Morgunblaðið - 26.06.1956, Síða 2
2
MORCUKBLAÐIÐ
?>riðjudagur 26. júní 1956
Utan út heimi
Hvað gerðist kosningavikuna
' r'
Oiriðaiblikar Samkomulagsltorfur Austur og
í Austurlöœáum á Kýpur vestur
Frakkar Krúsjeff —
— Algier Stalin
FRÁ AUSTURLÖNDUiVÍ,
einkum Israel og Egyptalandi, er
allra veðra von. Hinn sjötugi for-
sætisráðherra Israels, ofurhuginn
Ben-Gurion, varpaði um miðjan
mánuðinn fyrir borð fyrsta stýrl-
manninum á skútu sinni, Moshe
Sharett, utanríkisráðlierra, og
kvaðst viija upp frá þessu hafa
óbundnar hendur til þess að gera
ef með þyrfti, „djarfar og óút-
reiknanlegar ráðstafanir."
Moshe Sharett hefir farið með
utanríkismál Israels frá því árið
1946, en raunar þó miklu lengur,
því að hann var forseti ráðgjafa-
nefndar í utanríkismálum, er
Bretar fóru með mál Palestínu.
Moshe Sharett hefir getið sér orð
íyrir að vera gætinn maður og
er landamæraskærurnar voru í
algleymi í vetur og í vor, mun
hafa slegið í brýnu milli lians og
Ben- Gurions. Menn þessir haía
verið nánir samstarfsmenn um
áraiugi, en er Ben-Gurion krafð-
ist þess nú fyrir skömmu, að skipt
yrði um utanríkisráðherra, átli
Sharett ckki annars úrkostar en
að bjóðast til að afsala sér em-
bætti. Stjórnarflokkurinn fór að
vilja Ben Gurions og skipaði
an utanrikisráðherra, frú Myer-
son, scm kunn er að því að fylgja
ráðum Bcn-Gurions. Úr þessu má
þess vegna vænta óvæntra ráð-
stafana í Israel.
Samtímis þessum atburðum,
hefir Nasser, hinn egypski, verið
að styrkja aðstöðu sína, og efla
Arabaríkin að völdusn, til þess
um síðir að ráða niðurlögum hins
unga Gyðingaríkis. í vetur fékk
Nasser flugvélar frá Rússlandi og
var um skeið talið að egypski
flugherinn væri orðinn öflugri en
flugher Israelsmanna. Fyrir
nokkrum vikum fengu Egyptar
„á laun“ nokkra tundurspilla frá
Rússum og nú er talið að floti
Araba sé orðinn öflugri en floti
Israelsmanna.
Það er til marks um hvernig
lærðir Israelsmenn dæma horf-
urnar þarna eystra, að I stað þess
að geta gortað af hinu mikla að-
streymi Gyðinga hvaðan æva úr
heiminum til Palestínu, urðu
stjórnarvöldin að viðurkenna ný-
lega að á annað þúsund Gyðinga-
fjölskyldur hefðu flutt frá Israel
á þessu ári, einkum lærðir menn
og þá aðallega læknar.
ASWAN
Egyptar hafa hug á að leggja
stíflu í Níl og rcisa orkuver, sem
kosta á miljarða króna en Egypta
vantar fé og verkfræðilega ráð-
gjafa til þess að framkvæma
þetta verk, og sú er skoðun
margra að sá aðilinn, hinn aust-
ræni eða sá vestræni, sem féð
lánar, muni eiga mest ítök í
Egyptalandi í náinni framtíð.
Þcssvegna er ekki ófróðlegt að
fylgjast með gangi Asvvanstífl-
unnar.
KYPUR
IIELDUR þykir rofa í lofti í Kýp-
urmálinu. Raunar logar í óeirð-
um á eynni og mcstu grimmdar-
verk eru framin þar, en tvcnnt
þykir þó spá góðu. Makarios erki-
biskup hefir í bréfi harmað örlög
hinna mörgu, sem bíða líftjón á
eynni, og spurt, hvort ekki sé
betra a leita samkomulags, held-
ur en að svo fari fram, sem stefn-
ir. Hitt er að gríska kirkjuráðið
á Kýpur heflr boðist til þess að
ræða „leynilega“ hverjar þær til-
lögur, sem Bretar kunna að leggja
fram til lausnar á Kýpurdeilunni,
og senda tillögurnar síðan til
Makariosar erkibiskups með álits
gerð frá sér. Er þess að vænta,
að Bretar leggi fram nýar til-
lögur í þessari viku.
Til marks um liinar ströngu
friðunarráðstafanir, sem Sir John
Harding leggur á eyjarskeggja,
má nefna að hann gerði í vikunni
sem leið ibúum í Farmagusta að
greiða 35 þús sterlingspund í sekt
fyrir að neita að gefa upplýsingar
um liermdarverkamenn í borg-
inni.
Margir af leiðtogum hermdar-
verkamanna hafa verið hand-
teknir undanfarið, en aðalleiðtog-
inn, Grivas, er enn frjáls maður.
VESTUR OG AUSTUR
ÁTÖKIN milli vestursins og
austursins liafa undanfarið farið
fram einkum á tveim vígstöðum,
1) á Þýzkalandsvígsíöðvunum og
2) í Austurlöndum nær.
Dr. Adenauer, hinn áttræði
kanslari V.-þjóðverja, berst nú æ
vonlausari baráttu fyrir þeirri
stefnu sinni, að knýja fram sam-
einingu Þýzkalands með því að
vesturveldin standi saman með
öflugar hervarnir og geri afdrátt-
arlaust kröfu um samciningu á
hendur Sovétríkjunum. Kanslar-
inn var fyrir nokkrum dögum
fyrir vestan haf til þcss að reyna
að fá Bandaríkjamenn til þess að
gefa út á nýjan leik yfirlýsingu
um að engin aívopnun geti átt
sér stað í heiminum fyrr en Þýzka
Iand hefir verið sameinað. Blöð
vestanhafs tóku að þessu sinni
heldur dauflega undir málaleit-
an kanslarans, þótt þau hrósuðu
einum rómi hinum mikla dugnaði
og atfylgi hans. En svo virðist
sem þeirri stefnu aukist byr, að
vænlegasta ráðið til þess að
Þýzkaland verði sameinað, sé að
beinir samningar fari fram milli
Vestur-Þýzkalands og Austur-
Þýzkalands og að V.-Þjóðverjar
iosi að cinhverju leyti um tengsli
sín við NATO.
f Austurlöndum nær hafa Sovét
ríkin hafið nýja sókn á hendur
vestrænum áhrifum þar. Maður-
inn sem mótaði hina nýju stefnu
Sovétríkjanna í Austurlöndum og
réði þvi að Aröbum voru seld
vopn í vetur, hinn nýskipaði utan-
ríkisráðherra, Shepilov, hefir ver-
ið á vilcufcrðalagi í Egyptalandi
og er nú þessa dagana í Litlu
Asíu. Hann ætiar cinnig að koma
við í Grikklandi, sem er eitt
af ríkjum Atlantshafsbandalags-
inns, en á nú í deilum við
annað Atlantshafsríki, Breta.
Talið er að svo geti farið að
Rússar lýsi yfir afdráttarlausum
stuðningi við þá kröfu Arabaríkj-
anna, að landamæri Israelsríkis
verði miðuð við landamæriu, eins
og þau voru árið 1947, þ. e. að
Israel verði minkað um þriðjung
(þessum þriðjungi bættu Gyðing-
ar við land sitt árið 1950, eftir
styrjöldina við Araba.)
Það er ekki eingöngu vegna
Israels að vesturveldin telja sér
mikilvægt að halda góðu sam-
komulagi við Arabaríkin, heldur
gætir áhrifa Arabaríkjanna víða
á alþjóðaþingum, og þá fyrst og
fremst hjá Sameinuðu þjóðunum,
og væri þá hinum frjálsa heimi
hið mesta tjón, ef Arabaríkin
hyrfu inn í fylkingar autrænu
ríkjanna.
ALGIEL
FRANSKA stjórnin hefir náð því
marki sínu að flytja 400 þús.
rfanska hermenn til Algier,
Lacoste, landstjóri Frakka, segir
að nú séu loks horfur á því, að
búið verði að brjóta skæruliða í
Algier á bak aftur fyrir haustið.
Franska stjórnin virðist hafa til-
búnar tillögur um framtíðarsam-
búð Algicrmanna og Frakka og
verða þessar tillögur lagðar fram
strax ag friður er kominn á í
landinu.
Á hinn bóginn virðast líkur
fara minnkandi fyrir því, að Al-
gierbúar sætti sig við minna hcld-
ur en algert fullveldi lands síns.
Svo að ekki virðist séð fyrir end-
an á hernaðaraðgerðum í Algier
um sinn.
KRUSJEFF — STALIN
EINHVERSKONAR uppgjör,
línudans eða leikaraskapur á sér
nú stað í málefuum kommúnista
vestan og austan járntjalds.
Kommúnistaflokkar Ítalíu, Frakk
lands og Bretlands hafa síðustu
dagana allir tekið undir ásakanir
Krúséffs í garð Stalin, en jafn-
framt hafa þeir gagnrýnt og kraf-
izt þess að hann gefi hinum vest-
rænu kommúnistum frekari skýr-
ingu á öllu atfcrli Stalins og á
því hvers vegna núverandi leið-
togar Sovétríkjanna gerðu ekk-
ert á sínum tíma til þess að koma
í veg fyrir grimmdarverk Stalíns.
Ekk ier ljóst hvað fyrir hinum
vestrænu kommúnistaleiðtogum
vakir og fáir trúa því að þeir
muni hafa einurð til þess að ganga
í alvöru í berhögg við flokksfeð-
urna í Moskvu.
nú er brosið
orðið konunglegt
MOSKVA í gær — Leiðtogar Sovétríkjannanna settu upp konunglegan svip í dag
er þeir tóku á nióti íranskeisara og Sorayu drottningu hans. Tuttugu og fimm
vrrustufiugvélar voru sendar til móts við þau, og er það í fyrsta skiptið sem er-
lendir gestir hafa fengið fylgd orrustuflugvéla í Sovétríkjunum. — Kona forseta
Sovétlýðveldisins, Vorosjiloffs marskálks, var á flugstöðinni til þess að taka á móti
keisarahjónunum frá Iran og er það í fyrsta skiptið sem forsetafrúin kemur fram
opinberlega við móttöku opinberra gesta. — í tilefni af flugdegi Sovétríkjanna á
sunnudaginn lét Krúsjeff svo um mælt að Sir Anthony Eden forsætisráðherra Breta
væri mikill stjórnmálaskörungur og einnig lét hann falla lilý orð í garð Eisen-
howers forseta Bandaríkjanna. — Líklegt er talið að Krúsjeff og Bulganin verði
boðið í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna í haust.
Mikil hátáðahöld á
JPatrehsIirði 17. júní
PATREKSFIRÐI, 20. júní: — 17. júní fóru fram hátíðarhöld hér
í kaupstaðnum á vegum hreppsins eins og verið hefur undanfarin
ár. Hófust hátíðahöldin með guðþjWlfústu í Eyrarkirkju. Séra Tómas
Guðmundsson predikaði. Eftir guðþjónustuna hófust útihátíðarhöld.
Ágúst Pétursson oddviti setti hátíðina með ávarpi en héraðslækn-
irinn Hannes Finnbogason flutti hátíðaræðuna.
ÍÞRÓTTIR — REIPTOC
Síðan hófust íþróttir. 400 m
boðhlaup milli Vatneyringa og
Geirseyringa og sigruðu Vatn-
eyringar. Um miðjan daginn voru
kaffiveitingar í Skjaldborg, sam-
komuhúsi staðarins.
Síðar um daginn hóf3t sund-
keppni og sundsýning pilta og
stúlkna í sundlauginni. Að því
loknu fór fram reiptog milli
starfsstúlkna sjúkrahússins hér og
starfsstúlkna í hraðfrystistöð
Kaldbaks. Var togast á yfir sund-
laugina og varð endirinn sá að
starfsstúlkur hraðfrystistöðvar-
innar féllu í laugina.
VERDLAUNAAFHENDINC
>á fór fram afhending sund-
verðlauna og afhenti þau Ágúst
Pétursson. Einnig fór þá fram um
leið afhending taflverðlauna, Tafl
félagsins, og afhenti þau Þor-
valdur Thoroddsen. Þau hlaut
Jenni Ólason, fyrir vinning
í taflmóti félagsins í vor. — Um
kvöldið var dansað í Skjaldborg
og voru góðar veitingar. —Karl.
B & K
til U.5.A.?
BONN í gaer —- Á meðan dr.
Adenauer kanslari V.-I»ýzkalands
dvaldi í Wasliinglon fyrir skömmu
var honum skýrt frá l»yí að því
er heyrst hefur, að Bandaríkja-
stjórn ráðgerði að bjóða Bulganin
og Krúsjeff til Bandaríkjanna í
haust, eða áður en kosningarnar
fara fram í nóvemher.
Stúdentar fra M. A. 1956
lentar voru brautskráðir frá Menntaskólanum á Akureyri 17. júní s.l. Er myndin hér að ofau
nu