á Björgu átti skipið einn að mestu og seldi mér 1/7 hluta. Beituna útvegaði ég hjá brezkum línuveiðurum. Eg hafði árin á undan notað tímann til að læra ensku mest af sjálfs- dáðum. Gat ég vel gert þeim skilj anlegt að ég vildi kaupa síld af þeim. — Og hvað kostaði þessi hlut- ur í Björgu? — Kaupverðið var 115 krónur. Og það er dálítið skemmtileg saga hvernig á því stóð, að ég átti þær. Hér á landi var þá starf- rækt umboð fyrir líftrygginga- félagið Star. Ólafía Jóhanns- dóttir, landskunn kona, hafði þá með höndum aðalumboðið í Reykjavík. Við vorum frænd- systkini og hún treysti mér til að vera umboðsmaður sinn í Vest- mannaeyjum. Mér gekk bara vel að fá menn til að tryggja sig og ég fékk að launum 20% af fyrsta ársiðgjaldinu og 2% af iðgjalds- greiðslum eftir það. Þannig nurl- aði ég saman eitthvað um 120 krónum og 115 fóru fyrir hlutinn í Björgu. Það voru umboðslaun- in, því ekki reyktu ungir menn ! þá daga og engu eyddi ég í annað. — Hvað tryggðu menn sig hátt fi þá daga? — Allrahæst 5 þúsund krónur — en flestir létu 100 kr. nægja. — Hvernig vegnaði Björgu evo? — Vel. Það endaði með því, að ég lét smíða vertíðarskipi, sem ég var aðaleigandi að. Það skip hét „Nýja öldin“, áttæringur, byggður um aldamótin. Með því skipi var ég kominn í hóp stærstu útgerðarmanna í Eyjum, enda var útgerðin þá ekki mikil, 10—20 vertíðarskip. Ég réð sem formann á „Nýju öldina" ungan mann, um tví- Gísli J. Johnsen stóiknupmaður 75 árn í dag tugt. Slíkt var óþekkt þá Ný vertíðarskip fengu aðeins reynd- ir og færir formenn. Björn Finn- bogason hét hann þessi ungi mað- ur, sem tók við formennskunni, sjógarpur mikill og fiskikóngur. Hann lifir enn. Hann var hepp- inn og reyndist mjög vel. Eftir það var það algengt að ungir menn fengu formennsku. ★ FYRSTl BÁTURINN KNÚINN VÚL — Hver var svo næsta nýj- ungin? — Það var 1904, sem ég lét smíða bát í þeim tilgangi að setja í hann vél. Var það fyrsti bátur- inn hér á landi, sem þannig var gerður. Báturinn var skýrður „Eros“ og smíðaði hann Bjarni Þorkelsson í Reykjavík. í hann var sett 6 hestafla Mollerub-vél. Vélin reyndist vera léleg, en til- raunin varð til þess að bátaflot- inn í Vestmannaeyjum varð allur vélknúinn. Urðu þá fyrir valinu Dan-vélar og átti ég mikinn þátt í útvegun þeirra. Hafði ég fyrst keypt Dan-vél í „Eros“, en með- eigendum mínum leizt að óreyndu betur á hina vélina. ★ UMBÆTUR Á ÝMSUM SVIÐUM Síðan beindist samtal okkar Gísla frá einstökum tilraunum, sem hann var „potturinn og pann an“ í, að almennari málum til umbóta og öryggis, en Gísli sagði að það hefði alltaf verið hans heitasta ósk að geta orðið að liði í slíkum málum. Fólkið í Eyjum var um aldamótin í einangrunar- fjötrum, sem héldu hagsæld þess í viðjum, sagði hann. En upp úr aldamótunum, þegar vélarnar komu í bátana sá fólkið að eitt- hvað var úr að rætast og Ameríkuferðirnar lögðust niður. Vélbátarnir gerðu menn bjart- sýnni — nýr þáttur í lífi lands- manna var að hefjast. Og nú verður að gera langa sögu stutta. Umbætur á ýmsum sviðum til þess að tryggja öryggi og aflagetu bátaflotans komu nú hver af annarri, og það var Gísli, þá rösklega tvítugur, sem var að'- almaðurinn í flestum þeirra. 1907 stóð hann fyrir byggingu vélaverkstæðis og það var meðal þeirra fyrstu í landinu. Þetta var nauðsynlegt spor nú, þegar vélar voru að koma í alla báta. En fagur floti, jafnvel með ný- viðgerðar vélar dugði lítið, ef eng in var beitan. Á henni var oft skortur. 1908 var Gísli aðalhvata- maður að byggingu frystihúss með vélum í Eyjum. Það var hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. — Þetta mætti talsverðri mót- spyrnu, sagði Gísli. Mönnum þótti svo djarft teflt, að nærri stappáði að byggðarlaginu væri steypt í fjármálalegt öngþveiti En menn hættu mótspyrnunni þegar þeir sáu hvaða þýðingu húsið hafði. Þegar ráðizt var í byggingu fiskimjölsverksmiðju 1913 mætti það einnig nokkurri mótspyrnu. Ég held, sagði Gísli, að það hafi verið hin fyrsta er landsmenn réðust í að byggja. Nú þykir sjálfsagt, að slík verksmiðja sé í hverri verstöð. Fiskimjölið er stór liður í útflutningnum, en áður var hráefninu hent. Meðalalýsisbræðslu hafði Gisli einnig forgöngu um að reisa í Eyjum. Það var skömmu eftir aldamótin. Fékk hann hingað norska kunnáttumenn til að annast það verk. ★ GÖBUR HAGUR FÖLKSINS ER ÖLLU BETRA — Þér höfðuð ýmis afskipti af menningar- og mannúðarmál- um? „ 1924—1927 stóð ég fyrir byggingu sjúkrahúss Vestmanna- eyja. Það sjúkrahús er enn ei.na sjúkrahúsið í Eyjum. Áður höfðu Eyjaskeggjar alltaf þurft að leita lækninga í Reykjavík og var það erfitt, einkum á meðan hafnleys- ið var, því þá var landtaka oft svo erfið að sá batí er náðst hafði i Reykjavík hvarf vegna volks við iandtökuna. Svo var það sæsíminn. Þegar hann kom til landsins 1906 var mikið um það deilt, hvort leggja aetti streng til Eyja. Deilurnar stóðu, unz við Vestmannaeyíngar lögðum á eigin kostnað sæsíma- streng til Rangársands 1911 og landlínu til Gaiðsauka í Hvols- hreppi. Þá vorum við komnir í samband við land og umheiminn. ★ VERZLUN í STOFU HEIMA HJÁ SÉR En hvenær hófuð þér verzlunina? — Ég var þá 18 ára. Það var árið fyrir aldamótin. Ég varð fyrst að verzla í nafni móður minnar, því ég var of ungur. Síðan skrapp hann frá, og sagði úm leið, að hann hefði gaman af að sýna mér, hvað við íslending- ar vorum eiginlega smáir þá. — Hann kom aftur með myndug- leikaleyfi, sem Kristján níundi Danakonungur hafði veitt honum 9. janúar 1902. Það var hið skraut legasta skjal. En þetta sýnir ung- um mönniun í dag, sagði Gísli, hve við ungu mennirnir í gamla daga vorum hörðu beittir. Þetta litla leyfi varð að sækja til Kaup mannahafnar. Á íslandi gat eng- inn veitt slíkt leyfL Verzln mín hófSt með því að kaupa vörur af Edinborgarverzl- un — vefnaðarvörur. Ég fékk svo eina stofuna í Frydendal og opn- aði verzlun. Það gekk vel og verzlunin stækkaði ört. Ég setti mér það takmark að hafa allt það á boðstólum sem fólk spm-ði um. Alla tíð síðan hef ég verzlað. Ég ætlaði 1919 að reyna að gera um- bætur í ohuverziuninni. Keypti hingað geyma, svo hægt væri að taka á móti heilum förmum í einu. Áður var allt flutt í tunn- um hingað til lands, rýrnaði mik- ið og var dýrara. Geymarnir voru aldrei settir upp I Eyjum, því þá var landsverzlunin sett á stofn og hún tók geymana. En i framhaldi af þessu, komst Shell stöðin í Skerjafirði á fót. Það var mikil umbót. Samhliða verzluninni vann Gísli stöðugt að því að gera báta- flotann hæfari til sjóróðra og auka á öryggi hans. Var hann brautryðjandi í þvi að stækka bátana og fyrstur manna lét hann setja radíótæki í báta. Það var alger nýjung hér og víða annars staðar, að slík tæki væru sett í báta. ★ NÝR ÞÁTTUR f RVÍK — Ég hef alltáf viljað reyna' að bæta úr, sagði Gísli, — að út- vega mönnum betri farkosti og stuðla að þjóðfélagslegum nmbót um. Ég hafði búizt við að ævi mín yrði öll í Eyjum. En hingað flutt- ist ég 1930. Hér hefur mér liðið vel, atazt í mörgu. Var t. d. með- eigandi að Slippfélaginu, Hamri, ísaga og Sjóvátryggingarfélaginu og fleiri fyrirtækjum. En hugur- inn er alltaf í Vestmannaeyjum. Ég spurði Gísla J. Johnsen að lokum, hvort hann- vildi vera ungur í annað sinn og byrja upp á nýtt. — Ég er ungur, sagði Gísli, en ég veit ekki hvort ég vildi byrja upp á nýtt. Ef til vill væri ég enn þá til í að taka á einhverju sem illa hefur gengið og reyna hvort hægt væri úr að bæta. ★ ★ ★ Þannig fórust athafnamannin- um orð. Á 75 árum hefur hann afkastað meiru en margir þrír eða fjórir, sem náð hafa sama aldri. Ævi athafnamannsins er viðburðarík, — hér hefur aðeins verið stiklað á því stæi'sta. A. St. Sætaáklæði Sætaáklæði Zodiac — Zephyr — Consul Prefect — Anglia Vönduð og falleg ullarsætaákiæði, i mörgum litum, höfum við fengið í ofangreinda bíla. — Getum útvegað samskonar sætaáklæði í flestar tegundir evrópskra bíla. Sætaáklæði í ameríska bíla einnig fyrirliggjandi. Kr. Kristjánsson hf. Lauðavegi 168—170 — Sími 82295 þoð eykui 6 weKíðan monns oð vera vel rokoðui W P. takkrem et éviðjofnanlego gott MOtiGliNWN BVPJ/M Heildsölubirgðir Eggert Kristjáusson & Co. h.f. TiL LEIGD 8 herb. og eldhús (ea. 90 ferm.), ásamt rúmgóðu lofti til leigu í Vesturbænum. — Hitaveita. — Fyrirfram- greiðsla áskilin. Tilboð, sem tilgreinir fjölskyldustærð ásamt möguleikum á fyrir- framgreiðslu, sendist blað- inu fyrir þriðjudagskvöld, merkt: „Fámennt — 949“. Síðasti ÚSsoludagur í dag. Lífil sœlgætisgerð er til sölu ásamt formum, pappír og alls konar um- búðpm. Tilboð sendist afgr. \fbl. fyrir 14. þ.m., merkt: „1313“. — Ibúð óskast Góð 3ja til 5 henb. íbúð ósk ast sem fyrst, fyrir fá- menna fjölskyldu. Góð um- gengni. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. í síma 8088..— Pússtvingasandur Símí 9210. — Moraunblaðið með morgunkattinu — ^ BEZT t» AUGLfSA I MORGUJVBLAÐUSU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.